Tíminn - 28.03.1990, Síða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 28. mars 1990 Miðvikudagur 28. mars 1990
Tíminn 9
Guðmundur Bjarnason heilbrigöisráöherra kynnir manneldis- og neyslustefnuna fyrir starfsfolki heilsugæslustoðva
Manneldis* og
neyslustefna
gegn kyrrsetu
Eftir
Agnar
Óskarsson
og
óhollu fæði
Guðmundur Bjamason heilbrigðisráðherra
mun á næstu vikum og mánuðum heimsækja
ýmsar heilbrigðisstoínanir landsins, ásamt
fulltrúum Manneldisráðs, til að kynna mann-
eldis- og neyslustefnu. En á siðasta ári sam-
þykkti Alþingi þingsályktun um opinbera
steíhu í þessum málum.
Ráðherra mun kynna stefhuna, ræða ein-
staka þætti hennar og skapa vettvang til
skoðanaskipta um hana, enda er fyrirsjáan-
legt að stefha þessi getur haft mikil áhrif á
störf starfsfólks i heilbrigðisþjónustunni á
næstu árum. Farið er út í þessa viðamiklu
kynningu í þeim tilgangi að fá starfsfólk
heilbrigðisstofnana til samstarfs um að ná
ffam þeim markmiðum sem sett eru.
Jafhffamt er starfsfólkið hvatt til að taka
þátt í hugmyndabanka, sem starfræktur verð-
ur á þann hátt að starfsfólk sendir inn tillög-
ur og ábendingar um útfærslu manneldis-
stefnimnar og á þann hátt beðið um að taka
virkan þátt í verkefhinu.
I tilefhi kynningarherferðarinnar hefur heil-
brigðisráðuneytið í samvinnu við Manneld-
isráð gefíð út kynningarbækling sem ber
heitið „Borðar þú nógu góðan mat?“. Bæk-
lingurinn verður fyrst í stað sendur starfs-
fólki heilbrigðisstétta en þar er bent á leiðir
til hollara mataræðis og hvemig ná megi
manneldismarkmiðum á sem auðveldastan
hátt.
I samstarfssamningi núverandi ríkisstjómar
er kveðið á um að mótuð skuli manneldis- og
neyslustefna. Það kom því í hlut heilbrigðis-
ráðherra að fylgja því máli eftir. Tíu manna
starfshópi, fhlltrúar frá Manneldisráði og
fulltrúar ffá fimm ráðuneytum, var komið á
fót til að vinna að stefnumótun manneldis-
og neyslustefnu. Síðan fór málið fyrir þingið
og var þingsályktunartillaga um manneldis-
og neyslustefnu samþykkt þaðan 19. maí
1989.
Á kynningarfundi
í Hafnarfirði
Tíminn fylgdist með einum þessara kynn-
ingarfunda á Heilsugæslustöðinni í Hafnar-
firði á mánudag. Guðmundur Bjamason
heilbrigðisráðherra sagði í stuttu ávarpi, sem
hann hélt á fundi með starfsfólkinu, að ætl-
unin með þessu kynningarátaki væri að fá
starfsfólk heilbrigðisstofhana í lið með heil-
brigðisyfirvöldum til að fá almenning til að
hugsa ofurlítið um heilsu sína og velferð, um
heilsufar og sjúkdómavamir, og hvemig það
getur sjálft tekið þátt í að bæta heilsu sína og
vellíðan.
Ráðherra minnti á að ýmsir aðrir aðilar í
þjóðfélaginu væm að vinna á þessu sviði,
hvað varðar heilbrigða lífshætti og hefur ver-
ið reynt að fá Ungmennafélag Islands og
íþróttasamband íslands til samstarfs við að
koma boðskapnum á ffamfæri. Þá er Krabba-
meinsfélag Islands einnig með herferð í
gangi í dag, og hefur félagið auglýst „Heilsu-
boðorðin 10“, sem tengjast einnig þeim
áherslum sem manneldis- og neyslustefhan
leggur. Annað forvamarstarf, er einnig lýtur
að heilbrigðari lífsháttum og verið er að
vinna að, em áfengisvamir, tóbaksvamir,
tannvemd, forvamir langvinnra sjúkdóma og
alnæmisvamir.
En af hveiju er verið að leggja svo mikla
áherslu á þessi mál nú? Þessu svaraði ráð-
herra á þann veg að lífshættir fólks hafi
breyst mjög. Við emm meira kyrrsetufólk
miðað við sem áður var og þurfum því að
breyta fæðuvalinu. Þá hafa vinnuaðstæður
breyst. Sífellt færri fara heim í hádegi til að
fá sér að borða og fólk nýtir sér nú meira
svokallað skyndifæði, s.s. samlokur og ann-
að þess háttar.
Fyrir hvetja em þessi manneldismarkmið
og til hverra er ætlunin að ná með þeim?
Guðmundur sagði að hér væm fýrst og
fremst á ferðinni ábendingar fyrir yfirvöld,
fyrir heilbrigðisþjónustuna og einnig fyrir
matvælaframleiðendur og almenning í land-
inu. Meginmarkmiðið með þessu átaki er að
minnka notkun mettaðrar fitu, sykur- og salt-
neyslu, en auka grænmetis- og grófmetis-
neyslu. Ráðherra vildi þó undirstrika að mik-
ilvægast væri að fæðuvalið væri fjölbreytt,
en ekki að banna neyslu á einstaka tegimdum
og boða neyslu annarra tegunda. „Þetta em
leiðbeiningar en ekki boð og bönn,“ sagði
Guðmundur.
Leiðir að hollara
mataræði
Samhliða kynningarátakinu hefur verið gef-
inn út bæklingurinn „Borðar þú nógu góðan
mat?“ Þar kemur ffam að sumir haldi að hollt
fæði sé einhliða og ólystugt. Það er hins veg-
ar mesti misskilningur, þvi úrvalið af hollum
mat er svo mikið að allir geta valið hann eft-
ir smekk. í bæklingnum er bent á nokkur at-
Guðmundur Bjamason heilbrigðisráðherra gæðir sér á „heilsufæði" á heilsugæslustöðinni í Hafnarfirði
þannig sykumeysluna. Að síðustu er varað
við of mikilli saltnotkun, en hún hefur verið
tengd háum blóðþrýstingi. I stað saltsins er
bent á að nota bragðmikinn mat, eins og t.d.
lauk, gulrætur og selleri, til að krydda kjöt og
fisk. Þá er mælt með að nota kryddin í krydd-
hillunni á sem fjölbreyttastan hátt.
Guðmundur Bjamason heilbrigðisráðherra
sagði að það að fara í heilsugæsluna væri
upphafið að kynningarstarfinu, en ætlunin
væri að halda því áffam. Gert er ráð fyrir að
þá nái kynningarstarfið til skólafólks og for-
eldra, starfsfólks í mötuneytum og skyndi-
bitastöðum svo dæmi séu tekin, auk þess
sem ætlunin er að ná samstarfi við ffamleið-
endur um framleiðslu á vörum sem hneigjast
að manneldismarkmiðunum.
Könnun á neysluvenjum
þjóöarinnar
Könnun á neysluvenjum þjóðarinnar hófst í
þessum mánuði og er gert ráð fyrir að gagna-
söfnun hennar ljúki síðla á þessu ári. Könn-
unin er svokölluð viðtalskönnun, þar sem
farið er heim til fólks eða á vinnustaði þess
og rætt við það um neysluvenjur þess. Urtak-
ið er 1700 manns og hefur spyrlunum verið
vel tekið til þessa, sagði dr. Laufey Stein-
grímsdóttir næringarfræðingur á kynningar-
fundinum. Könnun á neysluvenjum fólks
hefur ekki verið gerð hér á landi áður. Hing-
að til hefur verið stuðst við innflutnings- og
ffamleiðslutölur innlendra framleiðenda og
meðal-Jóninn reiknaður út. Könnun þessi
ætti að geta gefið mismunandi neysluhætti
fólks, ef því er að skipta, víðs vegar á land-
inu, svo dæmi sé tekið.
Hjá starfsfólkinu kom ffam ánægja með
kynninguna og bent á að bæklingur sá, er nú
hefur verið gefmn út, sé kærkominn leið-
beiningarbæklingur til að benda á leiðir að
bættu mataræði.
Heilbrigðisráðherra mun á næstu vikum
Tímamynd Ami Bjama
heimsækja heilsugæslustöðvar í Reykjavík
og nágrenni, og í maí er gert ráð fyrir að
heilsugæslustöðvar annars staðar á landinu
verði heimsóttar.
riði sem vert er að hafa í huga þegar við fá-
um okkur að borða. Hvemig við smyijum
brauðið er m.a. lykillinn að hollu mataræði.
Þar segir að ef brauðið eða kexið er smurt
með þykku lagi af smjöri eða smjörlíki þá
geta bæst mörg hundruð hitaeiningar við
fæðuna á hverjum degi. Auðveldasta og
áhrifamesta aðferðin að minnka fitu við slík-
ar aðstæður er að smyija þynnra lagi á brauð-
ið eða jafnvel engu. Þá er einnig hægt að
velja fituminna viðbit á brauðið.
Annar lykill að hollara mataræði er að velja
fituminni mjólk og mjólkurafurðir. Mjólkur-
vörur eru ríkar af kalki, próteinum og B- vít-
amínum. Þessi matvæli teljast því til mikil-
vægustu næringargjafa í daglegu fæði okkar.
I fituskertum mjólkurvörum er jafnmikið af
kalki, próteinum og B-vítamíni og í þeim
fituríku.
Þá er í bæklingnum lögð áhersla á neyslu
grænmetis með heitum mat og brauðmáltíð-
um. Grænmeti er fitusnauð matvæli, en auð-
ug af trefjaefnum, sem m.a. bæta melting-
una. Kartöflur, hrísgijón og pasta eru
fitusnauðar og kolvetnaríkar matvörur sem
eru gott meðlæti með kjöti og fiski. Auk þess
sem í þeim er mikil orka, þá innihalda þau
vítamín og steinefhi.
A það er bent að skynsamlegra er að laga
fituminni sósur, sem eru allt eins bragðgóðar
og fituríkar. I bæklingnum er bent á að al-
gengur skammtur af kokteilsósu með ham-
borgara á skyndibitastað tvöfaldar hitaein-
ingamar í máltíðinni.
Með kaffinu borðum við gjaman vínar-
brauð, ijómatertur og súkkulaðikex, en þetta
meðlæti er fituríkt. Bent er á brauð, hrökk-
brauð, hafrakex, bollur og snúða með kaffinu
í stað vínarbrauðs og annars feitmetis.
Þá er bent á að drekka vatn á milli mála í
staðinn fyrir kaffi og gosdrykki og minnka