Tíminn - 15.03.1990, Blaðsíða 4
4 Tímínn
Miðvikudagur 14. mars 1990
FRÉTTAYFIRUT
BONN - Stórveldin fjögur
sem báru sigur úr bítum í
heimstyrjöldinni síðari ákváðu
að leyfa Pólverjum að taka þátt
í viðræðum um sameiningu
Þýskalands og friðarsamning-
um við þá á þeim fundum sem
fjalla munu um framtíðarlanda-
mæri Þýskalands og Póllands.
Viðræður bandamannanna
fjögurra og þýsku ríkjanna
tveggja hófust í Bonn í gær.
Ákvörðun þessi er talinn mikil
sigur fyrir pólsku stjórnina sem
krafist hefur tryggingar fyrir því
að núverandi landamæri
standi.
AUSTUR-BERLÍN
Verkalýðsleiðtoginn Gombos-
havuyn Otshirbart var kjörinn
aðalritari mongólska kommún-
istaflokksins á stormasömum
fundu eftir, en gamla stjórnar-
nefnd kommúnistaflokksins
hafði sagt af sér í heild sinni til
að ganga til móts við kröfur
lýðræðissinna.
BÚDAPEST - Síðasta verk
ungverska þingsins fyrir þing-
kosningarnar sem þar fara
brátt fram var að biðja ung-
versku þjóðina afsökunar á því
að hafa liðið harðstjórn komm-
únista.
JERÚSALEM - Leiðtogar
Verkamannaflokksins og Lik-
udbandalagsins, fyrrum sam-
starfsflokka í ríkisstjórn (sraels
reyna nú hvor í kapp við annan
að stíga í væng smáflokka
sem aðhyllast harðlínutrú til að
fylgja sér f nýja meirihluta-
stjórn.
HÖFÐABORG -Suðurafr-
íkustjórn kynnti víðtækan
niðurskurð á framlögum til
varnarmála í nýju fjárlagafrum-
varpi. Þess í stað eru stóraukin
framlög til menntunar
blökkumanna og úrbóta á
húsnæði þeirra.
CANAVERALHÖFÐI -
Samskiptagervihnetti að verð-
mæti 270 milljón dollara var
skotið á loft, en eitthvað hefur
klikkað því erfitt hefur verið að
ná sambandi við hann.
Hnötturinn á að þjóna síma-
kerfum og sjónvarpskerfum í
u.þ.b. hundrað löndum.
UTLOND
Helmut Kohl kanslari Vestur-Þýskalands ásamt leiðtogum hægrimanna í Austur-Þýskalandi sem hafa með sér kosningabandalag. Bjartsýni þeirra um góðan
árangur í þingkosningunum IH.mars hafa snarlega dofnað eftir að í Ijós kom að einn leiðtogana njósnaði á árum áður fyrir hina illræmdu leynilögreglu
Stasi. Frá vinstri: Stasi-njósnarinn Wolfgang Schnur fyrrum leiðtogi Lýðræðislegrar vakningar og fyrrum líklegasta forsætisráðherracfni hægrimanna,
Wilhelm Ebeling formaður Þýska jafnaðarbandalagsins og Lothar de Maiziére formaður Kristilegra demókrata í Austur-Þýskalandi og leiðtogar hægrimanna
í Þýskalandi. Helmut Kohl stendur að baki þeim.
Ólga í austurþýskum stjórnmálum síðustu dagana fyrir kosningarnar:
Leiðtogi hægri manna
njósnaði fyrir Stasi
Nokkur ólga ríkir í austurþýskum stjórnmálum nú þegar
einungis þrír dagar eru til fyrstu frjálsu þingkosninga í
Austur-Þýskalandi. Einn leiðtogi austurþýskra hægrimanna,
Wolfgang Schnur formaður Lýðræðislega vakningarflokks-
ins, varð í gær að segja af sér embætti vegna ásakana um að
hann hafi fyrrum verið njósnari fyrir hina illræmdu leynilög-
reglu Stasi. Er þetta gífurlegt áfall fyrir kosningabandalag
þriggja hægriflokka í Austur-Þýskalandi, en bandalagið
nýtur dyggs stuðnings Helmut Kohls kanslara Vestur-Þýska-
lands.
Wolfgang Schnur hefur legið á hann fékk taugaáfall í síðustu viku
sjúkrahúsi í Austur-Berlín frá því vegna gífurlegs álags. Hann var
talinn skærasta stjarna hægrimanna
og líklegasta forsætisráðherraefni
þeirra. Skýrði Brigitta Koegler vara-
formaður flokksins frá afsögn for-
mannsins í gær, þar sem hún var
stödd á blaðamannafundi í Vestur-
Berlín.
Samkvæmt heimildum innan
Kristilega lýðræðisflokksins í Vest-
ur-Þýskalandi, flokks Helmuts
Kohls, þá hefur hinn 49 ára lög-
fræðingur sem verið hefur áberandi
í baráttu fyrir mannréttindum játað
að hafa unnið fyrir Stasi.
Tvöhundruð óbreyttir borgarar féllu í byltingartilrauninni gegn Kabúlstjórninni í síðustu viku:
Afganistan klagar
Pakistan fyrir SÞ
Afganska ríkisstjórnin hefur klag-
að Pakistana til Sameinuðu þjóð-
anna fyrir meinta aðild að uppreisn-
artilraun þeirrí sem gerð var gegn
Najibullah forseta og Kabúlstjórn-
inni í síðustu viku. Uppreisnartil-
raunin mistókst, en kostaði um tvö-
hundruð óbreytta borgara lífið, en
ekki er vitað um mannfall í hersveit-
um tókust á í byltingartilrauninni.
- í bréfi mínu til Javier Perez de
Cuellar beini ég athygli hans að
sönnunum sem sanna að Pakistanar
skipulögðu byltingartilraunina,
sagði Abdul Wakil utanríkisráð-
herra Afganistan á blaðamanna-
fundi í Kabúl í gær.
Áður höfði Afganar einungis sak-
að Pakistana um að hafa átt hlutdeild
í byltingatilraun Shahnawaz Tanai
varnarmálaráðherra Afganistan í
samvinnu við Gulbuuddin Hekmat-
yer leiðtoga öfgatrúaðra skæruliða
múslíma sem berjast gegn stjórninni
í Kabúl.
Wakil utanríkisráðherra Afganist-
an sagði að Tanai hefði flúið til
Pakistan eftir að byltingartilraun
hans hefði mistekist. Hins vegar
neita Pakistanar að Tanai hafi stigið
fæti sínum inn fyrir landamæri Pak-
istan.
Sovétríkin:
Gorbatsjof forseti
Fulltrúaþing Sovétríkjanna kaus í
gær Mikhaíl Gorbatsjof forseta í hið
nýja valdamikla embætti forseta
Sovétríkjanna. Það varð ekki úr því
að sovéska þjóðin kysi forsetann
eins og róttækir umbótasinnar lögðu
til.
Úr þessu var skorið á fundi full-
trúaþingsins í Moskvu í gær þegar
frumvarp hinna róttæku var fellt
með miklum meirihluta. Er þetta
nokkur sigur fyrir Mikhaíl Gorbat-
sjof sem talinn er öruggur um að
verða kjörinn í hið valdamikla em-
bætti, en samkvæmt tillögu hans
mun forsetinn nú verða kjörinn af
fulltrúaráðsþinginu til fimm ára.
Hins vegar er gert ráð fyrir að
forsetinn verði kjörinn í þjóðarat-
kvæðagreiðslu að fimm árum
liðnum.
Gorbatsjof var tilnefndur af
kommúnistaflokknum sem forseta-
frambjóðandi. Hópur þingfulltrúa
tilnefndu þá Nikolai Ryzhkov for-
sætisráðherra og Vadim Bakatin
innanríkisráðherra til forsetakjörs-
ins. Bakatin sem gefið hafði yfirlýs-
ingu um að hann vildi ekki bjóða sig
fram fékk að draga sig til baka eftir
að frestu til tilnefningar hafði runnið
út, en Ryzhkov var áfram í kjöri,
enda hafði Gorbatsjof sagst vilja fá
mótframboð til þess mikilvæga em-
bættis.
Ásakanir á hendur Schnur komu
fram í Rostock heimabæ hans í
síðustu viku þar sem rannsóknar-
nefnd fann skjöl um að Schnur hefði
unnið fyrir Stasi. Schnur neitaði í
fyrstu þessum ásökunum og sagði
skjölin fölsuð. Hlupu stjórnvöld í
Vestur-Þýskalandi undir bagga með
honum síðastliðin föstudag og
skýrðu frá því að hann hefði um
langt árabil átt yfir höfði sér lífstíð-
arfangelsisvist í Austur-Þýskalandi
með því að gefa vesturþýskum
stjórnvöldum upplýsingar um pólit-
ísk réttarhöld í Áustur-Þýskalandi.
Mál þetta er talið vatn á myllu
jafnaðarmanna í Austur-Þýska-
landi, en samkvæmt skoðanak-
önnunum er Jafnaðarmannaflokkur-
inn vinsælasti flokkur landsins og á
möguleika á að vinna hreinan meir-
ihluta á þingi.
Tyrkland:
Níu ára barn
eignast barn
Níu ára tyrkneskt stúlkubarn
eignaðist í í vikunni heilbrigðan
dreng. Móður og barni heilsast
vel. Drengurinn var tekinn með
keisaraskurði á mánudag í borg-
inni Afyon í vesturhluta
Tyrklands. Nafni stúlkunar er
haldið leyndu.
- Eftir því sem ég kemst næst,
þá er talið að yngsta móðir í
heimi hafi fætt barn fimm ára. f
Tyrklandi var yngsta móðirin tal-
in tólf ára, sagði Mehmet Telek
læknir sem tók á móti drengnum.
Stúlkubarnið var komið átta
mánuði á leið þegar komið var
með það á sjúktahús þar sem
læknar ákváðu að taka barnið
með keisaraskurði til að stofna
ekki lífi stúlkunnar né bamsins í
hættu. Gekk keisaraskurðurinn
vel og er stúlkan farin að gefa
barni sínu á brjóst.
- Móðirin er farin að venjast
barni sínu, en viðbrögð hennar
voru barnaleg í fyrstu, sagði Te-
lek læknir.
Lögreglan er nú að rannsaka
hvernig stúlkan varð ólétt.