Tíminn - 17.03.1990, Side 11

Tíminn - 17.03.1990, Side 11
Laugardagur 17. mars 1990 HELGIN 21 SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL Perúmaðurinn Roger Keller kvaðst bara hafa hjálpað vini sem var orðinn þreyttur á hegðan konu sinnar. út til næstu lögregluumdæma. Eina visbendingin sem vert þótti að athuga nánar kom frá frænku Lisu. Hún sagði að kvöldið áður en Lisa hvarf hefði hún talað við hana í síma og þá hefði Lisa sagt sér að Roger væri staddur hjá henni. Konan nefndi að Lisa hefði verið gröm því henni var ekkert um Roger gefið. Hver var svo Roger? Maður Lisu kannaðist mæta vel við Roger Keller. Þeir höfðu kynnst þremur mánuðum áður á bókasafhi háskólans. Roger var orðinn tíður gestur á heimilinu og leit oft inn fjórum sinnum í viku. Það er löngu sönnuð staðreynd að meirihluti fómarlamba morðingja þekkir morðingja sinn. Með það í huga reyndi Olson að komast að sem mestu um þennan Roger Max Keller. Eftir útför Lisu sem var kostuð úr sérstökum sjóði lögreglunnar fóru Olson og félagi hans á vinnustað Kellers til að ræða við yfirmann hans og vinnufélaga. Keller var 27 ára, dökkur og glæsi- legur álitum og upprunninn í Perú. Hann bjó í Santa Ana. — Hann er áh- gætis náungi á meðan hann þegir, sagði yfirmaður hans. — Hann var góður verkmaður en alltaf að tala sér til vandræða. — Hvar er hann núna? vildi Olson vita en yfirmaðurinn vissi það ekki. Keller hefði ekki komið til vinnu í nokkra daga og það væri ólíkt hon- um. Að vísu ætti hann ættingja í Houston í Texas. Olson hafði samband við lögregluna í Houston án þess að hafa neitt fyrir sér í um að Keller hefði farið þangað, en hann vildi finna manninn og ræða við hann. Úr tölvu komu þær upplýs- ingar að 2. nóvember hefði Keller verið handtekinn fyrir að ryðjast inn á heimili fyrrum konu sinnar þótt honum hefði verið bannað með lög- um að koma nálægt henni. Þá sagði hann lögreglunni að hann hefði fok- reiðst af því hann sá hana með öðrum Að undirlagi eigin- mannsins? Lögreglan fór heim til Kellers og fann þar allar eigur hans óhreyfðar og bílinn á stæði sinu. Aðrir íbúar hússins kváðust ekki hafa séð Keller í nokkra daga. Eldsnemma að morgni þess 18. nóvember fór sérsveit lög- reglunnar til heimilis ættingja Kellers í Houston og handtók hann þar á nátt- fotunum. Við yfirheyrslur neitaði Keller að hafa hitt Lisu Guardiola, hvað þá að hann hefði myrt hana. Þegar gengið var betur á hann viður- kenndi hann þó að hafa hitt Lisu og að þau hefðu meira að segja haft samfarir í aftursæti bíls hans um- rædda nótt en hún hefði farið úr bíln- um nálægt heimili sínu og síðan hefði hann ekki séð hana. Saga Kellers reyndist afskaplega gloppótt og lögreglumenn í Houston trúðu varla einu orði. Þeir lásu Keller rétt hans til að þegja og ákváðu að yf- irheyra hann einu sinni enn, í þetta sinn fyrir framan myndbandstökuvél. Þá var sagan á þá leið að hann hefði verið heima hjá Lisu með manni hennar þegar hún kom seint heim með öðrum manni og drukkin að auki. Hún hefðu hreytt ónotum í mann sinn fyrir að vera latur og geta ekki unnið fyrir fjölskyldunni. — Ég sagði manninum hennar að hann ætti að skilja við bannsetta tæfiina. Hún eyðilegði lif hans. Að sögn Kellers hafði eiginmaður Lisu samsinnt þessu, hann væri orð- inn þreyttur á hegðan hennar en vissi ekki hvemig hann ætti að losna við hana. — Hann var hræddur um að missa forræði bamanna af því hann var ffá Kólumbíu. Hann sagðist ekki vita hvemig hann gæti losnað við hana, sagði Keller. — Ég sagði honum að það væm margir nánungar tilbúnir að taka hana fyrir nokkra dollara. Hvaða dópisti sem væri á svæðinu myndi gína við til- boðinu. Þá bætti Keller því við að maður Lisu hefði hallað sér fram yfir eldhúsborðið og hvíslað: — Værir þú til í að losa mig við hana? Ég sagðist skyldu ganga frá þessu öllu. — Ég veit að ég myrti hana, bætti hann við. — Það næsta sem ég vissi var að ég var að aka á hraðbrautinni og hún var dauð. Á leið til Kalifomíu í gæslu lögregl- unnar breytti Keller enn framburði sínum og sagðist alls ekki hafa myrt Lisu og því síður fyrir beiðni eigin- manns hennar. Sannanir og vitni Lögreglan einbeitti sér nú að því að koma saman staðgóðu máli gegn Keller til að formlega yrði hægt að ákæra hann fyrir morðið. Einna besta sönnunargagnið var ljósblár efri hluti bafðata sem fannst undir líkinu. Á honum fundust leifar sama efnis og Keller notaði mikið í vinnunni. Að auki vom trefjar á skóm Lisu sem rekja mátti til gólfteppisins í Monte Carlo-bíl Kellers. Loks fann lögreglan vitni sem var reiðubúið að sveija fyrir rétti að hafa séð Keller með konu í bíl sínum um það bil klukkustundu áður en líkið fannst. Vitnið staðhæfði að konan hefði verið Lisa Guardiola. Sama dag þegar tveir iögreglumenn yfirheyrðu Roger Keller um morð á sex bama móður, þvemeitaði hann skyndilega að vita nokkuð um það. Hann heimsótti ættingja sinn en hringdi síðan til lögreglunnar til að benda á viss atriði en seinna sagðist hann hafa logið þeim upp líka. Lisa gat ekki hafa vitað hvaða örlög biðu hennar. Kannski hún hafi farið fús í ökuferð með kunningja sínum en hann gæti líka hafa neytt hana út. Rifust þau? Það veit enginn nema Lisa og morðinginn. Þann 22. júní 1989 komst kviðdóm- ur einróma að þeirri niðurstöðu að Roger Max Keller hefði myrt Lisu Mariu Guardiola og fleygt líki henn- ar við innganginn að Region- al—garðinum. Þótt tíu af kviðdóm- endum vildu saka hann um morð að yfirlögðu ráði, fengust tveir ekki til að ganga lengra en að manndrápi. Munurinn er 10 ára fangelsi en þeir sem fangelsaðir em fyrir manndráp sitja sjaldnast lengur inni en helming lágmarksrefsingar, eða 7 ár. Þegar dómarinn kvað upp 15 ára fangelsisdóm yfir Keller sagði hann að náðun kæmi ekki til greina á þeim tima vegna þess hve glæpurinn hefði verið óhugnanlegur. — Þetta var allt saman afleiðing fátæktar, menntun- arskorts og óreglu, sagði hann. — Hér var um að ræða bandariskan harmleik. Guardiola flutti fljótlega til ættingja sinna í heimalandinu, Kólumbíu með bömin sín sex. Háskóli íslands Uthlutun styrkja úr Sáttmálasjóði Umsóknir um utanfararstyrki og verkefnastyrki úr Sáttmálasjóði Háskóla íslands, stílaðartil háskóla- ráðs, skulu hafa borist skrifstofu rektors í síðasta lagi 30. apríl n.k. Tilgangi sjóðsins er lýst í 2. gr. skipulagsskrár frá 29. júní 1919, sem birt er í Árbók Háskóla íslands 1918-1919, bls. 52. Umsóknareyðublöð og nánari úthlutunarreglur, samþykktar af háskólaráði, liggja frammi á skrif- stofu Háskóla íslands hjá ritara rektors. Um virðisauka- skattskylda vöru Athygli framleiöenda, heildsala og annarra sem selja virðisaukaskattskylda vöru til endurseljenda er vakin á því að á sölunótu skal ávallt koma fram einingarverð vöru án virðisaukaskatts. Virðisauka- skattur af andvirði sölu skal koma fram aðgreind upphæð á sölunótu. Reykjavík, 13. mars 1990 Verðiagsstofnun Kransar, krossar, kistu- skreytingar, samúðarvendir og samúðarskreytingar. Sendum um allt land á opnunartíma frá kl. 10-21 alla daga vikunnar. tmííBMÉLw MIKLUBRAUT 68 o 13630 VARAHLUTAÞJONUSTA [Ijtrac lcut Um árabil höfum við þjónað stórum hópi verktaka með flesta þá hluti sem tiiheyra undirvögnum á jarðýtum, belta- gröfum og öðrum þungavinnuvélum, s.s. belti, beltarúllur, keðjuhjól o.fl. Rippertennur, slitblöð og horn á jarðýtutennur. Skóflutennur af ýmsum gerðum Þéttingar í vökvatjakka. Hafið samband, leitið upp- lýsinga VÉLAR& ÞJÓNUSTAHF Járnhálsi 2 Sími 673225110 Rvk. Pósthólf 10180.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.