Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 3
':r,lr,it c Tíminn 3 r .V 'i.r.-r.1', ,y(>■' Þriöjudagur 20. mars 1990 Togararallinu senn að Ijúka. Rannsóknir á sjávarhita fyrir norðan land sýna að: Sjórinn tveim gráðum kaldari nú en í fyrra Mun minna er nú af þorski úti fyrír Norðuríandi, en undanfarin ár, en hins vegar er nú meira af þorski fýrír sunnan og suðvest- an land. Þá virðist þorskstofninn úti fyrir Vestfjörðum að minnsta kosti standa í stað frá síðasta árí. Komið hefur í Ijós að sjórínn fýrír norðan land er um tveim gráðum kaldarí, en veríð hefur undanfarin ár. Þetta eru frumniðurstöður togararallsins svokallaða, sem senn er að Ijúka. Fimm togarar tóku sem íyrr þátt í togararallinu sem fram fer á grunn- slóð í kring um landið. Fimm skip lögðu úr höfn þann 5. mars sl. og taka þau samtals 580 tog víðs vegar á hafsvæðinu. Þrír þessara togara luku sínum hluta í lok síðustu viku og um helgina, en í gær voru tveir togarar enn úti, annar Rauðinúpur frá Raufarhöfn var á Vestfjarðamið- um og hinn Amar frá Skagaströnd fyrir norðan land og er áætlað að þau ljúki sínum verkefnum um miðja viku. Hinir þrír togararnir er þátt tóku í togararallinu vom Bjartur frá Neskaupstað, Ljósafell frá Fáskrúðs- firði og Vestmannaey. Að sögn Olafs Karvels Pálssonar leiðangursstjóra á Rauðanúpi eru þeir að rannsaka botnlæga fisk- stofna, með aðaláherslu á þorsk- stofninn og aðra helstu nytjastofna, eins og ýsu og karfa. Olafur sagði að ekki væri hægt að segja með mikilli vissu um ffumnið- urstöðurnar, en það sem nokkuð augljóst væri sagði hann vera að mun minna væri af þorski á norður- og norðausturmiðum, en var í fyrra og árin þar á undan. Þá virðist hins vegar vera talsvert meira af þorski á suðvesturmiðum, þá á hefðbundinni hrygningarslóð. Auk þess sem nokk- uð drjúgt er af þorski á sunnanverð- um Vestfjarðamiðum, að minnst kosti ekki minna en vanalega. Að- spurður um skýringar á þessu, sagð- ist Ólafúr ekki sjá neina aðra líklega skýringu en að sá fiskur sem verið hefúr fyrir norðan land leiti nú suður til hrygningar. Hann sagði að þeir hafi í um fimm til sex ár aðallega verið að fylgjast með tveim þorskár- göngum, þ.e. frá 1983 og 1984. Þessi fiskur hefur verið að alast upp fyrir norðan og norðaustan, en nú er hann orðinn kynþroska að talsvert miklu leiti og leitar því suðurum á hrygningarslóð. Af þessum fiski var talsvert minna fyrir norðan í fyrra en árin áður og hefúr þróunin því hald- ið áffam. „Þessu samhliða er talsvert kaldara á norðursvæði núna, miðað við fyrri ár, en ég veit ekki hversu mikil áhrif það kann að hafa,“ sagði Ólafúr. Hann sagði að verið væri að tala um einnar til tveggja gráðu kaldari sjó en áður var. Sjórinn er því nú um ein gráða í stað tveggja til þriggja áður. Er ekkert nýtt ungviði að koma upp fyrir norðan í stað þess sem gegnið er suður fyrir? „Það er mjög erfitt á átta sig á þvi áður en búið er að skoða gögnin í heild sinni. Það er alla vega ekkert mjög áberandi. Við verðum vissulega alltaf eitthvað var- ir við uppvaxandi fisk, en það er erf- itt að meta hvað það þýði í árganga- styrk," sagði Ólafur. Hann sagði að niðurstöður þeirra undanfarin ár varðandi nýliðun hafi verið sú, að þeir árgangar sem nú eru að vaxa upp séu mjög lélegir. „Ég sé ekkert í fljótu bragði sem breytir þeirri nið- urstöðu út ffá því sem ég hef heyrt í félögum mínum á hinum skipunum og því sem komið hefur fram hjá mér. Þetta verður að skoðast betur eftir að við komum í land,“ sagði Ólafúr. —ABÓ Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja 1990: Betri afkoma á árinu 1989 Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja var haldinn í Sam- komuhúsinu í Sandgerði fyrir skömmu. í ræðu formanns, Magnúsar Haraldssonar, kom m.a. fram að afkoman á árínu 1989 var mun betri en árið á undan, eða hagnaður kr. 7,4 milijónir, en áríð 1988 vartap félagsins um kr. 14 milljónir. Þrátt fyrir þessa bættu afkomu vantar því nokkuð á að tap fyrri ára hafi unnist upp. Einnig kom ffam að hagnaður af sölu eigna var svipaður bæði árin. Á árinu hætti KSK öllum verslun- arrekstri í Grindavík og seldi bruna- rústimar að Hafnargötu 30 i Kefla- vík. Hefur verslunum félagsins því fækkað um fjórar á þessum árum. I skýrslu Kaupfélagsstjóra, Guð- jóns Stefánssonar, kom fram að sala ársins að frádregnum söluskatti var rétt rúmur 1 milljarður og launa- greiðslur félagsins um 15 milljónir. Veltufjárhlutfall hefúr heldur batn- að eða farið úr 0,98 í 1,01. Almennt ríkti nokkur bjartsýni yfir þessum upplýsingum á fúndinum þó ljóst sé að ýtrustu varkárni og aðhalds sé þörf sem endra nær. Að loknum skýrslum formanns og kaupfélagsstjóra flutti Ingólfúr Fals- son, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- húss Keflavíkur hf., skýrslu. í um- ræðum um hana gætti ekki sömu bjartsýni og höfðu fundarmenn miklar áhyggjur af þeirri óheilla- vænlegu þróun sem á sér stað í sjáv- arútvegi og fiskvinnslu á Suðumesj- um. Dökkar blikur eru á lofti varð- andi rekstur HK eins og margra ann- arra sjávarútvegsfyrirtækja á svæð- inu. Að loknu matarhléi flutti Gunnar Hilmarsson, stjómarformaður At- vinnutryggingarsjóðs, erindi er kall- aðist „Atvinnutryggingarsjóður og Suðumes“. Að loknum umræðum um erindi Gunnar fóm ffarn kosningar í stjóm félagsins, kjörtími tveggja stjómar- manna var úfrunninn og var Magnús Haraldsson endurkjörinn í stjómina og Guðbjörg Ingimundardóttir kosin í stað Kristins heitins Björnssonar sem átti sæti í stjóm Kaupfélagsins um langt árabil. Þá var Pétur Þórar- insson kosinn annar varamaður og Óskar Guðjónsson þriðji varamaður. Á fúndinum vom einnig kosnir 9 fulltrúar á aðalfund Sambands ís- lenskra samvinnufélaga og hlutu eft- irtaldir kosningu: Guðjón Stefáns- son, Magnús Haraldsson, Birgir Guðnason, Guðbjörg Ingimundar- dóttir, Jóhann Geirdal, Sigurður Brynjólfsson, Sóveig Þórðardóttir, Steindór Sigurðsson og Óskar Karls- son. Fundarstjórar á aðalfúndinum vom Jóhann Einvarðsson og Óskar Guð- jónsson og ritarar Guðbjörg Ingi- mundardóttir og Þorbjörg Friðriks- dóttir. S SUMMIT ( BÚNAÐARBANKAMÓTIÐ, 14. Reykjavíkurskákmótið hófst á laugardag í húsakynnum Skáksam- bandsins í Faxafeni í Reykjavík. Önnur umferð var tefld á sunnudag og þriðja umferð í gær. Frammistaða íslensku skákmannanna hefur verið með ágætum og einkum vakti frammistaða ungra og lítt reyndra skákmanna athygli í fyrstu umferðinni. Þeir Davíð Ólafsson og Grétar Einarsson frá Bolungarvík unnu skákir sínar gegn sovésku stórmeisturunum og liðstjórum úr Stórveldaslagnum þeim E. Gcller (2515 ELO stig) og Y. Razuvaev (2545 ELO stig). Á myndinni má sjá þegar Davíð Oddsson borgarstjóri leikur fyrsta leikinn í mótinu i skák þeirra Þrastar Þórhallssonar og L. Polugaevskys, en Polugaevsky vann þá skák. Timamynd: Pjsiur Forsætisráðherra skipar nefnd til að gera fimm ára áætlum. Hvemig á aö kynna ísland og efla jákvæöa ímynd þess? Forsætisráherra hefur skipað fimm manna nefnd sem ætlað er að kynna (sland á erlendum vettvangi.og efla jákvæða ímynd þess. Nefndin á að vinna í samráði við íslenska og er- lenda aðila á sviði útflutnings, ferðamála, þjónustu, svo og ráðuneyti er málinu tengjast Auk þessa skal nefndin setja sam- an tillögur um hvemig samvinnu Út- flutningsráðs Islands og Ferðamála- ráðs íslands verði háttað í framtíð- inni. Stefnt er að því að nefndin skili lokaskýrslu og ljúki störfúm 31.des- ember 1990, en skili á starfstíman- um mánaðarlegum yfirlitsskýrslum til forsætisráðherra. í fréttatilkynningu frá forsætisráðu- neytinu segir um meginmarkmið neftidarinnar. Nefndinni ber að undirbúa fimm ára áætlun um kynningu íslands á al- þjóðavettvangi, gera kostnaðaráætl- un um verkið, og finna út hvar afla megi fjármagns. Kanna ber hvort ís- land geti orðið ímynd gæða, hrein- leika og heilbrigðs umhverfis og mannlífs, og hvaða svið hérlendis þjóni best þeirri ímynd. Þá á að kanna áhuga á að halda hér á landi alþjóðlegar ráðstefnur í samráði við erlenda og innlenda sérfræðinga. Einnig á að hrinda í framkvæmd í samráði við Útflutningsráð og er- lenda ráðgjafa sex mánaða tilrauna- átaki í Bretlandi til kynningar á ís- landi, vörum, þjónustu, landi og þjóð. Að því loknu verði árangur metinn og grunnur lagður að frekari kynningu Islands á erlendum vett- vangi. Formaður nefúdarinnar er Baldvin Jónsson auglýsingastjóri. hiá. 15ARA STULKA LEST Fimmtán ára stúlka, Rakel Bára Davíðsdóttir lést, er bifreið sem hún var farþegi í fór út af veginum og valt, skammt vestan við Stokkseyri um klukkan eitt á sunnudag. Öku- maðurinn sem var kvenmaður slas- aðist lítillega og var flutt á sjúkra- húsið á Selfossi. Tildrög slysins eru ekki að fúllu ljós. Rakel Bára átti heima að Eyjaseli 6, Stokkseyri. Hún var fædd 2.9 1974. —ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.