Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 20. mars 1990 Tíminn 7 IIIIIllllllllllllllllílllllllllllllAÐ UTAN IlllllUlllllll llllllllll lllllllllllll llllllllll 1111 IIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII 1111 11111 lllllll wiiiiiiiimiiiiiii iiiiiiiiimiiiiu Gyðingahatur kemur upp á yfirborðið í Rúmeníu Byltingarflóðið sem sópaði Nicolae Ceaus- escu, rúmenska einræðisherranum, í burt hefur fleytt á flot Ijótum sora. Eins og í Sov- étríkjunum er Gyðingahatur aftur komið upp á yfirborðið eftir að hafa legið í dvala í yfir 40 ár. Einu sinni var gróskumikiö Gyóingalíf í Búkarest. En í síðari heimsstyrjöldinni var helmingur Gyðinga í landinu ýmist sendur í útrýmingarbúðir nasista eða rúmensku dauðasveitimar Jámvörðurinn önnuðust drápin. Moses Rosen, aðalrabbíni Rúmeníu setti sér þaö markmið að koma sem flestum Gyðingum úr landi. Honum tókst að koma á góðu viðskiptasambandi við Ceausescu, sem færði hann nær markmiði sínu. Nú er öldin önnur. Gyðingar höfðu frið á valdaárum Ceaus- escus Á valdaárum Ceausescus var Gyðingahatrið, sem alltaf hefiir fylgt Rúmenum, bælt niður og Gyðingum var leyft að iðka trú sína við tiltölulega rúmt frelsi. En eftir byltinguna í desember hafa and- gyðingleg viðhorf aftur komið upp á yfirborðið þegar Rúmenar fá að láta skoðanir sínar í ljós í fyrsta sinn svo áratugum skiptir. „Enn sem komið er hafa atvikin verið fá og dreifð, og ef lánið er með okkur verður það þannig áfram,“ segir Moses Rosen, aðal- rabbíni Gyðingasaffiaðarins, sem nýlega hefur sjálfur fengið hótunar- bréf frá að því er álitið vera endur- lífgaður Jámvörður, með haka- krossi og orðunum „Við erum nærri“. Fyrir nokkram vikum var brotist inn í sýnagógu í Oradea í norður- hluta Rúmeníu. Hurð og gluggar voru brotnir, húsgögn mölvuð og hebreskar bækur tættar í sundur. Petre Roman, forsætisráðherra hafa líka borist mótmæli en faðir hans var Gyðingur. Rabbíninn, sem orðinn er 77 ára, segir valdatómarúmið eftir bylting- una skapa möguleika á þvi að Gyð- ingahatur komist aftur upp á yfir- borðið. „Nú getur fólk sagt það sem það varð að þegja yfir árum saman. Það er kannski að grípa tækifærið til að fá útrás og gleymir því síðan. Ég vil ekki trúa að Gyðingahatur fái aftur að blómstra, það væri ekki bara glæpsamlegt heldur líka heimskulegt. En ég er rabbíni, ekki spámaður.“ Fyrstu merki þess að Gyðinga- hatur sé farið að bæra á sér urðu merkjanleg undir lok valdatíma Ce- ausescus. í „ljóði" sem birt var í æskulýðsdagblaði Kommúnista- flokksins, var Gyðingum hótað því að yrðu „enn einu sinni hengdir upp á kjötkróka", tilvisun til ofsókn- anna 1941 þegar Gyðingar voru hengdir upp á kjötkróka í sláturhús- inu í Búkarest og orðin „kosher kjöt“ krössuð á þá. Fyrrum blómlegt Gyóingalíf í „litlu París“ Einu sinni bjuggu 800,000 Gyð- ingar í Búkarest. Hverfið þeirra, Vacaresti, var völundarhús glæsi- legra og litrikra stræta. Um alda- mótin, þegar borgin var kölluð „litla París“, voru þar verslanir, kaffihús, sýnagógur og skólar. Nú eru innan við 20,000 Gyðing- ar eftir i Rúmeníu, og litaauðgin og andblærinn heyrir ekki lengur til hverfinu þeirra. Löngu yfirgefnir rústabingir eru nú þar sem íbúða- blokkir voru áður og þær fáu búðir sem enn standa uppi eru tómar eða Iokaðar. Á valdaárum Ceausescus fluttu yfir 300,000 Gyðingar til ísraels, að mestum hluta að tilstuðlan Rosens rabbína. Rosen tókst að tryggja þeim öruggan brottflutning þeim Gyðingum sem óskuðu að fara með því að koma sér í mjúkinn hjá stjómvöldum og aðstoða þau við að koma á gróðavænlegum viðskipta- samböndum erlendis. Hvemig var sam- vinnu þeirra Rosens og Ceausescus háttað? En eflir byltinguna er Rosen orð- inn umdeildur. Ákafi hans við að kynna Ceausescu á Vesturlöndum sem virðingarverða persónu gefur sumum nú tilefni til að ýja að sam- starfi þeirra tveggja. Sögusagnir voru á kreiki um að fyrir hvem Gyðing sem fór ffá Rúmeníu hefði Ceausescu fengið borgað í reiðufé allt ffá 3,000 dollurum til 25,000 dollara. Rosen vísar þessu algerlega á bug. Hann er líka reiður þegar gefið er í skyn að hann hafi verið þjónn Ce- ausescustjómarinnar og segir að vopnahlé hans og stjómarinnar hafi oft verið ótraust. Rosen segist hafa verið í sömu spomm og Charles de Gaulle og hvorki hafa átt vini né óvini, aðeins hagsmuni. Hann seg- ist hafa verið öraggur þegar svo vildi til að hagsmunir hans og stjómvalda fóra saman. Rosen tókst að fá milljónir doll- ara til Rúmeníu með því að ná góðu sambandi við Gyðingafélög í Bandaríkjunum og ísrael. Rúmenar nutu aðstoðar Rosens við að hafa þau áhrif á bandaríska stjómmálamenn að Rúmenía fékk sérstaka forréttindastöðu í viðskipt- um við Bandaríkin 1975. Tolla- lækkunin á viðskiptum, sem fylgdu vora yfir 300 milljón dollara virði á ári. Auk þessa flæddu milljónadoll- ara gjafir til Rúmeníu, sem notaðar vora til að reka elliheimili í Búkar- est, endurreisa sýnagógur í landinu og reka fræðslu í Hebreafræðum, kaupa sérstakar matvörar og fatnað. Mesta stolt rabbín- ans að því sem næst allir Gyðingar eru famir Á sama tíma og Gyðingar i kommúnistarikjunum í grenndinni vora hnepptir í fangelsi fyrir að iðka trú sína eða sækja um vegabréf gátu rúmenskir Gyðingar beðist fyrir og, það sem meira er, var leyft að yfirgefa landið. Gjaldið fýrir bandaríska peninga var að Gyðing- um skyldi leyft að flytjast úr landi. Rosen segir það vera mesta stolt lífs síns að nú era því sem næst eng- ir Gyðingar lengur í Rúmeníu. „Ég man slagorðin í blöðunum þegar ég var ungur maður. Þar stóð „Skítugu Gyðingar, farið til Palestínu". Því hef ég aldrei gleymt,“ segir hann. „Alla mína ævi hef ég unnið að því að koma fólkinu mínu í öryggi og að vemda það á allan þann hátt sem ég hef getað. Ceausescu var and- Árleg fiskneysla á hvem íbúa í eft- irtöldum löndum, skelfiskur með- talinn, á áranum 1982-1984, var sem hér segir: Island 88,4 kg, Nor- egur 46,0 kg, Finnland 34,3 kg og Svíþjóð 29,4 kg. Til fróðleiks má geta þess að sömu tölur í Tékkó- slóvakíu vora 4,6 kg, Ungverjalandi 4,7 kg, Austurríki 6,5 kg, Búlgaría 8,6 kg, Rúmenía 9,2 kg og Vestur- Þýskaland 9,3 kg. Aðrar þjóðir vora með 11-22 kg árlega neyslu á hvem íbúa. Fyrr í vetur greindum við frá hér í þættinum að Japanir væra miklar fiskætur og neyttu um sem svaraði 70 kg af fiski á ári. Mannfjöldi í Norðvestur-Evrópu gyðinglega sinnaður og hefði ekki komið til hjálp og eftirlit frá útlönd- um hefði hér orðið skelfilegt ástand. Ég rétti Satan höndina en ég seldi honum ekki sál mína. Ég er enginn Fást.“ Roscn var ákveðinn i því að koma fólki sínu frá Rúmeníu þegar áður en Ceausescu komst til valda. Hann varð aðalrabbíni 1948, þegar kommúnistar í Austur-Evrópu vora að hefjast handa um að afmá það sem enn lifði af gyðinglegri menn- ingu í löndum þeirra. Áram saman hafði hann uppi áróður um að Gyð- ingar flyttust úr landi og hvatti söfnuð sinn til að sækja um vega- bréf, jafnvel þó að margir misstu fyrir það vinnuna og bömin þeirra væra rekin úr skólum. Brýnirtrúbræður sína til árvekni Hann kom á reglubundnum sam- er um 182,1 milljón. Þau lönd sem teljast til þessa svæðis era: Austur- ríki, Finnland, Island, Noregur, Sví- þjóð og Sviss, sem era aðilar að EFTA, fríverslunarsamtökunum, en mannfjöldi á þessu svæði er 31,6 milljónir. Þá era einnig á nefndu svæði svonefnd EEC—lönd (Efna- hagsbandalagið): Belgía, Danmörk, Færeyjar, Vestur-Þýskaland, írland, Holland og Bretland, en mannfjöldi í þessum löndum er 150,7 milljónir. Árleg aukning á mannQölda er um 1% í Færeyjum og á íslandi en lægri í öðram löndum og nær engin í Vestur-Þýskalandi. Ibúar í löndum Vestur-Evrópu skiptum við gyðinglegar stofnanir erlendis. Þegar Ceausescu tók völd- in, reyndi hann að telja stjómvöld- um trú um að þeim stæði engin ógn af Gyðingasamfélaginu. Viðskipta- samböndin við Bandaríkin vora hans stóri sigur og eftir 1975 gátu Gyðingar flust úr landi án erfið- leika. Á fyrstu stjómaráram Ceausesc- us, þá vora Rúmcnar í sárri þörf fyrir erlendan gjaldeyri, vora yfir- völd reiðubúin að leyfa Rosen að ferðast til annarra landa til að afla aðstoðar. Opinskátt Gyðingahatur var bælt niður. Nú er viðvöran Rosens sú að trú- bræður hans séu á verði. „Nú búum við við lýðræði en við megum ekki gleyma að Hitler komst til valda í lýðræðisríki. Við verðum að líta til framtíðarinnar árvökulum augum.“ neyta bæði lax og silungs, eins og Belgía, Danmörk, Vestur-Þýska- land, Holland, Noregur, Svíþjóð, Sviss og Bretar sem era með mesta laxneyslu miðað við neyslu á hvem íbúa. Neysla á niðursoðnum laxi (Kyrrahafslaxi líklega) er sérstak- lega mikil í Belgíu og reyndar einn- ig í Hollandi og á Bretlandseyjum. Regnbogasilungur hefur sterka stöðu hvað neyslu snertir í Belgíu, Finnlandi, Vestur-Þýskalandi, þar sem Danir eiga sinn besta markað, og á Bretlandseyjum. eh. (Heimild: FAO-rit) Fiskneysla mest á íslandi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.