Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriöjudagur 20. mars 1990
ÚTLÖND
Austurþýskir jafnaðarmenn hafna boði
um aðild að samsteypustjórn á breiðum grundvelli með hægrimönnum:
Hægrimenn vinna stór-
sigur í A-Þýskalandi
Hægrimenn unnu óvæntan stórsigur í þingkosningunum í
Austur-Þýskalandi á sunnudag og eru úrslitin túlkuð þannig
að Austur-Þjóðverjar vilji hraða sameiningunni við Vestur-
Þýskalands eins og kostur er. Gætu úrslitin jafnvel orðið til
þess að allsherjarkosningar yrðu í Þýskalandi strax í desemb-
er, en þá eru fyrirhugaðar þingkosningar í Vestur-Þýskalandi.
Lotliar de Maiziere hinn hægláti formaður Kristilega lýðræðisflokksins leiddi
flokk sinn til ótrúlegs sigurs í þingkosningunum í Austur-Þýskalandi á
sunnudaginn. Litlu munaði að kosningabandalag hægri manna, dyggilega
stutt af Helmut Kohl kanslara Vestur-Þýskalands næði hreinum meirihluta
í Volkskammer, austurþýska þinginu.
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Fulltrúar Litháa
gengu á fund Mikhaíls Gorbat-
sjofs til að skýra honum frá því,
að Litháar líti svo á, að lýðveld-
ið sé sjálfstætt og lúti ekki
yfirstjórn sovéska fulltrúa-
þingsins. Gorbatsjof krafðist
þess, að Litháar beygðu sig
undir sovéska stjórn og var
lögð áhersla á þá kröfu með
því að halda heræfingu sov-
éska hersins í Litháen.
VIN - Sovétríkin og Banda-
ríkin hófu fjögurra daga við-
ræður, sem miða að því að
rjúfa viðskiptahindranir á báða
bóga og ganga frá stórum
kornsölusamningi þeirra á
millum.
MOSKVA - Stjórnvöld í
Sovétríkjunum hyggjast leggja
fram róttæka efnahagsáætlun
fyrir l.júlí. Er gert ráð fyrir
grundvallarbreytingum á öllu
efnahagslífi Sovétríkjanna í átt
að blönduðu hagkerfi.
ADDIS ABABA - Meng-
istu Haile Mariam hefur lagt
fram umbótaáætlun í stjórn-
málum, þar sem gert er ráð
fyrir fjölflokkakerfi í Eþíópíu
um leið og marxismanum verð-
ur sagt upp. Þá hyggst hann
taka upp blandað hagkerfi og
leyfa einkaframtakinu að
spreyta sig við hlið ríkisins.
PEKING - Kínverjar vöruðu
mongólska minnihlutann í
norðurhéruðum Kína við þjóð-
ernisrembingi. Svo bregðast
Kínverjar við lýðræðisþróun-
inni í Mongólíu, þar sem
kommúnisminn er að láta í
minni pokann.
LUSAKA - Háttsettir
leiðtogar ýmissa Afrikuríkja
hittust til bollalegginqa um
hvort taka eigi upp viðræður
við stjórnvöld í Suður-Afríku.
Þeir vilja knýja á Suður-Afríku-
stjórn um endalok aðskilnaðar-
stefnunnar. Afríska þjóðarráð-
ið hefur hvatt Einingarsamtök
Afríku til þess arna.
AMRITSAR - Herskáir
Shikar hafa drepið 20 manns á
einum sólarhring í baráttu sinni
gegn yfirráðum Indverja í
Punjab.
NAIRÓBÍ - Friðarviðræður
skæruliða í norðurhluta Eþíóp-
íu og ríkisstjórnarinnar mun
halda áfram í Róm í næstu
viku, en yfirvofandi hungurs-
neyð þrýstir á þessa aðila að
semja frið.
Minnstu munaði að kosninga-
bandalag hægrimanna næði hreinum
meirihluta í Volkskammer, þingi
Austur-Þjóðverja. Hlaut kosninga-
bandalagið, sem var komið á fót í
janúarmánuði að undirlagi Helmuts
Kohl kanslara Vestur-Þýskalands,
48,14% atkvæða og munaði þar
mest um fylgi Kristilega lýðræðis-
flokksins sem hlaut 40,91% at-
kvæða.
Jafnaðarmannaflokkurinn sem
var helsti keppinautur hægriflokk-
anna hlauteinungis21,84% atkvæða
sem var langtum minna, en það sem
flokknum var spáð, en í skoðana-
könnunum nýlega fékk flokkurinn
rúmlega 35% fylgi. Andlitslyfting
gamla kommúnistaflokksins gckk
greinilega vel, því flokkurinn hlaut
16,33% atkvæða og er því þriðji
stærsti flokkur landsins.
Lothar de Maiziere hinn hægláti
formaður Kristilega lýðræðisflokks-
ins mun því án efa verða síðasti
forsætisráðherra Austur-Þýskaland
fyrir sameininguna. De Maiziere
bauð Jafnaðarmannaflokknum og
hinu frjálslynda Frjálsa lýðræðis-
bandalagi að taka þátt í samsteypu-
stjórn mcð flokkunum þremur er
mynduðu kosningabandalag hægri-
manna, Kristilega lýðræðisflokkn-
um, Lýðræðislegri vakningu og
Þýska jafnaðarbandalaginu. Vildi
Maiziere mynda breiða samsteypu-
stjórn sem hefði nægan þingstyrk til
að koma á fót breytingum á stjórnar-
skrá Austur-Þýskalands.
Ibrahim Böhme leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins í Austur-Þýskalandi
hafnaði þessu tilboði De Maiziere
og sagði að flokkur sinn myndi
standa við þau heit sem hann gaf
fyrir kosningarnar, sem var að taka
ekki þátt í samsteypustjórn mcð
kosningabandalagi hægrimanna sem
vilja sameinast Vestur-Þýskalandi
Róttækir umbótasinnar virðast
hafa náð meirihluta á borgarþinginu
í Moskvu í kosningum, sem fram
fóru á sunnudaginn. Þá hefur verið
staðfest, að róttæklingar hafa náð
meirihluta í stjórnum ýmissa stórra
borga í Sovétríkjunum í sömu kosn-
ingum.
Þó að endanlegar tölur hafi ekki
legið fyrir, þá skýrði sovéska síðdeg-
isblaðið Izvestia frá því að samtök,
sem kalla sig „Lýðræðisleg Rússíá“,
hafi náð meirihluta þingsæta, en
samtök þessi berjast fyrir mun rót-
tækari umbótum í Sovétríkjunum,
en sem Mikhaíl Gorbatsjof forseti
hefur boðað.
Þrátt fyrir slælegan árangur
kommúnistaflokksins í kosningun-
um, náðu Júrí Prokofiyev yfirmaður
Moskvudeildar kommúnistaflokks-
skilyrðislaust sem allra fyrst, né með
gamla kommúnistaflokknum. Jafn-
aðarmenn vilja rólega sameiningu
við Vestur-Þýskaland og vilja að
félagslegt öryggi Austur-Þjóðvcrja
verði ekki lagt fyrir róða.
Allar líkur eru því á að hið
frjálslynda Frjálsa lýðræðisbandalag
myndi meirihlutastjórn með kosn-
ingabandalagi hægri manna, en slík
ríkisstjórn hefði 215 þingmenn á bak
við sig, en alls sitja 400 þingmenn í
Volkskammer. Slík ríkisstjórn yrði
spegilmynd ríkisstjórnar Helmuts
Kohl í Vestur-Þýskalandi.
Úrslit kosninganna eru túlkuð sem
gífurlegur sigur fyrir Helmut Kohl
kanslara Vestur-Þýskalands, en
hann studdi dyggilega við bakið á
kosningabandalagi hægrimanna.
Mætti hann meðal annars á sex
fjölmenna útifundi þeirra í Austur-
Þýskalandi og hvatti til hraðrar sam-
einingar ríkjanna tveggja. Talið er
næsta víst að liðveisla Kohls hafi
vegið þungt í kosningabaráttunni,
ekki síst eftir að hann hét því að
Vestur-Þjóðverjar myndu skipta
öllu sparifé Austur-Þjóðverja f vest-
urþýsk mörk á jafngengi eftir að
myntbandalag ríkjanna væri komið
á. Hefur Kohl verið sakaður um að
hafa borið fé í dóminn með þessu
loforði sínu og haft þannig áhrif á
austurþýska kjósendur.
Reyndar er talið að kosningaúr-
slitin tryggi, að myntbandalag þýsku
ríkjanna verði orðið að veruleika í
júnímánuði. Elmar Pieroth, sem er
vesturþýskur stjórnmálamaður og
sérfræðingur í efnahagsmálum mun
að öllum líkindum verða efnahags-
málaráðherra Austur-Þýskalands,
en De Maiziere leiðtogi Kristilega
lýðræðisflokksins útnefndi hann sem
slíkan í gær. Pieroth sagði að mynt-
bandalagi yrði komið á ekki síðar en
30.júní.
ins og Valery Saikin borgarstjóri
kjöri.
I Leníngrad næststærstu borg Sov-
étríkjanna unnu róttækir umbóta-
sinna sigur. Samtökin „Lýðræðisleg-
ar kosningar ’90“ hlútu 54% atkvæða
til borgarráðs og 80% þeirra þing-
sæta, sem Leníngrad hefur á þingi
Rússneska ríkjasambandsins. Þrátt
fyrir það, hélt borgarstjórinn Vla-
dimir Khodyrev sæti sínu.
Þá náðu fulltrúar Rukh, hinnar
róttæku þjóðernishreyfingar Úkr-
aínubúa, meirihluta í borgarráði
Kiev, auk þess, sem þeir unnu 15 af
22, sætum sem Kiev hefur á þingi
Úkraínu.
Þá bendir allt til þess að hópar,
sem berjast fyrir sjálfstæði Eistlands
og Lettlands, hafi unnið stóra sigra
í kosningunum þar.
Stjórnvöld í Sovétríkjunum vör-
uðu hina nýju valdhafa í Austur-
Þýskalandi við gönuhlaup hvað sam-
einingu þýsku ríkjanna varðar og
undirstrikuðu þá skoðun Sovét-
manna að ekki kæmi til greina að
sameinað Þýskaland verði innan vé-
banda Nato.
- Við virðum val kjósenda, en
búumst jafnframt við því að hin nýja
ríkisstjórn í Austur-Þýskalandi muni
virða skyldur sínar og hagsmuni
okkar, sagði Gennadí Gerasimov
talsmaður sovéska utanríkisráðu-
Jimmy Carter fyrrum forseti
Bandaríkjanna, sem nú er á för um
löndin fyrir botni Miðjarðarhafs
fordæmdi harðlega mannréttinda-
brot ísraelsstjórnar í garð Palestínu-
manna á hernumdu svæðunum. Car-
ter fordæmdi fsraelsstjórn eftir fundi
með ísraelskum mannréttindasam-
tökum.
Carter, sem alla sína forsetatíð
setti mannréttindamál á oddinn,
sagðist hafa verið illa snortinn af
þeim upplýsingum, sem mannrétt-
indasamtökin gáfu honum um
grimmileg mannréttindabrot ísraela
á Palestínumönnum.
neytisins á blaðamannafundi eftir að
úrslit kosninganna lágu fyrir.
Gerasimov sagðist sérstaklega
hafa í huga með þessum orðum
sínum að sameinað Þýskaland gæti
aldrei orðið aðili að Nato þar sem
slíkt myndi ógna valdajafnvægi Evr-
ópu.
Bandaríkjamenn telja hins vegar
að kosningaúrslitin sýni það svart á
hvítu að Austur-Þjóðverjar vilji
sameinast Vestur-Þýskalandi hið
fyrsta og að sameinað Þýskaland eigi
að vera í Nato.
- Hér hafið þið lýðræðislega ríkis-
stjórn sem í nær 23 ár hefur borið
ábyrgð á lífi þessa fólks. Það er enn
verið að eyðileggja hús þeirra, það
er enn verið að hneppa þá í fangavist
án ákæru - þeir hafa ekki möguleika
að sjá fjölskyldur sínar, þeir hafa
ekki einu sinni möguleika að sjá
andlit þeirra sem ásaka þá og þeir
þurfa að dúsa í fangelsi í allt að því
ár, sagði Carter.
Rúmlega 800 Palestínumenn hafa
verið drepnir á hernumdu svæðun-
um frá því uppreisn þeirra hófst fyrir
rúmum tveimur árum. 44 Gyðingar
liggja einnig í valnum.
Kosningar í Sovétríkjunum:
Róttækir
vinna Moskvu
Carter fordæmir
mannréttindabrot
ísraelsstjórnar