Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn Þriðjudagur 20. mars 1990 \ VÉLAR OG ÞJÓNUSTA HF -aukin áhersla á varahlutaþjónustu Nýlega tók til starfa í varahlutadeild Véla og þjónustu hf, nýr starfsmaður, Agnar Þór Hjartar. Hann hefur um árabil starfað hjá Sambandinu Ármúla 3, alla tíð í varahlutadeild og lengst af sem verslunar- og deildarstjóri. 1 hinu nýja starfi mun Agnar fyrst og fremst vinna að markaðssetningu vara- og aukahluta og sjá um sérpantanir. Vélar og þjónusta hf hafa m.a. umboð fyrir Case-IH dráttar- og vinnuvélar, Úrsus dráttarvélar, Atlas-gröfur. Krone og Stoll heyvinnutæki. ásamt ýmsum öðrum vélum og tækjum sem viðkemur vinnuvélamarkaði og landbúnaði. Vara- hlutadeildin er einnig með varahluti í aðrar gerðir af vélum og tækjum sem viðkemur þessum atvinnugreinum. Starfsmenn varahlutaverslunar eru 6, verslunarstjóri er Guðjón Ágústsson. með útibú allt í kringum landið, gera þér mögulegt að leigja bíl á einum staö og skila honum á öðrum Reykjavík 91-686915 Akureyri 96-21715 Er Snorri Sturluson upphafs- maður íslendingasagna? Dr. Jónas Kristjánsson, forstöðumað- ur Stofnunar Árna Magnússonar, flytur opinberan fyrirlestur um aldur fslend- ingasafna á vegum Stofnunar Sigurðar Nordals, þriðjudaginn 20. mars í stofu 101 í Odda.' hugvísindahúsi Háskóla íslands, kl. 17:15. ( fyrirlestrinum, sem nefnist „Er Snorri Sturluson upphafsmaður Is- lendingasagna?“. Jónas mun fjalla um hugmyndir sínar um ritunartíma íslend- ingasagna en um það efni hefur hann skrifað mikið, m.a. í doktorsriti sínu Um Fóstbræðrasögu. 1 sumar verða unglingaskipti við Eng- land og Holland. Tíu unglingar á aldrin- um 12-15 ára, ásamt fararstjóra, fara til hvors lands og dvelja hjá fjölskyldum í tvær vikur. Meðan á heimsókninni stend- ur er skipulögð sameiginleg dagskrá, t.d. farið í útilegur og ferðalög. Unglingar frá sömu löndum heimsækja Island og dvelj- ast á heimilum íslensku unglinganna í tvær vikur. Ensku unglingarnir dveljast hér 7.-21. apríl, en dvölin í Englandi (Newcastle) er 17.-31. júlí. Skiptin við Holland (Amsterdam) eru 13.-27. júlí og 30. júlí-12. ágúst. Unglingaskipti CISV er tilvalin og tiltölulega ódýr leið fyrir unglinga til að kynnast lífi í öðru landi. Upplýsingar eru gefnar í síma 657636, en einnig er hægt að skrifa í Pósthólf 86, 210 Garðabær. HÁSPENNA - LÍFSHÆTT A! Rafmagnseftirlit ríkisins sendir frá sér eftirfarandi viövörun: ★ Óhöppum og tjónum af völdum háspennu fer fjölgandi. Flest slík óhöpp veröa fyrir vangá eöa hugsunarleysi. ★ ÖKUMENN: Hafið gát á háspennulínum ef þiö eruö meö hátt loftnet eöa meö háfermi á bílnum. Reisiö ekki bílpall upp í Iínur, eins og mörg dæmi eru um viö vegagerö og aðrar framkvæmdir. ★ GRÖFU- OG KRANASTJÓRAR: Fylgist vandlega meö öllum hreyfingum tækjanna og fariö meö sérstakri gát, ef þiö eruð aö störfum í nánd viö háspennu- línur. Ef ökutæki eöa vinnuvél snertir há- spennulínu er sjálfsagt aö reyna strax aö Kvenfélagið Seltjörn Fundur í Félagsheimili Seltjarnarness þriðjud. 20. mars kl. 20:30. Myndasýning og kynning á Vestmannaeyjum á dagskrá. Veitingar. Háskólafyrirlestur um Don Quixote Dr. Karl-Ludwig Selig, fyrrum prófess- or í spænskum bókmenntum við Colum- bia-háskóla í Bandaríkjunum, flytur op- inberan fyrirlestur í boði Heimspekideild- ar Háskóla íslands fimmtudaginn 22. mars kl. 17:30 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist: „Don Quixote and Ihe Art of the Novel“ og verður fluttur á ensku. Dr. Selig lét a starfi í fyrra vegna aldurs. Hann hefur verið útgáfustjóri fjölmarra bómenntatímarita í Bandaríkj- unum og er einkum kunnur fyrir fræði- störf og greinaskrif um verk Cervantes og Garcia Lorca. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Háskólatónleikar í hádeginu Miðvikudaginn 21. mars kl. 12:30 ntunu Sigurður Bragason, barítón og Elín Guðmundsdóttir semballeikari flytja verk á Háskólatónleikunum í Norræna húsinu. Á tónlcikunum verða fluttar aríur eftir Giulio Caccini (1546-1618), Claudio Monteverdi (1567-1643, AlessandroScar- latti (1660-1725 ogfleiri tónskáld frá þeim tíma er óperan var að stíga sín fyrstu skref. Sigurður Bragason nam píanóleik hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni við Tónlistar- skólann í Reykavík. Að loknu stúdents- prófi stundaði hann nám í tónmennta- kennaradeild sama skóla. Söngkennari hans þar var Rut Magnússon. Síðan lauk Sigurður áttundastigsprófi frá Söng- skólanum í Reykjavík og voru kennarar hans þar Sigurður Björnsson og Magnús Jónsson. Hann nam síðan söng hjá Pier Miranda Ferraro í Mílanó á (talíu. Sig- urður hefur sótt Masterclass hjá Hanno Blaschke í Múnchen og franska söngvar- anum Gerard Souzay. Sigurður hefur sungið á fjölmörgum tónleikum í Reykjavík og víða um land. ( uppfærslu íslensku hljómsveitarinnar á Dido og Aeneas söng hann hlutverk Aeneasar. Sigurður var valinn bæjarlista- maður Kópavogs 1989 og í tengslum við þá útnefningu hélt hann tónleika í Osló og Kaupmannahöfn, sem fengu frábæra dóma. Sigurður er formaður Félags ís- lenskra óperusöngvara. Elín Guðmundsdóttir lauk píanókenn- araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík vorið 1970. Eftir það hóf hún nám í semballeik við sama skóla hjá Helgu Ingólfsdóttur og lauk einleikaraprófi vor- ið 1975. Sem semballeikari hefur Elín tekið þátt í flutningi fjölda tónverka og hún hefur einnig starfað sem píanóleikari við Söngskólann í Reykjavík frá 1983. KARLAKÓR REYKJAVÍKUR -í Langholtskirkju Karlakór Reykjavíkur heldur sína ár- legu tónleika fyrir styrktarfélaga og vel- unnara sína í Langholtskirkju dagana 19., 20., 21. og 24. mars nk. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30, nema tónleikarnir þann 24. sem hefjast kl. 16:00. Aðalstjórnandi er Páll P. Pálsson. Einsöngvarar að þessu sinni verða Inga Backmann og Friðrik Kristinsson. Undirleik annast Catherine Williams, sem stjórnaði kórnum sl. vor, og starfaði einnig hjá söngskólanum og (slensku óperunni, en er flutt aftur til Cardiff í Wales. Hún kemur nú hingað sérstaklega til samstarfs við kórinn. Á tónleikunum verða flutt íslensk og erlend lög, m.a. nýtt tónverk eftir Pál P. Pálsson „Glymrur" við ljóð Ragnars Ing- ólfssonar. Undirleik í því lagi leikur Oddur Björnsson á básúnu. Oddur hefur starfað hjá kórnum við raddþjálfun og söngstjórn undanfarin ár. Af erlendum lögum má nefna syrpur eftir Stephen Foster, „María" úr West Side Story, „No other Love“ eftir Rodger og Hammerstein o.fl. Minningarkort Áskirkju Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort Safnaðarfélags Áskirkju til sölu: Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37, sími 681742 Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími 82775 Pjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27 Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1, Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími 681984, I loltsapótek, Langholtsvegi 84, Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27, Verslunin Rangá, Skipasundi 56. Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman- gengt, kostur á að hringja í Áskirkju, sími 84035 milli kl. 17:00 og 19:00 og mun kirkjuvörður annast sendingu minningar- korta fyrir þá sem þess óska. Áskell Másson á tónskálda- kvöldi í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar I kvöld, þriðjud. 20. mars kl. 20:30 stendur íslensk tónverkamiðstöð og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar fyrir „Kvöldstund með tónskáldi“. sem að þessu sinni er tónskáldið Áskell Másson. Hljóðfæraleikarar með honum eru: Daði Kolbeinsson, Einar Jóhannesson og Haf- steinn Guðmundsson. Umræður og fyrir- spurnir verða eftir tónleikana. BÍLALEIGA Úr sýningarsalnum Austurstræti 3 UR HUGARHEIMI Sýning á verkum fatlaðra í Listasafni ASf Nýlega var opnuð sýning á verkum fatlaðra í Listasafni ASI að Grensásvegi 16. Forseti (slands, frú Vigdís. Finn- bogadóttir var heiðursgestur við opnun- ina og Svavar Gestsson menntamáiaráð- herra ávarpaði samkomuna. Einnig var ljóðadagskrá með söng og upplestri. Síð- ar verða fyrirlestrar um heimspeki, list- fræði, sállækningar og listmeðferð. Verð- ur það auglýst síðar. Landssamtökin Þroskahjálp og Ör- yrkjabandalag (slands ákváðu að hefja leit að verkum fatlaðra. Leitað hefur verið til þeirra sem eru mikið hamlaðir og athugað hvað listsköpun hefur gert fyrir þá, m.a. sem tjáningarmiðill. Áðgangur að sýningunni er öllum heimill og aðgangur er ókeypis. Úr hugarheimi ft Gallerí Borg á þremur stöðum Gallerí Borg hefur nú flutt þá starfsemi sína sem var uppi á lofti í Pennanum, Austurstræti 10. Nú fer öll sala á smærri myndum, þ.e.a.s. grafíkmyndum, vatns- litamyndum, pastelmyndum og minni olíumyndum fram á tveimur stöðum, í Austarstræti nr. 3 (í sal á jarðhæð) og í Síðumúla 32 (sama hús og Álnabær). Þar hafa sameinast undir sama þaki, Gallerí Borg og Listinn, innrömmunarverkstæði, sem áður var í Brautarholti. Auk þess að selja áfram myndir eftir flesta af þekktustu listamenn landsins verður á boðstólum úrval af keramikverk- um og módelskartgripum úr leir, gleri og silfri. Starfsemin í Gallerí Borg, Pósthús- stræti 9, verður áfram með sama sniði og verið hefur, þ.e.a.s. sýningar á jarðhæð- inni og umboðssala á gömlu meisturunum í kjallaranum. Nýsköpun í Listamannahúsinu í kvöld, þriðjud. 20. mars kl. 20:30 verður efnt til fjölbreyttrar dagskrár í Listamannahúsinu í tilefni af Huga- myndasýningu Birgittu Jónsdóttur. Myndlistarmaðurinn og performarinn Cheo Cruz frá Kolumbíu og Gunnar Grímsson tónlistarmaður munu fram- kalla með blandaðri tækni performansinn Vulkano. Sigurður Sigurðsson og Pálmi J. Sigur- hjartarson spila blues og Gunnar Gríms- son býr til Hljóðverflahávaða. tfmaritið Rómur verður kynnt. Margrét Hugrún og Sigrún Jónsdóttir sýna öratriði. Birgitta Jónsdóttir spinnur orð við tónaflóð Gunnars Grímssonar. Mike Pollock, Pjetur Hafstein, Margrét Lóa og G. Rósa lesa úr eigin hugverkum. Listamannahúsið er að Hafnarstræti 4, eftir hæð. Aðgangur er ókeypis. Aðalfundur Fuglaverndarfélagsins Aðalfundur Fuglaverndarfélags íslands 1990 verður haldinn í hliðarstofu Norræna hússins laugardaginn 31. mars kl. 16:00 (ld. 4 e.h.) Venjuleg aðalfundar- störf. Spilakvöld Kvenfélags Kópavogs Spilað verður í kvöld, þriðjud. 20. mars í Félagsheimili Kópavogs. Byrjað verður að spila kl. 20:30. Allir velkomnir. Hafnarfjarðarbær riir Lóðaúthlutun Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum fyrir íbúðarhús á Hvaleyrarholti. Lóðirnar eru þegar byggingarhæfar. Umsóknarfrestur er til miðvikud. 28. mars n.k. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6. Bæjarverkfræðingur. Kransar, krossar, kistu- skreytingar, samúðarvendir og samúðarskreytingar. Sendum um allt land á opnunartíma frá kl. 10-21 alla daga vikunnar. MIKLUBRAUT 68 o 13630 Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóðir og amma Helga Lovísa Kemp Vifilsstöðum veröur jarðsungin frá Garðakirkju miðvikudaginn 21. mars kl. 13.30. Hrafnkell Helgason Helgi Hrafnkelsson Anna Gunnlaugsdóttir Stella Stefanía Hrafnkelsdóttir Einar Sigurgeirsson Hrefna Hrafnkelsdóttir Gunnar Karl Guðmundsson og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma Guðbjörg Jónsdóttir Kirkjuvegi 14, Selfossi lést að Ljósheimum aðfaranótt mánudagsins 19. mars Eygló Kristófersdóttir Björn Sigurðsson Ester Halldórsdóttir Steinar Karlsson Hrefna Halldórsdóttir Ágúst Morthens og barnabörn Pöntum bíla erlendis interRent Europcar Böm í þjúðbúningum Unglingar til útlanda CISV, eða Alþjóðlcgar Sumarbúðir Barna, er alþjóðleg hreyfing, sem starfar víða um lönd og tengist m.a. Sameinuðu þjóðunum. Hreyfingin er óháð stjórnmál- um og trúarbrögðum. Hér á landi hefur CISV starfað í mörg ár og scnt börn og unglinga í sumarbúðir og unglingaskipti til margra landa.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.