Tíminn - 20.03.1990, Qupperneq 5
Þriðjudagur 20. mars 1990
Tíminn 5
Jarðskjálfti, tæplega fimm stig á Richter-kvarða, skók höfuðborgarsvæðið
í gær. Stöðugir skjálftar frá því á aðfararnótt laugardagsins.
Búist við skjálftavirkni næstu daga:
Eru skjálftarnir
undanfari eldgoss?
Allsnarpur jarðskjálftakippur varð á höfuðborgar-
svæðinu um fimmtán mínútum fyrir ellefu í gærmorgun.
Á undan sterkasta skjálftanum komu smærri skjálftar og
síðan fylgdu smærri skjálftar í kjölfar þess stóra. Upptök
skjálftanna voru við vesturbakka Kleifarvatns en tals-
verð skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesi um helgina
sem náði hámarki með skjálftunum í gær. Skjálftinn sem
varð laust fyrir klukkan 11 náði um fimm Richter-stigum.
„Upptökin eru á eldvirku svæði
og þessar hrinur sem einkenna eld-
virk svæði eru gjarnan skýrðar vegna
nálægðar við hraunkviku," sagði
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur á Veðurstofunni.
Ragnar sagði að skjálftavirkni á
Kleifarvatnssvæðinu hefði byrjað
aðfararnótt laugardags en þá hefði
orðið um 3,4 Richter-stiga skjálfti.
Skjálftar hefðu síðan haldið áfram
mest alla helgina og síðan kom
stærsti skjálftinn í gærmorgun; tæp
fimm Richter-stig
- En er eldgos hugsanlegt á þess-
um slóðum?
„Það má segja að alltaf þegar
jörðin hreyfist hér á landi, megi gera
ráð fyrir að kvika geti hreyfst í
tengslum við það. Samt sem áður
verða tiltölulega sjaldan eldgos
þarna og orðið mjög langt síðan
síðast. Nú er ekkert sem sérstaklega
bendir til þess að eldgos sé að
hefjast. Því er þó ekki að neita að
því lengur sem skjálftavirknin
stendur, þeim mun meiri líkur verða
á því að einhver yfirborðsvirkni af
völdum kviku verði, það er víst
kallað eldgos,“ sagði Ragnar.
Skjálftinn fannst mismunandi
mikið á Reykjavíkursvæðinu og
einna sterkast í Garðabæ. Þá hristist
hús ritstjórnar Tímans að Lynghálsi
rækilega og buldi í þvf og lausir
hlutir færðust til.
Almannavarnir sendu frá sér til-
kynningu í gær vegna skjálftanna.
Þar segir að skjálftinn í gær væri sá
sterkasti síðan 1973. Búast mætti við
fleiri skjálftahrinum á næstu dögum.
Ekki væri þó ástæða til að óttast og
vart væri að búast við stærri
skjálftum. Þó væri fólki bent á að
kynna sér vel leiðbeiningar Al-
mannavarna um viðbrögð gegn jarð-
skjálftum á bls. 860 í símaskránni.
í gærkvöldi var ekki vitað um
neinar teljandi skemmdir á húsum
eða mannvirkjum utan þær, að ný-
byggt hús við Fagrahjalla skemmdist
nokkuð og sprungur mynduðust í
gólfplötu, í lofti og í veggjum.
Eigandi hússins, sem vaknaði við
gauraganginn í gærmorgun sagði að
skemmdirnar væru ekki tiltakanlega
miklar og fremur auðvelt ætti að
vera að lagfæra þær. -sá
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur við útprentunina af jarð-
skjáiftamælinum. Hann bendir á þar sem „stóri“ skjálftinn er skráður,
en eins og sjá má hefur skjálftavirknin verið mjög mikil.
Tímamynd Árni Bjarna
m}
Wf
l*?l
L ||u
Samtökin Nýr vettvangur stofnuö um síðustu helgi. Fjöldi Alþýöubandalagsfólks í samtökunum:
Hef ur Alþýdubandalagið
loks endanlega klofnað?
„Ætlunin er að halda prófkjör
7.-8. apríl og að því munu Alþýðu-
flokkurinn og Nýr vettvangur
standa. Prófkjörið verður opið og
fleiri samtök en ofannefnd geta tekið
þátt í því, enda verður reynt að fá
fleiri til liðs við hugmyndina um
sameiginlegt framboð félagshyggju-
fólks í Reykjavík," sagði Svanur
Kristjánsson prófessor, einn af
stofnendum stjórnmálasamtakanna
Nýs vettvangs.
Svanur sagði að bréflegt samband
yrði haft við fulltrúaráð Framsókn-
armanna í Reykjavík, Kvennalist-
ann og Alþýðubandalagið, þar sem
þeim yrði gefinn kostur á að taka
þátt í prófkjöri Nýs vettvangs og að
standa að framboði á vegum hans.
„Listinn verður sjálfstæður og það
verða engin samtök, hvorki Alþýðu-
flokkurinn né aðrir, sem eiga fulltrúa
í borgarmálaráði hans með at-
kvæðisrétt. Borgarmálaráðið verður
sjálfstæður aðili, sem undirbýr þátt-
töku í kosningunum og ákveður
listabókstafinn og heiti framboðs-
ins,“ sagði Svanur Kristjánsson.
Kristín Ólafsdóttir borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
hefur lýst því yfir, að hún verði ekki
í framboði á vegum Alþýðubanda-
lagsins í kosingunum í vor. Hún
hefur jafnframt nú lýst því yfir, að
hún muni bjóða sig fram í prófkjöri
Nýs vettvangs. Aðrir, sem gefið hafa
kost á sér í prófkjörið, eru Valgerður
Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari og rit-
ari Nýs vettvangs, Kristrún Guð-
mundsdóttir gjaldkeri og varafor-
maður Nýs vettvangs Ragnheiður
Davíðsdóttir blaðamaður, sem kjör-
in var formaður hinna nýju samtaka
á stofnfundi um helgina, Ólína Þor-
varðardóttir dagskrárgerðarmaður
og Hrafn Jökulsson blaðamaður.
Auk Kristínar og Hrafns er fleira
fólk, sem tengst hefur Alþýðubanda-
laginu áberandi í samtökunum, svo
sem fyrrverandi varaformaður og
allnokkrir núverandi miðstjórnar-
menn. Má túlka það sem svo að
flokkurinn hafi klofnað?
„Það hefur ekki orðið neinn form-
legur klofningur í flokknum. Það er
þó staðreynd, að félagar sem gegnt
hafa trúnaðarstöðum og verið áber-
andi í flokknum hafa lýst yfir stuðn-
ingi við annan lista en G-listann,“
sagði Stefanía Traustadóttir formað-
ur Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
Stefanía sagði, að verið væri að
undirbúa framboð G-listans í
Reykjavík og frá þvi yrði ekki
hvikað. Stefanía minnti á ummæli
sín fyrir um einu og hálfu ári síðan
þegar Birting var stofnuð. Þá sagði
hún að félagsstofnunin gæti hugsan-
lega leitt til klofnings flokksins.
„Mér sýnist að ekkert hafi gerst
síðan þá sem gert hafi þau orð
ómerk," sagði hún.
Stefanía sagði að Alþýðubanda-
lagið í Reykjavík hefði það hlutverk
samkvæmt lögum sínum og flokksins
að sjá um að bjóða fram G-lista í
Reykjavík og það yrði gert. Ekkert
annað Alþýðubandalagsframboð
væri á dagskrá né heldur í boði.
Ekki tókst að hafa tal af Ólafi
Ragnari Grímssyni formanni Al-
þýðubandalagsins vegna þessa máls
en Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra og fyrrverandi formaður sagði
að þetta væru alvarleg tíðindi og
margan félagann hefði sett hljóðan
þegar þessar fréttir komu fram. Þá
hefði hann orðið var mjög harðra
viðbragða félaga í flokknum um allt
land vegna þessara tíðinda.
„Það hefur legið fyrir um nokk-
urra vikna skeið að verið sé að
undirbúa framboð á vegum Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík sem ák-
veðið var á fundi fyrir nokkrum
vikum. Því kemur þetta okkur í
opna skjöldu," sagði Svavar.
- Þar sem einkum virðist um að
ræða Alþýðuflokksfólk og fólk úr
Birtingararmi Alþýðubandalagsins
sem stendur að Nýjum vettvangi,
má þá gera ráð fyrir að það endur-
spegli skoðanaágreining innan Al-
þýðubandalagsins og að fólk þaðan
eigi fleira sameiginlegt með Alþýðu-
flokksfólki en Alþýðubandalagi?
„Ég geri út af fyrir sig ráð fyrir því
að þarna sé um að ræða fólk sem
hefur bundið vonir við að hægt yrði
að samfylkja öllum félagshyggjuöfl-
um í borginni gegn borgarstjórnar-
íhaldinu. Það er í sjálfu sér eðlilegt
sjónarmið. Vandinn var bara sá að
það lá snemma fyrir að Alþýðuflokk-
urinn og síðan Kvennalistinn neitaði
þátttöku í slíkri samfylkingu. Fram-
sóknarflokkurinn hafnaði þátttöku
nema að allir borgarstjórnarand-
stöðuflokkarnir yrðu með. Síðan
gerist það að Alþýðuflokkurinn lýsir
áhuga á samfylkingu eftir að hafa
afneitað hugmyndinni áður.
Niðurstaða Alþýðubandalagsins í
Reykjavík varð því sú að ekkert
væri annað að gera fyrir flokkinn en
bjóða fram hér í Reykjavík. SÁ
„Hundakofi
í paradís“
þýddánorsku
Hundakofi í paradís eftir Ármann
Kr. Einarsson kom út í norskri
þýðingu Ásbjörns Hildremyr hjá
Fonna forlagi í Osló fyrir síðustu jól.
Útgáfan fékk styrk Norræna Þýðing-
arsjóðsins.
Á kápusíðu segir meðal annars:
Sagan er hlý og lifandi lýsing á
daglegu lífi tveggja íslenskra
bræðra, Stóra Jóns og Litla Jóns,
sem eru tíu og tveggja ára gamlir.
Náttúra og lífskjör eru á margan
hátt lík á íslandi og Noregi. Lýsingar
sögunnar koma því Norðmönnum
kunnuglega fyrir sjónir.
Frumútgáfa bókarinnar hlaut
viðurkenningu í samkeppni Náms-
gagnastofnunar 1985 um létt lescfni
fyrir yngri nemendur grunnskólans.
Bókin er myndskreytt eftir Brian
Pilkington.
Hundakofi í paradís er 15. bókin
sem gefin er út í Noregi eftir Ármann
Kr. Einarsson.
Vel sótt
dorgkeppni
Rúmlega hundrað veiðimenn
mættu til keppni í dorgi á Geita-
bergsvatni í Svínadal nú um helg-
ina. Myndin er af Guðmundi
Benediktssyni, sem fékk verð-
laun fyrir stærsta fiskinn, 5,5
punda urriða. Guðmundur setti í
annan stóran urriða, en missti
hann eftir nokkurt basl. Taldi
hann, að sá hafi ekki verið minni
en sá, er færði honum verðlaunin.
Alls veiddust á bilinu 40 til 50
smábleikjur, auk tveggja vænna
urriða, annar var 5,5 pund, en
hinn 2 pund. Reyndar veiddist
einn lax, en var sá mjósleginn
mjög og reyndist þrjú pund.
Flesta fiska veiddi Rúnar Ragn-
arsson, en hann veiddi 15 bleikju-
titti. Stangaveiðifélag Reykjavík-
ur stóð fyrir keppni þessari og
líkaði mönnum almennt vel og þá
ekki síst, að boðið var upp á heitt
kakó og pylsur í veiðihúsi SVFR
við Geitabergsvatn. Norðlend-
ingar, sem ætluðu að fjölmenna á
keppnina komust ekki á áfanga-
stað, þar sem þeir sátu fastir í
rútu sinni á Öxnadalsheiði.
-ABÓ