Tíminn - 20.03.1990, Qupperneq 14
'-14'Tírrlinn
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Lausar stöður við grunn-
skóla í Austurlandsumdæmi
Umsóknarfrestur er til 14. apríl.
Staöa skólastjóra viö Grunnskólann á Bakkafirði.
Kennarastöður viö eftirtalda grunnskóla:
Seyðisfjaröarskóla
Grunnskóla Neskaupstaöar
Grunnskóla Eskifjaröar
Egilsstaðaskóla
Grunnskólann Bakkafirði
Vopnafjarðarskóla
Brúarásskóla
Skjöldólfsstaðaskóla
Fellaskóla
Grunnskóla Borgarfjarðar
Hallormsstaðaskóla
Grunnskólann Eiðum
Grunnskólann í Norðfjaðarhreppi
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóla Stöðvarfjarðar
Grunnsólann Breiðdalshreppi
Grunnskólann Djúpavogi
Neskjaskóla
Hafnarskóla og Heppuskóla Höfn
Grunnskólann í Myrahreppi
Grunnskólann í Hofshreppi.
Menntamálaráöuneytið
Tilkynning um
fgfgatnagerðargjöld
tf/ í Reykjavík
Að gefnu tilefni er vakin athygli á ákvæðum
reglugerðar nr. 511, 1988 varðandi gatnagerðar-
gjöld í Reykjavík og breytingu á þeim, sem verður
1. júlí 1990. Til 1. júlí n.k. ber samkvæmt
reglugerðinni að greiða hálft gatnagerðargjald af
nýbyggingum og stækkunum húsa á eignarlóðum
og leigulóðum, sem borgarstjórn Reykjavíkur
úthlutaði fyrir 4. maí 1984, nema sérstakir samn-
ingar leiði til annars. Grundvöllur gatnagerðar-
gjalds er samþykkt byggingarnefndar á teikningum
og miðast ofangreint því við, að teikningar af
nýbyggingum eða stækkun húsa hafi verið sam-
þykktar í byggingarnefnd Reykjavíkur fyrir 1. júlí
1990. Eftir þann dag ber að greiða fullt gatnagerð-
argjald af byggingum á öllum lóðum í Reykjavík,
sem ekki eru sérstaklega undanþegnar með
samningum eða á annan hátt.
Athygli er vakin á því, að því fyrr, sem teikningar
eru lagðar fyrir byggingarnefnd, er líklegra, að
unnt verði að afgreiða þær fyrir 1. júlí n.k.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Félag einstæðra foreldra
Hringbraut 116,107, Reykjavík.
Sími 91-11822
Meðlag
Helmingur eða hungurlús?
Almennurfundur í Skeljahelli, Skeljanesi 6fimmtu-
dagskvöldið 22. mars kl. 20.30.
1. Framsögureindi: Geir H. Haarde, alþingismað-
ur, Finnur Ingólfsson, aðstm. tryggingamála-
ráðherra, Ingibjörg Magnúsdóttir, varaform.
Félags einstæðra foreldra.
2. Umræður og fyrirspurnir.
Kaffi og kleinur í fundarhléi.
Mætum öll!
Með baráttukveðjul!
Stjórn Félags einstæðra foreldra.
',vr.
Þriðjudagur 20. mars 1990
ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
íslandsmótið í blaki:
Enn er smá von h já
íslandsmeisturunum
Frá Jóhannesi Bjarnasyni íþróttafréttaritara
Tímans ó Akureyri:
íslandsmeistarar KA í blaki
karla halda enn í vonina um sigur
í úrslitakeppninni um íslandsmeist-
aratitilinn, en þeir eru nú óðum að
ná sér á strik eftir afleita byrjun,
þar sem tveir fyrstu leikimir töpuð-
ust.
Á laugardag lögðu þeir HK að
velli nyrðra í fjórum hrinum, sigur-
inn var öruggur þrátt fyrir góða
baráttu Kópavogsdrengja og úrslit-
in í einstökum hrinum voru eftir-
farandi: 15-4,15-11,13-15 og 15-5.
Varamenn KA fengu að spreyta
sig þriðju hrínu, en það nýttu HK-
menn sér vel.
Falleg tilþríf sáust hjá báðum
liðum og sérlega góð hávörn KA-
manna vakti athygli. Hafsteinn
Jakobsson var óstöðvandi í sókn-
inni og Haukur Valtýsson var iipur
í uppspili KA-manna. HK-liðið
var jafnt að getu, vöm liðsins í
háloftunum var þó ekki nægjan-
lega góð.
Athygli vöktu búningar þeirra
HK-manna, en þeir fengu hjörtu
áhorfenda úr hópi kvenna til að siá
mun hraðar.
KA-menn verða nú að leggja allt
sitt traust á HK-piItana, þeir verða
að vinna Þrótt í síðustu umferð og
KA að vinna ÍS, ef titillinn á að
íiengjast nyrðra.
Fyrír karlaleikinn léku stúlkum-
ar í KA við stöllur sínar í Víkingi
og höfðu þær fyrrnefnda sigur í
fjoriim hrínum, 15-12,12-15,15-10
og 15-12. Þetta voru fyrstu stig KA
í úrslitakeppninni og með þessu
tapi em vonir Vfldnga úr sögunni
um íslandsmeistaratitilinn. BL
Körfuknattleikur:
Þórsarar áfram
í úrvalsdeildinni
Frá Jóhannesi Bjarnasyni íþróttafréttaritara
Tímans á Akureyrí:
Það var ekki spennunni fyrir að
fara þegar Þór og Víkvcrji börðust
um úrvalsdeildarsæti á næsta keppn-
istímabili. Víkverjar mættu aðeins
með 6 leikmenn og máttu þeir sín
lítils gegn Þúrsumm í gömlu íþrótta-
skemmunni á Akureyrí.
Þórsarar lentu í næst neðsta sæti
úrvalsdeildar en Víkverji í öðru sæti
1. deildar og bersýnilegt er að mikill
getumunur er á milli þessara deilda
því Þór vann leikinn 94-53, þrátt
fyrir að allir leikmenn liðsins fengju
að spreyta sig.
Auðsýnt var strax eftir nokkrar
mínútur hvert stefndi því heima-
menn náðu yfirburða forystu 31-7,
en slökuðu þá á og skiptu ört inná.
Staðan í hálfleik var 48-24 og loka-
tölur eins og áður sagði 94-53.
Konráð Óskarsson var bestur
Þórsara, en Eiríkur Sigurðsson, sá
gamli jaxl var og seigur. Eiríkur var
að leika sinn síðasta leik eftir langan
og gifturíkan feril og var honum
klappað lof í lófa þegar hann skipti
út af rétt fyrir leikslok.
Þórsarar spila því í úrvalsdeildinni
næsta keppnistímabil og er það vel,
því aðeins vantaði herslumuninn hjá
liðinu í vetur til þess að það blandaði
sér í baráttu um efri sætin í deildinni.
Torfi Magnússon var langbestur
Víkverja og er hreinasta synd að
hann skuli ekki vera í eldlínunni í
úrvalsdeildinni.
Stigin Þór: Konráð Óskarsson 23,
Eiríkur Sigurðsson 16, Jón Örn
Guðmundsson 12, Guðmundur
Björnsson 10, Jóhann Sigurðsson
10, Björn Sveinsson 7, Davíð Hreið-
arsson 6, Ágúst Guðmundsson 6 og
Stefán Friðleifsson4. Víkverji:Torfi
Magnússon 26, Jóhannes Magnús-
son 11, Geir Þorsteinsson 11, Agúst
Líndal 3 og Jakob Pétursson 2.
Handknattleikur-VÍS-keppnin:
KA-sigur gegn væng-
brotnu HK liði
Frá Jóhanncsi Bjarnasyni íþróttafréttamanni
Tímans á Akureyrí:
„Það eina góða við þennan leik
voru stigin tvö sem við kræktum
okkur í,“ sagði Erlingur Krístjáns-
son þjálfari KA-liðsins í handknatt-
leik eftir liðið hafði lagt HK að velli
25-23 ■ slökum leik.
Burðarásar HK liðsins í vetur,
þeir Magnús Sigurðsson og Gunnar
Gíslason gátu lítið leikið með vegna
meiðsla, en Magnús kom aðeins
inná til að taka vftaköst. Þrátt fyrir
FH-ingar sterkari
Gróttumenn velgdu FH-ingum
undir uggum í leik liðanna á Nesinu
á laugardaginn. Það var ekki fyrr en
líða tók á síðari hálfleik að FH-ingar
tóku afgerandi yfirhöndina, en jafnt
hafði verið í leikhléi 11-11.
FH komst yfir 18-20 og síðar
21-26, en 3 mörkum munaði á liðun-
um þegar upp var staðið 26-29.
Mörkin Grótta: Stefán Arnarsson
7, Halldór Ingólfsson 5/1, Willum
Þórsson 5/4, Davíð Gíslason 3, Frið-
leifur Friðleifsson 2, Páll Björnsson
2, Svafar Magnússon 1 og Ómar
Banine 1. FH: Héðinn Gilsson 9,
Guðjón Árnason 8, Óskar Ár-
mannsson 5/3, Gunnar Beinteinsson
4, Jón Erling Ragnarsson 2 og Hálf-
dán Þórðarson 1. BL
þessa blóðtöku börðust HK piltar af
mikilli heift og virtust hafa gaman að
öllu saman, en sömu sögu er ekki
hægt að segja um KA liðið.
Þeir gulkiæddu höfðu þó forystu
allan leikinn, í hálfleik var staðan
12-9 þeim í hag. Þegar 10 mín. voru
til leiksloka var staðan orðin 23-16,
en þá hrökk allt í baklás hjá KA
mönnum og HK tókst að minnka
muninn niður í 2 mörk þegar 3
mínútur voru til leiksloka. En þeir
komust ekki lengra og sanngjarn
heimasigur var staðreynd og 2 dýr-
mæt stig bættust við hrörlegt stiga-
KR-tap í Höllinni
Eyjamenn unnu sinn fyrsta sigur á
útivelli í vetur er þeir sigruðu KR-
inga í Höllinrii á sunnudaginn 17-19.
Eyjamenn höfðu frumkvæðið all-
an leikinn voru yfir 6-9 í leikhléi og
stóðust ásókn heimamanna í síðari
hálfleik og tryggðu sér sigur eins og
áður sagði.
Mörkin KR: Konráð Olavson 7/4,
Sigurður Sveinsson 5, Stefán Krist-
jánsson 3/1 og Páll Ólafsson eldri 2.
ÍBV: Sigurður Gunnarsson 6, Sig-
urður Friðriksson 4, Hilmar Sigur-
gíslason 3, Guðmundur Albertsson
3, Sigbjörn Óskarsson 1, Guðfinnur
Kristmannsson 1 og Óskar Brynjars-
son 1. BL
safn KA-manna.
Pétur Bjarnason var yfirburöa-
maður á vellinum og spilaði sinn
besta leik í langan tíma. Erlingur var
og seigur, en hefur þó oft verið betri.
Ásmundur Guðmundsson var
bestur Kópavogsbúa og barðist
geysivel og Róbert Haraldsson átti
góðan leik.
Dómarar voru Árni Sverrisson og
Aðalsteinn Örnólfsson og voru þeir
á sama plani og leikmenn, lélegir.
Mörkin KA: Pétur Bjarnason 9,
Erlingur Kristjánsson 6/3, Friðjón
Jónsson 3, Jóhannes Bjarnason 2,
Sigurpáll Aðalsteinsson 2, Guð-
mundur Guðmundsson 2 og Karl
Karlsson 1. HK: Ásmundur Guð-
mundsson 7, Róbert Haraldsson 4,
Rúnar Einarsson 3, Óskar Elvar
Óskarsson 3, Magnús Sigurðsson
3/3, Eyþór Guðjónsson 1 og Sigurð-
ur Stefánsson 1. BL
Staöan í 1. deildinni
í handknattleik
FH .......... 13 11 1 1 350-299 +61 23
Valur..........13 10 1 2 345-297 +48 21
Stjarnan..... 13 8 2 3 308-276 +32 18
KR ........... 13 6 3 4 279-279 0 15
ÍBV.......... 13 5 3 5 303-297 + 6 13
ÍR........... 13 5 2 6 285-285 0 12
KA .......... 13 4 1 8 294-318 -24 9
Grótta ...... 13 3 1 9 272-310 +38 7
Víkingur .... 13 2 3 8 287-311 -24 7
HK .......... 13 1 3 9 264-315 -51 5
iG
4