Tíminn - 20.03.1990, Page 15
Þriðjudagur 20. mars 1990
,T,ímion;.15
ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Handknattleikur-V(S-keppnin:
VALSMENN MISSTU FLUGID
- féllu úr efsta sæti 1. deildar
Frosti Guðlaugsson átti góðan leik þegar ÍR vann Víking í 1. deildinni í handknattleik
að ofan er eitt marka Frosta í uppsiglingu.
um helgina. Á myndinni hér
Tímamynd Pjetur.
Annar sigur ÍR-
inga á Víkingum
Víkingar urðu að sætta sig við sinn
annan ósigur fyrir ÍR-ingum í 1.
deildinni í handknattleik í vetur, er
liðin mættust í Seljaskóla á laugar-
dag. Lokatölur voru 27-21.
Víkingar höfðu frumkvæðið fram-
an af leiknum, leiddu um tíma með
3 mörkum 5-8, en ÍR-ingar náðu að
jafna fyrir hlé. Jafnt var í leikhléinu
13-13.
ÍR-ingar hófu síðari hálfleikinn
með miklum látum, gerðu 4 fyrstu
mörkin og komust yfir 17-13. Vík-
ingar náðu aldrei að minnka muninn
nema í 3 mörk og sigur Breiðholts-
liðsins var því aldrei í verulegri
hættu. Þegar upp var staðið höfðu
ÍR-ingar unnið 6 marka sigur 27-21.
Ólafur Gylfason og Frosti Guð-
laugsson léku best ÍR-inga í þessum
leik, en f R-liðið lék mjög vel saman
og virðist ætla að koma sterkt til
leiks eftir hléið. Varnarleikurinn var
sterkur og sóknarleikurinn fjöl-
breyttur. Þá voru hraðaupphlaupin
sem fyrr á sínum stað hjá liðinu.
Birgir Sigurðsson var bestur Vík-
inga að þessu sinni, en Guðmundur
Guðmundsson stóð einnig fyrir sínu.
Víkingar hafa ekki haft heppnina
með sér í vetur, hver leikmaðurinn
af öðrum hefur orðið fyrir meiðslum,
nú síðast Árni Friðleifsson sem sleit
krossbönd í hné. Hrafn Margeirsson
er enn frá vegna hálsmeiðsla, en
Dagur Jónasson lék með gegn ÍR,
en hann fór sem kunnugt er í 6
mánaða leikbann vegna reglna um
félagaskipti.
Mörkin ÍR: Ólafur Gylfason 8/2,
Frosti Guölaugsson 8, Róbert
Rafnsson 5, Sigfús Orri Bollason 4
og Matthías Matthíasson 4. Víking-
ur: Birgir Sigurðsson 10/3, Bjarki
Sigurðsson 4, Ingimundur Helgason
3, Guðmundur Guðmundsson 3,
Siggeir Magnússon 2, Dagur Jónas-
son 1 og Karl Þráinsson 1. BL
Stjarnan úr Garðabæ virðist hafa
notað hléið sem varð á keppni í 1.
deildinni vel, því á laugardaginn
vann liðið öruggan sigur á efsta liði
deildarinnar Val, er liðin mættust í
Ásgarði í Garðabæ. Lokatölur leiks-
ins voru 32-27 Stjörnunni í vil.
Valsmenn höfðu undirtökin í fyrri
hálfleik og höfðu yfir í leikhléi
12-14. Stjarnan var ekki lengi að
jafna í síðari hálfleik, 16-16 og síðar
19-19, en eftir það tóku Stjörnu-
menn öll völd á vellinum. Sigurður
Bjarnason fór hamförum á þessu
kafla, skoraði hvert markið af öðru
og var hreint óstöðvandi.
Valsmenn hresstust aðeins undir
lok leiksins en það var of seint,
Stjörnumenn höfðu þegar tryggt sér
öruggan sigur.
Leikurinn var nokkuð fjörugur og
skemmtilegur á að horfa, en ekki
voru gæði handknattleiksins mikil.
Sérstaklega var varnarleikur liðanna
í molum og markvarslan var einnig
frekar slök.
Sigurður Bjarnason lék afar vel í
síðari hálfleik, en í þeim fyrri hafði
hann ekki náð sér á strik. Einar
Einarsson átti einnig góðan leik.
Hjá Val léku þeir vel í fyrri
hálfleik Brynjar Harðarson og Jón
Knattspyrna:
Horst Wohlers
þjálfar Dani
Danska knattspyrnusambandið
hefur ráðið V-Þjóðverjann Horst
Wohlers sem arftaka Sepp Pionteks
með danska landsliðið í knattspyrnu.
Wohlers þjálfar nú lið Bayer Uer-
dingen í heimalandi sínu. Hann er 40
ára gamall og lék hér á árum áður
230 leiki í v-þýsku deildinni.
Ráðning Wohlers kom mjög á
óvart í Danmörku, margir áttu von
á því að Richard Möller Nielsen
þjálfari 21 árs landsliðsinsogÓlymp-
íuliðsins tæki við A-liðinu.
Sepp Piontek sem tók við danska
landsliðinu 1979, mun taka við því
tyrkneska í júní nk. þegarsamningur
hans við danska sambandið rennur
út. BL
Kristjánsson, en fátt var um fína
drætti í þeim síðari.
Mörkin Stjarnan: Sigurður
Bjarnason 8, Einar Einarsson 7/3,
Skúli GUnnsteinsson 5, Gylfi Birgis-
son 4, Axel Björnsson 3, Hilmar
hjaltason 3 og Hafsteinn Bragason
2. Valur: Finnur Jóhannsson 6, Jón
Kristjánsson 5, Brynjar Harðarson
5/1, Valdimar Grímsson 4, Jakob
Sigurðsson 3 og I ngi Rafn Jónsson I.
BL
Sund:
Góður árangur
hjá Ragnheiði
Ragnheiöur Runólfsdóttir sund-
drottning frá Akranesi náði góðum
árangri á bandaríska háskólameist-
aramótinu í sundi um helgina.
Ragnheiður varð í 8. sæti í úrslit-
um í 100 jarda bringusundi, synti á
1:02,92 mín. og í 200 jarda bringu-
sundi synti hún á 2:16,42 og varð í
11. sæti.
Erfitt er að bera þessa tíma sarnan
við tíma í 100 og 200 metra sundi,
en ljóst er að Ragnheiður hefði sett
Norðurlandamet í báðum greinun-
um. Sænsk stúlka, Anne-Lie Holm-
ström á Norðurlandametin, en á
innanhússmeistaramótinu, sem fram
fer í Vestmannaeyjum í næsta mán-
uði ætti að koma í Ijóst hvort metin
standa eftir að Ragnheiður hefur
tekið hraustlega á í lauginni.
BL
Frjálsar íþróttir:
Met í 60 m hlaupi
Einar Þór Einarsson úr Ármanni
bætti íslandsmetið í 60 m hlaupi
innanhúss á alþjóðlegu móti í
Dortmund í V-Þýskalandi. Einar
hljóp á 6,7 sek. á handtímatöku,
sem samsvarar 6,94 sek. á rafmagns-
tímatöku. Eldra metið, 7,12 sck.
áttu þeir Hjörtur Gíslason og Vil-
ntundur Vilhjálmsson. BL
Vinningstölur laugardaginn
17. mars ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 2 1.158.402
2. 3 134.253
3. 4af5 101 6.878
4. 3af5 3.427 473
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.035.212 kr.
UPPLYSINGAR
: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
m