Tíminn - 20.03.1990, Blaðsíða 16
: 680001 - 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu,
____
SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUM LANDSINS
^-srec
ÞRÖSTIIR
685060
VANIR MENN
Tímiim
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1990
Mikil umskipti eftir aö ASÍ, BSRB og VSÍ lögðu hornstein að stöðugs verðlagi:
/erð b ólgu uni iirtO %
f ágn a ðhir m- l.ma í?
„Líklegt er að hinn 1. maí n.k., á hátíðis-
degi verkalýðsins mælist mánaðarleg hækk-
un lánskjaravísitölu innan við 10% í fyrsta
sinn í langan tíma“, segir m.a. í VÍS, frétta-
bréfi Verðbréfamarkaðar íslandsbanka.
Jafnframt segir að mikil um-
skipti hafi orðið í verðlagsmálum
í þjóðfélaginu eftir að ASí, BSRB
og VSÍ hafi lagt hornsteininn að
stöðugu verðlagi í kjarasamning-
unum í janúar. Aðspurður, hvort
opinþerar spár sýndu svipaða
niðurstöðu svaraði Már Guð-
mundsson aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra: „Það er nokkurn-
veginn öruggt, að lánskjaravísital-
íslenskt
í Kanann
Samkomulag hefur náðst um
endurnýjun samnings frá 1987 um
kaup bandaríska hersins á Keflavík-
urflugvelli á íslenskum landbúnaðar-
afurðum. Samningurinn gildir frá
t.apríl 1990 til 31.mars 1991, og
verður þá endurskoðaður.
Samkvæmt samingnum stefnir að
því að kaupa allt að 32 þúsund pund
af ungneytakjöti, 2o þúsund pund af
kjúklingum og 110 þúsund pund af
eggjum. Þá var á síðasta ári og hafin
sala íslensks grænmetis í verslunum
á Vellinum, og er stefnt að framhaldi
á því, auk þess sem íslenskar „Vín-
arpylsur" verða á boðstólum. Kaup-
verð nautakjötsins er 3.95 dalir
pundið, hækkar úr 3.50 dölum frá
því í fyrra. Fyrir pundið af kjúkling-
um fást 2.96 dalir, og fyrir pund af
eggjum 1.50 dalir.
Þetta er í fjórða sinn sem samning-
urinn er endurnýjaður. hiá.
an sýnir undir 10% í maí. Verð-
bólga mæld í hækkun framfærslu-
vísitölu gæti líka verið í kringum
10%, en hugsanlega aðeins
meiri“.
{ VÍS er bent á, að verðbólgan
hafi minnkað um allt að fjórðung
frá því fyrir áramótin. Útlit sé
fyrir, að verðhækkanir verði miklu
minni á næstu vikum vegna stöð-
ugs gengis og lítilla launahækk-
ana. Jafnframt hafi skapast öflugt
verðlagseftirlit almennings,
óverðtryggðir vextir bankanna
hafi lækkað um hátt í 10% og
fleira mætti telja. „Ef til vill hefur
þegar myndast hér sá ótti við
verðbólgu í hugum fólks, sem alls
staðar vofir yfir hjá þeim þjóðum,
sem best hefur tekist að bægja
verðbólgu burt úr þjóðarbúskapn-
um“, segir í VÍS.
En varað er við, að þótt vel hafi
tekist til þessa, sé björninn ekki
unninn. Mesta hættan á næstu
mánuðum sé sú að þensla myndist
vegna of mikillar peningaútgáfu.
Slíkt peningastreymi gæti myndast
við það, að ríkissjóður fjármagni
halla ekki sinn á innlendum mark-
aði eða að bankar auki útlán sín
umfram verðlagshækkanir.
Að aukin þensla sé helsta
hættan, segir Már flesta sammála
um. Hins vegar ekki, að hún felist
hvað helst í ákvörðunum í fjár-
málaráðuney tinu.
Hvað mest hætta á þenslu sé í
sambandi við utanríkisviðskiptin.
Þ.e. Að viðskiptakjör batni veru-
lega og gjaldeyrir streymi inn í
landið eftir þeirri hefðbundnu
leið. Batni hagur sjávarútvegsins
verulega geti það leitt til launa-
skriðs, fyrst í sjávarútvegi ogsíðan
í öðrum greinum.
Til að mæta þessu segir Már að
til séu tvær leiðir: Annars vegar að
taka upp virkt verðjöfnunarkerfi
með greiðslum í verðjöfnunarsjóð
í samræmi við tillögur þar um.
Hin leiðin sé að hækka gengi
krónunnar, þ.e. ef um mjög al-
mennan bata er að ræða. Gengis-
hækkun mundi jafngilda auknum
kaupmætti jafnframt því að draga
úr verðbólgu.
Varðandi ríkisfjármálin og pen-
ingamálin segir Már það lykil-
atriði, að skattar verði ekki lækk-
aðir, heldur að menn verði jafnvel
tilbúnir að hækka skatta og/eða
skera niður ríkisútgjöld ef mikil
þenslumerki koma í ljós. - HEI
Búrhvalir í heimsókn á Steingrímslirði 15. mars 1990.
Búrhvalir á Steingrímsfirði
Á fimmtudagsmorgni síðustu
viku varð vart við stóra hvali
innarlega á Steingrímsfirði, nánar
tiltekið í grennd við bæinn Bassa-
staði. Nokkrir hvalaáhugamenn
flugu yfir staðinni fyrri hluta
dagsins, og síðar fóru 10 menn
saman á bát frá Hólmavík til að
kanna málið nánar.
í ljós kom að þarna voru 4
búrhvalir á ferð, en þeir eru sjald-
séðir á Steingrímsfirði, sérstaklega
á þessum árstíma. Búrhvalir leita
alla jafna suður á bóginn á veturna,
en eitthvað af törfum heldur sig þó
við ísland allt árið.
Tíminn var eina blaðið sem átti
fréttaritara í hvalaleiðangri Hólm-
víkinga, og að sjálfsögðu var
myndavélin með í för.
Síðast þegar fréttist voru hval-
irnir enn á Steingrímsfirði og virt-
ust una hag sínum vel.
Stefán Gíslason
j Menntamálaráöherra kynnir nýja stefnu í málefnum skólanna á Laugarvatni:
iþróttaskóli á háskólastigi
fnnan menntamálaráðuneytisins
hefur undanfarna mánuði verið
unnið að tillögum um nýja stefnu
varðandi málefni skólanna á Laug-
arvatni. Að sögn Svavars Gests-
sonar inenntamálaráðherra er
stefnan að setja sameiginlega lög-
gjöf fyrir alta skólana. Gert er ráð
fyrir, að rckstur stjórnun skólanna
verði sameinaður undir nokkurs
konar hcildarskóla, en þeir starfi
síðan með sjálfstæðum hætti hver
fyrir sig.
Svavar sagði innan þess heildar-
skóla, sem lagt er til að stofnaður
verði og kalla má Laugarvatns-
skóla, er gert ráð fyrir, að starf-
ræktur verði íþróttakennaraskóli á
háskólastigi og menntaskóianum
verði breytt í framhaldsskóla með
miklu íþróttavali og hússtjórnar-
braut. „Þannig verður byggt á
þeirri hefð, sem til er á Laugar-
vatni, varðandi íþróttir og hús-
stjórnarkennslu, sem þar var lengi
starfrækt,“ sagði Svavar.
Sem kunnugt er, hefur þegar
vcrið ákveðið, að íþröttamiðstöð
Islands verði starfrækt á Laugar-
vatni. Svavar sagði að þcssar hug-
myndir, sem nú væru uppi, kxmu
í beinu framhaldi af þeirri ákvörð-
Lagt er til, að hlutverk mennta-
skólans brcytist á þann hátt, að
þungatniðjan verði lögð, á mennt-
un á sviði íþrótta. heilbrigðis,
heilsufræði, næringarfræði og
tengdra greina. Líka verði sérstak-
ar námsbrautir á hússtjórnar- og
heimilisfræðslusviðinu, auk þess
sem nám til hcfðbundins stúd-
entsprófs af bóknámsbrautum mun
halda sér líkt og verið hefur.
í íþróttakennaraskólanum er
gert ráð fyrir, að hægt verði að
leggja stund á háskólanám í
íþróttakennslu til 60-90 eininga og
tengdist því námi, sem fram fer í
Kennaraháskóla íslands. Þá færi
þar einnig fram menntun íþrótta-f
þjáifara að sögn Svavars, auk þess
sem leiðbeinendur, sem starfa fyrir
íþróttahreyfinguna gætu sótt stna
menntun þangað. -ABÓ