Tíminn - 25.04.1990, Qupperneq 5
Miðvikudagur 25. apríl 1990
Tíminn 5
Eignarhaldsfélag Verslunarbankans áfram eigandi 100 milljóna í Stöð 2:
MEIRIHLUTI HAFNAR
TILBOÐII HLUTAFEÐ
Meirihluti stjómar Eignarhaldsfélags Verslunarbankans hafnaði
í gær tilboði í 100 milljón kr. hlut félagsins í Stöð 2 í gær. Tilboð
þetta hljóðaði upp á nafnverð hlutabréfanna, sem skyldi stað-
greiða.
Jón Magnússon lögmaður lagði tilboðið fram og gilti það til
dagsins í dag. Búist var við, að gefið yrði upp á stjómarfundinum
í gær, hverjir það væm, sem stæðu að baki tilboðinu. Það var
ekki gert í gær, eftir að tilboðinu hafði verið hafnað.
Hviksögur um hveijir stæðu að
baki tilboðinu hafa gengið um við-
skiptaheiminn og hafa verið nefndir
til sögu stofhendur Stöðvar 2, þeir
Jón Óttar Ragnarsson, Hans Kristján
Ámason og Ólafur H. Jónsson. Jón
Óttar neitaði því alfarið í gær og vildi
auk þess ekki tjá sig um þetta mál að
öðru leyti. I fféttum Stöðvar 2 í gær-
kvöldi var sagt, að tilboðsgjafamir
væm Gunnsteinn Skúlason iðnrek-
andi, Hörður Jónsson forstjóri og
Gunnar Jóhannsson í Fóðurblönd-
unni.
Gísli V. Einarsson stjómarformaður
eignarhaldsfélagsins og Þorvaldur
Guðmundsson lögðu á fundinum í
gær ffam tillögu, um að tilboðinu í
hlutabréf Stöðvar 2 yrði tekið, enda
töldu þeir, að sögn Gísla, það vera í
samræmi við vilja allra hluthafa
eignarhaldsfélagsins. Hann sagði
ljóst, að þeir, sem beina hagsmuni
hefðu af niðurstöðunni, sem varð í
gær, væm þeir forsvarsmenn samtaka
verslunarinnar, er jafnffamt væm
stórir hluthafar í Stöð 2 auk þess að
hafa meirihlutavald í stjóm eignar-
haldsfélagsins.
„Menn hljóta að hafa verið beittir
þrýstingi og það miklum: Allir
stjómarmenn sögðu í janúar, að þessi
bréf skyldu strax verða seld og hægt
væri og er tilboð kæmi í þau,“ sagði
Gísli. Hann sagði, að ekki yrði dreg-
ið í efa, að tilboðið hefði verið hag-
stætt. Með því að hafna því, væri ver-
ið að fóma hagsmunum fjöldans fyrir
hagsmuni örfárra aðila; meirihluta-
eigenda Stöðvar 2.
Hlutafé Stöðvar 2 er nú 505,5 millj-
ónir kr. Meirihluti þess; 250 milljón-
ir kr. er í eigu Jóhanns J. Ólafssonar,
Haraldar Haraldssonar og Guðjóns
Oddssonar og umbjóðenda þeirra
innan Félags ísl. stórkaupmanna,
Verslunarráðs og Kaupmannasam-
takanna. Jón Óttar Ragnarsson, Hans
Kristján Ámason og Ólafur H. Jóns-
son ráða 155,5 milljónum, en síðan
koma 100 milljónimar umræddu í
eigu Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans.
Ljóst er því, að 100 milljónimar
hefðu getað breytt núverandi stjóm-
armeirihluta Stöðvar 2, hefði tilboð-
inu verið tekið og núverandi eigend-
ur ekki neytt forkaupsréttar síns.
Aðilar gagnkunnugir í viðskiptalíf-
inu, sem rætt var við í gærkvöldi,
sögðu það furðu gegna að meirihluti
stjómar eignarhaldsfélagsins hefði
hafnað tilboðinu í bréfin. Eignar-
haldsfélagið verði nú að halda áffam
að vera til, svo lengi sem bréfin verði
í eigu þess, en stefht hefur verið að
því, að leggja niður eignarhaldsfélög
þeirra banka, sem standa að íslands-
banka jafnskjótt og stofnun hans er
að fullu í höfh. Tilboðið í bréfin hefði
verið hagstætt og tryggt hagsmuni
eignarhaldsfélagsins og eigenda
þess, en ýmislegt benti nú til, að það
geti brátt orðið þrautin þyngri að
losna við þessi bréf.
Þess má geta, að kaup núverandi
meirihlutaeigenda á Stöð 2 gengu
mjög hratt fyrir sig um síðustu ára-
mót og fóm þau kaup fram undir
þeirri tímapressu, sem fólst í því, að
Verslunarbankinn gerði upp sín mál,
áður en til sameiningar í íslands-
banka kæmi. Áður höfðu aðrir lengi
skoðað Stöðvar 2 dæmið, en gefið
það frá sér. Tíminn hefur fyrir því
áreiðanlegar heimildir, að staðan hafi
verið mun verri, en núverandi meiri-
hlutaeigendur gerðu sér grein fyrir og
því hefur verið haldið fast við þá
túlkun hjá meirihluta stjómar eignar-
haldsfélagsins, að félagið væri allt að
því skuldbundið til að gefa hinum
nýju eigendum tækifæri til að vinna
Stöðina út úr erfiðleikunum, án þess
að raska valdahlutfollum þar.
Aðilar innan Stöðvar 2 sögðu í gær,
að nú væm ýmsar blikur á lofti í sjón-
varpsrekstri. Afkoma Stöðvar 2 væri
erfið og sjónvarpsrekstur Sýnar ætti
eftir að setja strik í reikninginn, eins
og þegar væri raunar að koma í ljós í
sambandi við innkaup á erlendu sjón-
varpsefni o.íl. Eins og nú væri ástatt í
málum stöðvarinnar, væri hætt við að
hlutabréfin ættu eftir að lækka stór-
lega í verði, jafnvel um helming,
þegar líða tekur á árið. —sá
Nefnd fjögurra landa stofnuð um rannsóknir á sjávarspendýrum:
FJÖGURRALANDA
SAMSTARFSNEFND
Undirritað hefur verið samkomu-
lag um að koma á fót samstarfs-
nefnd meðal fjögurra landa, fs-
lands, Noregs, Færeyja og
Grænlands um rannsóknir á sjávar-
spendýrum og samræmingu land-
anna með tilliti til skynsamlegrar
nýtingar sjávarspendýra. Nefndinni
er ekki síst komið á fót til að mynda
öfluga blokk á vettvangi Alþjóða
hvalveiðiráðsins. Samkomulag um
stofnun nefridarinnar var undirritað
í Tromsö í Noregi sl. fimmtudag.
Nefrid þessi verður skipuð firæði-
mönnum.
Hermann Sveinbjömsson aðstoðar-
maður sjávarútvegsráðherra sagði það
vera von manna, að stofnun nefndar-
innar gæti örvað samvinnu þessara
þjóða. Samstarfið er að hluta til sprott-
ið upp úr óánægju með, hvemig þessi
mál hafa þróast í Alþjóða hvalveiðiráð-
inu. „Með þessu samstarfi er verið að
tala um sjávarspendýr í víðasta skiln-
ingi. Þar á meðal smáhveli og seli, sem
Alþjóða hvalveiðiráðið hefur ekkert
yfir að segja nú í dag, og áhrif þessa á
vistkerfið í heild sinni,“ sagði Her-
mann. Hann sagði, að þetta væri svið,
sem engin alþjóðleg stofnun sinnti
nægilega í dag og því væri með þessu,
verið að brúa ákveðið bil.
Það, sem leggja á frekari áherslu á, era
rannsóknir á, hvaða hlutverki sjávar-
spendýr spila í vistkerfmu og burðar-
geta vistkerfisins, hvað sjávarspendýr
varðar, miðað við samspil þess við aðr-
ar fisktegundir.
Er þessi nefnd ekki stofnuð til höfuðs
Alþjóða hvalveiðiráðinu? „Nei, það er
ekki hægt að scgja það. Meiningin er
ffekar, að þjappa mönnum meira sam-
an á þeim vettvangi og koma til skila
öflugri rökum inn á þann vettvang, þá
jafnvel í samráði við Alþjóða haffann-
sóknarráðið," sagði Hermann.
Til að byija með er gert ráð fýrir, að
samstarfsnefndin starfi ffekar sem
samræmingamefnd, en fari ekki út í
nýjar rannsóknir. Akveðið var, að að-
setur þessarar nefhdar yrði í Tromsö,
en þar er til staðar sterk deild í sjávarút-
vegsffæðum við háskólann.
Aðspurður, hvort stofnun þessarar
nefndar væri fyrsti vísir að því, að þess-
ar þjóðir segi sig úr Alþjóða hvalveiði-
ráðinu, sagði Hermann, að engin ráð-
stefnugesta hafi talað um það
opinberlega, né óformlega manna í
millum.
Á fundi þeim, sem varð aðdragandi að
stofhun nefndarinnar, var sent bréf til
Alþjóða haffannsóknaráðsins, þar sem
því var tilkynnt um stofnun þessarar
nefndar og það, að svo gæti farið, að
nefndin óskaði eftir samstarfi við Al-
þjóða haffannsóknarráðið á nokkram
sviðum. Drög að þessu samkomulagi
var gert fyrir réttu ári í Þórshöfn í Fær-
eyjum, en formlega gengið ffá málinu
nú. Ekki er ljóst, hvenær nefndin kem-
ur saman í fyrsta skipti og ólíklegt, að
mikið gerist hjá henni ffam að fundi
vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins nú í vor. -ABÓ
Formenn stjórnarflokkanna reyna gð finna
asættanlega lausn í kvótamálinu:
Fundað fram á nótt
Steingrímur Hermannsson, for- Þeirri hugmynd var einnig hreyft í „Málið tók skyndilegum breyting-
sætisráðherra viðraði þá hugmynd á gær, að ffesta gildistöku nýrra laga í um, þegar fram komu þessar tillög-
rikisstjómarfundiígær,aðþaðfisk- heild og ffamiengja núverandi ur frá þingflokki Alþýðufiokksins
veiðikvótaffumvarp, sem nú liggur kvótaffumvarp um tvö ár. og Skúla Alexanderssyni,“sagði
fyrir Alþingi, gildi einungis í tvö ár. Á mánudag komu ffam tillögur ffá Stefán i samtali við Tímann í gær.
Formcnn stjómarflokkanna fund- þingflokki Alþýðufiokksins og „Þar er um algera stefnubreytingu
uðu um kvótamálið í gærkvöldi, þar Skúla Alexanderssyni þingmanni að ræða og þessar tillögur hafa
sem reynt var að finna lausn á mál- Alþýðubandalagsins. Hugmyndir truflað afgreiðslu málsins veru-
inu, en fundurinn stóð enn yfir, þeg- Alþýðuflokksins eru í raun þær, að lega.“
ar Tíminn fór i prentun. settur verði á nokkurs konar auð- Fundarhöld voru vegna kvóta-
Samkvæmt heimildum Timans lindaskattur, eða leigugjald fyrir frumvarpsins i gær, basði í sjávarút-
munu hagsmunaaðilar í sjávarút- aðgang að fiskimiðum. Tillaga vegsnefnd efri deildar og á milli að-
vegi vera mótfallnir þvi, að kvóta- Skúla gengur hins vegar út á, að ila málsins. Stefán segir það
ffumvarpið verði bundið timatak- 40% veiðiheimilda verði úthlutað algerlega óviðunandi, ef frumvarp-
mörkunum, vegna þess að það sníði til fiskvinnslustöðva og þannig ið vcrður ekki afgreítt ffá Alþingi
áætlanagerð þrengri stakk en elia. bundin í byggðarlögum. fyrir þingslit í vor.- ÁG
Frá vinstri; Ken Donaghoue umdæmisstjóri hjá markaðsdeiid Ford í Evrópu,
Þórður Hilmarsson forstjóri Globus hf. og Davío Davíösson forstöðumaður bna-
deildar Globus hf. Tímamynd; Ami Bjama
Globus formlega tekinn við umboði fyrir Fordbíla:
Evrópskur Jord á
uppleið á Islandi
Globus hf. hefur nú tekið við um-
boði fyrir Ford bifreiðar á Islandi.
Globus mun, að sögn Þórðar Hilm-
arssonar forstjóra Globus, leggja á
næstu mánuðum megináherslu á
Ford bíla, sem ffamleiddir eru í V-
Þýskalandi og víðar í Evrópu.
Globus á nú ýmsar gerðir af hinum
traustu og þrautreyndu Ford Sierra
og Escort bílum og á næstunni er von
á sendingu af nýrri gerð Ford Fiesta,
en sá bíll er svo vinsæll í Evrvópu, að
hann hefur slegið öll fyrri sölumet
bíla í sínum flokki.
Af amerískum Fordbílum hyggst
Globus leggja áherslu á Econoline
sendibíla, sem unnið hafa sér fastan
sess hérlendis, m.a. hjá lögreglu og
hjálparsveitum. Þá er kominn á
markað í BNA nýr jeppi í stað
Bronco jeppans og mun vera von á
fyrstu bílunum í ágúst. —sá
Þórhallur Daníelsson á Höfn í Hornafirði:
FASTUR í INN-
SIGUNGUNNI
Togarinn Þórhallur Daníelsson SF
71 strandaði í innsiglingunni á Höfn í
Homafirði upp úr kl. 18 i gær. Togar-
inn var með fullfermi og seint í gær-
kvöldi var hann farinn að hallast
nokkuð á hliðina. Engin hætta var þó
talin vera á ferðum og t.d. komst
strandferðaskipið Hekla ffamhjá Þór-
halli útúr innsiglingunni í gærkvöldi.
Ástæðu strandsins má rekja til grynn-
inga í innsiglingunni. í gærkvöldi var
hugmyndin að reyna að ná skipinu
lausu á flóðinu kl 06 í morgun, en ef
það gengi illa, átti að senda um 100
tonna bát, Hrísey, út að Þórhalli til að
losa um 80 tonn úr honum.