Tíminn - 25.04.1990, Síða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 25. apríl 1990
Leiga á
orlofshúsum
Iðju sumarið
1990
Sumarið 1990 standa Iðjufélögum til boða eftirtalin
orlofshús/orlofsíbúðir:
Vikuleiga:
6 orlofshús að Svignaskarði
í Borgarfirði Kr. 6.500
2 orlofsíbúðir (3ja herbergja) á Akureyri Kr. 7.500
Tekið er við umsóknum til og með föstudeginum
4. maí n.k. á skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg
16. Einnig er hægt að sækja um í síma 62 66 20
á skrifstofutíma.
Gengið verður frá úthlutun kl. 17:00 fimmtudaginn
10. maí n.k. á skrifstofu Iðju.
Stjórn Iðju
Erlingsson Einarsdóttir
Reykjavík - Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa B-listans í Reykjavík verður opin virka daga frá kl.
9-22 að Grensásvegi 44, sími 680962 og 680964.
Gestgjafar í dag verða: Höskuldur B. Erlingsson og Guðrún
Einarsdóttir.
Komið á kosningaskrifstofuna og takið þátt í starfinu með okkur.
Kosninganefndin.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur LindaJónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Ingvi Jón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740
Stykkishólmur ErlaLárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvik Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur EsterFriðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Slglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hlíðarveig 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275
skrifstofa Skipagata 13 (austan) 96-27890
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Sveinbjörn Lund Brúargerði 14 96-41037
Ólafsfjöröur HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aðalbraut60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar13 97-1350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Djúpivogur Jón Biörnsson Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut 16 A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli2 98-31293
Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónínaog Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vík Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
Forsögulegir steinhringir
James Edwin Wood, Sun, Moon and
Standing Stones, 217 bls., Oxford
Universlty Press (1978), 6,95 pund.
Hvers vegna voru hinir forsögu-
legu steinhringir reistir? Þeirri
spurningu reynir J.E. Wood að
svara. Til forna kann hún jafnvel að
hafa leitað á Rómverja. Um 40 f.Kr.
gat Diodorus Siculus á einum stað
mikils forsögulegs steinhrings á
Bretlandi, væntanlega Stonehenge.
Á meðal hinna mörgu, sem athug-
að hafa Stonehenge með tilliti til
göngu himintungla, er Gerald
Hawkins prófessor. „Hannfanneng-
ar línur sem mörkuðu upprás eða
setur reikistjarna eða stjarna en um
sólargang kvaðst hann hafa fundið
10 viðmiðanir með innan við 1 gráðu
skekkju og um tungi 14 með innan
við 1,5 gráða skekkju.“ (Bls. 10.)
Síðan færði Hawkins rök að því að
„af steinvörðum Stonhenge hafi
mátt segja tunglmyrkva fyrir.“
Niðurstöður sínar setti Hawkins
fram í bók, Stonehenge Decoded,
1966 (sem endurprentuð var hjá
Fontana Books 1970). Forsögulega
steinhringi á Bretlandi lagði síðan
fyrir sig Alexander Thom, prófessor
í verkfræði við háskólann í Oxford.
Komst hann að þremur meginniður-
stöðum: (I) Steinvörðurnar mynda
ekki alls staðar réttan hring en frávik
eru lögbundin og af ráðnum hug.
(II) Við gerð þeirra var höfð ein og
hin sama mælistika, 83 sm löng. (III)
Út frá „steinhringjunum“ var mið
tekið af kennileitum og vörðum. - Á
meðal rita A. Thoms eru Megalithic
Lunar Observatories og Megalithic
Sites in Britain (sem Oxford Uni-
versity Press hefur gefið út).
Um samfélögin sem reistu stein-
hringina er enn minna vitað en um
þá sjálfa. Ábendingar um þau fást
þó af fornleifum. „Á tímabilinu
3500 f.Kr. til 2500 f.Kr. virðist
vettvangur þeirra hafa verið hægur
og jafn, bæði um miðstýringu (cen-
tralisation) og byggingar. Á meðal
mannvirkja frá því tímabili voru
fyrstu steinhringirnir, að venju stórir
og réttir hringir um það leyti á
Bretlandi vestanverðu. Hinir sann-
nefndu stóratburðir nýsteinaldar (á
Bretlandi) urðu um eða rétt fyrir
2500 f.Kr. í Science and Society in
Prehistoric Britain hefur Euan
MacKie dregið saman niðurstöður
af mörgum nýlegum aldursákvörð-
unum með kolefnisaðferðinni; vitn-
eskju fengna af uppgreftri dr. Geof-
frey Wainwright og uppgötvunum
Thoms prófessors; og sett saman
samfellda útlistun á síðustu öldum
nýsteinaldar. Hann sýnir fram á að
hæg (stöðug) framvinda fyrri alda
víkur skyndilega fyrir byggingar-
öldu.“ (Bls. 194.) MacKie tengir
þessar ýmsu staðreyndir hugmynd-
inni um öfluga prestastétt (priestly
elite) á nýsteinöld. Að áliti MacKie
voru prestar stjarnfræðingar sem
viðhéldu leyndardómum stjarnfræði
og flatarmálsfræði. (BIs. 194.)
Rýnir
DAGBÓK
Kjartan Ólafson sýnir í Nýhöfn
1 listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18,
hefur Kjartan Ólafson opnað sýningu á
verkum sínum. Sýningin er sölusýning.
Þar eru myndir unnar með gvassi og
blýanti á pappír á þessu ári.
Kjartan er fæddur í Reykjavík 1955.
Hann útskrifaðist frá MHÍ árið 1978 og
stundaði síðan nám við Empire State
College í New York í tvö ár.
Þetta er fimmta einkasýning Kjartans,
en hann hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga.
Sýningin er opin virka dag kl. 10:00-
18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00.
Henni lýkur 9. maí.
Fundur Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs heldur félagsfund
fimmtudaginn 26. apríl kl. 20:30 í Félags-
heimilinu. Eftir fund verður spilað bingó.
Mætum allar með hatta og í sumarskapi.
Félagskonur, munið að tilkynna þátt-
töku í ferðina að Eyrarbakka, sem farin
verður miðvikud. 25. aprfl í síma: 40332,
40388 og 675672. Lagt verður af stað frá
Félagsheimilinu kl. 19:00 stundvíslega.
Fundur
Safnaðarfélags Ásprestakalls
Safnaðarfélag Ásprestakalls heldur
fund í kvöld, miðvikud. 25. apríl, kl.
20:30 í safnaðarheimilinu. Gestur fundar-
ins er Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðing-
ur, sem ræðir um blóma- og garðrækt í
tilefni sumarkomu.
Minningarkort
SJÁLFSBJARGAR í
Reykjavík og nágrenni
fást á eftirtöldum stööum:
Reykjavík: Reykjavíkur apótek,
Garðsapótek, Vesturbæjarapótek,
Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð
Fossvogs, Grímsbær við Bústaðaveg,
Bókabúðin Embla, Drafnarfelli 10,
Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel 67,
Vcrslunin Kjötborg, Búðargerði 10,
Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers
Steins, Strandgötu 31.
Kópavogur: Pósthúsið.
Minningarkort fást einnig á skrifstofu
Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta.
Orlof húsmæðra í Reykjavík
Haldinn verður kynningarfundur á
Hótel Loftleiðum mánudaginn 30. apríl
kl. 20:30. Kynnt verður dvöl á Hvanneyri
og Benidorm.
Innritun hefst á fundinum, þar ganga
fyrir þær konur sem ekki hafa áður farið
í orlof húsmæðra í Reykjavík.
Skrifstofa Orlofsins á Hringbraut 116
verður opin þriðjudaginn 1.-4. maí og
7.-11. maí kl. 17:00-20:00. Sími er 12617.
Nefndin
Gunnar Ásgeir Hjaltason sýnir
í HAFNARBORG í Hafnarfirði
1 Hafnarborg, Menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur nú yfir
sýning Gunnars Ásgeirs Hjaltasonar.
Hann sýnir myndverk unnin í pastel og
akrýl, einnig vatnslitamyndir, teikningar,
grafík og ýmsa smíðisgripi.
Sýningin er opin daglega kl. 14:00-
19:00 nema þriðjudaginn 24. apríl. Sýn-
ingin stendur til 6. maí.
Fundur Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs heldur félagsfund
fimmtudaginn 26. apríl kl. 20:30 í Félags-
heimilinu. Eftir fund verður spilað bingó.
Mætum allar með hatta og í sumarskapi.
Félagskonur, munið að tilkynna þátt-
töku í ferðina að Eyrarbakka, sem farin
verður 25. apríl, í síma 40332, 40388 og
675672. Lagt verður af stað frá Félags-
heimilinu kl. 19:00 stundvíslega.
Hallgrímskirkja:
Starf aldraðra
Samvera aldraðra í safnaðarheimilinu
á morgun, miðvikud. 25. apríl kl. 14:30.
Einar Sturluson syngur einsöng. Upplest-
ur og fleira.
LÍFSVON
Aðalfundur Samtakanna Lífsvon verð-
ur haldinn í safnaðarheimili Seltjarnar-
nesskirkju fimmtudaginn 10. maí n.k. kl.
20:00.
Sýning Sigurjóns
Jóhannssonar á Blönduósi:
SÍLDARÆVINTÝRIÐ
Á sumardaginn fyrsta var opnuð sýning
á vcrkutn Sigutjóns Jóhannssonar, leik-
myndateiknara og málara í húsi Verka-
lýðsfélags Austur-Húnvetninga á
Blönduósi.
Sýning scm hcr kcmur fyrir sjónir al-
mennings cr byggð á lífsreynslu Sigur-
jóns frá bernskuárunum, en hann cr
fæddur og uppalinn á Siglufirði.
Sýningin vcrður opin alla daga kl.
14:00-19:00. Á sýningunni verður seld
bókin Svartur sjór af síld (síldarævintýrin
miklu á sjó og landi) cflir Birgi Sigurðs-
son, útgefandi Forlagið.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis.
Fundur Safnaðarfélags
Ásprestakalls
Safnaðarfélag Ásprestakalls heldur
fund miðvikudaginn 25. apríl kl. 20:30 í
safnaðarheimilinu.
Gestur fundarins verður Lára Jónsdótt-
ir garðyrkjufræðingur, sem ræðir um
blóma- og garðrækt í tilefni sumarkomu.
Frá Kvenfélagi Kópavogs
Konur í Kvcnfélagi Kópavogs, munið
ferðina á Eyrarbakka sem farin verður
miðvikudaginn 25. april kl. 19:00 stund-
víslega frá Félagsheimilinu.
Látið vita um þátttöku sem fyrst I sím-
um 40332,40388 og 675672.
Digranessprestakall
Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg annað kvöld,
fimmtud. 26. apríl, kl. 20:30. Rætt verður
um sumarferðalagið. Kaffiveitingar. Að
lokum er helgistund.
SARPUR - Fréttabréf Fjölbrautaskólans
í Breiðholti.
Aðalfundur Nemenda-
sambands Fjölbrautaskólans
í Breiðholti
í dag, miðvikud. 25. apríl , verður
haldinn aðalfundur nemendasambands
Fjölbrautaskólans í Breiðholti í hátíðar-
sal skólans og hefst kl. 20:30. Markmið
félagsins er m.a. að vinna að viðgangi FB
á sam flestum sviðum. Núverandi stjórn
er skipuð Guðbrandi Stíg Ágústssyni,
Ingiríði Óðinsdóttur, Haraldi Jónssyni,
Sigurjóni Einarssyni og Páli Sverri Péturs-
syni.
Auk venjulegra aðalfundastarfa verður
fjallað um 15 ára afmæli skólans nk.
haust.
Allir brautskráðir nemendur Fjöl-
brautaskólans eru hvattir til að mæta á
aðalfundinn.
Háskólatónleikar í
Norræna húsinu miðvikudag
25. apríl kl. 12:30
Á morgun, miðvikud. 25. apríl kl.
12:30 verða að venju Háskólatónleikar í
Norræna húsinu. Áð þessu sinni munu
Peter Tompkins og Robyn Koh leika
verk fyrir óbó og sembal. Á efnisskránni
eru: Sónata í g-moll eftir Johann Sebasti-
an Bach, Sónata í e-moll eftir Francesco
Geminiani og Sónata í c-moll eftir Anto-
nio Vivaldi.
Peter Tompkins er fæddur 1966 í Petts
Wood, í Kent í Englandi. Hann stundaði
nám í óbóleik við Royal Academy of
Music í London 1984-1988. Að námi
loknu sótti hann um starf við Sinfoníu-
hljómsveit íslands og hefur starfað þar sl.
tvö ár. Auk starfs síns þar hefur hann
leikið með hljómsveit Islensku óperunnar
og tekið þátt í tónleikum Blásarakvintetts
Reykjavíkur.
Robyn Koh er fædd í Malasíu árið
1964. Hún hóf píanónám 6 ára að aldri og
kom fyrst opinberlega fram ári seinna.
Hún fluttist til Englands 1976, þar sem
hún stundaði nám við Chetham’s School
of Music, sem er sérskóli fyrir böm gædd
tónlistarhæfileikum. Síðan stundaði hún
framhaldsnám við Royal Academy of
Music í London og Royal College of
Music í Manchester. Hún hefur komið
víða fram, vestan hafs og í Evrópu, en
1981 kom hún fyrst fram í Moskvu sem
einleikari með hljómsveit.
Robyn Koh starfar nú í London, en
sa:kir mánaðarlega tíma hjá Kenneth
Gilbert í Mozarteum skólanum í
Salzburg. Hún leikur reglulega með
breska óbóleikaranum Robin Canter og í
janúar kom hún fram í Purcell Room í
London.
Myndakvöld Ferðafélags Lslands:
Hvítá frá upptókum til ósa
í kvöld, miðvikud. 25. apríl kl. 20:30
heldur Ferðafélag íslands myndakvöld,
þar sem Hjálmar R. Bárðarson mun sýna
myndir úr hinni miklu Hvítárbók sinni.
Myndasýningin tengist vel ferðaáætlun
Ferðafélagsins, m.a. þeim slóðum sem
síðari hluti afmælisgöngunnar liggur um,
einnig gönguleiðinni frá Hvítárnesi til
Hveravalla og ótal fleiri athyglisverðum
stöðum á Kili og afréttunum austan
Hvítár (sbr. sumarleyfisferð nr. 18).
Myndasýningin hefst kl. 20:30. Kaffi-
veitingar í umsjá félagsmanna í hléi.
Mjög áhugavert myndefni.
Ferðir 28. aprO-1. maí: 1. Skaftafell -
Öræfasveit 2. Öræfajökull á gönguskíð-
um. Ferðafélag fslands
GEÐHJÁLP:
Fyrirlestur um geðheilbrigðismál
GEÐHJÁLP.félag fólks með geðræn
vandamál, aðstandenda þeirra ogvelunn-
ara hefur gengist fyrir mánaðarlegum
fyrirlestrum um geðheilbrigðismál í
vetur.
Síðasti fyrirlesturinn verður nú,
fimmtudaginn 26. apríl kl. 20:30. Fyrir-
lesturinn er haldinn á Geðdeild Landspít-
alans í kennslustofu á 3. hæð. Þar flytur
Sigmundur Sigfússon, geðlæknir á Akur-
eyri, fyrirlestur um starf og stuðning við
aðstandendur geðsjúkra.
Skrifstofa GEÐHJÁLPAR er opin alla
virka daga kl. 10:00-17:00. Félagsmið-
stöðin er opin alla virka daga kl. 13:00-
17:00.
Hallgrímskirkja:
Starf aldraðra
Samvera aldraðra í safnaðarheimilinu í
dag, miðvikud. 25. apríl kl. 14:30. Einar
Sturluson syngur einsöng. Upplestur og
fleira.