Tíminn - 28.04.1990, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.04.1990, Blaðsíða 3
Laugardagur 28. apríl 1990 Tíminn 3 Losaðu þig við útrunnin lyf í næsta apóteki! Þegar við losum okkur við útrunnin lyf eða lyf sem við þurfum ekki að nota þá hendum við þeim ekki eins og öðrum úrgangi. Lyf valda mengun, hvort sem þeim er hent á sorphauga eða skolað niður um vask eða salerni. Rétta leiðin til að losna við lyf er að fara með þau í næsta apótek og láta fagmenn um að eyða þeim á hættulausan hátt. Lyf eru stór útgjaldaliður í heilbrigðiskerfi okkar. Eitt af því sem gerir þennan lið dýrari en nauðsyn krefur er að við fáum stundum ávísað lyfjum í stærri skömmtum en við höfum þörf fyrir. Með því að ræða þessi mál við lækninn sem ávísar þér lyfi getið þið unnið að því að lækka þennan kostnað. Pað er einföld og skynsamleg leið til að spara skattpeninga þína. Það er varasamt að láta lyf sem við þurfum ekki að nota safnast fyrir á heimilinu. Hætta er á að þau séu tekin inn í mý>gripum og sú freisting er jafnframt fyrir hendi að notast við útrunnin lyf í stað þess að ræða við lækni. Það vekur falska öryggiskennd og getur jafnvel verið hættulegt. Uppsöfnun lyfja á heimilinu skapar hættu á að börn og óvitar komist í þau og vinni sér tjón. Hafðu það fyrir reglu að losa þig við lyf í næsta apóteki um leið og þeirra er ekki lengur þörf og í síðasta lagi þegar þau eru útrunnin. Látið aldrei frá ykkur lyf þar sem börn geta náð til þeirra. Geymið þau í læstum lyfjaskáp. Lœkkum lyfjakostnað v HEILSAN ER PIN DÝRMÆTASTA EIGN HEILBRIGÐIS- 0G TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.