Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 1. maí 1990
Tíminn 5
Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar og VMSÍ:Hugsjónir 1. maí um jafnrétti og bræðralag eru enn í fullu gildi:
1. mai haldinn undir
merkjum þjóðarsáttar
„Við höfum verið að fjarlægjast jafnréttishugsjónina og stundum
hefur verið djúpt á bræðralaginu. En eins og máltækið segir: -
Byrjaðu vel, endaðu vel og láttu eldinn aldrei slokkna-, þá verð-
ur fólk að halda eldinum lifandi. Ákvörðun um samningana 1.
febrúar var erfið, en þeir voru skilyrði fýrír betrí tíð. En betrí tíð er
ekki tryggð þrátt fýrir þá. Fólk verður að vera vakandi og standa
vörð um þá og markmið þeirra. Að loknu samningstímabilinu
verður síðan að auka kaupmátt og launajöfnuð," segir Guð-
mundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar og Verka-
mannasambandsins.
„Það er of snemmt að fullyrða að
okkur hafi tekist að rjúfa vítahring
verðbólgunnar. Við höfum unnið orr-
ustu en það er óvíst hvort við vinnum
stríðið. Við erum í sókn. Allar áætlan-
ir sem við gerðum hafa staðist vel
íram til þessa."
Þetta eru orð Ásmundar Stefánsson-
ar í bréfi til allra verkalýðsfélaga og -
sambanda innan ASI sem sent var út
fyrir nokkrum dögum. I bréfinu fjall-
ar Ásmundur um kjarasamningana
ffá 1. febrúar. Árangur þeirra sé að
koma í ljós m.a. með því að nafnvext-
ir hafa lækkað úr 30% í 14% og vísi-
tölur ffamfærslu og lánskjara hafa
hækkað minna en dæmi eru um í
langan tíma. Jafhframt því að verð-
bólgunni hafi þannig verið haldið í
skefjum hafi tekist að bægja ffá stór-
felldu atvinnuleysi sem spáð hafði
verið.
„Nú stendur yfir talsvert merkilegt
timabil. Að undanfomu hafa staðið
yfir tímar rýmandi kaupmáttar og það
horfði í skuggalegt atvinnuleysi og
vaxandi gjaldþrot atvinnufyrirtækja.
Verðbólgan óð yfir bótalaust og var
að drepa fyrirtæki og efnahag fátæks
fólks. Jafhffamt var lánskjaravísitalan
að sliga launafólk og fjöldi þess
missti íbúðir sínar og enn fleiri börð-
ust og beijast enn í bökkum með að
halda aléigunni. Kauphækkanir vom
étnar upp jafnóðum því að innbrots-
þjófúr var að verki sem var verðbólg-
an. Þessi innbrotsþjófúr átti öðrum
ffemur greiða leið að heimilum fá-
tæks fólks og atvinnufyrirtækjum í
ffamleiðslugreinum. Þetta var ástand-
ið sem var og við horfðum ffam á að
yrði áffam," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson f gær.
Guðmundur sagði að samningamir
1. febrúar væra merkilegir samningar
þótt þeir væra engin allsheijar lausn í
sjálfu sér og hefðu ekki haft í for með
sér aukinn kaupmátt og almenna vel-
megun.
„Mat okkar var að það yrði að stöðva
verðbólguna og vaxtaokrið. Þetta
skildi fólk þrátt fyrir að gífúrlegur
urgur væri í því - réttilega - yfir lágum
launum þeirra sem leggja sig fram í
erfiðum og þýðingarmiklum störfúm.
Samkomulag tókst og það merkilega
gerðist einnig að samkomulag tókst
við bændasamtökin um stöðugt verð-
lag á landbúnaðarafúrðum. Eg er
ákaflega ósáttur við íslenska landbún-
aðarpólitík einkum vegna mikilla út-
flutningsbóta. Hinsvegar er það bæði
heimska og illgimi að tala um bændur
sem vandræðafólk og afætur. Bændur
era að miklum meirihluta stritandi,
fátækt og heiðarlegt fólk. Án þess að
ég ætli að segja bændum hvemig þeir
eigi að búa þá tel ég að við eigum að
framleiða landbúnaðarafurðir fyrir
okkur sjálf og er jafnffamt alfarið á
móti því að greiða ómældar fúlgur
með útflutningi,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur gagnrýnir harðlega of-
fjárfestingu í verslunarhúsnæði á
Reykjavíkursvæðinu og stækkun
fiskiskipaflotans og útþenslu banka-
kerfisins. Allt þetta hafi verið elds-
neyti verðbólgubálsins og haldið
niðri kjöram verkafólks í undirstöðu-
greinunum. „Eg er ekki að ráðast að
starfsfólki bankanna þegar ég segi að
það gengur ekki að fjögur þúsund
bankamenn séu á Islandi en fimm
þúsund sjómenn,“ segir hann.
Hann sagði að með kjarasamningun-
um 1. febrúar hafi verkafólk í raun
tekið á sig að greiða fyrir mistök sem
það eigi þó enga sök á jafnframt því
að leiðrétta þau. Kaupmáttur hefð'i
ekki minnkað ffá undirritun samning-
anna og takmarkið var að halda stöð-
ugu og lækkandi verðlagi og að höfð
yrði markviss stjóm á fjárfestingum
og verðlagi. Á þessu yrði að byggja
nýja sókn til bættra kjara.
Samningamir hefðu að sögn Guð-
mundar aldrei orðið ffamkvæmanleg-
ir nema af því að ríkisstjómin lagði
sig ffam við að leysa málin með nið-
urgreiðslum og með því að halda
verðlagi opinberrar þjónustu í skefj-
um. „Verðbólgan hefúr nær stöðvast,
vextir hafa lækkað, atvinna hcfur
aukist, gjaldþrotum hefúr fækkað. En
það er ennþá alls konar blikur á lofti.
Nú þýðir ekkert að vera að tala um
hækkun raunvaxta, nú þýðir enga há-
speki við almennt verkafólk sem á um
sárt að binda vegna vaxtaokurs og
takmarkaðrar vinnu.
Samningstímann verður að nota til
að fá jafnvægi, eðlilega vaxtapólitík,
skynsamlega fjárfestingapólitík. Við
ætlum okkur ekki að borga fyrir fleiri
vitleysur, hvort sem þær verða gerðar
í útgerð eða verða í formi verslunar-
glæsihalla eða slíks. Við ætlum okkur
ekki aftur að standa undir því.
Valdhafar allir verða að gera sér það
ljóst að samningstímann, þennan um-
þóttunartíma, verður að nota vel. Ef
að menn ætla að hækka vexti nú eða
gera eitthvað annað í þá átt, þá vita
þeir ekki hvað þeir era að kalla yfir
sig.
—sá
Jón Sigurðsson framkvæmdstjóri
Stöð 2:
JONI
SAGT
UPP
Jóni Sigurðssyni framkvæmdastjóra
Stöðvar 2 var síðdegis í gær sagt upp
störfum ffá og með deginum í dag, að
loknum stjómarfúndi Islenska sjón-
varpsfélagsins. Frá þessu greindi í
kvöldfréttum rikisútvarps í gær. Upp-
sagnarbréfið var undirritað af Jó-
hanni J. Ólafssyni stjómarformanni,
sem síðan fór af landi brott.
Þá munu einnig nokkrir starfsmenn
Stöðvar 2 hafa sagt upp störfúm í
gær, þar á meðal yfirmaður auglýs-
ingaframleiðslu fýrirtækisins.
Formaður fjárveitinganefndar gagnrýnir borgarstjóra fyrir að ganga á bak orða sinna:
Borgin hafði lofað að
bjóða ekki í Borgina
Sighvatur Björgvinsson, for-
maður fjárveitinganefndar sam-
einaðs Alþingis, gagnrýndi
harðlega framkomu borgaryfir-
valda við Alþingi, í ræðu er
hann hélt á Alþingi í gær. Sig-
hvatur sagði m.a. að í þeim við-
ræðum sem átt hefðu sér stað á
milli þingsins og eigenda Hótel
Borgar, um kaup á húsnæði
hótelsins, hefðu yfirvöld borgar-
mála lýst því yfir að Reykjavík-
urborg hefði ekki í hyggju að
kaupa Hótel Borg.
Sighvatur Björgvinsson lýsti sam-
skiptum borgarinnar og Alþingis
og vakti sérstaklega athygli á því
að einungis nokkrum dögum áður
en að deilur þingsins og borgaryf-
irvalda hefðu verið farsællega til
lykta leiddar, hefði komið fram í
dagsljósið mjög óvænt kauptilboð
borgarinnar á Hótel Borg. I fram-
haldi af stirðum samskiptum borg-
arinnar og þingsins, viðraði Sig-
hvatur þá hugmynd hvort nauðsyn-
legt gæti reynst að flytja Alþingi
frá Reykjavík. Hann gagnrýndi
jafnframt Davíð Oddsson borgar-
stjóra harðlega fyrir að sóa fé
skattborgaranna í það að kaupa upp
veitingarekstur í Reykjavík. Sig-
hvatur sagði að í þeim útreikning-
um sem lagðir vora fyrir fjárveit-
inganefnd og forseta Alþingis, af
eigendum hótelsins, þegar viðræð-
ur um kaupin stóðu yfir, hafi kom-
ið fram að sú leiga er núverandi
leigjendur þess treystu sér til þess
að greiða hrykki ekki fyrir fast-
eignagjöldum og nauðsynlegasta
viðhaldi. Hann sagði að ekki væri
útilokað að Alþingi ætti enn mögu-
leika á að koma fýrir starfsemi
sinni í húsnæði Hótel Borgar, þeg-
ar borgarstjórinn færi að skoða
rekstrargrundvöll hótelsins.
Ólafúr G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sagðist skilja vilja borgaryfirvalda
til þess að hafa hótel í miðborginni
þó svo að kaupin hefðu komið sér
nokkuð á óvart. Árni Gunnarsson,
forseti neðri deildar, gagnrýndi
þingmenn fyrir að vera hikandi
varðandi kaupin á húsnæði Hótel
Borgar. - ÁG
w
Féiag járn-
iðnaðarmanna
Mætum í kröfugöngu og á útiíund verkalýösfélag-
anna.
Árnaöaróskir í tilefni dagsins.
Síjórn Félags járniðnaðarmanna.
Bændur
14 ára piltur óskar eftir sveitaplássi í sumar. Er
vanur.
Upplýsingar í síma 91-79132, eftir kl. 18.00.