Tíminn - 24.05.1990, Page 3

Tíminn - 24.05.1990, Page 3
Fimmtudagur 24. maí 1990 Tíminn 3 Astand fjallvega Condition of mountain tracks , Tracks in tne snaded aroas are ciosadM Ifarall iratfíc until further notice 1 Ay-\ >ív'. a ' Veglr ö skyggöum svæöum ©ru lokaöir allrt umtarö þar tli annaö varöur auglýst Gefiö út 24. mai 1990 M«su kort verftur 0»» <il 5». msl Pubtished 24th ofMay ið9Q f*>*t ntxp w>fi bu pubrtsnud 3tatc!Má< Vegagerö rlkisins «mi Pvbiic fíoaðs Adminístration NáttúruvemdarráD Natvre Conservaiion Council Eimskip kaupir gámaskip Eimskip hefur fest kaup á 7.700 tonna gámaskipi, sem afhent verður í byrjun árs 1991. Kaupverð skips- ins er tæplega 700 milljónir króna. Skipið er systurskip Bakkafoss, tæplega 107 metra langt og getur flutt um 460 gáma. Kaup skipsins er liður í stöðugri endumýjun skipaflota Eimskips, en fyrir einu og hálfu ári keypti félagið ekjuskipin Brúarfoss og Laxfoss. 1 fréttatilkynningu frá Eimskip segir að kaupverð og leiguverð skipa hafi hækkað sl. tvö ár. A sama tíma hafi orðið erfiðara að leigja skip með ís- lenskum áhöfnum, sem m.a. hafi orðið til þess að ráðist var í kaup þessa skips i stað þess að leigja. Nýja skipið er smíðað hjá Sietas skipasmíðastöðinni í Hamborg árið 1982 og hentarþað vel til siglinga á ýmsum leiðum félagsins m.a. til Norðurlandahafna og Norður-Am- eriku. —ABÓ Hálendisvegir lokaðir umferð Vegagerð ríkisins og Náttúruvemdarráð hafa gefið út kort sem sýnir hvaða vegir eru lokaðir allri umferð, þar til annað verður ákveðið. Kort þetta er annað í röðinni og gildir það frá og með deginum í dag, 24. maí. Fyrsta kortið kom út fýrír viku og kort númer þrjú kem- ur út 31. maí nk. Sigurður Hauksson hjá vegaeftir- liti Vegagerðar ríkisins sagði í sam- tali við Tímann að útgáfa kortanna kæmi til af tveim ástæðum. Annars vegar er um að ræða fjallvegi sem tilheyra þjóðvegakerfinu og eru lokaðir vegna snjóalaga. Sem dæmi um þá eru Lágheiði, Axar- íjarðarheiði, Hólssandur og vegur- inn í Mjóafjörð. Hins vegar eru það hálendisfjallvegimir sem lokaðir em bæði vegna snjóa eða aur- bleytu, svo og vegna náttúruvemd- arsjónarmiða. Aðspurður hvort menn mættu þá ekki fara á sérútbúnum íjallabílum á þessar slóðir, sagði Sigurður að ekki mætti fara inn á þá vegi á há- lendinu sem lokaðir væm vegna náttúruvemdarsjónarmiða. Hvað þá vegi varðar er tilheyra þjóðvegakerfinu, sagði Sigurður að ekki væri langt í land með að þeir opnuðust, hins vegar væri mislangt í það. Til dæmis er enn talsverður snjór á Lágheiði og dæmi um tveggja til þriggja metra háa skafla hér og þar á heiðinni. Vegaeftirlitið hefúr tekið saman töflu þar sem ffam kemur áætlaður opnunartími fjallvega á hálendinu. Þar kemur ffam að stefht sé að þvi að opna veginn um Sprengisand 7. júlí og veginn um Sprengisand og Kjöl 28. júní. Fjallabaksleið nyrðri opnast í þrennu lagi. Fyrst úr Skaft- ártungum í Eldgjá í kringum 24. júní, næsti hluti milli Sigöldu og Landmannalauga er áætlað að opni um mánaðamótin júní-júli, en áætl- að er að leiðin milli Landmanna- lauga og í Eldgjár, þannig að fært verði frá Sigöldu niður á Suður- landsveg, opnist í kring um 11. júlí. Sigurður sagði að svo virtist sem snjóalög á hálendinu og ástand íjallvega þar væri nokkuð svipað og var i fyrra. Hins vegar sagði hann að það færi mjög eftir tíðar- fari hver þróunin yrði, en nú er nokkuð kalt í veðri á fjöllum og því tekur snjó seinna upp. —ABÓ Þeir vegir sem liggja um skyggð svæði á kortinu eru lokaðir allri umferð þar til annað verður ákveðið. Er þetta gert vegna snjóalaga á vegum svo og vegna náttúruvemdarsjónarmiða.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.