Tíminn - 24.05.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 24. maí 1990
Tíminn 3
Astand fjallvega
Condition of mountain tracks
, Tracks in tne snaded aroas are ciosadM
Ifarall iratfíc until further notice 1
Ay-\ >ív'. a '
Veglr ö skyggöum svæöum ©ru lokaöir allrt
umtarö þar tli annaö varöur auglýst
Gefiö út 24. mai 1990
M«su kort verftur 0»» <il 5». msl
Pubtished 24th ofMay ið9Q
f*>*t ntxp w>fi bu pubrtsnud 3tatc!Má<
Vegagerö rlkisins «mi
Pvbiic fíoaðs Adminístration
NáttúruvemdarráD
Natvre Conservaiion Council
Eimskip
kaupir
gámaskip
Eimskip hefur fest kaup á 7.700
tonna gámaskipi, sem afhent verður
í byrjun árs 1991. Kaupverð skips-
ins er tæplega 700 milljónir króna.
Skipið er systurskip Bakkafoss,
tæplega 107 metra langt og getur
flutt um 460 gáma.
Kaup skipsins er liður í stöðugri
endumýjun skipaflota Eimskips, en
fyrir einu og hálfu ári keypti félagið
ekjuskipin Brúarfoss og Laxfoss. 1
fréttatilkynningu frá Eimskip segir
að kaupverð og leiguverð skipa hafi
hækkað sl. tvö ár. A sama tíma hafi
orðið erfiðara að leigja skip með ís-
lenskum áhöfnum, sem m.a. hafi
orðið til þess að ráðist var í kaup
þessa skips i stað þess að leigja.
Nýja skipið er smíðað hjá Sietas
skipasmíðastöðinni í Hamborg árið
1982 og hentarþað vel til siglinga á
ýmsum leiðum félagsins m.a. til
Norðurlandahafna og Norður-Am-
eriku.
—ABÓ
Hálendisvegir
lokaðir umferð
Vegagerð ríkisins og Náttúruvemdarráð hafa gefið út
kort sem sýnir hvaða vegir eru lokaðir allri umferð, þar
til annað verður ákveðið. Kort þetta er annað í röðinni
og gildir það frá og með deginum í dag, 24. maí.
Fyrsta kortið kom út fýrír viku og kort númer þrjú kem-
ur út 31. maí nk.
Sigurður Hauksson hjá vegaeftir-
liti Vegagerðar ríkisins sagði í sam-
tali við Tímann að útgáfa kortanna
kæmi til af tveim ástæðum. Annars
vegar er um að ræða fjallvegi sem
tilheyra þjóðvegakerfinu og eru
lokaðir vegna snjóalaga. Sem
dæmi um þá eru Lágheiði, Axar-
íjarðarheiði, Hólssandur og vegur-
inn í Mjóafjörð. Hins vegar eru það
hálendisfjallvegimir sem lokaðir
em bæði vegna snjóa eða aur-
bleytu, svo og vegna náttúruvemd-
arsjónarmiða.
Aðspurður hvort menn mættu þá
ekki fara á sérútbúnum íjallabílum
á þessar slóðir, sagði Sigurður að
ekki mætti fara inn á þá vegi á há-
lendinu sem lokaðir væm vegna
náttúruvemdarsjónarmiða.
Hvað þá vegi varðar er tilheyra
þjóðvegakerfinu, sagði Sigurður að
ekki væri langt í land með að þeir
opnuðust, hins vegar væri mislangt
í það. Til dæmis er enn talsverður
snjór á Lágheiði og dæmi um
tveggja til þriggja metra háa skafla
hér og þar á heiðinni.
Vegaeftirlitið hefúr tekið saman
töflu þar sem ffam kemur áætlaður
opnunartími fjallvega á hálendinu.
Þar kemur ffam að stefht sé að þvi
að opna veginn um Sprengisand 7.
júlí og veginn um Sprengisand og
Kjöl 28. júní. Fjallabaksleið nyrðri
opnast í þrennu lagi. Fyrst úr Skaft-
ártungum í Eldgjá í kringum 24.
júní, næsti hluti milli Sigöldu og
Landmannalauga er áætlað að opni
um mánaðamótin júní-júli, en áætl-
að er að leiðin milli Landmanna-
lauga og í Eldgjár, þannig að fært
verði frá Sigöldu niður á Suður-
landsveg, opnist í kring um 11. júlí.
Sigurður sagði að svo virtist sem
snjóalög á hálendinu og ástand
íjallvega þar væri nokkuð svipað
og var i fyrra. Hins vegar sagði
hann að það færi mjög eftir tíðar-
fari hver þróunin yrði, en nú er
nokkuð kalt í veðri á fjöllum og því
tekur snjó seinna upp.
—ABÓ
Þeir vegir sem liggja um skyggð
svæði á kortinu eru lokaðir allri
umferð þar til annað verður
ákveðið. Er þetta gert vegna
snjóalaga á vegum svo og vegna
náttúruvemdarsjónarmiða.