Tíminn - 24.05.1990, Side 5

Tíminn - 24.05.1990, Side 5
Fimmtudagur 24. maí 1990 Tíminn 5 Hugmyndir um flutninga SS á Hvolsvöll: VERÐUR SLATURFELAGIÐ ÁLVER SUNNLENDINGA? Frá Siguröi Boga Sævarssyni, fréttaritara Tímans á Selfossi: Þeim hugmyndum sem nú eru uppi um flutninga á framleiðslu- deildum Sláturfélags Suðuriands austur á Hvolsvöll er vel tekið meðal manna fyrir austan, enda þykir það sýnt að ef af verður muni minnst 100-110 störf flytjast austur, fyrír utan aukningu sem yrði á öðrum sviðum. ísólfar Gylfi Pálmason sveitarstjóri á Hvolsvelli sagði í samtali við Tím- ann að ef þetta myndi verða að veru- leika væri þetta ekki einasta fengur íyrir Hvolsvöll, þar sem atvinnuleysi hefur verið viðvarandi, heldur fyrir Rangárvallasýslu alla því hún væri öll eitt atvinnusvæði. „Þetta yrði til að gjörbylta öllu hér,“ sagði hann. Steinþór Skúlason, forstjóri Slátur- félagsins, sagði aðspurður hvemig þessi möguleiki hefði komið upp, að ítrekað hefðu möguleikar þess að ráðast í nýbyggingu úrvinnslustöðvar á Suðurlandi verið athugaðir. Niður- staðan úr því hefði hins vegar verið sú, að slíkt væri ekki hagkvæmt. Hinsvegar væri sá möguleiki fyrir hendi að endurskipuleggja starfsem- ina á Hvolsvelli, hætta þar allri slátr- un svo þar yrði eingöngu úrvinnslu- stöð. Sú slátrun, sem þar hefur verið, yrði síðan flutt yfir á hin sláturhús fé- lagsins; við Laxárbrú, á Selfossi, í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjar- klaustri. Þessi möguleiki væri hag- kvæmur og með þessu myndu sparast 300 miljónir króna miðað við það að ráðist i nýbyggingu í Reykjavík. Ef af þessu yrði myndu flytjast á Hvols- völl 100 -110 ársverk og 10 á Selfoss, samfara aukinni slátrnn þar. Steinþór sagði að í þessum áætlun- um væri gert ráð fyrir að markaðs og söludeildir félagsins yrðu eftir sem áður í Reykjavík, en gera mætti ráð fyrir, að yfirstjómin yrði mikið á ferðinni á milli; bæði þá í Reykjavík og fyrir austan fjall. Við þetta væri óhjákvæmilegt að eitthvað af sér- hæfðu starfsfólki félagsins á höfuð- borgarsvæðinu þyrfti að flytjast aust- ur með starfseminni, en heimamenn myndu koma æ meir inn í starfsem- ina í fyllingu tímans. Allar þessar áætlanir em undir því komnar að það takist að selja 10.300 fermetra bygg- ingu Sláturfélagsins við Laugames. Húsið f Laugamesi er hannað í kring- um 1980 og er bam þess tíma en mið- að við daginn i dag hentar það starf- semi fyrirtækisins ekki. Páskar á næsta ári em tímapunktur- inn sem hugsanlegir flutningar em miðaðir við. Atvinnuleysi síðustu ár hefur verið viðvarandi á Hvolsvelli. Þær iðn- greinar sem vom vaxtarbroddar, þ.e. prjóna- og húsgagnaiðnaður hafa lagst af og sú mikla atvinna sem skapaðist við virkjunarframkvæmdir á Tungnársvæðinu varð vitaskuld ekki til eilifðamóns. „Við emm vel í stakk búin til að taka á móti þessu,“ sagði Ísólíur Gylfi sveitarstjóri. Fyrr í þessum mánuði, samþykkti Skipu- lagsstjóm Ríkisins nýtt aðalskipulag fyrir Hvolsvöll og nægar byggingar- lóðir em til staðar. Aukin eftirspum eftir húsnæði myndi svo aftur hækka verð á húsnæði, sem hefúr verið iágt vegna hins bága atvinnuástands. „Við leggjum gífúrlega áherslu á að þetta síðasta tilboð Sláturfélagsins gangi upp,“ sagði Guðni Ágústsson alþingsmaður, aðspurður um þátt al- þingsmanna kjördæmisins í þessu máli. „Atvinnuleysið í Rangárvalla- sýslu hefur þýtt tugi milljóna króna i atvinnuleysisbótum, 50 - 60 milljónir á ári hef ég heyrt. Verði þetta flutt austur þýðir það uppsveiflu, ekki að- Bækistöðvar SS á Hvolsvelli. Tímamynd: Siguröur Bck, eins á Hvolsvelli heldur á öllu Suður- landi. Þetta myndi hafa svipaða þýð- ingu fyrir Suðurland og álver fýrir Eyjafjarðarsvæðið. Og hinu megum við ekki gleyma að það að reka þenn- an steinkastala, sem skilar engu, á besta stað í höfúðborg íslendinga kostar 50 - 60 milljónir á ári, það sama og allt atvinnuleysið í Rangár- vallasýslu," sagði Guðni. I gær, gengu ffamámenn Hvolsvell- inga á fúnd forsætisráðherra til að leggja áherslu á Hvolsvöll í þessu sambandi og kynna hvað staðurinn hefði uppá að bjóða. Eins og fyrr seg- ir er þetta þó allt undirorpið því að takist að selja húsið í Laugamesi og þar hefúr verið talað um ríkið sem kaupanda og em uppi margar hug- myndir um hugsanlega nýtingu þess. Viðmælendur Tímans bentu allir á, að ef þessar hugmyndir yrðu að vem- leika, yrði það til þess að styrkja at- vinnu og búsetu fólks á Suðurlandi í heild sinni. Eða eins og Guðni Ág- ústsson segir: „Þetta myndi hafa svipaða þýðingu fyrir Suðurland og álver á Eyjafjarðarsvæðinu." Dagskipun „Jakans“ og Verðlagseftirlits verkalýðsfélaganna: „Ekki kaupa kók!“ Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar segir að Vífilfell og ýmsir bakarar í Reykjavík, sem hafa verið að hækka verð á vörum sínum muni ekki komast upp með það og hvetur til þess að vörur þeirra verði sniðgengnar. ,Tíf Vífilfell ætlar að halda því til streitu að hækka verð á sinni ffamleiðslu núna, segjum við hiklaust: „Kaupið ekki kók“,“ sagði Guðmundur J. í samtali við Tímann í gær. , J>eir verða bara að lækka þetta aftur, bæði Kók, Sveinsbakarí og fleiri sem em að hækka núna. Vísitöluspá um hækkun á næstu þremur mánuðum er innan við eitt stig. Ef á að fara að sprengja það af aðilum eins og Kók og ákveðnum bökumm hér í bænum, á meðan aðrir em að stritast við að halda þessu, er bara verið að ögra vinnandi fólki og ffamleiðslunni í landinu. Það var aldrei hugsunin að fyrirtæki fengju að leika sér svona." „Við höfum sagt og segjum enn, snið- gangið vömr sem er verið að hækka svona og beinið viðskiptum ykkar til þeirra aðila sem ekki hækka sína vöru,“ sagði Leifúr Guðjónsson, stjómarmaður í Dagsbrún og starfs- maður Verðgæslu verkalýðsfélaganna. Leifúr sagði að verðlagseffirliti verkalýðsfélaganna hefði ekki verið gefin nein skýring á hækkun 6% Vífil- Guðmundur J. Guðmundsson. fells á gosdrykkjum sinum. Þetta væri bein ögmn við þá sem samþykkt hefðu núllsamningana, en eftir því, sem þeir kæmust næst, væri Vífilfell eina gos- verksmiðjan sem hefði hækkað verð á sinni ffamleiðslu. Þess vegna væri dagskipun verkalýðsfélaganna til sinna félagsmanna sú að vörur ffá Víf- ilfelli skuli sniðgengnar. í gærdag bár- ust átta kvartanir til verðlagseffirlits- manns verkalýðsfélaganna vegna hækkana á brauði frá Sveinsbakaríi og ein kvörtun um hækkun á vömm ffá Bjömsbakarii. Þær upplýsingar feng- ust á skrifstofu Dagsbrúnar í gær að þriggja koma brauð ffá Sveinsbakaríi hefði hækkað um ríflega 8% og kost- aði núna ríflega 145 krónur stykkið, en í öllum tilfellunum hefði verið kvartað undan sömu hækkunum. Að sögn Leifs er mikið hringt í ver- lagseftirlitið og kvartað undan hækk- unum á vöm og þjónustu. Fólk fylgis mjög náið með og nú sé farið að bera á því að kvartað sé undan því, að þrátt fyrir að verðhækkanir séu klagaðar, komist fyrirtæki upp með þær. - ÁG Laus staða Staða lögfræðings hjá samgönguráðuneytinu er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist samgönguráðuneytinu fyrir 5. júní 1990. Samgönguráðuneytið MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Laus staða í Landsbókasafni Staða bókavarðar í deild erlendra rita í Landsbókasafni Islands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. júní n.k. Menntamálaráðuneytið 21. maí 1990 m Starfsráðningar Tæknifræðingur: Óskum eftir að ráða sterkstraumstæknifræðing. Umsókn um starfið skal skilað á sérstöku eyðu- blaði fyrir 1. júní nk. til rafveitustjóra, sem veitir nánari upplýsingar um starfið, sími 53444. Gröfumaður: Óskum ennfremur að ráða gröfumann með rétt- indi. Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri veitukerf- is, sími 652935. Rafveita Hafnarfjarðar. HH Útsýnishús á '1' Öskjuhlíð verður til sýnis almenningi fimmtudaginn 24. maí kl. 14-17.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.