Tíminn - 24.05.1990, Síða 9

Tíminn - 24.05.1990, Síða 9
Fimmtudagur 24. maí 1990 Tíminn 9 Sumaráætlun innanlandsflugs Flugieiða í gildi: Ævintýra- ferðir á Vatnajökul Það var heitt uppi við skála Jöklaferða á Vatnajökli og því ástæða til að kasta klæðum. Eins og sjá má skort- ir sárlega betri skála á jöklinum. Tímamynd eó Sumaráætlun innanlands- fiugs Flugleiða hefur tekið gildi. Gert er ráð fyrir að í sum- ar eigi farþegar í áætlunarflugi kost á um 160 þúsund sætum í flugi til tólf staða innanlands og í Færeyjum og á Græn- landi. Þetta er meira sæta- framboð en nokkru sinni áður. Flugleiðir leggja nú meiri áherslu á sölu eins til tveggja daga skoðunarferða út á land. Meðal þeirra eru ferðirtil Hafn- ar í Homafirði, þaðan sem far- ið er á Vatnajökul og að Jök- ulsárlóni. Þá má nefnaferðirtil Akureyrar og þaðan til Gríms- eyjar og Mývatns, ferðir til Vestmannaeyja, Kúlusúk á Grænlandi og fleirí staða. Þessar ferðir eru seldar í samvinnu við heimamenn á hveijum stað sem sjá um allt skipulag skoðunarferða. Sumar þessara ferða hafa lengi ver- ið vinsælar meðal erlendra ferða- manna. Þar má t.d. nefna Mývatns- ferðir. Frá Sauðárkróki er farið í Drangey og helmingi fleiri hafa bókað sig þangað en á sama tíma í fyrra. Frá Flúsavík er farið í þjóð- garðinn í Jökulsárgljúfrum og frá Egilsstöðum er farið í spennandi dagsferð um Hérað og niður á Seyðisfjörð. Frá ísafirði er farið að Hombjargi og á nýjum bát í skoð- unarferð um Djúp. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að með dagsferð- unum sé stefnt að því að styrkja áætlunarflugið. Jafnframt er vonast eftir auknum ferðamannastraumi út á landsbyggðina sem þýðir meiri atvinnu fyrir landsbyggðarfólk. Nýjar ferðir virðast ætla að öðlast vinsældir þegar í stað, t.d. ferðin til Hafnar í Homafirði á Vatnajökul og að Jökulsárlóni. Flugleiðir, Jöklaferðir og Hótel Höfn í Homafirði buðu blaða- mönnum í dagsferð til Hafnar í síð- ustu viku. Með því vildu þessir að- ilar gefa fjölmiðlum tækifæri til að kynnast einum af fjölmörgum ferðamöguleikum sem boðið er upp á í sumar. Eins og greint hefur verið frá í Tímanum áforma Jökla- ferðir að byggja skála uppi á Vatna- jökli. Ahugi á ferðum upp á Vatna- Hjálparsamtökin Móðir og barn: 8 mæður fá aðstoð Hjálparsamtökin Móðir og bam em nú að færa út kvíamar með húsnæðis- aðstoð fýrir einstæðar mæður. Til skamms tíma hafa fjórar mæður verið í húsnæði á vegum samtakanna. Fjór- ar einstæðar mæður bættust svo við í byrjun þessa mánaðar og sennilega verður ein íbúð til viðbótar tekin á leigu um næstu mánaðamót. Þær átta konur, sem nú leigja hjá samtökun- um, em með sjö böm á ffamfæri sínu, en ein er bamshafandi. Stjóm sam- takanna gerir ráð fyrir að sú áætlun standist að um mitt árið verði 10 kon- ur komnar i húsnæði á vegum sam- takanna. -EÓ Tryggvi Ámason var leiðsögumaður í ferðinni. Hér er hann staddur í vatnadrekanum á Jökulsárióni. jökul hefur aukist mikið og em horfur á að nokkur þúsund manns ferðist með Jöklaferðum í sumar. Flogið var með blaðamennina sjónflug frá Reykjavík til Homa- fjarðar í dýrðlegu veðri. A flugvell- inum í Höfn tók á móti okkur Tryggvi Ámason, framkvæmda- stjóri Jöklaferða. Farið var með rútu frá Austurleið upp að Skála- fellsjökli. Vegurinn þangað upp er nokkuð glæfralegur og torfarinn. Þegar að jöklinum kom var blaða- mönnum raðað upp á vélsleða og þá fyrst byrjaði gamanið. Fyrr en varði vom menn sem aldrei höfðu snert slík verkfæri famir að þeytast um jökulinn. Tryggvi og hans menn áttu erfitt með að hemja ferðalangana, sem sumir hveijir létu eins og þeir væm orðnir fimm ára í annað sinn. Að endingu tókst að fá alla til að setjast niður við kofa Jöklaferða og snæða mat frá Hótel Höfn og njóta veðurblíðunnar. Veðrið þama uppi var dásamlegt og þó aðeins væri dvalist þar í nokkra klukkutíma náðu ferðalangamir að sólbrenna. Þeir sem legið hafa í sólbaði uppi á íslenskum jökli hljóta að spyija sjálfan sig af hveiju fólk fer erlend- is til að njóta sólar. Að lokinni jöklaferðinni var farið út á Jökulsárlónið á vatnadrekanum Jökli. Lóninu og stórkostlegri nátt- úm þess þarf ekki að lýsa fyrir landsmönnum. Það er óhætt að mæla með dags- ferð með Flugleiðum til Homa- fjarðar. Vatnajökull hefur fleira við sig en stærðina. -EÓ DAGUR ALDRAÐRA í REYKJAVÍK B-listinn í Reykjavík býður eldri borgurum til fagnaðar og kaffiveitinga í Glæsibæ á uppstigningardag fimmtudaginn 24. maí kl. 15.00. Steinunn Finnbogadóttir Jóhannes Kristjánsson Kristján Benediktsson Ávarp: Kristján Benediktsson, fv. borgarfulltrúi. Söngur: Eiín Sigurvinsdóttir v/ undirleik Sigfúsar Halidórssonar. Ávarp: Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi. Lokaorð: Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. Kynnir: Steinunn Finnbogadóttir forstöðukona. Vinsamlega hafið samband í síma 680962 eða 679225 ef ykkur vantar akstur eða frekari upplýsingar. Framsóknarfélögin í Reykjavík Sigrún Magnúsdóttir Steingrímur Hermannsson Elín Sigurvinsdóttir Sigfús Halldórsson

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.