Tíminn - 24.05.1990, Side 20

Tíminn - 24.05.1990, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300 ríkissRip ,Sinnéle^okkarfa3' VEMBREFAVIBSKIPn SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688S68 Sigrún Magnúsdóttir skipar 1. sæti á lista Framsóknar- flokksins við borgarstjórnarkosn- ingarnar 26. maí n.k. NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822 Siöareglur fyrir horgar- | fulltrúa og embættismenn | Tíminn FIMMTUDAGUR 24. MAf 1990 Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra gagnrýnir það að Oryggisráðið skuli þurfa út fýrir BNA til þess að hlýða á mál Yasser Arafat. Þorsteinn Pálsson: „ENGAR ATHUGASEMDIR VIÐ FUNDARSTAÐ S.Þ.“ Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman til sérstaks neyðarfundar í Genf á föstudaginn, þar sem óeirðir á her- teknum svæðum ísraelsmanna verða tekin fyrir. Fundurinn er sérstaklega fluttur til þess að gera Yasser Arafat leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu kleift að flytja mál sitt á fundinum. Þetta er í þriðja skiptið á sl. 18 árum sem ákveðið er að halda fund ráðsins fýrir utan aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York. Ástæðan er sú að bandarísk yfirvöld veita ekki Yasser Arafat vegabréfsáritun inn í landið. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, sem hefur verið þeirrar skoðunar, að viðræður við Arafat spilltu fyrir friðarsamning- um við Israelsmenn, vildi lítið tjá sig um þessa ákvörðun í gær. „Ég geri bara engar athugasemdir við það hvar þeir halda sína fundi sameinuðuþjóðamenn," sagði Þor- steinn. - Nú hefur þú m.a. gagnrýnt Stein- grím Hermannsson forsætisráð- herra fyrir að eiga viðræður við Arafat, þar sem þær spilli fyrir frið- arumleitunum. Heldur þú að þessi fúndur Öryggisráðsins geti einnig haft áhrif til hins verra? „Ég skal bara ekkert um það segja, en Sameinuðu þjóðimar mega ákveða sína fundi alveg án athugasemda frá minni hálfú.“ Steingrímur Hermannsson sagði í samtali við Tímann í gær, að það væri ekkert nýtt að Yasser Arafat fengi ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og fordæmi fyrir því áður að halda yrði fúnd Örygg- isráðsins utan þeirra til þess að Arafat ætti þess kost að taka þátt í viðræðum innan ráðsins. „Mér þykir þessi stefna Banda- rikjanna afar röng og ef þeir halda fast við hana, er spuming hvort fært er að hafa Sameinuðu þjóðim- ar í New York,“ sagði forsætisráð- herra. „Ég fagna því hins vegar að fúndurinn skuli haldinn í Genf og Arafat skuli þá fá að ávarpa hann. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr, verður því alls ekki neitað að hann er sá maður sem Palestínu- menn líta á sem sinn foringja." Steingrímur sagði það sína skoðun að Yasser Arafat væri þrátt fyrir allt sá maður, sem hefði lagt sig hvað mest ffam um að halda friði í lönd- unum fyrir botni Miðjarðarhafs og þess vegna yrði að byggja mjög á honum í því sambandi. „Það er íúrðulegt að bandarísk stjómvöld skuli vera enn við sama heygarðshomið að þessu leyti á sama tíma og ijölmargir áhrifa- menn í Bandaríkjunum, eins og senator Dole og fleiri valdamiklir gyðingar, hafa snúið algerlega við blaðinu,“ sagði Steingrímur. Hann lýsti jafnframt fúrðu sinni yfir yfir- lýsingu ísraelska sendiherrans á ís- landi I fyrrakvöld, þess efnis að viðræður við Arafat flýttu ekki fyr- ir friði fyrir botni Miðjarðarhafs. „Því miður finnst mér þar koma ffam það sem jafnvel harðlínugyð- ingar í Bandaríkjunum em famir að kalla „helstefúuna“, sagði Stein- grímur. „Þetta er sorglegt, ég vil Israelsmönnum ekkert nema það besta, en þeir verða að fara að setj- ast niður og semja og semja þá við menn, sem hafa áhrif.“ Steingrímur Hermannsson Forsætisráðherra tók deilur ísraels og Palestínumanna upp á fúndi rík- isstjómarinnar í fyrradag og lét þar m.a. í ljósi þá skoðun að Samein- uðu þjóðimar sendu ffiðargæslu- sveitir til þess að halda uppi eftirliti með hinum stríðandi aðilum. Fyrir liggur að Palestínumenn munu að öllum líkindum samþykkja slíkt eflirlit, en óvíst er um afstöðu Isra- lesmanna. Þorsteinn Pálsson Varðandi gagnrýni á sína heim- sókn til Arafats sagðist forsætisráð- herra hvorki líta svo á að heim- sóknin spillti né ílýtti fyrir ffiðarviðræðum. Hún gerði honum og íslensku ríkisstjóminni betur kleift að skýra sín sjónarmið og koma þeim á ffamfæri, þar sem þeir hefðu ffelsi til að tala. „Okkur er hleypt til Bandaríkjanna, til dæmis,“ sagði Steingrímur. -ÁG Akureyri: Barn slasast Átján mánaða gamalt bam slasaðist alvarlega við Melasíðu á Akureyri um klukkan hálf tólf í gærdag, þar sem það var að leika sér. Tilkynning barst lögreglu kl 11:40, en enginn sjónarvottur var að slysinu, en talið er, að bamið hafi lent undir vörufleka sem þama var. í gærkvöldi lá bamið á gjörgæsludeild. Leyfa bús, banna mat Hæstiréttur segir áritunina ógilda Hæstiréttur hefur fallist á kröfú Jóns Laxdals, bónda í Grýtubakkahreppi í Þingeyjarsýslu, að áritun, sem hann gaf vegna skuldar Kaupfélags Sval- barðsfjarðar við Iðnaðarbankann, verði felld úr gildi. íslandsbanka, sem var stefút í þessu máli, er gert að greiða áffýjanda málskostnað. íslandsbanki höfðaði mál í bæjar- þingi Akureyrar á hendur Jóni og tveimur öðrum fyrrverandi stjómar- mönnum Kaupfélags Svalbarðsfjarð- ar. Stjómarmennimir höfðu skrifað upp á sjálfsskuldarábyigðir vegna skulda kaupfélagsins við Iðnaðar- bankann. Eftir að Kaupfélag Sval- barðsfjarðar var lýst gjaldþrota, krafð- ist bankinn þess að stjómarmenn kaupfélagsins greiddu lánið. Jón áffýj- aði málinu til hæstaréttar og krafðist þess að áritunin yrði felld úr gildi. Hæstiréttur féllst á kröfuna. -EÓ Eigendur pylsuvagna í miðbæ Reykjavíkur ætluðu í nótt að selja úr vögnum sínum, þar til lögreglan stöðvaði þá með valdi. Þetta er gert til að mótmæla þvi, að borgaryfirvöld leyfðu einungis að pylsuvagnar væm opnir til klukkan tvö í nótt, á meðan skemmtistaðir mega hafa opið heilum klukkutíma lengur. Pylsusali, sem Tíminn ræddi við í gær, sagði að það væri í sýnum aug- um óskiljanlegt af hveiju borgaryfir- völd heimiluðu vínveitingahúsum að selja áfengi lengur heldur en þeim að selja mat. Ekki var búist við að til neinna átaka kæmi á milli vagneig- enda og lögreglu í nótt. - ÁG 3252 höfðu greitt atkvæði utan kjörstaðar í Reykjavík kl. þrjú í gær. í Ármúlaskóla, þar sem utankjörstaðaatkvæðagreiðslan fer fram, feng- ust þær upplýsingar, að frekar fáir hafi komið í gær, en hins vegar kom mikill fjöldi fólks á kjörstað á þriðjudag. í gær höfðu álíka margir greitt atkvæði utan kjörstaðar og þrem dög- um fyrir kjördag í síðustu kosningum. Þegar opnað var í gærmorgun klukkan tíu, höfðu hundrað fleiri greitt atkvæði utan kjörstaðar, en var á sama tíma fyrir fjórum árum. Á fundi borgarráðs á föstudag voru lagðar fram kærur vegna kjör- skrár til borgarstjórnarkosninga og var samþykkt að taka nöfn 407 á kjörskrá, er fullnægðu skilyrðum um lögheimili í Reykjavík. Borgar- ráð taldi ekki unnt að taka þrjá einstaklinga á kjörskrá, þar sem ekki var fullnægt skilyrðum um lögheimili í Reykjavík. Þá var samþykkt að fella 391 af kjörskrá vegna breytinga á sveitarstjórnarlögum er tóku gildi 1986 og vegna breytingaskráa frá Hagstofu íslands. Jafn- framt voru felld af kjörskrá nöfn 90 einstaklinga, sem látist höfðu eft- ir að kjörskrá var lögð fram —ABÓ/Tímamynd: Árni Bjarna. Dæmdir í varðhald til 26. september Sakadómur Reykjavíkur staðfesti í gær kröfú Rannsóknarlögreglu ríkis- ins um að gæsluvarðhald yfir mönn- unum tveimur, sem grunaðir eru um morðið í Stóragerði, yrði framlengt til 26. september. Einnig var staðfest að mennimir skuli sæta geðrannsókn. Geðheilbrigði mannanna verður kannað á næstu dögum. Að fengnum niðurstöðum liggur íyrir hvort þeir teljast sakhæfir. Stúlkunum tveimur, sem voru í varðhaldi vegna rannsókn- ar málsins, hefur verið sleppt úr haldi. Hinir grunuðu hafa viðurkennt að hafa brotist inn í Iðunnarapótek í Reykjavík skömmu áður en morðið var framið og stolið þaðan miklu magni af stórhættulegum eiturefúum. Efnin grófú þeir í jörðu, en þau hafa nú fúndist. -EÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.