Tíminn - 07.07.1990, Síða 2
10
HELGIN
Laugardagur 7. julí 1990
BENZ - BMW - VOLVO
OG FLESTALLIR AÐRIR EVRÓPSKIR FRAMLEIÐENDUR \
VANDAÐRA BlLA NOTA SACHS KÚPLINGAR OG 4
HÖGGDEYFA SEM UPPRUNAHLUTll BIFREIÐAR SÍNAR. f
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA \
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN ~~~j
SUDURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
———j——~ j-TLTa
Útsala
Útsala
Britains landbúnaðarleikföng. Indíánatjöld. Fjarstýrðir bíl-
ar. Barbie leikföng. Fisher Price. Sandgröfur. Hjóiaskaut-
ar. Sparkboltar. Legokubbar. Talstöðvar áður kr. 6.500 nú
kr. 4.500.
Sundlaugan
Stærð
152x25
183x38
224x46
Áður
kr. 1550
kr. 2489
kr. 3400
Nú
kr. 1200
kr. 1990
kr. 2700
Rafhlöður: Stór, áður kr. 59.- nú 12. stk. kr. 350.-
Mið, áður kr. 43.- nú 24 stk. kr. 480.-
Lítil, áður kr. 34.- nú 24 stk. kr. 350,-
10 — 20 — 50% afsláttur
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 8.
Sími 14806
SLÁTTUÞYRLU-
HNÍFAR
Á GÓÐU VERÐI
M.a. fyrlr PZ vélar.
Boginn hnífur kr. 52.- m/vsk.
Beinn hnífur kr. 50.- m/vsk.
Vélar og þjónusta hf.
Járnhálsi 2 112 Reykjavík, sími 91-83266
Garðsláttur
Tökum aö okkur aö slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyiö.
Komum, skoöum og gerum verðtilboö.
Afsláttur ef samiö er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224 eftir kl. 18.
Geymið auglýsinguna.
Bessastaðir um daga Gríms Thomsen þar.
ir í allt aðra átt en þá að Grím hafi
skort ást á Islandi.
Á Bessastöðum
Það er því ekki víst að Grími hafi
þótt það með öllu illt er nýtt öldurót
skolaði honum út úr þessu öllu sam-
an. Eftir ófarimar í síðari Slésvíkuró-
friðnum var laust um þá sem við
völdin voru. Var fækkað mjög emb-
ættismönnum og fékk útlendingurinn
þá lausn í náð með biðlaunum og eft-
irlaunum 1866. Fluttist hann þá heim
til ísiands á næsta ári, eftir 30 ára
dvöl ytra, tókst að fá æskuheimili sitt
Bessastaði til eignar, reisti þar gott bú
og bjó þar til æviloka, næstum því 30
ár. Er þetta síðasti og merkasti kafl-
inn í ævi Gríms. Þar skilur hann eftir
flest og dýpst spor.
Þó að nú yrði hljótt um Grím móts
við það sem áður var, fer því fjarri að
hann græfi sig lifandi eða settist í
helgan stein. Nú varð hann að fá sér
lífsforunaut og þurfti ekki að hafa
áhyggjur af efnahag. Kvæntist hann
1870 norðlenskri konu af góðri ætt,
Jakobínu Jónsdóttur frá Reykjahlíð,
er stóð fyrir búi hans með rausn og
myndarskap. Hér varð nokkurs konar
aðalsmannssetur, þótt ekki væri
íburðarmikið að ytra búnaði eða
skarti, og þótti til dæmis nálega sjálf-
sagt að fara með merka útlenda gesti
að Bessastöðum. Um Grím sjálfan
fór tvennu ffam. Hann þótti nokkuð
grár og kaldur, ef því var að skipta,
og rígur var milli þeirra höfðingjanna
á Bessastöðum og í Görðum, þar sem
séra Þórarinn Böðvarsson sat, eins og
kom til dæmis ffarn i skólamálunum.
En á hinn bóginn fór af honum ágæt-
isorð. Menn dáðu hann, gáfur hans,
lærdóm, tiginmannlega ffamkomu
og málmskæra rödd. Hann sat á Al-
þingi lengst af fyrir Rangæinga,
Gullbringu- og Kjósarsýslu og Borg-
firðinga 1869-91. Kvað mjög að hon-
um á Alþingi og hafa ekki aðrir setið
þar glæsilegri né skæðari í mann-
flutningi, en ekki náði hann þar
neinni forystu, og féll ekki inn í þá
strauma er þar réðu forinni. Þá var
hann um tíma ritstjóri ísafoldar.
Fimmtán ára þögn
En það sem umffam allt geymist ffá
þessum síðasta kafla ævi Grims
Thomsens er ljóðagerð hans, sem nú
fyrst fær fullt næði til að dafna, þó að
ýms af mestu kvæðum hans séu fyrr
til orðin. Grimur andaðist 27. nóv.
1896.
Grimur byijaði ungur að yrkja. Er
fyrsta ljóðaþýðing hans, Alpaskyttan
eftir Schiller, birt í Fjölni 1839, þegar
Grímur er 19 ára. Fyrsta ffumorta
ljóð hans kemur í Fjölni 1844. Það er
eitt af kunnustu kvæðum Gríms,
Ólund. Grimur var þá að fást við
Byronsritgerð sína, og er því ekki
furða þó að menn leiti áhrifa ffá þeim
skáldjöfrí í kvæðinu. En sannleikur-
inn er sá að þetta fyrsta kvæði Grims
er sérmótað af hans eigin stfl, svo að
annað kemst varla að. Hitt er annað
mál, að þessi mikli lífsleiði, þessi
„ólund", er ekki sérlega eðlileg rúm-
lega tvítugum, bráðgáfuðum ung-
lingi. Nokkur kvæði birti hann í Nýj-
um félagsritum og má af því sjá að
hann var engan veginn frá samlönd-
um sínum skilinn þó að hann færi
sínar eigin götur. Var hann um hrið
einn í ritstjóm Nýrra félagsrita.
En svo hættir Grímur að birta
kvæði. Hin þjóðskáldin létu ljóð sín
streyma til þjóðarinnar, en Grímur
þegir hér um bil 15 ár. Hann er þá all-
ur í sókn sinni til ffekari metorða, og
hefir nóg annað á sinni könnu. Enda
hverfur hann þá mjög úr samneyti
við landa sína. En um 1860 verða hér
umskipti. Það er eins og hvort
tveggja komi í senn, að tómleiki
þessa veraldarvafsturs fyllir sál hans
og að skáldadísin vitjar hans. Hann
finnur allt í einu, maður um fertugt,
að hann er orðinn „karlinn gamli“.
Ævi hans er að ljúka. Hann finnur
helkuldann leggjast að hjarta sínu.
Stjama kvæða hans „er horfin vest-
ur“. Og nú er eins og allar lindir opn-
ist og hvert kvæðið verður til eftir
annað, sum hans bestu kvæði og op-
inskáustu. Hann beinlínis gerir upp
reikningana við sjálfan sig og ákveð-
ur að dveljast ekki lengur en hann
þarf í höll Goðmundar á Glæsivöll-
um. Má vel vera að breytingin, sem
verður 1866, hafi ekki verið honum
neitt hryggðarefui, eins og áður er
vikið að. Hann hafði fengið nóg af
Danmörku og höfðingjalífinu. Island
og stjama kvæða hans opnuðu huga
hans betur.
Hirðvistin mun holl ei reynast,
hreinna er loftið upp til fjalla,
segir hann síðar.
Hnitmiða
og samanrekið
Enn líða þó mörg ár áður en út kem-
ur ljóðabók eftir Grím. Loks gefa
þeir Bjöm Jónsson og Snorri Pálsson
út eftir hann ljóðakver, „Ljóðmæli",
1880, þegar Grímur er sextugur, 75
bls. í litlu broti. Næst komu svo Ljóð-
mæli, nýtt safh, 1895, allmikil bók,
nærri hálft fjórða hundrað blaðsíður.
Enn komu svo út 1906 Ljóðmæli,
nýtt og gamalt. Em þar kvæðin úr
fyrsta kverinu, sum nokkuð breytt og
bætt við því sem fannst nýtt og sama
ár komu Búarímur Andríðssonar. Var
þá nokkum veginn gengið ffá því að
gefa út ljóðmæli Gríms. Árið 1934
kom svo prýðileg útgáfa ljóðmæl-
anna allra saman með ritgerðum um
Grím og skáldskap hans eftir Jón
Þorkelsson þjóðskjalavörð og Sigurð
Nordal. Hefir Grimur mjög sótt á um
skáldffægð og er nú enginn, er ekki
telji hann fullkomlega í tölu þjóð-
skálda við hlið hinna þriggja. Tón-
skáld hafa gert vinsæl lög við sum
HEYVINNUVÉLA-
DRIFSKÖFT
VARAHLUTIR í DRIFSKÖFT
T.D.: DRIFSKAFTSHLÍFAR,
HJÖRULIÐIR O.FL.
VÉLAR OG ÞJÓNUSTA HF.
Járnhálsi 2 112 Reykjavík, sími 91-83266