Tíminn - 07.07.1990, Qupperneq 4

Tíminn - 07.07.1990, Qupperneq 4
12 HELGIN Laugardagur 7. júlí 1990 K LUKKAN SJÖ að morgni þann 8. júlí 1943 var hringt til hertogans af Winsor, iyrrum Bretakonungs, en þá landstjóra á Bahamaeyjum. I símanum var vinur hans, viðskiptajöfúr nokkur þar á eyjunum, Harold Christie. Hertoganum brá er hann heyrði að Sir Harry Oakes, einn rikustu manna í breska heimsveldinu, hefði verið myrtur á hroðalegan hátt í rúmi sínu. Christie, sem hafði aðstoðað Oakes í viðskipt- um hans, sagði síðar að hann hefði sofíð hinn rólegasti í riuni sínu í húsi Oakes þessa nótt, en húsið var ein mesta glæsihöllin á Bahamaeyjum. Þar hafði verið samkvæmi kvöldið áður. Er hann fór á stjá, skömmu eftir sólarupp- rás, rakst hann á lemstrað og hálfbrunnið lík Oakes. Sem landstjóri tók hertoginn persónulega að sér stjóm rann- sóknarinnar. Hann kvaddi til lögregluna — en ekki heimalög- regluna. Ekki heldur Scotland Yard. Hann sneri sér ekki heldur til FBI, sem vegna samstarfs- tengsla hefði getað komið til álita. Þess í stað ákvað hertoginn að hringja til lögreglunnar á Mi- ami. Þar óskaði hann sérstaklega eftir þjónustu þeirra lögreglufor- ingjanna Barkers og Melchan. Ed Melchan hafði tvívegis verið lífvörður hertogans á ferðum hans til Florida, sem famar vom í einhverjum óljósum erinda- gjörðum. Honum tengdist gam- all orðrómur um sambönd við ýmsa glæpamenn og J.Edgar Hoover, yfirmaður FBI, hafði lengi haft hann á svarta lista sín- um, vegna gmns um samstarf við nasista. Hoover hafði og lengi haft auga með hertoganum sjálfúm af sömu sökum. Mel- chan hafði lengi verið í vasanum á Mafíu- leiðtoganum á Florida, Meyer Lansky. Lansky var vel kunnur Sir Harry Oakes, Christie og nær örugglega her- toganum sjálfúm. Rannsókn Miami-lögreglunnar var tómt fúm og fát. Þeir skildu fingrafaraljósmyndavél sína eftir heima og keyptu í staðinn ódýra ferðamyndavél. Þeir litu alveg ffam hjá Harold Christie sem mögulegum sökudólg og ákærðu þess í stað tengdason Sir Harry, Alfred de Marigny. Vísbending- amar vom þó ekki aðrar en þær að sviðin hár fúndust á ffam- handlegg de Marigny. Óvinsæll hjá heldra fólkinu Alffed de Marigny var 35 ára gamall Frakki, ættaður ffá Maur- itus. Hann var illa séður af heldra fólki á eyjunum, sem taldi að hann hefði kvænst hinni 18 ára gömlu Nancy Oakes vegna pen- inganna einna. Samkvæmt því er segir í bók er hann nú hefur gefið út, en í umfjöllun um hana í The Sunday Times er frásögn þessi byggð, virðist hann hafa verið ekki síður hégómlegur maður og stærilátur en hertoginn af Wind- sor. Eða hve margir myndu birta mynd af sjálfúm sér með undir- skriftinni: „Hinn sérlega glæsi- De Marigny á leið til réttarhalda. legi de Marigny í Nassau 1943“ og „Hann ber aldurinn virðulega. Alffed de Marigny, eins og hann litur út í dag.“ Ef til vill gat ekki hjá því farið að de Marigny yrði lítt vinsæll hjá hertoganum og í nokkur skipti urðu árekstrar. Hinn lýsir einni orðasennu þeirra sérstak- lega, en henni lauk með því að hann sagði við hertogann að hann væri ekkert annað en „kýli á rassi breska heimsveldisins.“ Það vom uppákomur eins og þessi ásamt heiftarlegum deilum við Sir Harry Oakes, sem urðu víðffæg- ar, er gerðu de Marigny tilvalinn blóraböggul. Ohreint í pokahorninu De Marigny er þess fúllviss að það hafi verið hertoginn sem fyrstur benti Miamilögreglunni á hann sem „fyrirlitlega persónu“, sem rétt væri að rannsaka nánar. Hann er auk þess ekki í vafa um að hetoginn hafi haft hinar og þessar ástæður til þess að óska að morðinginn fyndist ekki. í trássi við bresku gjaldeyrislög- in hafði Christie hjálpað Sir Harry og fleirum að smygla milljónum dollara í mexikanskan banka, sem ,jireinsaði“ peninga, sem nasistar höfðu komið undan ffá hinni her- numdu Evrópu. Aðrir í þessu Hertoginn af Windsor. bralli vom auðugur nasisti nokkur, Axel Wenner-Gren og náinn vinur hans — hertoginn af Windsor. Þótt vera kunni að Christie hafi látið myrða Sir Henry er sá síðar- nefndi komst að ýmsum svikum hans í öðrum viðskiptum, er sá möguleiki enn fyrir hendi að sér- hver gagnger rannsókn á Christie hefði flett ofan af viðskiptum her- togans við nasista og mexikanska bankann. Hvað sem þessu líður má telja víst að hertoginn hafi tekið þátt í að beina athyglinni að de Ma- rigny. Síður verða færðar sönnur á þær fúllyrðingar de Marigny að hertoginn hafi visvitandi gerst samsærismaður gegn honum og að Christie hefði ekki svarið meinsæri gegn honum nema án hvatningar hins konungboma manns. Honum sést yfir þann aug- ljósa möguleika að er Christie hringdi til hertogans um morgun- inn, hafði hann beitt landstjórann hótunum. Hvað er sennilegra en að Christie hafi sagt hinum enn mjög áhrifamikla hertoga að yrði hann bendlaður við morðið á Sir Oakes, mundi hann sjá til þess að allur heimurinn ffétti af ólöglegum og sviksamlegum tengslum hans við mexikanska bankann? Hver efast um að hinn pervisalegi og hrelldi maður mundi hafa guggnað fyrir slíku og reynt að hafa áhrif á stefnu rannsóknarinnar? Þetta gæti skýrt vegna hvers her- toginn, sem vissulega hryllti við að láta hengja saklausan mann, spurði lögreglumennina ffá Miami hvort ekki gæti hafa verið um sjálfsmorð að ræða. Efalaust hafa þeir kurteislega skýrt út fyrir hon- um að maður sem hefði látið sér Talið er að samskipti hertogans af Windsor við nasista og vafasama fjánnálamenn hafi tengst morðmáli, sem allt var reynt til að þagga niður.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.