Tíminn - 07.07.1990, Blaðsíða 11
Laugardagur 7. júlí 1990
.19
HELGIN 1' .
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
undantekning. Nánasta vinkona henn-
ar hét Karen Dietrich og henni hafði
hún trúað fyrir tilfinningum sínum,
draumum og vonum. Flest af því sner-
ist um Don, bandaríska hermanninn
sem hún hafði hitt á dansleik í febrúar.
Hún hafði sagt Karenu að Don væri
stórkostlegasti maður í heimi, stór,
sterkur, greindur og klæddur sam-
kvæmt nýjustu tísku. Hún var yfir sig
ástfangin af honum og viss um að það
væri gagnkvæmt. Bráðlega færi hann
heim til Bandarikjanna og tæki hana
með sér. Þau myndu giftast og hún
verða bandarískur borgari. Lífið yrði
dásamlegt.
Karen hafði leyft sér að draga þetta í
efa. Hún var ekki fiá litlu sveitaþorpi
heldur Schweinfurt þar sem bandarísk
herstöð hafði verið síðan áður en hún
fæddist. Hún kunni óteljandi sögur
um stúlkur sem verið höfðu með
bandarískum hermönnum, jafnvel bú-
ið með þeim og eignast böm. Þegar
svo herskyldu mannsins lauk, fór
hann bara heim og ekkert heyrðist frá
honum síðan. Svona sögur hafa end-
urtekið sig frá alda öðli þar sem erlent
herlið hefur bækistöðvar.
Sabine lét allar viðvaranir sem vind
um eyru þjóta. Hún viðurkenndi að
svona lagað gæti gerst hjá öðrum en
hún treysti heppni sinni. Ast þeirra
Dons væri hin eina sanna.
Karen hafði aðeins hitt Don tvisvar.
Hún var lagleg og þótt hún væri besta
vinkona Sabine, fannst Sabine ekki
ráðlegt að Don kynntist henni of mik-
ið. Karen sagði lögreglunni að sér
hefði ekki þótt mjög mikið til Dons
koma. Hann væri hávaxinn, lítið eitt of
þungur og gengi með spangalaus gler-
augu. Henni fannst hann kjánalegur.
— Þetta ætti að nægja þeim hjá her-
lögreglunni til að byija með, sagði
Weber. — Hávaxinn, þybbinn, kjána-
legur, með spangalaus gleraugu, kall-
aður Don og í þann mund að fara
hc m Gortaöi af
verknaðinum
Það reyndist nög. Herlögreglan svar-
aði um hæl og sagði að enginn þessu
líkur væri í herstöðinni núna en Don-
ald Dale Pentecoast, 25 ára, hefði far-
ið heim 28. ágúst. Hann væri nú laus
úr herþjónustu og byggi að líkindum í
heimabæ sínum, Pasco í Washington-
ríki. Lýsing Karenar kom alveg heim
við manninn, svo öruggt mátti vera að
hann væri vinur Sabine. En var hann
líka morðingi hennar? Hafði hún ver-
ið myrt?
Sabine hafði orðið fyrir sárum von-
brigðum þegar vinur hennar reyndist
ekki hafa í hyggju að kvænast henni
og taka hana með sér heim. Undir
þeim kringumstæðum var sjálfsvíg
ekki útilokað. Hefði hún tekið svefn-
lyf eða annað eitur gátu merki þess
verið horfin úr líkamanum eftir allan
þennan tíma.
— Ég held samt að það sé morð, til-
kynnti Weber. — Enginn fer nakinn
og vafinn inn í tjald upp á Gyðinga-
hæð til að fyrirfara sér. Slíkt fólk vill
að aðrir fái sektarkennd og það hvarfl-
ar ekki að því að reyna að dylja verkn-
að sinn.
— Fötin og veskið gætu hafa horfið
eftir á, sagði Max. — Krakkar gætu
hafa tekið það, kannski flkniefnaneyt-
endur. Þeir hika ekki við að ræna lík.
— Ekki í Waigoldshausen, sagði We-
ber. — Ætli það séu ekki þrir ungling-
ar þar. Nei, þetta var morð en ég sé
ekki hvað við.getum gert. Án áþreif-
anlegra sannanágetum við varla feng-
ið Don framseldan.
— Því skyldi hann hafa gert það?
spurði Max. — Hann var hvort sem er
að fara heim. Til hvers þurfti hann að
myrða vinkonu sína fyrst?
Weber yppti öxlum. — Kannski var
það bara briarí. Sumir halda að það
sem þeir gera erlendis teljist ekki með.
Þú veist hvemig Þjóðveijar haga sér á
Spáni.
— Ég skýri þetta fyrir þeim hjá her-
lögreglunni, sagði Weber. — Kannski
þeir þar hafi eitthvað til málanna að
leggja.
Bandarísku lögreglumennimir höfðu
raunar sitt af hveiju að segja. Þegar
ust við Gyðingahæð.
Sabine var enn á lífi þegar þeir tóku
hana út úr bílnum en ekki lengi því
þeir stungu hana alls 14 sinnum með
veiðihníf Dons áður en þeir óku burt.
— Don sagði að við gætum ekki skil-
ið hana eftir lifandi, sagði Brian. —
Þá færi hún til lögreglunnar og við
lentum í vandræðum. Ég vissi ekki að
við ætluðum að myrða hana þegar
þetta byijaði. Ég var viss um að hún
vildi leika sér við okkur báða. Annars
hefði ég aldrei tekið þátt í þessu.
Samkvæmt samningum milli rikj-
anna mega þýskir dómstólar annast
mál sem varða bandaríska hermenn
þegar Þjóðverjar koma líka við sögu
en það er ekki einhlítt og í þessu til-
felli kröfðust bandarísk yfirvöld þess
að fara með málið. Brian Knight var
fljótlega dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Bara leikfang
Mál Dons var mun flóknara. Hann
var ekki lengur í hemum og heldur
ekki sakaður um neinn glæp í Banda-
rikjunum, svo ekki var hægt að taka
mál hans fyrir hjá bandarískum dóm-
stólum. Eina leiðin var að krefjast
ffamsals hans til Þýskalands og rétta í
máli hans þar. Árangur slíkrar umleit-
unar færi alfarið eftir afstöðu banda-
rískra yfirvalda og Weber var ekki
bjartsýnn.
— Það em margir þar sem muna enn
eftir öllum Þjóðveijunum sem þeir
myrtu í stríðinu, sagði hann beisklega.
— Þeim finnst áreiðanlega góð hug-
mynd að myrða unga stúlku sem
treysti hermanni þeirra.
Max var ekki á sama máli. — Það era
til aiþjóðalög, sagði hann. — Banda-
ríkjamenn halda þau ekkert sfður en
aðrir.
Hann reyndist hafa rétt fyrir sér. Það
tók að vísu langan tíma og óskaplega
skriffmnsku að fá Don Pentecoast
framseldan, en vorið 1987 kom hann
fyrir rétt í Schweinfurt. Þótt hann
hefði þrætt fyrir að vita nokkuð um
morðið meðan hann var heima í
Bandarikjunum, játaði hann fljótlega
eftir að hann hefði heyrt um játningu
vinar síns og sönnunargögnin sem
fundust í íbúðinni. Hann staðfesti í að-
alatriðum ífásögn Brians. Þótt ótrú-
legt mætti virðast var ástæðan ekki
merkilegri en áður kom fram. Þeir
vildu bara verða sér úti um ógleyman-
lega reynslu.
Hvoragur þeirra virtist iðrast morðs-
ins hið minnsta, en þeir hörmuðu að
hafa náðst og fannst refsingin í hæsta
máta ranglát. Þeir höfðu bara verið að
skemmta sér og álitu það ekki koma
neinum öðram við.
Það sem fólki ofbauð þó mest var að
Don gaf fyllilega og oft i skyn að hann
hefði eklci litið á innfædda Þjóðveija á
svæðinu sem fullgildar mannverar.
Sabine, sem elskaði hann og treysti
honum, hafði ekki verið honum neitt
annað en kynlífsleikfang sem hann
notaði meðan hann var á staðnum og
fleygði svo.
Kviðdómur hafði enga samúð með
honum, skoðunum hans eða verknaði
og í lok mars 1987 var hann dæmdur í
lífstíðarfangelsi.
Adolf Sauer og tíkin Emma voru á
eftiriitsférð um veiðisvæðið þegar
þau fundu háifrotið lík Sabine vaf-
ið inn í tjalddúk.
DEUTZ-FAHR
var búið að yfirheyra nokkra flokksfé-
laga Dons og þar hafði ekki reynst
sem allra hreinast mjöl í pokahominu.
Don hafði greinilega ekki þagað þá
fimm daga sem liðu milli morðsins og
heimfarar hans. Hann hafði lýst í smá-
atriðum fyrir nokkrum félögum sínum
hvað hann og vinur hans höfðu gert
við þýska stúlku að kvöldi 23. ágúst.
Sumum varð illt af að hlusta á ffá-
sögnina.
Þriggja manna
kynsvall
Hann var á foram heim og ætlaði sér
að gera eitthvað alveg sérstakt áður en
hann færi. Þess vegna höfðu þeir fé-
lagamir farið með stúlkuna heim til
félagans í íbúð hans í Schweinfurt síð-
degis og leikið sér þar að henni langt
fram eftir kvöldi. Leikir þeirra vora
einkum kynferðislegir. Don nefndi
ekki að þeir hefðu myrt stúlkuna og
nafngreindi hana ekki heldur. Hins
vegar vissu margir að vinkona hans
hét Sabine og höfðu oft séð hana.
Þótt Don Pentecoast væri nú kominn
heim til Bandaríkjanna var vinur hans,
hinn 23 ára Brian Knight, enn í stöð-
inni í Schweinfurt. Hann var handtek-
inn og afhentur lögreglunni í Schwe-
infurt til yfirheyrslu.
Brian neitaði að vita nokkuð um mis-
þyrmingar á stúlku en þegar íbúð hans
var rannsökuð, fundust leifar af blóði,
saur og þvagi í gólfteppinu.
Þegar Brian var sagt það, féll hann
saman og játaði sinn hlut í glæpnum.
Hann sagði að Don hefði endilega
viljað gera eitthvað eftirminnilegt áð-
ur en hann færi heim og ákveðið að
það yrði kynsvall þeirra þriggja.
Þeir sóttu Sabine í skólann og hún
kom fúslega með heim til Brians þar
sem hún átti von á einhveiju gleðilega
óvæntu. I stað þess rifu hermennimir
af henni fotin og beittu hana klukku-
stundum saman öllu því kynferðislega
ofbeldi sem þeir gátu látið sér detta í
hug.
Þegar leið á kvöldið missti Sabine
meðvitund af barsmíðum og þreytu.
Þá vöfðu félagamir hana í tjalddúk og
bára út i bíl Brians. Þeir settu hana i
skottið og óku síðan um bæinn og ná-
grenni fram á nótt uns þeir staðnæmd-
4. DEUTZ-FAHR fjölhnífavagnar
traustir og sterkir.
H EYVI N N UTÆKI
3. DEUTZ-FAHR stjörnumúgavélar
eru fáanlegar í stæröum 3,0m og
3,30m.