Tíminn - 11.07.1990, Page 13
Miðvikudagur 11. júlí 1990
Tíminn 13
Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
1990
Dregið var í vorhappdrætti Framsóknarflokksins 15. júní. Vinnings-
númer eru sem hér segir:
1. vinningur nr. 29352
2. vinningur nr. 14359
3. vinningur nr. 38822
4. vinningur nr. 8039
5. vinningur nr. 13391
6. vinningur nr. 33369
7. vinningur nr. 14360
8. vinningur nr. 14874
9. vinningur nr. 127
10. vinningur nr. 33064
11. vinningur nr. 2606
12. vinningur nr. 6749
13. vinningur nr. 17642
14. vinningur nr. 29032
15. vinningur nr. 13417
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá úrdrætti.
Frekari upplýsingar eru veittar í sfma 91-21379.
Framsóknarflokkurinn
Lokað vegna sumarleyfa
Skrifstofur Framsóknarflokksins að Nóatúni 21 verða lokaðar frá og
'með 2. júní 1990, vegna sumarleyfis starfsfólks.
Framsóknarflokkurinn.
Frá SUF
Hannes Karlsson hefur verið ráðinn starfsmaður SUF vegna þings
þess sem haldið verður í lok ágúst. Hægt verður að ná í Hannes í
síma 686300 alla virka daga milli kl. 9-13.
SUF
Löggildingarstofan
Löggilding
vigtarmanna
Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður hald-
ið á Sauðárkróki 23. og 24. júlí og á Akureyri 25.
og 26. júlí, ef næg þátttaka fæst.
Þátttaka tilkynnist Löggildingarstofunni, Síðumúla
13, fyrir fimmtudaginn 19. júlí nk. í síma 91-
681122, en þar fást jafnframt allar nánari upplýs-
ingar.
Löggildingarstofan.
DÓMS- OG KIRKJU-
MÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýst er eftir einbýlishúsi til kaups eða leigu á
Hvammstanga. Æskileg stærð er ca. 150-200
fermetrar. Þess er óskað að tilboðum verði skilað
til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins fyrir 17. júlí
nk. í tilboði ber að tilgreina lýsingu á húsi, stærð
þess, svo og verð og greiðsluskilmála.
Áskilið er að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 9. júlí 1990.
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Afsláttur ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224 eftir kl. 18.
Gevmið auglýsinguna.
„Vissi alltaf að
ég yrði fræg“
- kynbomban segir frá
Fyrir leikkonuna Kim Basin-
ger var 1989 áhrifaríkt ár í lífi
hennar. Hún skildi við eigin-
mann sinn sem hún hafði verið
gift í átta ár, lék í stærstu mynd
á síðasta ári, Batman, og keypti
sér heilan bæ í Georgíu-íylki í
Bandaríkjunum. Ef það hefði
ekki verið fyrir tilviljun að hún
fékk hlutverkið í Batman mynd-
inni hefði árið sennilega orðið
allt öðruvísi. Leikkonan Sean
Young hafði fengið hlutverk
Vicki Vale í Batman myndinni
en var svo óheppin að lenda í
slysi og handleggsbrotna og þar
með var Basinger ráðin í hennar
stað.
Batman myndin, sem var ein
sú umtalaðasta á síðasta ári, gaf
Basinger tækifæri til að leika á
móti hinum stórkostlega leikara
Jack Nicholson. En leiklistin er
ekki það eina sem kemst að lífí
leikkonunnar því hún keypti sér
nýlega heilan bæ eins og áður
sagði. Þetta er bærinn Braselton
sem hefúr um 500 íbúa og er i
fylkinu Georgíu þar sem hún
ólst upp. Hún hefúr bundið
miklar vonir við Braselton og
ætlar að breyta honum í nútíma-
bæ. Hún ætlar að hafa þar nú-
timaverslanir o.fl. Einnig hefúr
hún í hyggju að reisa þar kvik-
myndaver.
Basingers segist hvorki hafa
áhuga á skartgripum né pelsum
heldur vilji hún eyða peningun-
um sínum í eitthvað gagnlegt.
Með þessum kaupum hennar á
bænum vill hún hjálpa öðru
fólki að láta drauma sína rætast.
Hún vill hjálpa ungu fólki að
mennta sig og koma sér áffam í
lífinu.
Hún segist alltaf hafa vitað að
hún yrði ffæg. „Þegar ég var
tveggja ára var ég viss um að
vilja verða leikkona og hef því
ávallt stefút að því“, segir Bas-
inger.
„I dag er ég orðin það sem ég
vildi verða. En það skiptir líka
miklu máli fyrir mig að fínna
hina einu sönnu ást. Það er ekk-
ert sem getur komið í stað henn-
ar. Hvorki peningar né frægð“,
segir hún.
Basinger er nú í föstu sam-
bandi með leikaranum Alec
Baldwin en þau leika saman í
nýrri mynd sem verið er að taka
upp og heitir The Marrying
Man.
Það er ekki hægt að segja að
ferill hennar hafi byijað glæsi-
lega. Hún fór að heiman aðeins
fímmtán ára gömul með aðeins
eina litla ferðatösku og litla
Biblíu í höndunum. „Faðirminn
gaf mér Biblíuna og hann skrif-
aði í hana að draumar mínir
myndu rætast þar sem Guð væri
vemdari minn“. Hún bjó á lé-
legum stað í New York og átti
ekki mikla peninga.
Það hefur verið sagt um hana
að hún sé óhemju feimin og
sjálf segist hún vera það. „Eg
get sungið, dansað og leikið og
það verður sá að geta sem á ann-
að borð velur leiklistina sem
lífsstarf sitt. En þess á milli get
ég verið mjög feimin og hagað
mér eins og lítil stúlka“, segir
hún að lokum.
c
„I dag er ég oröin það sem ég
vildi verða,“ segir Basinger.
Hún hefúr verið kölluð kyn-
bomba nútímans.
Basinger hefur verið kennd við
marga karímenn og hér sést
hún með þeim nýjasta, Alec
Baldwin.
Hér sjáum við bæinn Braselton
sem leikkonan bindur miklar
vonirvið
t