Tíminn - 25.07.1990, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.07.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 25. júlí 1990 Tíminn 3 Laxa- og bleykjuseiðaeldi í burðarliðnum á Austurlandi: Ny aukabúgrein í landbúnaði Atvinnuþróunarfélag Austurlands ásamt Búnaðarfélaginu þar vinnur nú að áætlun um uppbyggingu klak og seiðaeldisstöðvar. Hugmyndin er sú að stöðin geti framleitt laxaseiði fyrír sjókvía- eldisstöðvar á Austuríandi ásamt því að framleiða bleikjuseiði til áframeldis hjá einstökum bændum eða öðrum sem hafa að- stæður til slíks. „Þetta verkefni er ekki síst hugsað fýrír landbún- aðinn eða sem hliðarbúgrein" sagði Axel A. Beck iðnráðgjafi Austurlands. „Þá teljum við mjög æskilegt að Austfirðingar ífamleiði sín seiði sjálfir, sem er ekki fyrir hendi í dag“ sagði Axel. Hingað til hafa sjókvía- eldisstöðvar við Austurland þurft að flytja seiði langt að með misjöfhum árangri og oft verða affoll töluverð. Með því að stytta flutningsleið seið- anna mætti minnka affollin. Aætluð staðsetning stöðvarinnar er við austurenda Urriðavatns á Fljóts- dalshéraði skammt ffá Egilsstöðum. Það er talinn ákjósanlegur staður m.a. vegna þess að hitastig vamsins er óvenju hátt miðað við íslenskar aðstæður. Hugmyndin á bak við þessa starfsemi er einkum sú að hún nýtist bændum sem aukabúgrein. Bændur verði með eldi, í sumum til- fellum sumareldi og kaupa þá stór- Nýr pöntunarlisti Vaka- Helgafell hf. hefur hafið út- gáfu pönmnarlista er ber nafnið Til- boðstíðindi. Listinn mun koma út tvisvar sinnum á ári en við undirbún- ing að útgáfunni hefur verið haft samstarf við útgefendur hliðstæðra pönmnarhefta í grannlöndum okkar. Sambærilegir pönmnarlistar hafa verið gefhir út á Norðurlöndum og víðar í nokkur ár og njóta vaxandi vinsælda. Tilboðstíðindi birta lesend- um fjölbreytileg tilboð íslenskra fyr- irtækja, samtaka og stofhanna um kaup á vörum eða þjónusm og fylgja yfirleitt pöntunarseðlar sem má rífa eða klippa úr listanum. Fyrsta hefti Tilboðstiðinda er komið út og er 48 síður að stærð. Upplagið 88.000 eintök. - ÁG seiði frá stöðinni, eða veiði bleikju og ali villta í stöðuvömum. „Það eru reyndar skiptar skoðanir um ágæti þess. Norðmenn mæla eindregið með því en aðrar upplýsingar benda til að vöxturinn sé of hægur. Við eigum eft- ir að kynna okkur þetta nánar" sagði Axel. Hann benti á að með þessu sé ekki aðeins verið að koma á fót bleikjueldi á Austurlandi, heldur væri einnig verið að grisja vötnin þar. „Þar með myndum við kannski skapa aðstöðu sem hægt er að nýta í ferða- mannaiðnaðinum en ferðaþjónusta bænda er mjög öflug á Ausmrlandi.“ Stofnfundur seiðaframleiðslustöðv- ar Ausmrlands verður haldinn á fosmdaginn í Hótel Valaskjálf á Eg- ilsstöðum. Axel sagði að áhugi manna kæmi þá endanlega í ljós en samt virtist þegar vera þó nokkur áhugi. „Nokkrir bændur hafa þegar lýst áhuga sínum á að vera með en ég skal ekki segja um hvað þeir verða margir,“ sagði Axel um undirtektir. Hann sagði það vera mjög jákvætt að Búnaðarsamband Ausmriands sýni þessu máli mikinn áhuga. „Ég tel það einnig jákvætt að bændur hafa frum- kvæðið að þessu. Það vantar hliðar- búgreinar í búskap á Ausmrland og ég lít svo á að landbúnaður komi að- allega til með að taka þetta að sér,“ sagði Axel að lokum. -hs. Austfirðingar hyggjast hefla bleikjueldi en eldið tengist síðan búskap sem aukabúgrein. r 1990 CLIFF RICHARD DAN FOGELBERG DAVEEDMONDS 3ja daga af mælisveisla þriðjudag, miðvikudag og f immtudag Hard Rock hamborgari... 395,- Grísasamloka...........490,- BAR.B.Q. kjúklingur 790,- Eftirlæti rokkarans....990,- (Glóðagrilluð lambasneið) Eftirréttur fylgir öllum mat Gosdrykkir 50,- ■ C **_________________ Eftirlæti rokkarans Stýrishjól úr gamla Pecan baka í desert Glaumbæ sem brann 1971 ALLIR VELKOMNIR Á H‘‘rdRotko'>“1 , HARDROCKCAFE ELSKUM ALLA - ÞJÓNUM ÖLLUM HARD ROCK CAFE, KRINGLUNNI8-12, SÍMI689888 „MAD HATTER" bún ingur Eltons John Heimsreisa 1974

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.