Tíminn - 10.08.1990, Síða 14
14 Tíminn
Föstudagur 10. ágúst 1990
Krístján Þ. Sveinsson
Fæddur 5. september 1891
Dáinn 2. ágúst 1990
í dag er til moldar borinn afi okkar,
Kristján Sveinsson, íyrrum bóndi í
Geirakoti, Sandvíkurhreppi. Ævi-
dagurinn var orðinn langur, svo hann
hefúr vafalaust verið hvíldinni feg-
inn, gamli maðurinn. Aðeins munaði
einu ári að hann lifði heila öld. Aft sá
því tímana tvenna, eins og flestir af
hans kynslóð. Allt frá því að minnast
þess að vera varpað út um glugga á
torfbæ, þegar landið gekk í bylgjum í
Suðurlandsskjálftanum 1896, ffam á
okkar tíma, tíma hraða og hinnar öru
tækniþróunar. Já, það er langur lífs-
kafli að lifa allt frá titringi jarðarinn-
ar í Suðurlandsskjálfta og fram á titr-
ing og hraða nútíma þjóðfélags.
Þessu fylgdist afi öllu með, missti
ekkert úr og hafði afburða gott minni
allt ffam á síðasta dag.
Afi giftist eftirlifandi eiginkonu
sinni, Guðmundu Þ. Stefánsdóttur,
15. maí 1924. Var þeirra sambúð bú-
in að vara í 66 ár og þar af bjuggu þau
blómlegu búi í Geirakoti í Sandvík-
urhreppi í 61 ár, eða allt ffá árinu
1929. Það hefúr verið mikils virði
fyrir okkur systkinin að hafa átt afa
og ömmu að, svo stutt ffá heimili
okkar á Selfossi. Alltaf var hægt að
skreppa f Geirakot og má segja að
bamabömin hafi verið eins og heim-
alningar á bænum. Einnig höfúm við
systkinin dvalið þar í kaupamennsku
á sumrin, sem reyndist okkur dýr-
mætur þroskatími. Ekki síst þá báram
við gæfú til að nema þennan fróðleik
hins liðna og má segja að afi og
amma hafi tryggt samhengið á milli
kynslóða. Myndað einhvem streng
sem tengir okkur við fortiðina og
gerir okkur að þátttakendum í veröld
sem er svo ólík því sem við búum við
í dag. Þetta er okkur ómetanlegur arf-
ur sem við kunnum að meta, alltaf
betur og betur eftir því sem við
þroskumst og munum njóta með af-
komendum okkar. Bráðum verða þeir
allir horfnir sem þekktu 19. öldina af
eigin raun eins og afi. Þeirra hlutur
má ekki gleymast og mun ekki
gleymast.
Nú við leiðarlok þökkum við systk-
inin honum afa okkar samfylgdina og
elsku amma, megi góður guð halda í
styrku hendina þína, því hann afi
skilur eftir fallega og dýrmæta minn-
ingu sem mun aldrei fýmast.
Stefán, EUa, Guðmunda,
Erla og Kristján Geir.
Kveðja
Kristján Sveinsson, bóndi í Geira-
koti, sem hér er kvaddur, fæddist að
Syðra-Langholti í Hrunamanna-
hreppi, 5. september 1891, og lést í
hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á
Selfossi, 2. ágúst 1990. Kristján
kvæntist árið 1924 Guðmundu Þóra
Stefánsdóttur, sem lifir mann sinn.
Þeim varð sex bama auðið, þeirra
Sveins, Katrínar, Stefáns, Sigrúnar,
Steinþórs og Ólafs og era öll á lífi
nema Stefán.
Kynni mín af Kristjáni hófust á vor-
dögum 1949. Eg varð þá á tólfta ári
einn af allnokkrum sumarstrákum
þeirra Guðmundu og Kristjáns í
Geirakoti og entist þrjú sumur. Búið
var allstórt á þeirri tíð. Fimmtán
mjólkandi kýr og um hundrað ær og
að auki var stunduð talsverð kartöflu-
rækt. Þá vora framkvæmdir veraleg-
ur þáttur sumarstarfa. Nýrækt túna
var árviss og sumrin mín vora
byggðar tvær stórar votheysgeymsl-
ur. Búhættir breyttust ört þessi árin.
Aðeins fyrsta sumarið var slegið með
orfi og ljá á engjum og rafmagnið,
sem komið var síðasta sumarið,
breytti miklu heima við. Þá var hætt
að nota kol til eldunar og rafmagns-
tæki léttu störf.
Heimilið í Geirakoti var fjölmennt,
um eða yfir tíu manns, og annir tals-
verðar, sérstaklega hjá húsmóður-
inni, Guðmundu. Viðvik snúninga-
stráks vora allmörg en ekki þung eða
tímafrek. Menn höfðu gjaman
ákveðin verk að ganga að, svo sem
að sækja kýr og reka, mjólka tvær
kýr í mál og moka fjós. Þegar kom að
stærri verkum vann fólk saman.
Verkfyrirmæli vora fá. Rætt var um
viðfangsefni dagsins, t.d. við morg-
unverðarborð, og nefnt að gott væri
ef menn færa í nánar greind verk. Á
sjúkrabeði sínum fyrir nokkrum
misseram rifjaði Kristján upp atvik
sem minntu á þetta. Eg og kaupa-
maðurinn, Gísli Jakobsson, höfðum
verið beðnir að hirða af túnspildu í
vothey. Mér fannst Gísli heldur
stjómsamur og nefndi við hann, að
ég hefði ekki orðið var við að honum
hefði verið falin verkstjóm. Gísli
sagði að það væri alveg ljóst. Það
hefði verið falast eftir honum til
starfa í Geirakoti en beðið fyrir mig.
Um kvöldið barst þetta í tal við Krist-
ján og gerði hann lítið úr málinu, en
þetta var rétt hjá Gísla. Um haustið
falaðist Kristján eftir mér til starfa
næsta sumar.
Kristján var af léttasta skeiði, þ.e.
nálægt sextugu, þegar ég kynntist
honum. Hann var ekki átakamaður til
verka, enda var hann þá og hafði
lengi verið magaveikur. En hann
vann mikið, var árrisull og vann
gjaman fram eftir kvöldum virka
daga. Hann fylgdist vel með búr-
ekstrinum og hélt dagbækur og
skráði helstu atvik og veður sem
hann fylgdist ætíð grannt með og
spáði um, ef honum þóttu veðurspár
standast illa, sem henti. Grasfræ,
áburðargjöf og áburðartími vora hon-
um mikið athugunarefni, ekki síst
þegar vart varð við kal. Hann var
glöggur á búfé, fylgdist vel með af-
urðum kúa og áa og leitaðist við að
rækta góða gripi. Mæðiveikin og
fjárskiptin vora honum erfið, en nýju
líflömbin að norðan gleðiefni.
Kynnin við Kristján vora góð. Hann
var hægur maður i framgöngu, frem-
ur hýr og hlýr. Hann leiðbeindi vel og
hjálpaði við verk, ef eftir var leitað,
og ég minnist sérstaklega hvað orfið
sem hann fékk mér var nett og lipurt.
Við störf var ekki gcngið nærri fólki.
Ég var gjaman sendur heim af engj-
um með kvenfólkinu þegar rigndi og
ekki var farið til útistarfa, ef veður
var leiðinlegt. Þó voru viðfangsefnin
ærin og stundum tafsöm, sérstaklega
á rigningarsumrum. Vegleg töðu-
gjöld vora að loknum fyrri túnaslætti,
jafnan um eða fyrir miðjan ágúst og
einu sinni á höfúðdegi. Eitt haustið,
þegar ég hvarf úr sumarvistinni síð-
ast í september, var ekki fullhirt af
engjum.
Kristján var vel látinn af sveitung-
um. Hann átti sæti í hreppsnefnd
Sandvíkurhrepps og var ffamarlega í
ýmsum félags- og hagsmunamálum
sveitarinnar, þótt ekki væri hann
ffamgjam. Hæg og ljúf glettni fylgdi
honum, en heimafólki var ljóst að þar
fór viðkvæmur alvöramaður. Dirfska
og ævintýramennska var honum
fjarri, en hann skirrðist ekki við að
eyða ævi sinni og þreki í að byggja
og bæta leigujörðina Geirakot sem
hann fékk keypta á áttræðisaldrinum.
Vafasamt er að sextíu ára dvöl í Fló-
anum hafi gert Kristján að Flóa-
manni. Hann átti rætur og skyldfólk
alla tíð í Gullhreppunum góðu. Á
Syðra- Langholti, Ásum og Stóra-
Núpi ólst Kristján upp og starfaði
ffam undir fertugt. Þar kvæntist hann
sinni dugmiklu og góðu konu, Guð-
mundu Þóra Stefánsdóttur, og þar
fæddust þeim fjögur elstu bömin.
Kristján var einlægur trúmaður sem
gerði litlu homstofúna í Geirakoti að
helgum stað við útvarpsmessur á
sunnudögum.
Sumrin mín í Geirakoti vora góð.
Mér fannst Flóinn fallegur, víður og
sléttur og Qallasýnin fögur. Þar naut
ég alls, sem gott sveitaheimili hefúr
að bjóða og að auki athafnasemi og
samvista við duglegt og glatt fólk.
Þar fann ég vel hve gott er að fá að
vera með í daglegu lífi og starfi og að
hafa verðug viðfangsefni. Löng vin-
átta Geirakotsfólksins hefúr síðan
fylgt mér.
Á kveðjustund Kristjáns Sveinsson-
ar þakka ég fylgdina og vináttuna og
bið honum allrar blessunar. Guð-
mundu og fólkinu hennar votta ég
samúð.
Tómas Gunnarsson.
Kristján, minn kæri vinur, með lotn-
ingu og þakklæti kveð ég þig hinstu
kveðju.
Kristján var einn þeirra manna sem
ég dáði fyrir alla mannkosti hans.
Hann var á 99. aldursári, þegar hann
lést. Það var gaman að ræða við
hann, allt til síðustu stunda.
Kristján kvæntist móðursystur
minni, Guðmundu Stefánsdóttur,
hinn 15. maí 1924 og þeim varð 6
bama auðið:
Sveinn, kvæntur Aðalheiði Edilons-
dóttur og eiga þau 5 böm.
Katrín, gift Gudmund Aagestad og
eiga þau 3 böm.
Stefán, lést 22. maí 1970, kvæntur
Önnu Borg Óskarsdóttur. Þau vora
bamlaus.
Sigrún, gift Gunnari M. Krist-
mundssyni og eiga þau 5 böm.
Steinþór, ókvæntur og bamlaus.
Ólafúr, kvæntur Maríu I. Hauksdótt-
ur og eiga þau 4 böm.
Ég var ekki gömul þegar ég fór lyrst
með móður minni, Guðlaugu, að
Geirakoti. Alveg ffá því ég fyrst man
eftir Geirakoti, þótti mér svo gott og
gaman að koma þar. Það var mjög
kært milli systranna og þær vora svo
hláturmildar þegar þær hittust og
ekki skemmdi það gleði þeirra að
hafa Kristján nálægan, enda hafði
hann alltaf eitthvað til málanna að
leggja. Svo með áranum mynduðust
vináttubönd milli fjölskyldnanna í
Geirakoti í Flóa og Þórukoti í Njarð-
vík.
Ég minnist Kristjáns sem einstaks
húsbónda, þegar ég, óharðnað dekur-
bam úr kaupstað, kom í Geirakot án
mömmu, fyrst til þess að passa Ólaf,
yngsta soninn, og svo nokkur sumur
sem kaupakona. Það vora nú ekki
lætin í húsbændunum þar, en það
stóð allt sem sagt var og maður gerði
það sem manni var sagt að gera, án
þess að finnast að um skipun hafi
verið að ræða, heldur var sjálfsagt að
ganga til verks og gera gagn, undir
svo góðri verkstjóm og leiðbeining-
um. Maður fann svo vel fyrir því að
vera líka einn af fjölskyldunni og ég
segi það satt, að ég tel mig hafa verið
það í mörg ár, enda byijar ekki sum-
arið hjá mér nema ég komi í Geira-
kot, og alla tíð þótt ég væri með mína
fjölskyldu eða mína vini, voram við
alltaf velkomin.
Það er einnig sérstakt að muna kaffi-
tímana þegar fært var á engjar og
komið með kaffi í flöskum sem vora
í ullarsokkum og það var sérstakt
handbragð þegar húsbóndinn hellti í
bollann manns. Svo var masað eða
Kristján, sem hafði afar skemmtilega
ffásagnargáfú, sagði okkur fólkinu á
engjunum draugasögu eða eitthvað
ffá fyrri tíð, svo var jafnvel dottað í 5
mínútur. Þá sagði þessi góði bóndi
„Jæja“, og þá stóðu bara allir upp og
gengu í sinn flekk.
Kristján var gamansamur, ffóður,
minnugur, vinur góður og eftirsókn-
arverður maður í allri umgengni. Það
var stutt í grínið og saklaust var það
alltaf og ekki til þess að særa nokk-
um mann. Honum fannst gaman að
vera nýrakaður þegar maður kom
svona á sunnudagsrúntinum, því þá
brosti hann og sagði: „Nú fær kaupa-
konan min skeggkossinn.“
Siðast þegar ég kom til hans á
sjúkravist aldraðra á Selfossi, þá gaf
hann mér svo falleg orð sem ekki
gleymast. Við voram að spjalla og ég
sagði við hann meðal annars: „Krist-
ján minn, þú hefúr nú alltaf verið mér
svo góður.“ Þá sagði hann að bragði:
„Þú hefúr ekki til annars unnið, Guð-
rún mín.“
Með þessum orðum kveð ég Krist-
ján, þakka honum samfylgdina og
óska honum Guðsblessunar.
Elsku Munda ffænka, við fjölskyld-
umar ffá Þórakoti sendum Geirakots-
fjölskyldunum samúðarkveðjur og
j)ökkum fyrir að hafa átt Kristján
Sveinsson að vini.
Guðrún Björnsdóttir.
Þann 3. ágúst lést á Selfossi Kristján
Sveinsson, fyrram bóndi í Geirakoti í
Sandvíkurhreppi. Löngu og við-
burðariku lífi lauk þá, en Kristján
skorti aðeins mánuð í 99 ára aldur-
inn. Hann hélt óskertu minni sínu til
hins síðasta en líkamskraftar vora
þrotnir og síðustu mánuði lá hann á
langlegudeildinni Ljósheimum á Sel-
fossi. Nú er hann í dag borinn til graf-
ar ffá Selfosskirkju og minningamar
streyma ffam.
Kristján Þórður Sveinsson fæddist í
Syðra-Langholti í Hranamanna-
hreppi 5. september 1891. Þar bjuggu
þá foreldrar hans, Sveinn Einarsson
ffá Miðfelli í sömu sveit og Guðbjörg
Jónsdóttir ffá Tortu í Biskupstung-
um. Magnús Andrésson aíþingis-
maður í Syðra-Langholti var langafi
Kristjáns. Er Magnús Magnússon
sonur hans lét þar af búskap komst
Sveinn Einarsson á þessa ættaijörð
sína. Þar ólst Kristján upp til 15 ára
aldurs er foreldrar hans brugðu á það
ráð að kaupa vildisjörðina Ása í
Gnúpveijahreppi. Þá jörð sat síðar
Ágúst bróðir Kristjáns og búa niðjar
hans nú þar.
Ekki var mulið undir Kristján í námi
ffemur en aðra jafnaldra hans. Vora
þó námsgáfúr hans í besta lagi og
minnið trútt. Hann fór á mis við
ffæðslulögin 1907, en það sama ár
var hann fermdur. En hann var svo
heppinn að komast í hálfsmánaðar-
tíma til náms hjá Margréti Eiríksdótt-
ur í Haga. Hún reyndist honum sem
mörgum öðram ffábær kennari. Bjó
Kristján svo vel að þeirri menntun,
að árið eftir fór hann í Flensborgar-
skólann, beint upp í annan bekk, án
inntökuprófs. Var þá Kristján kominn
yfir tvítugt. Skólavistin fór vel með
hann. Hann dáði alla tíð skólastjór-
ann, Ögmund Sigurðsson, fyrir ffá-
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar
Miklubraut 68 @13630
Sjáum um erfidrykkjur
RISIÐ
@ Borgartúni 32 r Upplýsingar í síma 29670
Marmaralegsteinar
með steyptu inngreyptu eða upphleyptu letri. Einnig
möguleiki með innfellda Ijósmynd.
Marmaraskilti með sömu útfærslum.
Sólbekkir, borðplötur, gosbrunnar o.m.fl.
Sendum um allt land. Opið 9-18, laugard. 10-16.
Marmaraiðjan
Smiðjuvegi 4E, 200 Kópavogi
Sími 91-79955.
J
t
Útför móður okkar og fósturmóður
Vilborgar Sæmundsdóttur
Lágafelli, Austur-Landeyjum
fer fram frá Krosskirkju laugardaginn 11. ágúst kl. 14.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar er
bent á Minningarsjóð Guðrúnar á Lágafelli. Minningarspjöld fást hjá
Guðrúnu Aradóttur, Skíðbakka, sími 98-785209, og á Símstöðinni,
Hellu.
Hólmfríður Finnbogadóttir,
Magnús Finnbogason,
Guðrún Árnadóttir.