Tíminn - 14.08.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 14. ágúst 1990
Tíminn 13
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
hefur opnaö aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu).
Sími 91-674580.
Opið virka daga kl. 8.00-16.00.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Héraðsmót framsóknarmanna
í Skagafirði
verður í Miðgarði laugardaginn 25. ágúst.
Meðal dagskráratriða: Ræða, Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Þing Sambands ungra
framsóknarmanna
verður haldið að Núpi í Dýrafirði dagana 31. ágúst til 2. september.
Hannes Karlsson hefur verið ráðinn starfsmaður SUF vegna þingsins
og er hægt að ná í hann hér á Tímanum í síma 686300 frá kl.
9.00-13.00.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
eindagi launaskatts fyrir júlí er 15. ágúst nk. Sé
launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða
dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið
frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra,
og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Pósturogsími
Laus störf við jarðsímalagnir í Reykjavík og
nágrenni:
Verkstjóri verkamanna — þarf að vera vanur
jarðvinnu.
Verkamenn.
Nánari upplýsingar verða veittar í síma 91-
636760.
Laus staða
Með vísan til 6. gr. sbr. 13. gr. laga nr. 58/1978 um þjóðleikhús,
er staða þjóðleikhússtjóra auglýst laus til umsóknar. Nýr þjóð-
leikhússtjóri skal taka við starfi 1. september 1991, en ráðið
verður I stöðuna frá 1. janúar 1991. Umsóknum ber að skila til
Menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
3. september 1990.
Menntamálaráðuneytið,
13. ágúst 1990
PÓSTFAX TÍMANS
Vera var sönn Ku Klux Klan kona.
Einn liður í KKK samkomunum var
að brenna krossa og fara með
bænir uppfullar af hatri.
KU KLUX KLAN
Eiginmaður Gloriu, David, í fullum
skrúða.
- eiginkona segir frá.
123 ár lifði Gloria Craig í hræðslu
og niðurlægingu. Eiginmaður
hennar David var meðlimur í Ku
Klux Klan hreyfíngunni en þeirri
hreyfingu hafði Gloría mikla
skömm á. En sem eiginkona Dav-
ids var hún neydd til að taka þátt í
samkomum og athöfnum þeirra. í
dag er hún frjáls ffá þessari mar-
tröð því eiginmaður hennar verður
settur í fangelsi vegna manndráps.
,JLíf mitt var hryllilegt og ég hafði
alltaf byssu með mér hvert sem ég
fór. Fólk hataði mig fyrir að vera
eiginkona KKK manns. Það héldu
allir að ég gerði þetta með ánægju
og að ég hataði svertingja. En það
var ekki satt því ég var neydd til
þess af eiginmanni mínum,“ segir
Gloría. Hún var stöðugt í hættu og
fékk oft hótanir í gegnum síma frá
fólki sem var á móti KKK. Henni
var hótað lífláti og barsmíðum.
„A þessum samkomum þurfti ég
að klæðast þessum hryllilega bún-
ingi sem ég hataði. Er ég horfði á
þá brenna krossa og fara með djöf-
ullegar bænir grét ég. Hatrið var
svo ráðandi hjá manni mínum og
öðrum í þessari hreyfingu. David
var alltaf hræddur um að aðrir
meðlimir sæju mig gráta og þá
myndi hann lenda í vandræðum
fyrir að eiga ekki sanna KKK
konu,“ segir Gloría. David skamm-
aði hana fyrir að vera ekki trú
hreyfingunni. Markmið hans var að
verða yfirmaður KKK í Ameriku.
Gloría og David eignuðust fjögur Gloría ásamt hlutum ertilheyra Ku Klux Klan hreyfingunni.
böm saman. „í staðinn fyrir að
kenna bömunum bænir Guðs
kenndi David þeim að hata svert-
ingja og sagði þá vera af hinu illa.
Hann sagði að hvitt fólk ætti að
ráða yfir mannkyninu því það væri
þess verðugt". Er David var farinn
á fundi var Gloría vön að fara með
bömin inn á klósett og loka og læsa
og hvísla að þeim að þetta væri
rangt sem faðir þeirra segði. „Ég
bað þau um að lofa að segja David
aldrei frá því að ég hefði sagt þetta.
Hann hefði drepið mig hefði hann
komist að því“.
David yfirgaf Gloríu vegna ann-
arrar konu, Veru. Hún var sönn
KKK kona. En Vera var gift og í
sameiningu ákváðu þau David að
myrða eiginmann hennar og það
gerðu þau. En upp komst um morð-
ið og þau vom bæði handtekin.
„Loksins er ég laus úr prísundinni
og get lifað eðlilegu lífi án þess að
vera alltaf hrædd“, segir Gloría að
lokum.