Tíminn - 30.08.1990, Qupperneq 5

Tíminn - 30.08.1990, Qupperneq 5
Fimmtudagur 30. ágúst 1990 Tíminn 5 F.v. Varautanríkisráöherra Frakka, Edwige Avice, forseti Frakklands, Francois Mitterand, forsætisráðherra íslands, Steingrímur Hermannsson og utanríkisráðherra íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, héldu fund með fréttamönnum í gær, þar sem greint var frá viðræðum sem fram fóru fýrr um daginn. Tfmamyndin Ami Bjama. Francois Mitterand, forseti Frakklands á blaðamannafundi í gær: Skil sérstöðu Islands í viðræðum EFTA og EB Á fundi, sem haldinn var með fréttamönnum í gær, lýsti forseti Frakklands, Francois Mitterand, því yfir að hann skildi vel sér- stöðu íslands viðvíkjandi samningum EFTA- ríkjanna sex og Efnahagsbandalags Evrópu og að Frakkar væru boðnir og búnir að styðja málflutning íslendinga. Einnig saaðist hann skilja afstöðu ráðamanna hérlendis gegn því að íslendingar gengjuí Evrópubandalagið,sjálfurteldi hann hentugastaðls- lendingar semdu sérstaklega við EB. Fundurinn var haldinn á Hótel Sögu í kjölfar viðræðna Stein- gríms Hermannssonarforsætisráðherra, Jóns Baldvins Hanni- balssonar utanríkisráðherra og forsetans Mitterand, sem fram fóru í Ráðherrabústaðnum við Suðurgötu. Steingrímur Hermannsson fbrsætisráðherra físlands og firú Edda Guðmundsdóttir, voru meðal þeinra ertóku á móti forseta Frakklands, Francois Mitterand, viö komuna til landsins í gær. Sérsamningar íslands við EB „Þó Mitterand hafi aðeins staldrað við hér á íslandi i nokkrar klukku- stundir, tel ég miklu hafa verið kom- ið í verk“, sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra. „Við ræddum meðal annars um samskipti EFTA og EB, þróun innan NATO með sérstakri áherslu á afvopnun, almenna þróun mála innan Evrópu, fund CSCE í nóvember um öryggi í Evrópu og deiluna i Mið-Austur- löndum. Allar þessar umræður voru mjög gagnlegar", sagði Steingrímur og Mitterand tók í sama streng. Varðandi viðræður EFTA og EB lýsti Mitterand yfir skilningi á sér- stöðu íslendinga í þeim viðræðum þar eð meginhluti íslensks efhahags- lífs stendur og fellur með fiskveið- um og vinnslu sjávarafurða. Við ætt- um því eðlilega erfitt með að deila fiskimiðum okkar með öðrum þjóð- um og að ganga inn í eitt sameigin- legt markaðssvæði. Mitterand tiltók einnig aðrar ástæður svo sem fólks- fæð hérlendis, miðað við lönd innan EB, og nauðsyn þess að vemda ís- lenska náttúru og menningararf. Hann sagðist því telja hyggilegast að Islendingar gerðu sérsamning við EB en bjóst þó ekki við að slíkra samningsdraga mætti vænta íyrir lok ársins 1991. Einkum þar sem EB- ríkin ættu eftir að útkljá fjölda- mörg atriði sín á millum og þar að auki hefðu samningar EFTA og EB forgang. Hann ítrekaði því næst að Frakkar hefðu skiining á málefnum Islendinga og fullan hug á að styðja málstaðinn í þeim viðræðum sem ffam undan eru. Steingrímur Hermannsson bætti því við, að þó hann teldi ísland ekki eiga heima í EB, teldi hann náið samstarf einstaklega mikilvægt. Hætta eykst á vopnuöum átökum Sjávarútvegur var til umræðu á fleiri stöðum en t Ráðherrabústaðn- um. Sjávarútvegsráðherra Frakk- lands Jaqcues Mellic, hélt fund með ráðuneytisstjóra sjávarútvegsráðu- neytisins, Ama Kolbeinssyni, og fleirum tengdum sjávarútvegi á ís- landi, m.a. frá Hafrannsóknarstofn- un. Þar kynntu íslendingar sjónar- mið ráðamanna og eftir fundinn lá fyrir, að samningur varðandi inn- flutning lifandi skeldýra til Frakk- lands yrði undirritaður i haust. Málefni Mið-Austurlanda voru mikið rædd á fundi fréttamanna i gær. Mitterand ítrekaði þar fyrri að- varanir og sagði hættu á vopnuðum átökum fyrir botni Persaflóa aukast dag frá degi. Hann sagðist engar sannanir hafa fyrir því að írakar létu verða af því að leysa úr haldi konur og böm eins og lofað hefur verið. En þó svo yrði myndi það eitt og sér ekki nægja til að leysa deiluna, því írakar hefðu margbrotið alþjóðalög og reglur. Hann sagðist hins vegar binda töluverðar vonir við árangur af för forseta Sameinuðu Þjóðanna til íraks. Mitterand talaði einnig um mikilvægi öryggisráðsteínunnar og afvopnun, bæði hvað varðar kjama og efnavopn. Tók íslenska listamenn tali Þá héldu menntamálaráðherrar landanna fund. Umræðuefnið var samvinna á sviði menningarmála. Ráðherramir undirrituðu samninga um samvinnu við gerð kvikmynda, útgáfu orðabóka og að gera sérstakt átak i menningarsamskiptum þjóð- anna á árinu ‘92-’93 i tilefni tíu ára afmælis sáttmála Frakklands og ís- lands um menningar- og visinda- samstarf. Þá heimsóttu ráðherramir ýmis listasöfn. Meðal annars var komið við í Listasafni Siguijóns Ól- afssonar og rætt við nokkra íslenska myndlistarmenn. Jafnframt stofn- uðu utanríkisráðherra íslands og varautanrikisráðherra Frakklands fransk-íslenskt verslunarráð. For- maður þess er Magnús Gunnarsson. Samningur var einnig undirritaður um aðgerðir til að forðast tvískött- un. Matarboð og Sykurmolar Forseti íslands tók á móti Francois Mitterand við komuna. Eftir að Mitterand haföi lagt blómsveig við minnismerki um franska sjómenn í kirkjugarðinum við Suðurgötu tók forseti Islands á móti honum og þau skiptust á gjöfum. Vigdís færði Mitterand ffumútgáfu bókarinnar „Ferð um norðurhöf1 í franskri þýð- ingu og ritverkin „Heimsljós", „Kristnihald undir jökli“ og „ís- landsklukkuna“ eftir Halldór Lax- ness, einnijg i ffanskri þýðingu. Forseti Islands bauð síðan hátt í þrjú hundmð gestum til hádegis- verðar til heiðurs Frakklandsforseta i gær. En þar kom saman allt tylgd- arlið forsetans, íslenska rikisstjóm- in og aðrir ráðamenn auk fleiri gesta. I ræðu sinni minntist Vigdís m.a. á samskipti þjóðanna í tímans rás, bæði þá hlið er snýr að menn- ingu og öðm. Hún endaði síðan ávarpið á ósk um að íslendingar og Frakkar mættu eiga jafn staðfasta samleið i framtíð sem á liðnum tím- um. I gærkvöld hlýddu forsetar land- anna, menntamálaráðherrar, ásamt fleiri gestum, á tónleika Sykurmol- anna í Duus-húsi. Vigdís hélt að því búnu forseta Frakklands og fýlgdar- liði kvöldverðarboð i Listasafni ís- lands þar sem snæddur var graflax, lúðukinnar í smjördeigskænu með íslenskum kryddjurtum og aðalblá- ber i eftirétt. Við svo búið lauk op- inberum hluta heimsóknarinnar. Mitterand heimsækir Ámastofnun og verður flogið í þyrlu að Gull- fossi, Geysi og til Þingvalla í dag og hann heldur heim á leið síðdegis. jkb Menntamálaráðherrar Frakklands og íslands, Jack Lang og Svavar Gestsson undirrituðu meðal annars samning um samstarf landanna á sviði kvikmyndagerðar á fundi sínum í gær.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.