Tíminn - 12.09.1990, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 12. september 1990
L ÚTLÖND III waMmmmm. /;** |
NATO BREYTT VEGNA
PERSAFLÓADEILUNNAR?
Ein afleiðing Persaflóadeilunnar gæti orðið sú að NATO sæi sig
knúið til að stækka verksvið sitt, sérstaklega nú þegar Sovétrík-
in eru orðin samherji frekar en ógnun.
Á tímum kalda stríðsins litu NATO-
ríkin á átök, sem áttu sér stað utan
áhrifasvæðis þeirra, sem sér óviðkom-
andi. En það var tekið skýrt fram á
fundi utanríkisráðherra NATO- ríkj-
anna í Brussel á mánudaginn að verk-
svið bandalagsins gæti stækkað og
orðið alþjóðlegra með tilliti til þeirra
gífurlega miklu efhahagslegu og hem-
aðarlegu aðgerða sem nú em i gangi
við Persaflóa.
Á blaðamannafundi eftir ráðstefhuna
lét aðalritari NATO hafa eftir sér að
Persaflóadeilan hefði áhrif á öryggi
bandalagsþjóðanna og nauðsynlegt
væri að endurmeta stöðu þeirra. Hann
var spurður hvort til greina kæmi að
breyta stefhuskrá NATO frá 1949 í þá
átt að bandalagið tæki beinan þátt í
hemaðaraðgerðum utan yfirráðasvæð-
is síns. Ekki taldi hann líklegt að
grundvallarbreytingar á NATO yrðu
gerðar fljótlega, möig aðildarríkin
væm þvi andsnúin. Margir forystu-
menn bandalagsins em þó þeirrar
skoðunar að NATO verði að líta á mál-
in í víðara samhengi nú að loknu kalda
stríðinu. NATO er mikið herveldi sem
er orðið óvinalaust í Evrópu.
Forsætisráðherra Breta, Margaret
Thatcher, hefur bent á að NATO verði
að stækka vamarsvæði sitt, því Banda-
ríkin séu orðin þreytt á að sjá ein um
alþjóðlega „löggæslu".
Bandaríkin hafa maiglýst því yfir að
þau fagni öllum stuðningi í Persaflóa-
deilunni. En staðreyndin er þó sú að
flest bandalagsríkin, að Bretlandi og
Frakklandi undanskildum, hafa haldið
að sér höndum, þrátt fýrir að beiðni
hafi borist ffá Washington um aukinn
herafla og aðstoð við flutninga í lofti
og á legi. Almenningur og fjölmiðlar í
Bandaríkjunum verða æ reiðari, vegna
þess að þeir líta svo á að bandamenn
þeirra neiti að axla sinn hluta, bæði
L
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í lagn-
ingu vegslóða vegna byggingar 220 kV Búrfells-
línu í samræmi við útboðsgögn BFL-10.
Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeg-
inum 13. september 1990 á skrifstofu Landsvirkj-
unar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óaftur-
kræfu gjaldi að upphæð kr. 2.000,-.
Helstu magntölur eru:
Ýtuvinna 350 klst.
Aðkeyrð fylling 55.000 m3
Verklok eru 31. desember 1990.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en
föstudaginn 21. september 1990 fyrir kl. 14:00,
en tilboðin verða opnuð þar þann dag kl. 14:15
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Reykjavík 10. september 1990
JEPPA-
HJÓLBARÐAR
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
235/75 R15 kr. 6.650,-
30/9,5 R15 kr. 6.950,-
31/10,5 R15 kr. 7.550,-
33/12,5 R15 kr. 9.450,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Sfmar: 91-30501 og 84844
BÍLALEIGA
með útibú allt f kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bfl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akuneyri
96-21715
Pöntum bfla eríendis
interRent
Europcar
Sú mikia hemaðaruppbygging, sem orðið hefur við Persaflóa að undanfömu, hefur kallað á endurmat á hlut-
verki NATO.
efhahagslega og hemaðarlega.
Búast má við að tillögur um breyting-
ar á hlutverki bandalagsins valdi mikl-
um deilum innan þess. Ýmis aðildar-
riki hafa þegar látið í ljós efasemdir
um að ætla bandalaginu stærra verk-
svið. En innrás Iraka i Kúvæt hefur
sýnt að bandalaginu getur stafað ógn
af öðm en rússneskum skriðdrekum.
Hlutabréf á evrópskum mörkuðum
hafa fallið í verði, olíuverðið er óstöð-
ugt og sterkustu efhahagskerfi heims
standa nú frammi fyrir nýjum vanda.
Einnig hafa margar ríkisstjómir
áhyggjur af því að Irakar muni innan
fárra ára komast yfir kjamorkuvopn og
þeir hafa þegar beitt efhavopnum gegn
Kúrdum.
Bagdad — Þúsundir æstra ír-
aka brenndu, tröðkuðu og hræktu
á eftirmyndir af Bush Banda-
ríkjaforseta og arabískum stuðn-
ingsmönnum hans í Persaflóa-
deilunni.
Genf — Leiðtogar Sameinuðu
þjóðanna lofuðu skjót og góð
viðbrögð þjóða heims við beiðni
um að aðstoða flóttamenn ffá
Persaflóa og sögðu að Samein-
uðu þjóðimar gætu nú tekið á
móti mun fleirum.
Dubai — Vestrænir og arabísk-
ir sjóherforingjar hafa samþykkt
að skipta Persaflóa upp í sérstök
olíusvæði til að tryggja fram-
kvæmd viðskiptabannsins á ír-
aka.
KÆLIBÍLL^
Annast dreifingu
á matvörum og
hvers konar
kælivöru um land
allt. Er með
frystigeymslu
fyrir lager.
KÆLIBÍLL
Sími 985-24597
Heima 91-24685
Canberra — Vamarmálaráð-
herra Astralíu hefur gefíð sam-
þykki sitt fyrir að áströlsk skip
skjóti á skip sem gmnuð eru um
að brjóta viðskiptabannið á írak.
Damaskus — Leiðtogi Shíta,
sem hafa ávallt verið í andstöðu
við konungsættina í Saudi-Arab-
íu, hefur skipað fylgismönnum
sínum að ganga í her Saudi-Arab-
íu til að beijast gegn Saddam
Hussein.
Aþena — Grikkir fyrirskipuðu
þeim tveim stjómarerindrekum
sínum sem eftir vom í Kúvæt að
yfirgefa sendiráðið, þar sem þar
væri hvorki matur né drykkur og
öll fjarskipti í lamasessi. Frá Bem
bámst þær fregnir að Svisslend-
ingar hafí kallað sína sendiráðs-
Fyrir sláturtíðina
ARCOS-hnifar fyrir fagmenn, veit-
ingahús og heimili.
Sterkir og vandaðir hnifar.
Mjög ódýr sett til heimilisnota:
4 hnifar og brýni kr. 4.100.-.
Öxi á kr. 1.700.-.
Sendum i póstkröfu.
ARCOS-hnífaumboðið,
Pósthólf 10154,110 Reykjavík.
Sfmi 91-76610.
menn heim frá Kúvæt vegna vax-
andi lögleysu í landinu.
Moskva — Sovétmenn fagna
för innanrikisráðherra BNA til
Sýrlands og segja hana geta
stuðlað að jafhvægi í Miðaustur-
löndum.
Brtissel — Vestur-Þjóðverjar
og bandamenn þeirra munu sam-
þykkja þá kröfU Sovétmanna að
Austur-Þýskaland verði kjam-
orkuvopnalaust svæði eftir sam-
eininguna. Stjómin í Bonn sam-
þykkti að greiða Sovétmönnum
12 milljarða marka fyrir að kalla
heim allar hersveitir sínar frá
Austur- Þýskalandi fyrir 1994.
LITAÐ JÁRN Á
ÞÖK OG VEGGI
Einnig galvaníseraö
þakjárn
Gott verö.
Söluaðilar:
Málmiðjan hf.
Salan sf.