Tíminn - 25.09.1990, Síða 13
Þriðjudagur 25. september 1990
Tíminn 13
Unnur Siv Sigurbjörg
Virðum líf- Verndum jörð
Ráðstefna um umhverfismál verður haldin í Vestmannaeyjum
laugardaginn 29. september nk.
Dagskrá:
Kl.
10:20 Ráðstefnan sett
Unnur Stefánsdóttir, formaður LFK.
10:30 Norrænt umhverfisár
Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi í framkvæmdastj. Norræna fé-
lagsins.
11:00 Umhverfið er dýrmætt
Sigurbjörg Sæmundsdóttir hagverkfræðingur
11:40 Umhverfismál í Vestmannaeyjum
Birna Þórhallsdóttir, áður í heilbrigðis- og umhverfisnefnd
Vestmannaeyja.
Eftir hverja framsögu er hægt að bera fram fyrirspurnir
12:00 Matarhlé
13:20 Hópvinna
15:05 Miðdegishlé
15:20 Niðurstöður hópa kynntar/umræður
16:25 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjórar Oddný Garðarsdóttir og Svanhildur Guð-
laugsdóttir
17:00 Skoðunarferð um Vestmannaeyjar
19:45 Kvöldverður og kvöldvaka í umsjón heimakvenna.
Kvöldið og nóttin frjáis.
Ráðstefnan er öllum opin. Þeir sem þurfa gistingu og flug, vin-
samlega hringi í Svanhildi í s. 98-12041 e.h. og Þórunni í s. 91-
674580 fyrir 24. september nk.
Landssamband framsóknarkvenna
Borgnesingar, nærsveitir
Spiluð verður félagsvist í Félagsbæ föstudaginn 28. sept. kl. 20.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Borgarness.
Keflvíkingar -
Suðurnesjamenn
Verð með opinn fund í Framsóknarheimilinu,
Hafnargötu 62, Keflavík, í kvöld kl. 20.30.
Jóhann Einvarðsson.
Jóhann
Einvarðsson
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að líta inn.
K.S.F.S.
Akranes — bæjarmál
Opinn fundur með bæjarfulltrúum laugardaginn 22. sept. kl.
10.30 f Framsóknarhúsinu við Sunnubraut. Rætt verður um það
sem efst er á baugi í bæjarmálum. Veitingar á staðnum.
Bæjarmálaráð
Aðalfundur F.U.F. í Reykjavík
verður haldinn mánudaginn 1. október 1990.
Venjuleg aðalfundarstörf. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, eropin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Sími 43222.
K.F.R.
Konungleg afbrýðisemi
Mágkonumar og fyrrum vin-
konumar Di og Fergie em víst
heldur betur upp á kant þessa
dagana. Ástæðan er sögð
vera sú að lafði Díana sé viti
sínu fjær af afbrýðisemi
vegna allrar þeirrar athygli
sem Fergie fær eftir að hún
grennti sig og gerðist hasa-
kroppur.
Klögumálin ganga á víxl. Di klag-
ar Fergie fyrir að haga sér eins og
smástimi frá Hollywood og Fergie
klagar Di fyrir slettirekuskap og
merkilegheit. „Það mætti ætla að
hún væri þegar orðin drottning,
þessi grindhoraða fuglahræða," er
haft eftir Fergie.
Fergie eignaðist dóttur í ágúst sl.
og eftir það grennti hún sig og kom
vexti sínum í svo gott form að
breska pressan stendur á öndinni af
hrifningu. Fergie er að vonum
hæstánægð með nýja vöxtinn og
klæðist stuttum pilsum og flegnum
kjólum og hlýtur að launum
óskipta athygli fjölmiðla — og
bræði og afbrýðisemi Díönu mág-
konu sinnar.
„Heimildamaður innan hallarinn-
ar“ segir að afbrýðisemin logi í aug-
um Díönu þegar hún horfir á
Fergie. Eftir að Fergie fór að verða
alvarlegur keppinautur um vin-
sældir og athygli vill Díana helst
ekki láta sjá sig með henni opinber-
lega. Þær voru þó ágætis vinkonur
áður, þegar Fergie lét sér nægja að
vera bara bústna mágkonan.
Díana er sögð binda vonir sínar við
það að drottningin, tengdamóðir
þeirra, setji Fergie bráðlega stólinn
fyrir dymar hvað varðar framkomu
og klæðaburð. En þangað til mun
þessi fremur óvirðulega samkeppni
halda áfram.
t*m**~‘
Tengdadætumar f Buckingham Palace
eiga nú í harðvítugrí samkeppni um það
hvor þeirra sé meiri kroppur.
Hollywood-
brúðkaup
Brúðkaupin í Hollywood eru yfir-
leitt haldin með miklum glæsi-
brag, eins og annað á þeim slóð-
um. Nýlega voru gefin saman
þar í heilagt hjónaband þau Virg-
inia Madsen og Danny Huston.
Virginia Madsen er góðkunn leik-
kona, sem m.a. lék vondu prinsess-
una í Dune og sellóleikarann í
Electric Dreams. Nýlega lék hún á
móti Don Johnson í kvikmyndinni
Hot Spot sem Dennis Hopper leik-
stýrði.
Danny Huston er sonur leikstjór-
ans fræga Johns Huston og hefur
hann fetað í fótspor föður síns og
hefur stjómað nokkrum kvik-
myndum, þrátt fyrir að hann er að-
eins 28 ára.
Faðir hans studdi hann þegar
hann kom aftur til Bandaríkjanna
eftir að hafa numið leikstjórn í
London. Danny kveðst ekki
skammast sín fyrir að hafa þegið
aðstoð föður síns, enda lýsti faðir
hans því margoft yfir að það væri
vegna hæflleika sonarins en ekki
eingöngu vegna ættartengslanna.
John Huston lést meðan Danny
vann að síðustu kvikmynd sinni,
Mr North, en Anjelica Huston, syst-
ir hans, fer þar með aðalhlutverkið.
Hjónin nýgiftu kynntust fyrir sex
árum við upptöku á kvikmyndinni
Under the Volcano, sem var leik-
stýrt af John Huston eins og kunn-
ugt er.
Virginia Madsen og Danny Huston
eru glæsilegt par og eiga vonandi f
vændum glæsilega ftamtíð. Brúð-
armyndimar voru teknar á strönd-
inni og eru brúðhjónin berfætt með
sand á milli tánna.