Tíminn - 25.09.1990, Side 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NHTIMA FLUTNINGAR
Halnarfiusmu v Tryggvagotu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUM LANDSINS
A
s\
•
NORÐ- AUSTURLAND Á
AKTU EKKI ÚT í ÓVISSUNA. AKTUÁ SUBARU HEV 1 Gfcábriel / • HÖGG- DEYFAR • -?á 1 Verslió hjá fagmönnum
t alffitii Ingvar 11 * 4 Helgason hf. M GJvarahlutir
Sævartiöföa 2 Sími 91-674000 Hamarsböföa 1 - s. 67-67-44 J
ríniinn
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER1990
Trilla sökk rétt utan við Hellissand:
Tveir menn björguðust
naumlega úr sjávarháska
FráÆgl Þórðarsyni fréttarítara Timans á Hellissandi:
Tveir menn björguðust giftusamlega eftir að vélbáturinn Ármann
SH 223 ijtlltist af sjó rétt utan við Töskuna á Rifi um kl. 20:30
síðastliðið sunnudagskvöld. Bátinn rak 2-3 mfiur vestur með
ströndinni og sökk rétt utan við Heilissand. Bátsveijar sendu út
neyðarkall. Það var vélbáturinn Jóa SH 175 sem kom mönnunum
til bjargar eftir að þeir höfðu komist um borð í gúmmíbát.
Mennimir heita Ríkharður Hjörleife-
son, sem á helminginn í bátnum á móti
Fiskverkuninni Bakka í Ólafevík, og
Magnús Emanúelsson háseti. Að sögn
Ríkharðs vom þeir að koma úr róðri í
ágætis veðri þegar þeir urðu varir við að
báturinn lét ekki eins og hann var vanur
að láta. Þeir voru þá í talstöðvarsambandi
við vélbátinn Ingibjörgu frá Ólafevík.
Þegar þeir opnuðu brúnna fossaði sjór-
inn inn um lagningslúguna. Þeir köll-
uðu þá strax í bátsverja á Ingibjörgu og
tilkynntu að báturinn væri að sökkva.
Ríkharður reyndi fyrst að keyra bátinn
upp, en þegar það bar ekki árangur yfir-
gáfu þeir bátinn og reyndu að blása upp
björgunarbátinn. Það verk gekk illa og
neyddust þeir til að vera í sjónum í 5-10
mínútur áður en báturinn blés upp. Rík-
harður reyndi að losa sig úr stígvélun-
um, sem honum fundust vera eins og blý
í sjónum og jafhffamt að losa björgunar-
bátinn. En þar sem hann hafði aðeins tak
á gjörðinni á björgunarbátnum með
tveimur fingmm tókst það ekki. Magnús
hékk í Ármanni sem maraði í hálfu kafi
og tókst honum að kippa í spottann á
björgunarbátnum þaðan. Þeir félagar
létu síðan ölduna hjálpa sér við að kom-
ast í björgunarbátinn. Ríkharður sagðist
ekki hafa átt neitt þrek eftir. Hann hefði
komist um borð á síðustu kröftum sín-
um. „Þetta mátti ekki tæpara standa,"
sagði Ríkharður að Iokum.
Það var síðan dráttarbáturinn Orion II,
sem tókst að draga Ármann upp af hafs-
botni um kl. 5 í gær, en bátsverjar á Esj-
ari höfðu komið fyrir baujum þar sem
Ríkharður Hjörlerfsson skipveiji á Ármanni stendur í Keflavíkurflörunni við Hellissand og horfir í átt að
slysstaðnum. Tímamynd Ægir Þórðarson.
Ármann fór niður, þannig að auðvelt var
að finna hann aftur. Hann kom upp að
mestu óskemmdur, ef siglingatæki eru
frá talin. Köfunarstöðin hefúr unnið að
dýpkun hafnarinnar á Rifi í sumar og lá
því beinast við að fá Orion II til aðstoðar
við að ná Ármanni upp. Ármann er 9,9
tonna plastbátur.
-EÓ
Bankaeftirlitið kveður upp úr um endanlegt verð gamla Útvegsbankans:
Söluverö 1,4 m. kr. en
greitt verð 942 m. kr.
Rfidð seldi Utvegsbankann fyrir
942 milljónir, en ekki fyrir 1,4
milljarð, eins og viðskiptaráð-
herra hélt fram þegar hann
skrifaði undir sölusamning við
íslandsbankann. Þetta er niður-
staðan eftir að Bankaeftirlitið
kvað upp úrskurð vegna ágrein-
ings kaupenda og seljenda um
endanlegt söluverð.
Þegar bankinn var seldur, komu
kaupendur sér saman um að taka
síðar til umfjöllunar ýmis vafaatriði
sem ekki væri hægt að taka afstöðu
til fyrr en lokauppgjör bankans lægi
fyrir. Það lá fyrir í aprflmánuði síð-
astliðnum. Þá urðu kaupendur og
seljendur sammála um að lækka
kaupverðið um tæpar 360 milljónir,
m.a. vegna mismunar á bókfærðu
verði eigna á fasteignaverði og af-
faila á fjárfestingum sem ekki nýtt-
ust nýjum eigendum. Ágreiningur
varð hins vegar um mat á ábyrgðum
og útlánum bankans. Kaupendur
töldu að afskrifa þyrftu um 170
milljónir króna vegna viðskipta Út-
vegsbankans við sjö tiltekna við-
skiptavini hans. Á þetta féllst ríkið
ekki.
í niðurstöðu Bankaeftirlitsins segir
að lækka beri kaupverð bankans um
90.430 þúsund vegna þessara skuld-
ara. Áður hafði Ríkissjóður tekið á
sig að greiða íslandsbanka 1.1 millj-
arð vegna ábyrgða á vanskilalánum
Útvegsbankans. Þá féllst Bankaeftir-
litið einnig á það sjónarmið kaup-
enda, að niðurfærsla lána hefði átt
að miðast við 1% í lokauppgjöri
bankans, en ekki 0,5% eins og raun-
in varð á. Þetta lækkar kaupverð
bankans um rúma 60 milljónir til
viðbótar.
Endanlegt kaupverð er því 942
milljónir króna, en ekki 1.450 eins
og samið var um þegar bankinn var
keyptur. Það virðist því sem að
menn, sem gagnrýndu viðskiptaráð-
herra fyrir að selja Útvegsbankann á
of lágu verði, hafi haft ýmislegt til
síns máls. -EÓ
Skorað á húseigendur
að hækka ekki leigu
,Af gefnu tilefni vilja Leigjenda- ingamir voru gerðir 1. febrúar
samtöldn, Neytendasamtökin og s.I. hefur húsaleiguvísitalan
Verðlagseftirfit verkalýðsfélag- hækkað um 3.3% og byggingar-
anna hvetja húseigendur, sem vísitalan um 4.6%.“
ieigja út húsnæði, að taka tillit tfi Þá benda samtökin á, að ieigu-
þess stöðugleika sem náðst hefur miólara sé heimilt að taka gjald
f verðlagsmálum, Þjóðarsáttln fyrir innhelmtu og móttöku húsa-
svonefnda hefur skilað ótvíræð- leigu, eftirlit með umgengni og
um árangri í baráttunni við verð- framkvæmd viðhalds og annars í
bólguna og engin þörf er á sér- tengslum við framkvæmd leigu-
stökum verðhækkunum eins og mála. „Gjald þetta skal vera sann-
málum er háttað í dag“, segir í gjarnt og í samræmi við fyrirhöfn
fréttatilkynningu frá þessum leigumiðlara. Skal það að jafnaði
samtökum. eigi nema hærri fjárhæð en sem
Þar segir einnig, að undanfama svari 6-10% af leigufjárhæðinni.
3 mánuði hefur engin hækkun Við skorum því á húseigendur að
orðið á húsaleiguvísitölunni og taka þátt í baráttu okkar við verð-
byggingarvísitalan hefur hækkað bólguna og hækka ekki leiguna
um 0.4%. „Frá því að kjarasamn- við íeiguskipti." -hs.
Vestmannaeyjar:
Toluvert onæöi
vegna ölvunar
Töluvert var um ölvun og ólæti Þegar Iögreglustöðin brann í Eyj-
henni samfara um helgina í Vest- um þurfti að fiytja þá sem vista
mannaeyjum. Tveir fengu að þurfti í fangaldefum með flugvél
gista fangageymslur og þrír voru til Reykjavíkur. Þeir hali síðan
teknir ölvaðir við akstur og þar af fengið húsnæði sem upphaflcga
var einn á bifhjóli og réttinda- átti að vera tfl bráðabirgða en nú
laus. væri það Ijóst að lögreglan yrði
Aðeins eru þrír fangaklefar í þar í nánustu framtíð.
lögregiustöðinni og geta því oft Eins og áður sagði var erillinn í
skapast vandræði þegar fleiri en Eyjuin talsverður og sögðust lög-
þrír hafa gerst brotlegir við lög reglumennimir kvíða komandi
og almennar velsæmisreglur. vetri því samkvæmt nýrri regiu-
Þær upplýsingar fengust hjá lög- gerð verða 2-3 af þeim sendir í
reglunni að 5-6 fangaklefar væru skóla til Reykjavflrur og álagið
algjört lágmark, að hafa aðeins yrði því ennþá meiri á þá sem eft-
þrjá fangaklefa væri nánast óvið- ir væm. Fækkun upp á 2-3 í Eyj-
unandi. Það væri ólöglegt að hafa um jafnaðlst á við 60 manna
tvo saman í klefa og því þyrfti fækkun í lögreglunni í Reykjavík
stundum að rýma til fyrir nýjum og það sæi það hvert mannsbam
birgðum og híeypa þeim út, sem að það væri algjörlega óviðun-
væru búnir að vera inni í cin- andi.
hvera tíma, svo aðrir kæmust að. —SE
Piltur týndist á Esjunni
Aðfaranótt mánudags var lögregl-
an send af stað til að leita að rúm-
lega tvítugum pilti sem hafði gengið
á Esjuna á sunnudeginum. Piltur-
inn kom ekki fram þegar tók að
rökkva og var þá farið að leita að
honum. Lögregla, leitarhundur og
hjálparsveit skáta var kölluð til leit-
ar og fannst pilturinn klukkan rúm-
lega fjögur í fyrrinótt. Hafði hann þá
ekki gætt að sér þegar hann var að
virða fyrir sér útsýnið uppi á Esj-
unni og var myrkrið orðið svo mikið
þegar hann var á leiðinni niður að
hann tók þann kostinn að bíða þar
til birti eða einhver fyndi hann.