Tíminn - 17.10.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 17.10.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminrtr Miðvrkuctagur 17*. október 1990' Steingrímur J. Sigfússon ekki sammála umhverfisráðherra varðandi mengunarvarnir við nýtt álver: Annað en vothreinsi- búnaður er tilslökun Júlíus Sólnes umhverfisráðherra hefur kynnt áfangaskýrslu sér- stakrar sérfræðinefndar, sem unnið hefur tiliögur um mengunar- varnir í tengsium við nýtt álver á Keilisnesi. Þar er ekki gert ráð fyr- ir að álverið notist við vothreinsibúnað, en talið er að besta meng- unarvömin sé gott eftirlit með mengun gegnum ítarlegar mælingar og þannig verði hægt að grípa inní ef eitthvað fer úrskeiðis. Stein- grímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og samgönguráðherra, segist ekki vera sammála niðurstöðu sérfræðinganna. „Ég hlýt að lýsa vonbrigðum mínum með þá niðurstöðu, ef slaka ætti á í þeim efn- um.“ Hann sagði að fullyrt hafi verið í marga mánuði, að ekkert annað komi til greina en fullkomnustu mengunarvarnir. „Til þess að upp- fylla það, samkvæmt orðanna hljóð- an, þá þarf vothreinsibúnað. Brenni- steinsdíoxíðmengun verður hér margfalt meiri en ella, ef ekki verður komið upp vothreinsibúnaði. Vissu- lega er hægt að draga úr henni um- fram það sem verst gerist, með því að nota hrein skaut, en það breytir ekki hinu að vothreinsibúnaður er lang áhrifaríkasta aðferðin við að ná Evrópskar bíómyndir sýndar í Háskólabíó Ákveðið hefur verið að hefja reglu- legar sýningar á evrópskum úrvals- myndum í Háskólabíó. Er ætlunin að auðkenna þessar myndir sér- staklega í bíóauglýsingum. Er það von Háskólabíós að þessari ný- breytni verði vel tekið, svo það geti unnið sér fastan sess í bfómynda- vali Reykjavíkur.. Af þeim myndum, sem Háskólabíó hefur sýnt á þessu ári, eru tvær sem hafa verið í sýningu á áttunda mán- uð, þ.e. Vinstri fóturinn, sem er írsk mynd, og Paradísarbíóið en hún er ítölsk. Báðar hlutu þessar myndir Óskarsverðlaun og eru enn í sýn- ingu. Af öðrum evrópskum myndum, sem sýndar verða á næstunni, má nefna: Bresku bíómyndirnar Krays bræðurnir og Hinrik V, franska mynd er nefnist Nikita, sænska mynd er nefnist Kronvittnet og spænska mynd er nefnist Atema. Fleiri myndir eru væntanlegar í Há- skólabíó í vetur, en ætlunin er að kynna myndirnar sérstaklega þegar þær verða teknar til sýninga. khg. Samherji á Akureyri eignast togarann Víði frá Hafnarfirði Útgerðarfyrirtækið Samheiji hf. á Akureyri ætlar að kaupa Hvaleyri hf. í Hafnarfirði, sem var áður Bæj- arútgerð Hafnarfjarðar. Samherji nýtir þar með forkaups- rétt sinn á hlutabréfum Hagvirkis og Jóns Friðjónssonar, en Samherji átti fyrir 48% í Hvaleyri. Á móti kaupum Samherja kaupir Hagvirki frystihús Hvaleyrar og hefur verið haft eftir Jó- hanni G. Bergþórssyni, forstjóra í tilefni mynd- birtingar Vegna mistaka í vinnslu blaðsins I gær var hægt að þekkja ung- linga, sem mynd birtíst af í opn* unni, þar sem andlit þeirra voru ekki máð út eins og fil stóð. Við viljum því taka fram að myndin var hugsuð sem raunsönn skýr- ingarmynd við efni greinarinnar og ætlað að sýna einhverja ung- Hnga, en ekki tiltekna. Mynda- textí mióaðist við það og er þvf rangur hvað varðar þessa tilteknu ungiinga. Víð hörmum þessi mis- tök. —Fréttastj. Hagvirkis, að unnið sé að endursölu hússins. Samherji eignast þar með togarann Víði og jafngildi 2.200 tonna þorsk- kvóta. Margir Hafnfirðingar hafa ótt- ast að þessi kvóti myndi fara frá Hafn- arfirði með sölu Víðis. Meðal annars var bókað í atvinnumálanefnd Hafn- arfjarðar, að þegar eigendur Hvaleyr- ar hf. keyptu eignir Bæjarútgerðar- innar 1989, hafi þeir gengist inn á að starfrækja fyrirtækið í Hafnarfirði. Það komi m.a. skýrt fram í kaup- samningum sem gerðir voru. Sam- herjamenn hafa hins vegar gefið út þá yfirlýsingu að þeir muni gera Víði út frá Hafnarfirði. Ekki náðist í for- svarsmenn Samherja hf. í gær, þar sem þeir eru erlendis. -hs. Ný sóknarnefnd Guðmundur Þorsteinsson dómpró- fastur hefur ákveðið að efna til safn- aðarfundar í Seltjamamespresta- kalli, mánudaginn 22. október n.k. Þar verður væntanlega kosin ný sóknamefnd. Sóknamefnd á Seltjarnarnesi sagði af sér þann 12. október sl., vegna deilna sem náðu hámarki með undir- skriftarlista sem hátt á annað hundr- að sóknarbarna skrifuðu undir. Þar var mótmælt meðal annars breyting- um á skipulagi safnaðarins. khg. niður þeirri mengun. Þar með eru jafnvel möguleikar á, að hreinsa einnig koldíoxíð með tiltekinni kölkunaraðferð." Steingrímur taldi nauðsynlegt að gera í þessu sambandi allra ströng- ustu kröfur. „Hugsunarháttur af því tagi, að við eigum inni mengunar- kvóta, því hér sé enn sem komið er lítill iðnaður, hugnast mér ekki sér- lega vel.“ Ef til stæði að gera meng- unarmælingar reglulega, þá væri það af hinu góða. Það breytti hins vegar ekki því, að ef sleppt væri úr 4500 tonnum af brennisteinsdíoxíði á ári, þá væri það gert, hvort sem mælt yrði einu sinni á dag eða aldr- ei. „Ef hægt er að koma þessu niður í 700-800 tonn með vothreinsun, þá er það geysilegur árangur." Hann taldi mengunarmálin vera eitt af þremur veigamestu málunum í hans huga, sem skiptu máli varð- andi byggingu nýs álvers. „Það er að segja umhverfismálin, raforkuverð- ið og staðsetningin og byggðaáhrif- in, sem ég hef aldrei dregið neina dul á að er veigamikið atriði fyrir mér.“ -hs. Skráðum atvinnuleysisdögum snarfækkaði í september: 1,9% atv innuleysi það sem af er ári í yfirliti atvinnumálaskrífstofu félagsmálaráðuneytisins kemur fram að skráðir atvinnuleysis- dagar á þriðja ársfjórðungi árs- ins voru 115 þúsund á landinu öllu. Þar með eru atvinnuleysis- dagar það sem af er árinu orðnir 472 þúsund. 472 þúsund atvinnuleysisdagar jafngilda því að 2400 manns hafi að jafnaði verið atvinnulausir lyrstu níu mánuði ársins. Það svarar til 1,9% af mannafla. í fyrra voru skráðir 407 þúsund atvinnuleysisdagar á sama tíma sl. árs, eða 16% færri en nú. í septembermánuði sl. hefur hins vegar atvinnuástandið lagast nokk- uð, því að þá var minnsta atvinnu- leysi sem verið hefur í nokkrúm öðr- um mánuðum yfirstandandi árs. í ágúst voru atvinnuleysisdagar þann- ig 14 þúsund fleiri. Þess skal þó getið að september er jafnan sá mánuður þegar atvinnuleysi mælist minnst. I septembermánuði mældist at- vinnuleysi mest á Vesturlandi, eða 1,8%. Konur vógu mjög þungt í þeirri tölu, því atvinnuleysi meðal þeirra var 3,6% en meðal karla 0,7%. Atvinnuleysi var minnst á Vestfjörð- um, eða 0,6%. Þar af var 1,0% kvenna en 0,6% karla. —sá Kaupfélag Kjalnesinga fertugt: Bærinn fylltist af bíl- um og búðin af fólki „Það var þvílík örtröð að það var algjört kaos héma inni. Röðin af fólki náði langt út fyrir búðina og planiö fyrir framan var troðfullt af bílum og bflarööin teygói sig út um allan Mosfellsbæ. Ég hef unn- Ið hér í fimm ár og hef aldrei orð- ið vitni að öðm eins,“ sagði öm- ólfur Ömólfsson, kaupfélagsstjórí í Kaupfélagi Kjalarnesþings í Mos- fellsbæ. Ástæðan fyrir þessari örtröð við og í búðlnni var sú að á mánudag- inn var haldið upp á fjömtíu ára afmæli Kaupfélagsins. í tilefni dagsins var viðskiptavinum boðið upp á rjómatertu, gosdrykk), kaffi, sælgæti og ijómaís. Þá vom 90 vörur f búðinni á sérstöku tilboðs- verði og vom seldar með óvenju miklum afslætti. Þar að auki var veittur 10% afsláttur á öllum vör- um við kassann. „Hillumar í búð- inni tæmdust gjörsamlega og klukkan þijú um daginn vomm við búnir að sejja víkuskammt úr kjötborðinu,*4 sagði Ömólfur. „Þrjúhundmð manna ijómaterta var búin um hádegið og eftir há- degið höfðu 4 bakarar elcki við að útbúa rjómatertur ofaní mann- skapinn. Þetta tókst annars af- skaplega vel og við emm mjög ánægð með útkomuna en áttum alls ekki von á öllum þessum fjölda." Aðspurður um það hvort haldið yrði upp á fimmtugsafmæl- „Aldrei önnur elns örtröð eins og á afmælinu.44 Ömóifur Ömótfsson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Kjalnesínga. Tfmamynd: Ami Bjama ið með svipuðum hætti, sagði eiga afmæli, enda hefði það verið Öraólfur að starfsfólkið hefðl gert gjörsamlega búið að vera eftír þá kröfu að Kaupfélagið hætti að daginn. —SE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.