Tíminn - 17.10.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.10.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 16. október 1990 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin I Reykjavlk Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Glslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gislason SkrffstofunLyngháls 9,110 Reykjavík. Síml: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfmar Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, (þróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1000,-, verð I lausasölu kr. 90,- og kr. 110,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Örlög Líbanons Ævintýramaðurinn Mikael Aoun, hershöfðingi í Líban- on, hefur nú gefíst upp með liðsmönnum sínum eftir að hafa hafst við í neðanjarðarbyrgjum í Beirút síðustu mán- uði. Aoun er í hópi kristinna Líbana og var forsætisráðherra um skeið, en hefur að undanfomu farið sínu fram með eins konar einkaher sér til stuðnings og barist gegn stjóm landsins eins og hver annar pólitískur úrræðaleysingi sem látið heíur örvæntingarfull vonbrigði um þróun mála í landinu stjóma gerðum sínum. Fram á síðustu daga reyndi Aoun að halda við hreysti- mannlegum yfirlýsingum sínum um að berjast til síðasta manns og falla heldur en gefast upp. Hann hefur reyndar leyst sjálfan sig undan þeim eiði og flúið á náðir franska sendiráðsins í Beirút. Hefur Frakklandsforseti heitið hershöfðingjanum pólitísku hæli og lagt þar við æm sína. Saga Mikaels Aouns er spegill hinnar átakanlegu sögu Líbanons og libönsku þjóðarinnar í hálfan annan áratug. Og saga Líbanons er skýr táknmynd af ástandi mála í Austurlöndum nær, þar sem ófriður hefur verið viðvar- andi áratugum saman og flækjur hagsmuna og stjómmála hafa reynst óleysanlegar. Fregnir um það að Mitterand Frakklandsforseti hafí ákveðið að bjarga Mikael Aoun úr höndum fjandmanna sinna, þ.e. ríkisstjóm Líbanons eins og hún er nú, er ekki aðeins lýsandi dæmi um mannúðarverk gagnvart sigmð- um manni, heldur engu síður uppriQun á hlut erlendra ríkja í styijaldarástandinu í Líbanon í 15 ár. Glæfraleg íhlutunarstefna og vopnastuðningur utanaðkomandi ríkja hefur haldið við borgarastyijöldinni í Líbanon allan þennan tíma, svo að segja má að landið liggi í rúst. Sú var tíðin að Líbanon var í augum vestrænna þjóða eins konar lýðræðislegt vonarland innan Arabaheimsins. Landið hafði sérstöðu að því leyti að múslímskur siður var þar ekki allsráðandi, heldur var kristni útbreidd í landinu. Menntunarástandið í Líbanon var talið miklu betra en í öðrum löndum Araba og vestræn menningar- áhrif meiri, ekki síst frönsk, því að landið var vemdar- gæslusvæði þjóðabandalagsins gamla í umsjá Frakka. Líbanskt ríki var sett á stofii í miðri heimsstyijöldinni 1941, þótt Frakkar réðu þar öllu framan af eigi að síður. Þótt út í frá sýndist stofhun sjálfstæðs ríkis í Líbanon sig- ur fyrir lýðræðishugsjónina, var ekki litið eins á það af nágrönnunum í Sýrlandi. Það eitt hlaut að vera ófriðartil- efhi, sem valdið hefur Líbönum öryggisleysi frá fyrstu. Þar við hafa síðan bæst deilur ísraela og Araba sem gert hafa Líbanon að orustuvelli vegna endurtekinna innrása ísraela og vaxandi íhlutunar Sýrlendinga af því tilefni. Afskipti vestrænna ríkja og Sovétríkjanna og fylgiríkja þeirra hafa síður en svo leitt til friðsamlegrar lausnar á deilum í Líbanon. Friðargæsla á vegum Sameinuðu þjóð- anna hefur verið tómt handarbakaverk og ekki annað en dæmi um getuleysi þeirra lengst af til að halda uppi friði 1 heiminum. Uppgjöf Aouns hershöfðingja er að vísu ósigur eins manns, en eigi að síður skýr áminning um ófriðarflækj- umar í Miðausturlöndum og að þær em ekki til komnar vegna atburðanna við Persaflóa, heldur er Persaflóadeil- an miklu fremur nýjasta afbrigði óskapnaðarins í þessum heimshluta. ingabragur «5 komast á Morfiun- ins. Garri heiur wrið að gera sér mann. nenra vHI minni ríkisumsvif. í Cuðmundar fær iildungaJ flóknu samspili ólikra hagsmuiu, sumpart persónuicgra hagsmuna kjóscndur 1 aldrínum 18-35 ára um 77\t&$má aiHðilu S landinu öllu, enda, Englnn á þeim aldri er í nti- nranna.“ i»að sem vekur mesta athygli er að citt af því sem Guð- mundur telur ástæðu til að nefha hann hafi skrifeð Iciðara og aðrar Morgunblaðið, blað allra lands- manna. Guðmundur er með þessu fuHtrúi íyrir þær skoðanir sem cn aðrir og má nokkuð sjá h\-aöa EaI:-'?ÍLf þiugmenn td. hafa áhyggjur af sæti , S'; ‘ , sínu. Guðmundur H. Garðarsson virðist þannig ekki hafa trú á að störf hafa vaxið verulega að um- bann geti haldið þingsætinu bar- fangi á síðari árum, enda sjálfs- áttulaust á meðan Friðrik Sóphus- traust hans eldd af þcirri stærðar- son notfærir sér aðstöðu sína á Al- gráðu sem hinn almenni maður á jþtagi ttl að auglýsa sig með því aó spytja forsætisiáöherra kúnstugra landafræðispuminga eins ogþehrrar hvort hann te|ji að Vatnsfcysu- strandarínppur sé í Reykjavík. flokki sjálfstæðismanna er meðal- aldurinn einhver sá hæsti sem þekkist í vestrænum fóðræðisríkj- tíma er Bjöm Bjaraason, aðstoðar- ritstjóri Motgunblaðsins, þátttak- ljóst eraðsú stofnun sem Morgun- það sjálfsagt óþarfa og þylur þess í íó veit sem er? aðtvo ungur maður hlutverki sem blaðinu er ætlað áh rauninni cidd sinnt starfi sínu sem í Sldungaráðinu enda benda raunir á Alþingi. Þetta framboð Morgun- sMdi án þess að vera jafiifíramt fbrmanns fiokksins á þehn vett- blaðsins « pmflgörínu og hugsan- þingmaður. Kn fari fiarri að hann vangi til slíks. lega til Alþingis er án efa eitt það at- muni ienda í vandræðum með að Unga fólkið sækir að úr öDum átt- hygiisverðasta rið piúfkjörsslaginn sinna báðum þessum Störfum sam- um en fáir vtrðasl sækja af eins í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. forystumanna flokksins eins og ússon. Guðmundur lætur sór eldá þó búast viö að cf Morgunblaðið fær Bjama Benediktssonar, Geirs Hali- nægja að auglýsa i Morgunblaðinu, menn kosna á þing muni það koma grímssonar og Gunnars Thorodd- heldur hefur hann nú látíð gefa út úr felum og jáia stjómmálatcngsl sen. EJdri vhðist borgarstjórinn um sig litprentaðan bækling sem síh. Garrí hafa áhyggjur af því að b*ði Iressi dreifl er tii Rcykvíkinga. i»ar er lit- VITT OG BREITT Atvinmilíf og umhverfisvernd Fjölmiðlar hafa síðustu daga verið fullir af fréttum og umræðum um umhverfis- og mengunarmál hér á landi. Þar ber e.tv. hæst þá frétt, að samningamenn f álviðræðum séu að falla frá kröfunum og vothreinsibún- aði en leggi nú áherslu á brenni- steinssnauð rafskaut, og er ekki nema von að menn vilji vita eitthvað um gæðamun þessara aðferða. Þá hefúr Áburðarverksmiðjan verið út- skrifúð sem áhættulaust fyrirtæki inni í miðri íbúðarbyggð, en hins vegar er sitthvað óljóst um gerð og gæði olíuleiðslnanna í Reykjavíkur- höfn, eða hver ósköpin það eru sem valdið hafa endingarleysi þeirra með þekktum afleiðingum. AHomn vitneslga Hvað sem er um þessi mál að segja er ekki úr vegi að minna á umhverf- ismál sem eitt af meiriháttar við- fangsefnum þjóðmála, reyndar heimsmála, því það er löngu sannað að framleiðsluhættir og lffsstfll nú- tímamannsins valda umhverfis- spjöllum og mengun, sem beinlínis er talið að stofiii sjálfúm tilveru- grundvelli mannkynsins í beina hættu. En þótt slík sönnun liggi fyrir er ekki þar með sagt að almennt hafi menn meðtekið þennan sannleika. Það er varla von að almenningur skilji þessar svartsýnu kenningar um fortöpun mannkynsins vegna sinna eigin lífshátta, þegar ráðamenn þjóð- anna og forkólfar framkvæmda og athafna færast undan því að hlutgera þessa vitneskju í verkum sínum. Þessi undanfaersla athafriamanna að taka tillit til þekkingar vísindanna á tengslum framleiðsluhátta og um- hverfisspjalla er útbreidd vanrækslu- synd í flestum löndum heims, enda víðast hvar ríkjandi pólitískur slapp- leiki í þessum málum, þegar til kast- anna kemur. Umhverfisspjöll, jarð- vegseyðing og mengun eru að vísu orð sem margir taka sér í munn, en færri sem fylgja þeim eftir í verki. En hvað er þá hæft í þessu svartsýnistali um bölvun umhverfisspjallanna? Um það skal vitnað til orða manns sem kann á þessu góð skil og er m.a. framkvæmdastjóri umhverfisnefnd- ar Sameinuðu þjóðanna. Kapitalisti segir firá Sá maður sem hér um ræðir heitir Maurice Strong og er í rauninni am- erískur viðskiptahöldur, en þó eng- inn venjulegur kapitalisti, svo virkur sem hann er sem baráttumaður fyrir hugsjón umhverfisvemdar. Hann er því í senn trúr kapitalisti og um- hverfishyggjumaður. Maurice Strong fjallar um þessi áhugamál sfn í tímaritinu World Link, sem er eins konar málgagn auðvaldssinnaðra umhverfishyggjumanna. Strong tel- ur að atvinnulífið eigi að viðurkenna umhverfisvemd sem óhjákvæmileg- an kostnaðarþátt í rekstri og fjárfest- ingu fyrirtækja. Hann kallar það skammgóðan vermi að ætla að vikja sér undan slíkum skyldum. Hann segir það hinn mesta misskilning, þegar þvf sé haldið fram að strangar kröfúr í umhverfismálum séu vís vegur til að draga úr hagvexti eða gera hagvöxt að engu. Þvert á móti er sú viðtekna venja athafnamanna að komast hjá þessum kostnaði örugg leið til þess að stöðva hagvöxt, segir Maurice Strong. „Um það þarf ekkert að deila að framleiðsluhættir flestra tegunda ríkjandi atvinnustarfsemi hafa víðtæk óheillaáhrif á umhverfið svo að ekki er hægt að þola það, ef lagt er á það pólitískt maL Sá tími er liðinn að menn geti valið þá leið að hunsa afleiðingar þess framferðis að hafa að engu rök skynsamlegrar hag- fræði, stjómmála og umhverfis- vemdar að því er tekur til umhverfis- mengunar. Ef menn á annað borð ætla að tryggja efnahagslegar fram- farir, þá verða menn að taka tillit til þess sem náttúran þolir.“ Vísað tíl vegar Maurice Strong bætir við: ,Miðað við þá stefriu sem viður- kennd er í umhverfismálum, er óhætt að halda því fram að það er rekstrarhagfræðin sem þarf að laga sig að kröfúm umhverfisvemdar, en ekki hið gagnstæða, eins og sumir halda. Tíunda áratuginn verður að nota sem aðlögunartíma að þessum kröfum." Greinarhöfundur leggur áherslu á að þessi viðhorf séu í fúllu samræmi við sjónarmið markaðshyggjunnar, þar sem gengið sé út ffá því að taka beri tillit til allra þátta rekstrarkostn- aðar þegar ráðist sé f atvinnurekstur. Ef atvinnulífið sjálft svíkst undan í þessu efni lendir það á samfélaginu. Menn verða að átta sig á því að hag- vöxtur sem náð er með því að spilla umhverfi og ganga á auðlindimar leiðir um það er lýkur til hvors tveggja í senn: umhverfisgjaldþrots og efnahagsgjaldþrots, segir Maurice Strong. Þessi boðskapur á mikið erindi til ÍSlendinga. Að nokkru leyd hefúr hann gert það, Ld. í stjóm fiskveiða og í uppgræðslu- og gróðurvemdar- málum. Stofnun umhverfisráðu- neytis er grundvölluð á þessum við- horfúm og ýmsar aðrar stofnanir. Hins vegar er engin vissa fyrir því að atvinnurekendur hafi áttað sig á skyldum sínum í þessu efni. Þeir lifa enn í hugarheimi undanbragðanna og em seinir til frumkvæðis í því að taka ótilkvaddir tillit til þess sem um- hverfisvemd og mengunarvamir krefjastaf þeim I.G.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.