Tíminn - 01.11.1990, Blaðsíða 10

Tíminn - 01.11.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 1. nóvember 1990 Varaflugvöllur verði á Akureyri Flugráð hefur samþykkt að Akureyrarflugvöllur verði varaflugvöllur fyrir millilandaflug þar til uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar lýkur. Samkvæmt áætlun á uppbyggingu hans að ljúka árið 1992. Ýmsar lagfæringar þarf að gera til þess að Akureyrarflugvöllur geti þjónað þessu hlutverki, auk þess sem auka þarf tækjakost vallarins, og fjölga starfsmönnum til þess að hægt sé að hafa vakt á Akureyrarflugvelli allan sólarhringinn. Gert er ráð fyrir að verja þurfi 60- 70 milljónum í framkvæmdir, auk rekstrarkostnaöar, til þess að Akur- eyrarflugvöllur geti þjónað sem varaflugvöllur. Rúnar Sigmundsson, umdæmis- stjóri Flugmálastjórnar á Akureyri, segir að ráða þurfi a.m.k. 3 flugum- ferðarstjóra og 3-4 flugvallareftir- litsmenn ef af þessu verður. Þá vant- ar einnig nýjan snjóblásara og „flug- brautarsóp", og einnig þarf að bæta við 6-7 stæðum fyrir flugvélar. Rúnar segir að þrátt fyrir samþykkt flugráðs sé ekki í sjónmáli að Akur- eyrarflugvöllur þjóni þessu nýja hlutverki á næstu mánuðum. Málið á eftir að fá umfjöllun í samgöngu- ráðuneytinu og fjármálaráðuneyt- inu. Hljóti það skjóta afgreiðslu þar á samt eftir að fá tækin og það er talsverður afgreiðslufrestur á þeim. Það verður því varla íyrr en næsta vor eða sumar sem Akureyrarflug- völlur verður tilbúinn til þess að þjóna sem varaflugvöllur, ef það hlýtur samþykki fjárveitingavalds- ins, sagði Rúnar Sigmundsson að lokum. hiá-Akureyri. Þing S.I.B.S. haldið í Reykjalundi: Komið á fót lungnavernd innan vébanda sambandsins 75 þingfulltrúar voru saman- komnir á 27. þingi S.Í.B.S sem hald- ið var á Reykjalundi dagana 13-14. október sl. Eru það nokkru fleiri en undanfarin ár en meðlimum hinna ýmsu deilda sambandsins hefur fjölgað talsvert síðustu ár. S.Í.B.S. var stofnað í október 1938 og er þannig 52 ára um þessar mundir. Á þinginu voru gerðar 16 sam- þykktir. M.a. var samþykkt að innan vébanda sambandsins verði komið á fót lungnavernd, starfsemi sem miði að alhliða fræðslu um reykingar, mengun og holla lífshætti, auk þess sem leitast verði við að fyrirbyggja lungnasjúkdóma og koma fórnar- lömbum þeirra til hjálpar fyrr á sjúkdómsferlinum en til þessa hefur verið hægt. Þá beinir þingið þeim eindregnu tilmælum til ráðherra umhverfismála og til veðurstofu- stjóra að þeir beiti sér fyrir því að talning á frjókornum í andrúmsloft- inu verði tekin sem fastur liður í starfsemi Veðurstofu íslands. Þingið mótmælir harðlega lokunum deilda á sjúkrastofnunum, m.a. Vífilsstaða- spítala og Landspítala. Lokanir þess- ar hafa valdið miklum vandræðum Saga Akureyrar Fyrsta bindið að koma út Um miðjan nóvember kemur á markaðinn fyrsta bindið af „Sögu Akureyrar", rituð af Jóni Hjaltasyni sagnfræðingi. Þessa dagana er verið að leggja síðustu hönd á verkið hjá Prentverki Odds Björnssonar á Ak- ureyri. Bókin verður prentuð í 2000 eintökum, og verður seld bæði í áskrift og í verslunum. Gert er ráð fýrir að Saga Akureyrar verði a.m.k. 3 bindi. Ákveðið var að ráðast í ritun Sögu Akureyrar á 125 ára afmæli Akureyr- arbæjar. Jón Hjaltason sagnfræðing- ur var ráðinn til verksins og hóf hann störf 1. september 1987. í fyrsta bindi bókarinnar er varpað ljósi á sögu Akureyrar frá landnáms- öld og allt til ársins 1862, þegar Ak- ureyri fékk kaupstaðarréttindi öðru sinni. Bókin skiptist í þrjá megin- hluta. Fyrsti hlutinn nær frá land- námsöld og fram til þess tíma að Ak- ureyri fékk kaupstaðarréttindi í fyrra sinnið árið 1786. Verkið spannar þó meira en sögu Akureyrar, því sagt er frá landnámi Helga magra í Eyjafirði og þróun byggðar upp frá því. Annar hluti bókarinnar fjallar um margvís- legar hremmingar kaupmanna, deil- ur um kaupstaðarlóðir á Akureyri og aðdraganda þess að Akureyri breytt- ist úr kaupstað í höndlunarstað. Þriðji hlutinn fjallar um tímabilið 1836 til 1862, en í ágúst það ár fékk Akureyri kaupstaðarréttindi að nýju. Greint er frá brauðstriti og mannlífi á Akureyri á þessum árum, og þróun byggðar svo eitthvað sé nefnt. Einn- ig eru gerð skil fjölda einstaklinga, sem öðrum fremur settu svip sinn á þetta tímabil. Annað bindi verksins er væntanlegt á markaðinn árið 1992, og fjallar um tímabilið frá 1862 til 1940, og þriðja bindið fjallar um tímabilið frá 1940 til vorra daga. Sendur hefur verið kynningarbæk- lingur á öll heimili á Akureyri og víðar. Bæklingurinn hefur að geyma upplýsingar um bókina og áskriftar- seðil þar sem bókin er boðin til kaups á 5.350 krónur, staðgreiðslu- verð 5.000 krónur. og skapað ófremdarástand í heil- brigðisþjónustunni. Þingið skorar á ríkisstjórn íslands og alþingismenn að banna með öllu reykingar í flug- vélum, jafnt innanlandsflugi sem á alþjóðlegum leiðum íslenskra flug- véla. Á vegum S.Í.B.S. er rekin margvís- leg starfsemi, þ. á m. má nefna Vinnuheimilið að Reykjalundi, en þar er rekin öflug endurhæfingar- starfsemi á landsvísu með plássi fyr- ir 165 vistmenn, og Múlalund sem er framleiðslufyrirtæki og vinnu- staður ætlaður fötluðu fólki, sá stærsti sinnar tegundar hér á landi. í samvinnu við Rauða krossdeild Reykjavíkur og Samtök aldraðra í Reykjavík stendur S.Í.B.S að rekstri Múlabæjar, sem er dagvist fýrir aldr- aða, og Hlíðabæjar þar sem rekin er dagvist fyrir alzheimersjúklinga. Ásamt Hjartavernd í Reykjavík og Landsamtökum hjartasjúklinga er S.Í.B.S stofnaðili að HL-stöðinni í Reykjavík, þjálfunarstöð fyrir hjarta- og lungnasjúklinga. Innan skamms mun hefjast starfsemi HL- stöðvar á Akureyri en að stofnun hennar standa S.Í.B.S., Landsamtök hjartasjúklinga og Hjartavernd. S.Í.B.S. hefur átt aðild að Öryrkja- bandalagi íslands frá stofnun þess árið 1961. Þá á S.Í.B.S hlutdeild í Medic Alert, alþjóðlegu viðvörunar- og upplýsingakerfi sem eykur öryggi sjúkra manna. khg. firði án þess að þekkja soguna um móðurina sem missti böm sín í fossinn iyrir u.þ.b. tveimur öldum. Móðirin braut síðan niður steinbrú sem var yfir fossinn til að forða öðrum frá sömu öriögum. bað er því athyglisvert, að þegar myndin er skoðuð grannt má sjá hvemig hægri gljúfurbarmurinn myndar útlfnur móðurinnar þar sem hún horfirffossinn. Sérstæð málverkasýning í Hlaðvarpanum: ísland málað með kínverskri aðferð Laugardaginn 3. nóvember nk. verður sérstæð málverkasýning kínverska listmálarans Lu Hong opnuð í Hlaðvarpanum Vestur- götu 4 í Reykjavík. Lu Hong er 34 ára gömul og hefur lagt stund á myndlist frá unga aldri. Hún er útskrifuð úr Kínverska listaháskólanum í Peking, æðsta myndlistarskóla Kínverja, árlð 1985 eftir fjög- urra ára nám. Sérgrein hennar var bnversk landslagsmálun. Lu Honge kynntist tslensku námsfólki í Tokyo í fyrra og sl. vor kom hún til íslands og hef- ur síðan málað íslenska náttúru með málunaraðferðum hinnar kínversku landslagsmálaralist- ar. Sýning Lu Hong stendur til 28. nóvember nk. Öldrunarráð íslands ályktar: BÆTA ÞARF AÐSTOÐU ALDRAÐRA SJÚKLINGA Stjóm öldrunarráðs íslands fagnar því að gerð hafi verið athugun og út- tekt á húsnæðisþörf aldraðra að frum- kvæði félagsmáiaráðherra. En bendir þó á að eftirtalin atriði beri að hafa í huga þegar lagt er út í aðgerðir þær sem starfshópurinn sem sá um þessa athugun lagði til. í íyrsta lagi að skortur á hjúkrunar- rými og öldrunarlækningum er til- Skattsvik amál fái h raðari mál smeðferð Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra hefur lagt fyrir rík- isstjórnina tillögur sem miða að því að minnka skriffinsku f skattakerfmu og flýta afgreiðslu mála. Tillögumar gera m.a. ráð fyrir að nefndum sem fjalla um skattamál með einum eða öðrum hættí verðí fækkað og ríkisskatta- nefnd verði styrkt. Þessar tillÖgur verða nánar ræddar í ríkisstjóminni síðar og einnig eiga þingflokkamir eftir að fá þær til umfjöliunar. Hliðstæðar tillögur vom lagðar fram til kynn- ingar á sfðasta þingi. Starfsmenn í fjármálaráðuneyt- inu kváðust ekki geta gefið nánari upplýsingar um einstÖk efnisat- riði tillagnanna. Þær eru enn til umræðu og búast má við að þær taki breytingum áður en þær verða lagðar fram á Alþingi, en stefnt er að gera það á næstu vikum. Margsinnis hefur verið kvartað undan því að langan tíma taki að afgreiða kærur vegna skattsvika og úrskurðamál af ýmsum toga. Með tillögum fjármálaráðherra á að reyna að breyta þessu. -EÓ finnanlegur. Stjóm Öldrunarráðsins segir að þessir tveir þættir séu ótvírætt tengdir þar sem stór hluti þeirra fáu rýma sem eru á öldrunarlækninga- deildum eru upptekin af hjúkmnar- sjúklingum. í öðm lagi er að vemlegur skortur sé á heimaþjónustu þeirri, sem kveðið er á um í lögum um málefni aldraðra, sé sinnt sem skyldi. Gildir það jafnt um heimilishjálp sem heimahjúkmn. Einnig var gagnrýnt harðlega á aðal- fundi Öldmnarráðs íslands, sem hald- in var sjötta þ.m., að fjármunir þeir sem innheimtir em í þágu aldraðra skuli ekki skila sér í framkvæmdasjóð aldraðra, eins og lög gera ráð fyrir. En þetta kemur fram í ályktun sem ráðið sendi frá sér fyrir nokkm —GEÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.