Tíminn - 03.11.1990, Síða 13
Laugardagur 3. október 1990
Tíminn 21
AUGLÝSING
um kosningarétt íslenskra ríkis-
borgara sem búsettir eru eríendis
Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa
íslendingar sem flust hafa af landi brott og sest
að erlendis kosningarétt hér í átta ár frá því þeir
fluttu lögheimili sitt talið frá 1. desember næstum
fyrir kjördag. Eftir það falla menn sjálfkrafa af
kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að
halda kosningarétti. Einungis þeir sem einhvern
tíma hafa átt lögheimili á íslandi geta haft kosn-
ingarétt hér. Kosningaréttur fellur niður ef íslend-
ingur gerist ríkisborgari í öðru ríki. Koshingarétt-
urinn miðast við 18 ára aldur.
Þeir sem búsettir hafa verið erlendis skemur en
átta ár, talið frá fyrsta desember næstum fyrir
kjördag, munu verða teknir á kjörskrá án um-
sóknar. Þurfa því þeir sem flust hafa af landinu
eftir 1. desember 1982 ekki að sækja um skrán-
ingu á kjörskrá miðað við 1. desember 1990.
Þeir sem búsettir hafa verið erlendis lengur en
átta ár (þ.e. fluttu af landi brott fyrir 1. desember
1982) þurfa að sækja um það sérstaklega að
verða teknirá kjörskrá. Umsókn skal senda Hag-
stofu íslands á sérstöku eyðublaði. Sé umsókn
fullnægjandi skráir Hagstofa íslands umsækj-
anda á kjörskrárstofn. Slík skráning gildir í fjögur
ár og þarf þá að endurnýja hana með nýrri um-
sókn. Eyðublöð fyrir slíkar umsóknir fást í sendi-
ráðum Islands erlendis, sendiræðisskrifstofum,
skrifstofum kjörræðismanna og hjá fastanefnd-
um við alþjóðastofnanir. Einnig er hægt að fá
eyðublöðin á afgreiðslu Hagstofunnar.
Umsækjandi þarf sjálfur að undirrita umsókn
sína.
Umsókn þarf að hafa borist Hagstofu íslands
fyrir 1. desember nk. til þess að umsækjandi
verði tekinn á kjörskrá fyrir næstu kosningar.
íslendingar sem búsettir eru erlendis verða
skráðir á kjörskrá þar sem þeir seinast áttu lög-
heimili samkvæmt kjörskrá.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
31. október 1990
LISTASAFN
REYKJAVÍKUR
KJARVALSSTAÐIR
SAFNAKENNARI
Laust er til umsóknar starf safnakennara við
Listasafn Reykjavíkur (Kjarvalsstaðir og Ás-
mundarsafn). Listfræði-, kennara- eða mynd-
listamenntun æskileg.
Starfið felst í að leiðbeina hópum um sýningar
að Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni og gerð
sérstakra verkefna þar að lútandi.
Nánari upplýsingar veittar í síma 26131. Um-
sóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skal skilað til Kjarvalsstaða v. Flókagötu,
105 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum er þar
fást.
Bókasafnsfræðingur
Héraðsbókasafn Rangæinga, Hvolsvelli óskar
að ráða bókasafnsfræðing í fullt starf, sem fyrst.
Góð vinnuaðstaða, húsnæði á staðnum.
Umsóknir sendist til formanns stjórnar
bókasafnsins Pálínu B. Jónsdóttur,
Dufþaksholti, 861 Hvolsvöllur, fyrir 15. nóv. n.k.
Jennifer Gray leikur Oskubusku og Rob Lowe er vttanlega prlnsinn í kvikmyndinni „Ef skórínn passar".
ROB LOWE
Kvikmyndin „Bad Influence", sem
sýnd var í kvikmyndahúsum hér í
sumar, hafði góð áhrif á líf Rob Lo-
we. Við töku þeirrar kvikmyndar
kynntist hann förðunarmeistaran-
um Sheryl Berkoff og hafa þau ver-
ið saman síðan.
Rob Lowe hefur lengi verið oröað-
ur við frægar konur, jafnvel prins-
essur, og kann nú vel að meta það
að vera í slagtogi með konu sem
ekki er fræg. Hann segist nú eiga
meira einkalíf og hafa að mestu frið
fyrir ljósmyndurum.
Rob Lowe var í stuttan tíma í sam-
bandi með Stefaníu Mónakóprins-
essu, en þau skildu sem vinir og
eru það enn. Hann segir þau bæði
hafa látið gamlan draum rætast er
þau voru saman, hann hafði
dreymt um alvöru prinsessu og
hana um frægan leikara.
Þó Rob hafi ekki gifst prinsess-
unni gefst honum í nýjustu mynd
sinni tækifæri til að prófa að vera
prins. Það er nútímaútgáfa af ævin-
týrinu um Öskubusku og nefnist
„Ef skórinn passar". Þar leikur
hann á móti Jennifer Gray sem sló
í gegn í kvikmyndinni „Dirty Danc-
ing“.
Rob Lowe segist nú vera óðum að
þroskast og nú sé loks að komast
almennilegt skipulag á líf hans.
Hann segist vera afslappaðri, helst
vilja vera í gallabuxum og bol eða í
stuttbuxum á ströndinni. Hans
uppáhaldsfarartæki er mótorhjól
sem hann segir veita sér visst frelsi
í umferðaröngþveiti stórborganna.
Rob Lowe segist nú vera aö
þroskast og vinnur að því að
efla likama og sál.
Elton John og
Joan Collins
Joan Collins leikur nú aðalhlutverk-
ið í „Private Lives" á sviði í London
við miklar vinsældir.
Leikritinu hefur verið svo vel tekið
að búast má við að það eigi eftir að
ganga lengi.
Til að halda upp á þessa velgengni
tók Elton John sig til og bauð Joan
út að borða á einu vinsælasta veit-
ingahúsi í London, Langan’s Brass-
erie.
Hann tók vel á móti henni við kom-
una til veitingahússins og kyssti
hana í bak og fyrir, enda hefur leik-
konan aldrei litið betur út en nú.
Elton John fagnar Joan Collins
við veitingahúsið þar sem þau
héldu upp á leiksigur hennar í
London.
Rob Lowe ásamt vinkonu sinni
Sheryl Berkoffförðunarmeistara.