Tíminn - 08.11.1990, Síða 7

Tíminn - 08.11.1990, Síða 7
nni.Tii f S Tíminn 7 i w.i.u.'ini 3 ’i í-sbutni.T.i-f Fimmtudagur 8. nóvember 1990 Þórarinn Þórarinsson: Island má ekki einangr- ast með Vestur-Evrópu Talsvert ber nú á þeim ugg, að vegna sérstöðu íslands sem ey- lands fjarri öðrum þjóðum kunni það að einangrast. Þetta er m.a. fært fram af þeim, sem vilja að ísland innlimist í hið nýja stór- ríki í Vestur-Evrópu, sem marga forystumenn E.B. dreymir um að stofna. Þessir menn gera sér ekki ljóst, að f þessu er einmitt fólgin mesta einangrunarhættan frá öðrum Iöndum en þeim sem eru í E.B., ef ísland lokast innan tollmúra bandalagsins. Sú ein- angrun gæti ekki aðeins orðið viðskiptaleg og efnahagsleg, held- ur ekki síður menningarleg. íslendingar verða að gera sér Ijóst, að Vestur-Evrópa er ekki nema lítill hluti af heiminum. Sumarið 1939 komu hingað til lands tveir helstu stjórnmálamenn Dana, Stauning og Christmas Möll- er. Það var þá ljóst, að íslendingar myndu segja upp sambandslögun- um. Þeir Stauning og Christmas Möller voru ekki að ráðleggja ís- lendingum að halda sambandslög- unum áfram, það var þeim ekkert kappsmál að þau giltu til frambúð- ar. Hinsvegar vildu þeir að íslend- ingar héldu áfram konungssam- bandinu, en til þess náðu sam- bandslögin ekki. Um líkt leyti kom hingað frá Danmörku Sveinn Bjömsson, sem var sendiherra ís- lands þar. Tilgangur ferðarinnar var að halda útvarpserindi, þar sem íslendingar voru varaðir við að rjúfa konungssambandið, þar sem það væri bylting sem hefði enga stoð í Iögum. Stauning og Christmas Möller snem ánægðir heim, því að kon- ungssambandið var þá vinsælt á ís- landi. Eftir heimkomuna sagði Sta- uning, að hann hefði aðeins hitt einn stjórnmálamann á íslandi, sem vildi slíta alveg sambandi við Danmörku og stofna lýðveldi. Þessi maður var Jónas Jónsson, sem þá var formaður Framsóknarflokks- ins. Jónas skrifaði grein í Tímann um viðræður þeirra Staunings. Greininni lauk með þessum orð- um: „Norðurlandaþjóðimar á megin- landinu óttast stundum að einbú- inn í Atlantshafi kunni að villast burt frá frændum sínum. Sá ótti er tilefnislaus. Bönd frændsemi og uppruna eru sterk og raunar órjúf- anleg. íslendingar finna vel, hve sterk eru frændsemis- og menn- ingarböndin, sem tengja þá við Norðurlönd. En þeir kunna að meta uppruna sinn og læra af langri reynslu. Þeir vita að frelsið er þeim jafn nauðsynlegt og lífs- loftið heilbrigðum manni. En eyjan hvíta liggur mitt í hinu mikla út- hafi, Evrópa er á aðra hönd og Am- eríka á hina. íslenzka þjóðin mun á ókomnum árum og öldum bæði kunna skil á uppruna sínum og minnast þeirra mörgu andlegu tengsla, sem tengja hana við þau lönd, sem landnámsmennirnir komu frá. En íslendingar munu líka minnast þess, að þeir fundu Vínland hið góða, og það er nábúi þeirra í vesturátt. Yfir höfin á báðar hendur munu íslendingar vilja tengja þúsund þræði frelsis og gagnkvæmra menningaráhrifa." (Tíminn, 29. júlí 1939). Þegar þetta var skrifað vofði síð- ari heimsstyrjöldin yfir. Jónas taldi það líklega afleiðingu hennar, að ísland yrði að hefja nánari tengsl við Bandaríkin. Síðsumars 1938 fór hann í alllangt ferðalag til Banda- ríkjanna og Kanada. Hann reyndist raunsær, því að heimsstyrjöldin leiddi til náinnar samvinnu íslands við Bandaríkin. Hún hefur haldist síðan, en af hálfu íslendinga hefur það jafnan verið áréttað, að þeir vildu vera sjálfstæðir og geta haft samvinnu við allar þjóðir. Þetta áréttuðu þeir eftir styrjöldina með því að taka aftur upp sambandið við Norðurlönd og aðrar Evrópuþjóðir, án þess þó að slíta tengslin við Bandaríkin. Segja má að utanríkis- stefna íslendinga hafi verið orðuð best í Sóleyjarkvæði Einars Bene- diktssonar, þegar hann segir um Sóley: Áttvís á tvennar álfustrendur, einbýl, jafnvíg á báðar hendur, situr hún hafsins höfuðmið. Nú virðast vera vegamót, hvað þessa afstöðu varðar. I Vestur-Evr- ópu er að rísa upp nýtt stórveldi Nú virðast vera vegamót, hvað þessa afstöðu varðar. (Vestur-Evrópu er að rísa upp nýtt stórveldi Þjóðverja, Breta og Frakka sem gerir ís- landi þann kost að inn- limast í þetta nýja ríki og afsala sér fullveldi sínu. Þjóðverja, Breta og Frakka sem gerir íslandi þann kost að innlim- ast í þetta nýja ríki og afsala sér fullveldi sínu. Þeir sem vinna að þessari ríkishugmynd, vilja gera það að vamarbandalagi, sem slíti að mestu tengsli við Bandaríkin og gegni því hlutverki sem NATO hef- ur nú. Þetta gæti þýtt, að ísland yrði að slíta tengsli við Bandaríkin, ekki aðeins í öryggismálum, heldur einnig í viðskiptamálum, því að oft hefur legið við viðskiptastyrjöld milli Efnahagsbandalagsins og Bandaríkjanna. Við þessu eiga íslendingar ekki nema eitt svar. ísland vill ekki ein- angrast með hinu nýja ríki eða öðr- um ríkjum. í viðskiptamálum, efnahagsmálum og menningar- málum vill ísland vera jafnvígt á báðar hendur. Það vill vera sjálf- stætt og fulivalda ríki og njóta þeirrar sérstöðu sinnar að vera óháð öllum landamærum, en sú sérstaða hefur tryggt það að þeir eiga þúsund ára gamalt tungumál og fornbókmenntir, sem þjóðin les enn eftir mörg hundruð ár. íslendingar geta vel skilið þá af- stöðu Vestur-Evrópuþjóða að vilja sameinast um málefni Evrópu. Vegna legu landsins og annarrar sérstöðu á ísiand ekki heima þar. Það vill halda við tengslum til vest- urs ekki síður en til austurs. Og þau vamaðarorð geta þeir gefið Evrópuþjóðum að þær slíti tengsl- in við Bandaríkin. Tvívegis hafa Bandaríkin orðið að koma Evrópu- þjóðum til hjálpar. Evrópuþjóðirn- ar mega ekki láta þá sögu endur- taka sig í þriðja sinn. Þær eiga heldur að stefna að víðtækri vest- rænni samvinnu í stað einangraðr- ar evrópskrar samvinnu. Þótt Framsóknarflokkurinn taki afstöðu gegn innlimun íslands í hið nýja ríki er það síður en svo sprottið af andúð á Evrópu. Fram- sóknarmenn vilja hafa góða sam- vinnu við Evrópubandalagið á grundvelli þess fríverslunarsamn- ings, sem nú er á milli þess og ís- lands og gerður var af ríkisstjóm þar sem framsóknarmenn áttu bæði forsætisráðherra og utanrík- isráðherra. Á slíkum gmndvelli getur ísland haft gott samstarf við Evrópu- bandalagið, án þess að einangrast með því. Snjólaug Guðmundsdóttir: NÆG ATVINNA KVENNA ER FOR- SENDA BYGGÐAR UM ALLT LAND Forsenda fyrir sjálfstæði hverrar þjóðar er að hún varðveiti þá menningu sem þróast hefur með henni. íslendingar státa af glæst- um bókmenntaarfi sem þeir hafa lagt mikla rækt við. Það gleymist hins vegar oft að þjóðin byggir menningu sína ekki síður á þeirri verkmennt sem hefur þróast í aldanna rás og að mikilvægt er að hlúa að hinum verklega þætti menningarinnar og varðveita hann. Konur hafa gegnt og gegna enn í dag mikilvægu hlutverki við varð- veislu menningarinnar. Þær hafa átt stóran þátt í að ferja þjóðlegan fróð- leik, þekkingu og verkkunnáttu frá einni kynslóð til annarrar. Heimilisiðnaðar- ráðgjafar í leitinni að nýjum störfum hefur Kvennalistinn margoft bent á að smáiðnaður af ýmsu tagi er vænleg- ur kostur, ekki síst fyrir konur. Ein tegund smáiðnaðar er heimilisiðn- aður sem byggir bæði á íslenskri verkmennt og hráefni sem til fellur á heimilunum eða finnst úti í nátt- úrunni. Með auknum straumi ferða- manna, bæði íslenskra og erlendra, eykst þörfin fyrir vandaða handunna muni og minjagripi. Við höfum nú lagt fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um heimil- isiðnaðarráðgjafa þar sem lagt er til að forsætisráðherra verði falið að stofna embætti heimilisiðnaðarráð- gjafa til starfa á landsbyggðinni. Laun og annar kostnaður vegna starfsins verði greiddur úr ríkis- sjóði. Verkefni ráðgjafans verði m.a. að kanna stöðu heimilisiðnaðar og minjagripagerðar á landsbyggðinni, að leggja sérstaka áherslu á vinnslu íslensku ullarinnar með því að standa að tóvinnunámskeiðum og að veita faglega ráðgjöf með því að Það skiptir sköpum um framtíð byggðanna að átak sé gert í atvinnumálum kvenna á landsbyggðinni. Ef konurnar hafa ekki atvinnu leita þær annað og karlar fylgja á eftir. efna til námskeiða þar sem kunn- áttufólk leiðbeinir um rétt vinnu- brögð og handtök við gamla heimil- isiðnaðinn og mikilvægi þess að nota hráefni sem er sérstakt fyrir ís- land. Markmiðið með flutningi þess- arar tillögu er tvíþætt: Annars vegar að veita sköpunarþránni útrás um leið og þjóðfélagsleg verkmennt varðveitist, hins vegar að skapa ný atvinnutækifæri á landsbyggðinni. Komum til móts við þarfir kvenna Um árabil starfaði heimilisiðnaðar- ráðunautur á vegum Búnaðarfélags íslands sem vann ómetanlegt starf. Húsmæðraskólarnir unnu einnig gagnmerkt starf við handmenntir en síðan flestir þeirra voru lagðir af ef engin stofnun á vegum hins opin- bera sem sinnir þessu starfi sem skyldi. Nú eru orðin þau þáttaskil vegna breyttra heimilishátta og fólksfæðar á heimilum að verkkunnáttan berst ekki lengur sjálfkrafa milli kynslóða. Það skiptir því sköpum að þessi þátt- ur menningarinnar glatist ekki og einhver aðili hafi það hlutverk að hann varðveitist og þróist áfram. Kvennalistinn vill með þessari til- Snjólaug Guðmundsdóttir. lögu benda á mikilvægi þessa þáttar en ekki síður hitt að þessa kunnáttu og þekkingu má nýta til atvinnu- sköpunar um land allt. Vegna samdráttar í landbúnaði er nú þegar umtalsvert atvinnuleysi í sveitum og fyrirsjáanlegt að það muni enn aukast ef ekki verða fundnar nýjar leiðir til atvinnusköp- unar. Kannanir hafa sýnt að margar konur í sveitum komast oft ekki frá heimilum sínum til vinnu, en þær vilja og þurfa atvinnu sem styrkir tekjuöflun fjölskyldunnar. Atvinnu sem þær geta stundað heima og gef- ur möguleika á sveigjanlegum vinnutíma. Heimilisiðnaður sem at- vinnugrein uppfyllir mætavel þessar þarfir sveitakvenna. Framtíð byggðar í húfi Það skiptir sköpum um framtíð byggðanna að átak sé gert í atvinnu- málum kvenna á landsbyggðinni. Ef konurnar hafa ekki atvinnu leita þær annað og karlar fýlgja á eftir. Þróunin hefur orðið þessi í ná- grannalöndunum og hún verður og er nú þegar orðin sú sama hér á landi. Landsbyggðin þarf á allri þeirri atvinnu að halda sem völ er á. Þær hugmyndir sem upp koma um atvinnu jafnt stórar sem smáar þarf að athuga og reynist hugmynd raunhæf þarf að koma henni f fram- kvæmd með ráðgjöf og fjármagni. Kvennalistakonur telja ráðningu heimilisiðnaðarráðgjafa eina af þeim leiðum sem vænlegt er að fara til að virkja sköpunarþörf fólks og leiðbeina því við að koma hugmynd- um sínum í framkvæmd eftir farvegi sem byggir á þjóðlegri verkkunn- áttu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.