Tíminn - 08.11.1990, Page 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhusinu v Tryggvagotu.
S 28822
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
Ingvar
Helgason hf.
Sævartiöfða 2
Sími 91-674000
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER1990
Yfirmenn á fiskiskipum og útgerðarmenn ræddust við á stuttum fundi í gær:
FFSÍ ÍHUGAR TILBOÐ
FRA UTGERDARMONNUM
Útvegsmenn gerðu Farmanna- og fiskimannasambandinu tilboð
í gær um iausn kjaradeilunnar. Það tekur mið af samningi skip-
stjóra og stýrimannafélagsins Bylgjunnar og útvegsmanna á
Vestfjörðum. Annar fundur hefur verið boðaður á morgun og
virðast menn vera frekar bjartsýnir á að samkomulag takist fljót-
lega.
Útgerðarmenn buðu viðsemj-
endum sínum svipaðan samning
og samningur Bylgjunnar á Vest-
fjörðum. í þeim samningi er kom-
ið til móts við yfirmenn um að
lagfaera olíuverðskalann. Helstu
ákvæði samningsins eru þau, að
botn tengingar á olíuverði er
hækkaður úr 217 dölum í 235
dali, en var í þeim samningi, sem
var felldur, 225. Þá er gert ráð fyr-
ir því að kauptrygging og kauplið-
ir verði innan ramma þjóðarsátt-
ar.
Samningamenn hittust í Karp-
húsinu síðdegis í gær. Var fundur
þeirra stuttur og varð það að sam-
komulagi að hittast aftur í dag.
Haft var eftir Kristjáni Ragnars-
syni framkvæmdastjóra LÍÚ í
fréttum Ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi, að hann vonaðist til að
hægt yrði að leysa kjaradeiluna í
dag.
Guðjón A. Kristjánsson forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands sagði í sama frétta-
tíma, að hreyfing væri komin á
málin og sagðist hann eiga von á
því að það gæti leitt til einhvers
framhalds. „Útvegsmenn hafa
komið til móts við hugmyndir um
að breyta þessari olíuverðsteng-
ingu. Við viljum hins vegar ná
okkar samninganefndarmönnum
og formönnum saman til fundar á
morgun og ræða þessa stöðu.“
Það bendir því margt til þess að
verkfalli yfirmanna sé bægt frá og
þar með atvinnuleysi fjölda fisk-
vinnslufólks víða um land. Nú
hafa fréttir borist af því að starfs-
fólk í frystihúsum í Vestmanna-
eyjum hefur verið sagt upp störf-
um vegna hugsanlegs verkfalls,
alls um 400 manns. Þá hefur fisk-
vinnslufólki á Neskaupsstað og
Eskifirði verið sagt upp störfum af
sömu sökum og er búist við því, ef
ekki semst fljótlega, að fjöldi fisk-
vinnslufyrirtækja fylgi í kjölfarið.
Samkvæmt upplýsingum sem
Tíminn hefur greint frá, má búast
við því, að ef til verkfalls yfir-
manna á fiskiskipum kemur,
muni um 9000 manns verða at-
vinnulausir í jólamánuðinum.
Það er því von að margir bíði í
spenningi eftir niðurstöðu þess-
ara samningaviðræðna.
-hs.
Viðræður um kröfur Spánverja um veiðiheimildir:
Jón Sigurðsson
hittir Gonzalez
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra fer utan til Spánar, til við-
ræðna við ráðamenn þar um þá kröfu Spánverja, að samning-
ar milli EB og EFTA tryggi aðgang að fiskimiðum íslendinga.
Eru þessar viðræður tilkomnar vegna þess að Jóni Baldvin
Hannibalssyni formanni Alþýðuflokksins var boðið á flokks-
þing spænskra jafnaðarmanna. Hann kemst hins vegar ekki
og fer því Jón Sigurðsson í hans stað.
Spænskir jafnaðarmenn halda af þeirra kröfu, þá væri verið að úti
flokkþing sitt dagana 8. til 11. nóv-
ember. „Þangað var mér boðið, svo
sem siður er í bræðralaginu, en þar
sem þetta ber upp á sömu daga og
við höfum umræður um skýrslu ut-
anríkisráðherra, á ég ekki heiman-
gengt. Nú hefur hins vegar verið frá
því gengið að viskiptaráðherra fari í
minn stað“, sagði Jón Baldvin í
samtali við Tímann. Viðskiptaráð-
herra mun ná viðræðum við Gonz-
alez forsætisráðherra Spánar og ut-
anríkisráðherrann, auk þess verður
sá sem fer með sjávarútvegsmál
Spánverja kvaddur til.
Jón Baldvin §agði þennan fund
vera fyrst og fremst til þess að skýra
út stöðu EFTA/EB viðræðnanna og
ræða kröfur Spánverja um veiði-
heimildir í íslenskri lögsögu. „Við
gerum þeim grein fyrir því hvers
vegna þessi krafa er óaðgengileg og
ósanngjörn, sem er vegna þess að
jafnvægiö í heildarsamningnum er
Spánverjum mjög í hag. Þeir fá að
sjálfsögðu greiðan aðgang með all-
ar sínar iðnaðarvörur á mörkuðum
EFTA ríkjanna. Jafnframt hefur
verið tekið vel í það að greiða fyrir
auknum innflutningi suðrænna
matvæla. Þeir virðast ekki hafa átt-
að sig á því, að ef íslendingar væru
útilokaðir með 78% af sínum vöru-
útflutningi, eins og myndi hljótast
loka ísland frá samstarfi Evrópu-
þjóðanna."
Jón taldi þennan fund geta orðið
þýðingamikinn, ekki síst á þessum
tíma þar sem EB er ekki búið að
taka þessar kröfur upp. „Oft á tíð-
um er það svo, þegar nálgast samn-
ingalok, að persónulegar viðræður
æðstu áhrifamanna skila árangri.
Það sakar ekki að reyna", sagði
hann að lokum.
-hs.
Heldur þurfti hann að flýta sér inn í Heiðrúnu, verslun ÁTVR við Lyngháls, ökumaður bifreiðarinnar á
myndinni. Hann var ekki fýrr farinn inn heldur en að bifreiðin rann sem lelð lá niður eftir bflaplaninu og
endaði út í heldur haustlegu tijábeði þar sem öflug girðing stoppaði hana. Timamynd: Áml Bjama
Dagsbrúnarmenn taka ákvörðun um það í dag hvar þeir ætli að ávaxta milljónir sínar.
SPRON og Landsbankinn eru sagðir koma til greina en aðrir eru sterklega inni í myndinni:
Fara Dagsbrúnarsjóðir
í Sparisjóð vélstjóra?
Búist er við að Dagsbrúnarmenn
taki ákvörðun um það í dag hvar
þeir aetla að ávaxfa þær milljónir
sem þeir tóku út úr íslandsbanka
sl. þriðjudag. Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Dagsbrúnar
sagðí að tveir sparisjóðir í Reykja-
vík kæmu til greina og einnig
Landsbanid íslands.
108 milljón króna ávísunin, sem
Guðmundur Ágústsson útibús-
stjóri íslandsbanka á Laugavegi
31 afhenti Guðmundi J., var inn-
leyst samdægurs í Sparisjóðl Vél-
stjóra en Guðmundur J. sagði að
það hefði verið gert án alhra skuld-
bindinga. Sparisjóður Vélstjóra
væri inn í myndinni, Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis kæmi
lika tíl greina og síðast en ekki
síst Landsbanki íslands. Hann
sagðist ekM geta í gær sagt hver
þeirra yrði fyrir valinu en það
myndi koma í ljós í dag. —SE
Vestmannaeyjar:
Smygl í Klakki
Tollverðir í Vestmannaeyjum lögðu
í lyrrakvöld hald á mikið magn af
smygivarningi í togaranum Klakki
VE. Frá þessu var greint í útvarps-
fréttum í gær. Togarinn var að koma
úr söluferð frá Bremarhaven. Við
leit í togaranum fundust tæplega
1300 kfló af kjöti, svína- nauta- og
fuglakjöti. Þar voru einnig tveir
frystiskápar, tvær uppþvottavélar og
ein þvottavél. Kjötið hefur þegar
verið brennt svo sem lög gera ráð
fyrir. Málið er nú í höndum bæjar-
fógetans í Vestmannaeyjum. Taliö er
að flestir í áhöfn Klakks tengist mál-
mu.