Tíminn - 14.11.1990, Page 15
Miðvikudagur 14. nóvember 1990
Tíminn 15
IÞROTTIR
r
Handknattieikur:
Gústaf hættur
með Framara
Gústaf Björnsson er hættur
sem þjálfari 1. deildar liðs Fram í
handknattleik. Þetta er niður-
staða viðræðna stjórnar deildar-
innar og Gústafs um síðustu
helgi og bein afleiðing af slæmri
stöðu liðsins í 1. deildinni.
Ekki hefur verið ráðinn þjálfari í
stað Gústafs, en unnið er að því
máli og til greina kemur að fá er-
lendan þjálfara til liðsins.
Þorbergur Aðalsteinsson lands-
liðsþjálfari mun verða Fram inn-
an handar við þjálfun meðan ekki
er fundinn arftaki Gústafs.
BL
Körfuknattleikur-NBA:
Enn tapar lið
Denver Nuggets
Enn heldur lið Denver Nuggets
áfram að tapa leikjum í NBA-
deildinni og eru tapleikirnir nú
orðnir 6 talsins í jafnmörgum
leikjum, þrátt fyrir að liðið skor-
ar um 140 stig að meðaltali í leik.
Portland Trail Blazers er nú eina
taplausa liðið í NBA- deildinni,
en efstu lið riðlanna eru Boston
Celtics, Atlanta Hawks, Dallas
Mavericks og Portland Trail Blaz-
ers.
Úrslitin um helgina urðu þessi:
Föstudagur:
Chicago Bulls-Boston Celtics ....120-100
Indiana Pacers-Cleveland Cav. ...122-107
Minnesota T.W.-Charlotte Horn. 106- 77
Milwaukee Bucks-Washington B.,,108-100
Dallas Mavericks-Orlando Magic 111- 99
Seattle Supers.-Denver Nugg. ...135-129
Colden State Warr.-Atlanta H.143-128
LA Lakers-Sacramento Kings ..100- 86
Portland Trail BI.-Detroit P..113-101
Laugardagur:
Cleveland Caval.-Philadelphia ...140- 88
Miami Heat-Indiana Pacers....120-105
Boston Celtics-N.Jersey Nets.105- 91
Chicago Bulls Charlotte Hom. ...105- 86
SASpurs-Houston Rockets......111-110
Phoenix Suns-Denver Nuggets .173-143
Atlanta Hawks-LAClippers.112- 94
N.Y.Knicks-Sacramento Kings ....93- 88
Golden State W.-Saettle Sup 117-100
Sunnudagur:
Minnesota T.W.-Orlando Magic .108- 81
Houston Rockets-Utah Jazz....110- 90
Portland TYail Bl.-LAClipp...138-107
N.Y.Knicks-LALakers..........109-103
Mánudagur:
Washington Bullets-NJ.Nets.97- 92
BL
Knattspyrna:
Mölby fer ekki
til Barcelona
Samningar um sölu Liverpool
á danska landsliðsmanninum
Jan Mölby til Barcelona sigldu í
strand á mánudag. Barcelona
vildi greiða 1,5 milljónir punda
fyrir Mölby, en spænska liðinu
tókst hvorki að ná samkomulagi
við Mölby né Liverpool. Það sem
einkum varð til þess að ekki
gekk saman var krafa Liverpool
að Barcelona greiddi alla upp-
hæðina út í hönd við undirrit-
un.
BL
Enginn austur-vestur
leikur í Leipzig
Ekkert verður úr landsleik Aust-
ur- og Vestur-Þýskalands sem
fram átti að fara í Leipzig í næstu
viku. Ástæðan eru ólæti sem ný-
lega hafa orðið í austurhlutan-
um, en 18 ára piltur lét lífið og
annar særðist, þegar lögreglan
hóf skothríð á ólátaseggi. Hugs-
anlega verður leikurinn leikinn
annars staðar í Þýskalandi, en
þessi leikur á að vera síðasti
landsleikur þýsku ríkjanna sitt í
hvoru lagi.
/ BL
V.
Handknattleikur:
KR-ingar engin hindrun
fyrir háfleyga Víkinga
Víkingar unnu sinn 11. sigur í jafn-
mörgum leikjum í 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöld. Þeir eru
því enn með fullt hús stiga á toppi
deildarinnar. í þetta sinn voru það
KR-ingar sem máttu sætta sig við
tap gegn hinum háfleygu Víking-
um, 17-25. Það sem minnisstæð-
ast er úr leiknum er afar slök dóm-
gæsla þeirra Gunnars Kjartansson-
ar og Áma Sverrissonar, en þeir
voru áberandi lélegustu menn vall-
arins í gærkvöld.
Fyrri hálfleikur var jafn iengst af,
KR-ingar komust þrívegis yfir, 1-0,
2-1 og 9-8. Víkingar höfðu lengst af
1-3 marka forskot, en í leikhléi var
munurinn 2 mörk 12-14.
Víkingar gerðu út um leikinn í
upphafi síðari háifleiks, náðu fjót-
lega 6 marka forystu 14-20 og þann
mun náðu KR-ingar ekki að brúa.
Reyndar voru KR-ingar 1-2 leik-
mönnum færri mestallan síðari
Heimasigrar á
Sauðárkróki
og í Grindavík
Tindastóll sigraði Val 77-61 í úrvals-
deildinni í körfuknattleik á Sauðárkróki
í gærkvöld. í leikhléi höfðu heimamenn
10 stiga forystu, 45-35.Sverrir Sverrisson
var stigahæstur Tindastólsmanna með
23 stig, en hjá Val var Magnús Matthías-
son stigahæstur með 15 stig.Grindvík-
ingar unnu sinn sjötta sigur í röð í deild-
inni í gærkvöld er þeir unnu Þórsara á
heimavelli sínum 97-79. Heimamenn
gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik, voru
yfir 60-33 í leikhléi og norðanmenn áttu
ekki viöreisnar von í síðari hálfleik.
Sturla Örlygsson, þjálfari Þórs, lék ekki
með liði sínu í gærkvöld, tók út fyrri leik-
inn af tveggja leikja banni sem hann var
dæmdur í fyrir skömmu. Sturla verður
einnig í banni þegar Þór mætir Val á Ak-
ureyri á sunnudag. BL
Robin
Rafstöðvar
OG
dælur
FRÁ
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason ht
Sævarhöfða 2
Simi 91-674000
hálfleik, vegna brottvísana, og gerði
það þeim enn erfiðara um vik. Loka-
tölur voru 17-25.
Leikmenn létu dómarana mjög fara
í taugarnar á sér og tuð kostaði að
minnsta kosti tvo KR-inga brottvís-
un. Þá fékk Birgir Sigurðsson Vík-
ingur að sjá rauða spjaldið skömmu
fyrir leikslok, af sömu ástæðu.
Víkingsliðið þurfti ekki að sýna
neinn stórleik til að leggja KR-inga í
gær. Liðið var jafnt að getu, en Birg-
ir var þeirra besti maður. Hjá KR
voru þeir Sigurður Sveinsson og
Konráð Olavsson bestir.
Víkingar hafa nú 22 stig í efsta sæti
deildarinnar, en KR-ingar hafa 11
stig í 6. sætinu.
Eins og áður segir var frammistaða
dómaranna, þeirra Gunnars og
Árna, mjög slök.
Mörkin KR: Konráð 5, Sigurður 4,
Guðmundur 4, Páll 2, Björgvin 1 og
Willum 1. Víkingur: Trufan 6/4, Árni
6/3, Birgir 5, Guðmundur 3, Bjarki
2, Karl 2 og Dagur 1. BL
Jónasson gerði síðasta mark
Víkinga í 25-17 sigri liðsins á KR
í gærkvöld. Tfmamynd Pjetur
vsk.i?
w irðisaukaskattur af vinnu manna
sem unnin er á byggingarstað íbúðarhús-
næðis er endurgreiddur.
Endurgreiðslan nær til:
• Vinnu manna við nýbyggingar
íbúðarhúsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjufram-
leiddra íbúðarhúsa.
• Vinnu manna við endurbætur eða
viðhald á íbúðarhúsnæði.
Endurgreiðslu fá þeir sem byggja á eigin
kostnað íbúðarhúsnæði sem ætlað ertil
sölu eða eigin nota á eigin lóð eða
leigulóð.
Sækja skal um endurgreiðslu á sérstökum
eyðublöðum til skattstjóra í því umdæmi
sem lögheimili umsækjandans er.
Eyðublöðin eru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis
til sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging íbúðarhúsnæðis
til eigin nota.
thygli skal vakin á því að um-
sækjandi verður að geta lagt fram umbeð-
in gögn, t.d. sölureikninga þar sem skýrt
kemur fram hver vinnuþátturinn er og að
vinnan sé unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil vegna nýbyggingar og
verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa er tveir
mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl
o.s.frv. Umsókn skal berast skattstjóra
fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir að
uppgjörstímabili lýkur.
Uppgjörstímabil vegna endurbóta eða
viðhalds er aldrei styttra en almanaksár.
Umsókn skal berast skattstjóra eigi síðar
en 15. janúar árið eftir að endurbætur eða
viðhald áttu sér stað.
Nánari upplýsingar veita RSK og skatt-
stjórar um land allt.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓR!