Tíminn - 23.11.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 23. nóvember 1990
Tíminn 5
Á morgun á að Ijúka endurskoðun kjarasamnlnganna. ASÍ og VSÍ vilja framlengja
óbreytt, en BSRB vill gera lagfæringar. BSRB heldur tveggja daga formannafund:
Hefur einhver hug á aö
sprengja þjóðarsáttina?
Nokkurs titrings gætir nú hjá forystumönnum verkalýðshreyfingar
og vinnuveitenda sem þessa daga eru að vinna að endurskoðun gild-
andi kjarasamninga. BSRB hefur gert kröfu um að inn í samning-
ana verði sett traustari ákvæði um tryggingar og ákvæði um hlut-
deild í hugsanlegum viðskiptakjarabata, en VSí og ASÍ telja óþarft
að gera neinar breytingar á samningunum. Vinnuveitendur segjast
undrandi á kröfum BSRB og benda á að endurskoðunarákvæðin
hafl verið sett inn í samningana til að gera leiðréttingu ef forsend-
ur þeirra brygðust. Það hafi ekki gerst og því beri að framlengja
samningana óbreytta.
BSRB hélt formannafund í gær og
honum verður framhaldið í dag.
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB sagði að á fundinum hefðu
kjaramálin verið rædd á breiðum
grundvelli. Umræður um endur-
skoðun samninganna hefðu beinst
að því að fá traustari tryggingar og
hlutdeild í hugsanlegum viðskipt-
akjarabata. Engar nýjar kröfur
hefðu verið settar fram.
Fyrsta Umferðaþing á islandi var sett í gær að Borgartúni 6. Á myndinni sjáum Guðmund Bjamason, heil-
brígðis- og tryggingamálaráðherra, ávarpa þingið. Á gólfinu sitja leikskólaböm, sem stuttu áður höfðu gengið
fýlktu liði inn í salinn, haldandi á spjöldum með áhersluatriðum til bættrar umferðar og syngjandi lag um um-
ferðina. Umferðaþinginu verður áframhaldið í dag.
Umferðaþing:
Umferðaslys kosta
rúma 5 milljarða
„Ég vil ekki orða það þannig að við
séum að setja fram kröfu um breyt-
ingar á samningnum. Það stendur
yfir endurskoðun á samningunum
núna og endurskoðun þýðir nátt-
úrulega endurskoðun," sagði Ög-
mundur. Hann sagði að menn væru
ekki komnir á neinar niðurstöður í
þessu máli, en ýmsar útfærslur á
kröfum BSRB hefðu verið ræddar.
Hannes Sigurðsson hagfræðingur
hjá VSÍ sagðist mjög undrandi á
kröfum BSRB. „Það er ákaflega ein-
kennilegt að fara að segja upp þess-
um kjarasamningi þegar allar meg-
inforsendur hans hafa staðist. Þessi
endurskoðunarákvæði voru sett
inn í samningana til þess að hægt
væri að bregðast við af allt hefði
farið á verri veg. Það hefur ekki
gerst og þess vegna eru menn alveg
hvumsa yfir þessum látum í
BSRB,“ sagði Hannes.
Ögmundur sagðist vera sammála
Hannesi um að allar forsendur
samninganna hefðu staðist. Hann
sagðist hins vegar vilja benda á að
við Persaflóann ríkti núna stríðs-
ástand sem hæglega gæti haft þau
áhrif að forsendur kjarasamning-
anna breyttust á næstu vikum eða
mánuðum íslensku launafólki í
óhag. Ögmundur sagði einnig
hugsanlegt að verð á olíu myndi
lækka hratt næstu vikur sem þýddi
betri viðskiptakjör. Hann taldi eðli-
legt að samtök launafólks vildu slá
inn varnagla þannig að fólk gæti
fengið hlutdeild í þessum bata.
Ögmundur sagði að á fundi BSRB
hefði komið fram nokkur óánægja
með hvernig vissir „sjálfsaf-
greiðsluhópar", eins og hann orð-
aði það, hafa náð að hagnast á þjóð-
arsáttinni. Hann sagði óánægjuna
ekki síst beinast gegn bönkunum
og því að ekki hafi tekist að lækka
raunvexti á þessu ári.
Það mátti heyra það á Hannesi G.
Sigurðssyni að hann væri undrandi
á því að BSRB kallaði saman for-
mannafund svo skömmu áður en
ganga ætti frá endurskoðuðum
samningum. Hann sagði að sam-
kvæmt kjarasamningunum væri
það launanefndir sem aettu að sjá
um endurskoðunina. Ögmundur
sagði að Hannes sýndi ekki mikinn
skilning á uppbyggingu verkalýðs-
hreyfingarinnar ef hann teldi óeðli-
legt að forysta BSRB kysi að hafa
samráð við einstök félög um þetta
mál.
„Við eru ekki að fara að sprengja
neina þjóðarsátt, en við ætlum okk-
ur að fylgjast með því hvort aðrir
hafi áhuga á að gera það. Það er
komið undir okkar viðsemjendum
hvort þeir ætla með óbilgirni að
koma í veg fyrir að samningurinn
verði endurskoðaður í samræmi við
aðstæður," sagði Ögmundur.
ASÍ hefur ekki sett fram neina
kröfur um breytingar á samning-
unum. Það er því ekkert til fyrir-
stöðu að ASÍ og VSÍ gangi frá end-
urskoðuðum samningum. Forystu-
menn þessara aðila treysta sér hins
vegar ekki til að gera það án sam-
ráðs við BSRB. Þetta eru jú einu
sinni þjóðarsáttarsamningar og
einn af aðalhöfundum þeirra er Ög-
mundur Jónasson formaður BSRB.
Nái BSRB fram breytingum á
samningi sínum við ríkið telja
menn best að sambærileg breyting
sé gerð á öðrum kjarasamningum.
Vinnuveitendur óttast að fjármála-
ráðherra áformi að hækka skatta á
fyrirtæki. Hannes segir að ef slík
áform nái fram að ganga muni það
leiða til hærra verðlags og þar með
verði erfiðara að ná þeim markmið-
um sem menn hafa sett sér í kjara-
samningunum. „Menn verða taka
mið af því að við erum í þrælvísi-
tölubundnu kerfi og hver einasta
hækkun á óbeinum sköttum leiðir
af sér hækkun á launum hinn 1.
júní næstkomandi," sagði Hannes.
Óvíst er hvað gerist, náist ekki
samkomulag fyrir 24. nóvember.
Hvor aðili sem er getur sagt samn-
ingunum upp. Geri vinnuveitendur
það fá launþegar umsamda launa-
hækkun 1. desember, en geri verka-
lýðshreyfingin það tapar hún af
launahækkuninni 1. des.
-EÓ
Kostnaður þjóðfélagsins af völd-
um umferðaslysa 1989 var 5.239
milljónir kr., samkvæmt útreikn-
ingum Láru Margrétar Ragnars-
dóttur hagfræðings Ríkisspítal-
anna, sem er um helmingur af öll-
um tekjuskatti ársins 1989. Einn-
ig er þessi kostnaður meira en
kostnaður fyrir alla grunnskóla
landsins sama ár en samkvæmt
fjárlögum er sá kostnaður áætlað-
ur um 4.3 miljarðar kr.
Þessar tölur yfir kostnað af völd-
um umferðaslysa komu fram í er-
indi Láru sem hún flutti á Umferða-
þingi sem sett var í gær að Borgar-
túni 6. Einnig kom fram í erindi
hennar að heildarfjöldi slasaðra í
umferðinni 1989, reiknaður frá
tíðnitölum Borgarspítalans og upp-
reiknað um 100% fyrir allt landið,
var 3986 manns. Látnir í umferð-
inni voru alls 28 manns.
Þættir, sem Lára mat við útreikn-
inga sína, voru: 1. Læknishjálp,
sem miðuðust við læknisverk
vegna annars vegar meiri háttar
slasaðra sem ekki lögðust inn á
spítala og hins vegar minni háttar
slasaðra. Sá kostnaður reyndist
vera 50 milljónir kr. 2. Sjúkravist,
sem kostaði alls 174 milljónir kr.
Við bráðainnlögn var miðað við nú-
virði legudags á handlækninga-
deildum Rsp og Bsp 25 þúsund
krónur. 3. Slysabætur tryggingafé-
lags, 1.020 milljónir kr. Þessi tala
miðast við áætlun Tryggingaeftir-
lits tryggingafélaganna frá í febrúar
1990 og framreiknað til verðlags í
nóv. 1990. 4. Eignabætur, 2.400
milljónir kr. Þær miðuðust einnig
við áætlun Tryggingaeftirlits trygg-
ingafélaganna frá í febrúar 1990 og
framreiknað til verðlags í nóv.
1990. 5. Tekjutap, 1435 milljónir
kr. Reiknað var núvirði ævitekna
miðað við meðaltekjur kr. 85 þús. á
mánuði og launatengd gjöld 30%.
Einnig var reiknað með arðsemi til
framleiðslu 5%. Töpuð tekjuár lát-
inna voru miðaðar við meðalaldur á
bilinu 20-60 ár og voru áætluð töp-
uð tekjuár þessa hóps að meðaltali
30. Töpuð tekjuár látinna undir tví-
tugu voru áætluð að meðaltali 40
ár. Gert var ráð fyrir 30 ára tekju-
tapi þeirra 5 aðila sem áætlaðir
voru 75% öryrkjar. Tekjutap meiri
háttar slasaðra var áætlað að með-
altali 3 mánuðir en lítið slasaðra 2
dagar. 6. Tryggingabætur ríkisins,
80 milljónir kr. skv. tölum frá
Tryggingastofnun ríkisins. 8.
TVyggingabætur ýmissa, 80 millj-
ónir kr. áætlaður út frá tölum í
grein Brynjólfs Mogensen læknis.
Meðal þátta sem ekki voru teknir
inn í reikninga Láru voru: Tekjutap
aðstandenda, útlagður óskráður
beinn kostnaður einstaklinga vegna
slyss eða afleiðingar þess, lífeyrir og
útgjöld vegna hjálpartækja og sér-
búnaðar við örorku. khg.
RÍKISSKATTSTJÓRI
FLYTURAÐ LAUGAVEGI166
Frá og með miðvikudeginum 28. nóvember verðuröll starfeemi
embœttis ríkisskattstjóra til húsa að Laugavegi 166, Reykjavík.
Vegna flutninganna verða skrifetofur embœttisins lokaðar
dagana 26. og 27. nóvember nk.
| Nýtt símanúmer frá 28. nóvember verðun
' 91-631100
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI