Tíminn - 27.11.1990, Síða 5
Þriðjudagur 27. nóvember 1990
Tíminn 5
Forsætisráðherra segir góðar líkur á að öíl verðlagsmarkmið ríkisstjórnarinnar
náist eftir að aðilar vinnumarkaðarins ákváðu að framlengja þjóðarsáttina:
ÞJÓDARSÁTT VERÐUR
NÆSTU NÍU MÁNUÐI
Um helgina gengu aðilar vinnumarkaðarins í samvinnu við ríkis-
stjómina frá samkomulagi sem tryggir að framhald verður á kjara-
samningunum sem kenndir eru við þjóðarsátt. í samkomulaginu er
gengið út frá því að verðbólga á næsta árí verði 7%, bensínverð
haldist óbreytt á árínu og búvöruverð hækki minna en verðlag. Laun
hækka um 2,83% um næstu mánaðamót og búvörur um u.þ.b. 1%.
„Ég er mjög ánægður með þessa
samninga og tel að góðar Iíkur séu á
að þau verðlagsmarkmið, sem við
höfúm sett okkur fram í september
á næsta ári, náist. Það er mikilvægt
að menn setjist fljótlega niður og
setji sér markmið lengra fram í tím-
ann,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra.
Steingrímur hélt fund með aðilum
vinnumarkaðarins fyrir rúmri viku
þar sem farið var yfir þessi mál öll.
Fjármálaráðherra ræddi ítarlega við
þessa sömu aðila í lok síðustu viku
og um helgina. Vinnuveitendur
töldu brýnt að fá skýr svör hjá ríkis-
stjórninni um áform hennar í
skattamálum. Forsætisráðherra
sagði ljóst að ríkissjóður yrði að
gæta sín á öllum sviðum, ekki síst í
skattamálum. Hann sagðist vona að
það samstarf sem tekist hefur milli
ríkisstjórnarinnar og aðila vinnu-
markaðarins tryggi að unnið verði af
skynsemi að skattamálum.
í fjárlagafrumvarpinu er miðað við
að hækkanir á opinberri þjónustu
sem ráðgerðar eru á árinu komi til
framkvæmda í upphafi næsta árs. í
samkomulaginu sem tókst um helg-
ina er miðað við að þeim verði dreift
yfir allt árið. Forsætisráðherra sagði
ekkert nýtt að það þurfi að fresta
hækkunum á opinberri þjónustu.
Hann sagðist ekki telja að því fylgdu
nein óleysanleg vandamál.
Miðað er við að verð á bensíni verði
óbreytt út árið. í kjölfarið á hækk-
andi bensínverði í haust ákvað ríkis-
sjóður að afsala sér til áramóta
ákveðnum hluta af bensínverðs-
hækkun. Steingrímur sagði að
væntanlega yrði framhald á þessu
þangað til verð á bensíni lækkar aft-
Árni Gunnarsson
fram á Suöurlandi
Ámi Gunnarsson, alþingismaður
Norðurlandskjördæmis eystra, ætl-
ar að gefa kost á sér í efsta sæti
lista Alþýðuflokksins í Suðurlands-
kjördæmi. Tveir aðrir eru búnir að
lýsa því yfir að þeir gefi kost á sér á
lista flokksins á Suðurlandi, en það
eru þeir Þorbjöm Pálsson og Guð-
laugur TVyggvi Karlsson hagfræð-
ingur.
Að sögn Þorbjörns Pálssonar, for-
mann kjördæmisráðs Alþýðuflokks-
ins á Suðurlandi, verður kjördæmis-
þing Alþýðuflokksins á Suðurlandi
haldið 1. desember n.k. og verður þá
tekin ákvörðun um hvernig tekið
verður á framboðsmálum flokksins
á Suðurlandi. Til greina kemur að
halda prófkjör eða þá að kjördæmis-
ráð komi sér saman um niðurröðun
listans. Þorbjörn kvað það líklegt að
fleiri myndu gefa kost á sér á listann
nú um helgina eftir að kjördæmis-
þing hefði verið auglýst.
Sá orðrómur hefur verið á kreiki að
Óli Þ. Guðbjartsson dómsmálaráð-
herra sé á leiðinni yfir í Alþýðuflokk-
inn og muni þá líklega gefa kost á
sér á Suðurlandi.
khg.
LEITUÐU LYFJA
OG STÁLU BÍL
Aðfaranótt laugardags stöðvaði lög-
reglan á Akureyri bfi á Ólafsfjarðar-
vegi rétt norðan Akureyrar vegna
gmns um að „stútur væri undir
stýri“. Ökumaður og farþegi hans
reyndust báðir ölvaðir, og við nán-
ari eftirgrennslan kom í ljós að þeir
höfðu stolið bflnum.
Við yfirheyrslur játuðu mennirnir
tveir, sem eru Akureyringar, að fyrr
um nóttina hefðu þeir brotist inn í
togara við Akureyrarhöfn í þeim til-
gangi að stela lyfjum. Mennirnir
fundu þó ekki sjúkrakassann, og
urðu frá að hverfa þegar vaktmaður
kom um borð. Þá lá leiðin upp Eyr-
ina, þar sem mennirnir stálu bfl og
hugðust bregóa sér bæjarleið, en
voru síðan gómaðir rétt utan bæjar-
markanna.
Málið er fullrannsakað, og hefur
verið sent til saksóknara til umfjöll-
unar.
hiá-akureyri
Hörður lætur af störfum
Hörður Helgason, sendiherra í
Kaupmannahöfn, lætur af störfum
í utanrfldsþjónustunni að eigin ósk
frá og með næstu áramótum, segir
í fréttatilkynningu frá Utanríkis-
ráðuneytinu.
Ingvi S. Ingvason, sendiherra í
Washington, tekur við störfum
sendiherra íslands í Kaupmanna-
höfn og Tómas Á. Tómasson, sem
gegnt hefur starfi sendiherra á af-
vopnunarráðstefnunni í Vínarborg,
tekur við störfum sendiherra íslands
íWashington. —GEÓ
ur. Hann sagðist telja að þessar og
aðrar kvaðir sem ríkissjóður tók á
sig um helgina séu ekki það stórar
að gera verði miklar breytingar á
fjárlagafrumvarpinu.
Samkvæmt kjarasamningunum
sem undirritaðir voru í febrúar síð-
astliðnum var ákveðið að setja á
stofn sérstakar launanefndir. Hlut-
verk þeirra var m.a. að endurskoða
meginförseridur samninganna fyrir
síðari hluta samningstímans. End-
ursKoðuninni átti að vera lokið fyrir
24. nóvember. Launanefndirnar
náðu samkomulagi um helgina um
að framlengja samningunum með
breytingum í þremur liðum.
Samkvæmt útreikningum kaup-
gjaldsnefndar er framfærsluvísitala í
nóvember 148,2 stig, en í kjara-
samningunum var miðað við að hún
yrði 147 stig. Þessi hækkun verður
bætt. Laun opinberra starfsmanna
hækka 1. desember um 2,55%, en
laun fólks sem þiggur laun sam-
kvæmt ASÍ-samningum hækka um
2,83%. Skýringin á þessum mismun
er að við síðasta rauða strik hækk-
uðu laun hjá BSRB strax um 0,27%,
en ASÍ ákvað að láta hækkunina
Níunda umferð Ólympíuskák-
mótsins var tefld í gær. Á fyrsta
borðl teíldi Helgi Óiafsson gegn
Sokolov. Helgi, sem stýröi svörtu
mönnunum, tapaði skákinni.
Á öðru borði tefldi Margeir Pét-
ursson við Velimirovic, sem
stýrði svörtu mönnunum. Skák-
in var mjög jöfn og hörð og fór í
blð eftir 55 leiki.
Á þriðja borði tefldu Jóhann
Hjartarson og Ivanovic sem hafði
hvítt. Skákin var í jafnvægi og
lyktír urðu þær að skákmennirn-
koma til framkvæmda nú. Laun áttu
samkvæmt kjarasamningum að
hækka um 2%.
Gengið var út frá því í gildandi
samningum að búvöruverð héldist
óbreytt til 1. desember 1990. Þetta
hefur gengið eftir. Reyndar hafa bú-
vörur ekki hækkað síðan 1. desem-
ber í fyrra sem þýðir verulega raun-
lækkun. Búvörur munu um næstu
helgi hækka um 1%. Gengið er út
frá því að landbúnaðarvörur hækki
minna en almennt verðlag á næsta
ári. Til þess að þetta mætti takast
hétu stjórnvöld því um helgina að
haga niðurgreiðslum á þann veg að
þær leiddu til lægra búvöruverðs og
einnig að lækka kjarnfóðurgjald um
helming frá næstu áramótum.
Þessa dagana er verið að reikna út
verðbreytingar á búvörum. Breyt-
ingarnar verða mismiklar, en búist
er við að þær verði innan við 1%.
Lækkun kjarnfóðurgjalds ræður
mestu um að hækkunin verður ekki
meiri. Þrátt fyrir helmings lækkun á
gjaldinu er tollur á kjarnfóðri ennþá
105%. Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, sagði að gagnrýni formanns
ir sömdu um jafntefll í 24. leik.
Á sömu lund fór skák þeirra
Björgvins Jónssonar og Lalic.
Björgvin var talinn hafa heldur
rýmra tafl. Hann þáði þó jafntefl-
isboð í 24. leik.
Eftir m'undu umferð er röðin
þessi: 1. sæti Sovétrfldn, 2. sæti
England, 3. sæti V-Þýskaland, 4.-
5. Tékkóslóvakía — Júgóslavía,
6. -9. BNA — Búlgaría — A-
Þýskaland — Kúba, 10.-11. sæti
ísland — Svíþjóð.
félags fóðurbænda á þessari lækkun
ætti því ekki við rök að styðjast. Inn-
lend fóðurframleiðsla yrði áfram
mikið vernduð. Hákon sagði að
stefnt væri að því að lækka kjarnfóð-
urgjaldið meira síðar á þessu ári.
Þá gerðu launanefndirnar sérstaka
bókun um viðskiptakjör. Þar segir
að vegna þeirrar sérstöku óvissu um
þróun viðskiptakjara sem er afleið-
ing olíuverðshækkana, séu samn-
ingsaðilar sammála um að taka við-
skiptakjörin til sérstakrar skoðunar
í febrúar og maí. Hafi þau batnað
með marktækum hætti umfram for-
sendur samninga, munu aðilar í
sameiningu taka afstöðu til þess á
hvern veg launafólki verði veitt
hlutdeild í þeim viðskiptakjarabata
sem verða kann umfram forsendur
samninganna á síðari hluta samn-
ingstímans.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði mjög mikilvægt að fá
fram opnun á hugsanlegan við-
skiptakjarabata. Hins vegar væri
miður að ekki hefðu fengist fleiri
rauð strik. Hann sagði slík strik
nauðsynleg, því að með þeim skap-
aðist meira aðhald í verðlagsmálum.
Samkvæmt kjarasamningunum er
aðeins eitt rautt strik eftir, en það er
í maí. Næsta launahækkun eftir
þessa verður í mars, en þá hækka
laun um 2,5%.
„Við tókum þátt í því að skapa þessa
þjóðarsátt og nú höfum við tekið
ákvörðun um að ganga ekki frá því
verki. Það þurfa allir að taka hönd-
um saman um að keyra niður verð-
lag, því að aðeins með því móti verð-
ur kaupmátturinn treystur. Með því
að neita okkur um fleiri rauð strik
voru atvinnurekendur, riki og sveit-
arfélög að taka ákvörðun um að axla
meiri ábyrgð í verðlagsmálum en
ella. Verðhækkun á vöru og þjón-
ustu þýðir kaupmáttarrýrnun hjá al-
mennu launafólki. Þess vegna er
krafan núna: Ekkert bruðl á okkar
kostnað," sagði Ögmundur Jónas-
son. -EÓ
Ólympíuskákmótiö:
Tap, jafntefli og bið
RÍKISSKATTSTJÓRI
FLYTURAÐ LAUGAVEGI166
Frá og með miðvikudeginum 28. nóvemberverðuröll starfsemi
embœttis ríkisskattsljóra til húsa að Laugavegi 166, Reykjavík.
Vegna flutninganna verða skrifstofur embœttisins lokaðar
dagana 26. og 27. nóvember nk.
I Nýtt símanúmer frá 28. nóvember verðun
>
X
í 91-631100
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI