Tíminn - 27.11.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.11.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 Tíminn 7 VETTVANGUR i— ....... ........ . Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda: Landvernd og landbúnaður Ræða á aðalfundi Landverndar 17. nóv. sl. Erindi mitt ber heitiö „Framtíð íslensks landbúnaðar og sjálf- bær þróun“. Öll erum við börn okkar tíma og mér hefur orðið hugsað til þess hve langt skyldi vera síðan umræðuefni sem þetta komst á dagskrá, þ.e. sjáifbær þróun tengd framtíð íslensks land- búnaðar. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt hugtakið sjálfbær þróun fyrr en á þessu ári eða hinu síðasta. Reyndar hefur þetta líka verið nefnt „haldbær þróun“ sem mér finnst ná betur frum- hugtakinu „sustainabie development“ á ensku og „bærekraftig utvikiing" á norsku. Nú er það svo að íslenskur landbún- aður í 1100 ára sögu lands og þjóðar hefúr oft og tíðum ekki getað kallast haldbær, heldur byggst á rányrkju. Forfeður okkar höfðu hins vegar það sér til afsökunar að tilvera þeirra stóð og féll með þessari rányrkju. Hér á landi var oft búið við þau lágmarks Iífsskilyrði sem mannlegu lífi verður lifað og dugði ekki alltaf til. Fólk féll úr hungri og fátækt. Til þess sáu m.a. eldgos og kalt veðurfar. Það væri nokkuð hrokafullt af íslendingum nú á dögum að segja af þeim sökum við horfnar kynslóðir: Þið skeyttuð ekki um landvemd og haldbæra þró- un. Það var ekki fyrr en komið var fram á þessa öld að hungurvofúnni var bægt frá íslenskum heimilum en nokkru fyrr var farið að huga að verndun gróðurs og jarðvegs hér á landi. Meðan framboð af mat var minna en eftirspum hafði hið opinbera hér á landi engin afskipti af verðmyndun búvara. Um miðja öldina gerðist það að ríkisvaldið fór að sjá sér hag í því að greiða niður verð nokkurra inn- lendra búvara sem lið í samningum um kaup og kjör launþega. Um það leyti fara tækniframfarir að skila miklum árangri í landbúnaði sem og á öðrum sviðum og í kjölfar þess fylgdi að framboð matvæla stórjókst. Afleiðing þess varð að verð þeirra lækkaði. Sú þróun hefúr haldið áfram og er nú svo komið að heims- markaðsverð búvara er orðið langt undir framleiðslukostnaði, eins og kunnugt er. Á þessa samkeppni hefur óspart ver- ið spilað í hinum vestræna heimi, þar á meðal hér á Iandi. Afleiðing þess er að til hefur orðið eins konar svikamylla. Hún er í stórum dráttum þannig: Bændur í einstökum lönd- um keppa um markað fyrir fram- Ieiðsluvörur sínar, sín á milli og landa á milli. Til að bæta samkeppn- isstöðu sína taka þeir í notkun sífellt fleiri efni og áhöld til að auka fram- leiðsluna og gera hana ódýrari. Með- al þessara efna eru efni sem úðað er á jurtir til að hindra sjúkdóma og skaðdýr og auka vöxL Þama má einnig nefna vaxtaraukandi efhi, þ.e. hormóna og lyf sem gefin eru búfé. Auk þess er búféð stundum látið búa við þrengsli, m.a. til að auka nýtingu bygginga. Til skamms tíma hefur almenning- ur litið með velþóknun á þetta bú- skaparlag og hvatt til þess. Tálsmenn launþega og neytendasamtaka, hag- fræðingar og stjómmálamenn hafa fagnað lágu verði á mat og leitast við að etja saman framleiðendum mat- væla til að pressa verðið enn frekar niður. Bændur hafa brugðist við með þeim hætti, að herða enn á notkun hjálparefna og/eða auka rányrkju. Þekkt er úr hagfræðinni að hvers kyns framleiðsla er samsett úr þrem- ur þáttum: náttúruauðlindum, vinnu og fjármagni, öðm nafni fram- leiðslutækjum. Við matvælafram- leiðslu undanfama áratugi hefúr það gerst að umboðsmenn vinnuafls og fjármagns hafa staðið þar styrkan vörð um hagsmuni umbjóðenda sinna, en umboðsmenn og talsmenn náttúruauðlindanna hafa lítið komið við sögu til skamms tíma. Munurinn á þessum þremur þáttum að baki allrar vöruframleiðslunnar, vinnu, fjármagni og náttúruauðlindum, er hins vegar sá að við tvo þá fyrmefndu er unnt að semja, þ.e. um greiðslu annars vegar og leigu hins vegar fyr- ir vinnu og fjármagn, en það er ekki unnt að semja við náttúruna og auð- lindir hennar. Náttúran hlítir ein- ungis sínum eigin lögmálum og veitir engar undanþágur. Menn hafa verið fúrðu blindir fyrir þessum aug- ljósu sannindum. Þannig lýsti að- stoðarframkvæmdastjóri GATT því yfir á þingi Alþjóðasambands bú- vömframleiðenda, í Þrándheimi snemma í júní á þessu ári, að ekki væri unnt að taka neitt tillit til þátta sem varða umhverfisvemd í yfir- standandi GATT-viðræðum. Með fyrmefndri keðjuverkandi svik- amyllu hefur bændum víða á jarðar- kringlunni verið att út í það að taka verulegan og vaxandi hluta af fram- leiðslukostnaði búvara sinna að láni hjá náttúrunni. Þetta lán verður ekki afskrifað og bíður þess að verða greitt. Ef við gemm það ekki verður komandi kynslóð að gera það, ella mun verra af hljótast. Inn á þessa braut hafa bændur vissulega haldið í miklum mæli í góðri trú og til að bæta sinn hag eða bjarga sínu skinni, en þeir hafa jafn- firamt gert það undir þungri pressu frá neytendum, hagfræðingum og stjómmálamönnum, svo að dæmi séu tekin. Þau augljósu sannindi hafa fram undir þetta ekki verið fólki nægilega Ijós, að reikna verður fram- leiðslukostnað búvara jafnt og ann- arra vara til enda. Þar með þarf að vera innifalinn kostnaður við að koma úrgangsefnum sem myndast aftur á eðlilegan hátt inn í hringrás náttúmnnar. Undir framleiðslu- kostnað fellur einnig að tryggt sé að jarðvegur eyðist ekki né að gmnn- vatnsstaða breytist, hvorki lækki né hækki, þannig að land verði óhæft til ræktunar. Hvað hér er nánar átt við þarf ekki að fara mörgum orðum um, og allra síst fyrir þessari samkomu. Nokkur stikkorð má þó nefna, án þess að for- gangsraða þeim. Þar má nefria leifar af áburði og efnum í jarðvegi til að verja gróður, sem gera hann órækt- unarhæfan og spillir gmnnvatni. Þá má nefna lækkun gmnnvatnsstöðu, eyðingu jarðvegs, súrt regn sem eyð- ir lífi í vötnum og losar um eiturefni í jarðvegi, svo sem ál, eyðingu regn- skóga, gróðurhúsaáhrif, sem leiða til veðurfarsbreytinga, og eyðingu ósonlagsins í lofthjúpi jarðar. Þessi skuld við náttúmna, þar sem þó ým- islegt er ónefht, kallar sífellt hærri rómi á að henni sé sinnL Og það liggur nokkuð Ijóst fyrir f hverju við- brögðin þurfa að vera fólgin. Þau em í meiri virðingu fyrir lögmálum nátt- úmnnar og minni kröfúgerð til hennar. Við verðum að fara að greiða niður skuldina. Ég vil þá snúa mér að stöðu íslensks landbúnaðar í þessu sambandi. Vart þarf að minna á að íslenskur land- búnaður er ekki hátt skrifaður hjá öllum hér á landi. Fáum bregður við að heyra honum óskað veg allrar ver- aldar, eða a.m.k. mestum hluta hans, og það er reiknað á annan tug millj- arða króna sá árlegi hagnaður sem yrði af því fyrir þjóðina að Ieggja hann niður, a.m.k. að mestu leyti, og það er meðal annars gert í nafni Há- skóla íslands. Ég tel að þeir sem vilja í reynd nánast afskrifa íslenskan landbúnað geri sig seka um mikla gmnnhyggni og skammsýni. Þeir virðast ganga út frá því að sá tími af- gangs og sóunar verðmæta, sem ríkt hefur síðustu áratugi og nú er að renna sitt skeið á enda, séu eðlilegir tímar. Það tel ég á misskilningi byggL eins og þegar er fram komið í máli mínu. í þeim heimi sem bíður okkar tel ég að íslenskur landbúnaður eigi sér bjartari framtíð en landbúnaður víða um heim. Forsjónin hefur úthlutað okkur landi og lífsskilyrðum sem lengst af sögu okkar hafa markað okkur þröngan bás. Þessi lífsskilyrði hafa agað þjóðina og tugtað og það svo harkalega að eitt sinn var talað um að þjóðin yfirgæfi landið. Harð- leikni landsins við íbúana má rekja allt til fyrstu búsetunnar. Kröpp eru kaup ef hreppik Kaldbak en lætkAkra orti landnámsmaðurinn Önundur tréfótur. Nú er hins vegar svo komið að ýmislegt af því sem gerði lífsskil- yrði hér hvað erfiðust hefúr breytt um svip og jafnvel orðið að lífsgæð- um. Eitt af því er að íslenska þjóðin er fámenn miðað við stærð landsins. Fyrir íslenskan landbúnað nú á dög- um er það kostur, að því leyti að úr- gangur frá honum veldur enn ekki teljandi vandræðum, svo sem áburð- ur eða frárennsli frá votheysgeymsl- um sem berst út í ár og vötn. Svalt veðurfar hefur einnig löngum verið talinn ókostur við ísland. Þessu loftslagi eigum við hins vegar það að þakka að við erum laus við margs konar sjúkdóma á gróðri og skaðdýr og getum framleitt afurðir okkar með miklu minni notkun eiturefna en margar aðrar þjóðir gera. Þá hef- ur oft verið bent á óhagræði okkar af að búa langt úti í hafi fjarri öðrum þjóðum, en á hinn bóginn hefur þessi fjarlægð varið okkur fyrir því mengaða andrúmslofti sem aðrar þjóðir búa við. Það má spyrja hvort þessir og fleiri neikvæðir þættir verði auðlind okkar í þeirri framtíð sem nú blasir við. Út- flutningur á vatni, sem nú er hafinn, gæti verið til marks um það. Á hinn bóginn ber okkur að fylgjast grannt með þessum málum til þess að halda stöðu íslands sem land hreinleika og hollustu. Þar þarf víða að hafa vakandi auga. Við þurfum að gæta að úrgangi frá fiskeldisstöðv- um, og við þurfum að huga að því sem er að gerast í alifugla- og svína- rækt í kringum okkur hvað varðar aðbúnað og dýravemd. Þá er ástæða til að fylgjast með hvort of nærri er gengið akurlendi sem hvfldarlaust er notað undir kartöflurækt. Það er stefna Stéttarsambands bænda að haga búskaparháttum hér á landi, jafnt í búíjárrækt sem jarð- rækL þannig að hvergi sé gengið á höfuðstól náttúrunnar og það er ekkert sem bendir til að íslenskur landbúnaður geti ekki skilað hlut- verki sínu í góðri sátt við umhverfið. í því sambandi er það jafriframt skoð- un Stéttarsambands bænda að ábyrgð og stjóm á nýtingu þeirra Iandgæða sem íslenskur landbúnað- ur hefur með höndum hljóti að vera á einni hendi. Það er í samræmi við niðurstöður skýrslu umhverfis- nefndar Sameinuðu þjóðanna, undir forystu Gro Harlem Bmndtland. Til þess að tryggt sé að íslenskar bú- vömr haldi áfram gæðastimpli sín- um þarf að vera í gangi stöðugt eftir- Iit með þeim, en vömr sem em Iaus- ar við aukaefni, svo sem skaðlega þungmálma, eiturefni, eins og díoxs- in og PCB, og lyfjaleifar, em okkar sterkasta tromp. Við þurfum einnig að efla skilning á því að það er ekkert sjálfsagt mál að ffamboð á nægum og heilnæmum mat sé ætíð tiyggL í heimi hér er fatt ömggt. Það munaði ekki miklu að eiturskýið frá Tsjemo- byl næði til íslands með geislavirkt úrfelli sitt. Lokaorð mín skulu vera þau að framtíð íslensks landbúnaðar hefur allar forsendur til að vera björt og bjartari en landbúnaður margra annarra þjóða. Það em vissulega blikur á lofti. Sumar þeirra ógna okkur jafnt eða meira en öðmm en aðrar ógna öðmm þjóðum mun meira. En þegar upp er staðið þá emm við öll á sama báti og örlög okkar em samfléttuð örlögum annarra. BÓKMENNTIR Sögulegur fróðleikur Sagnir Túnarit um söguleg efni. 11. árgangur 1990. Ritstjórinn, Valdimar F. Valdimarsson, segir í bréfi til lesenda að í ár sé saga kvenna og bama meginefni ritsins. Er þar skemmst frá að segja að efnið er yfir- leitt vei læsiiegar ritgerðir og munu væntanlega hafa verulegt fræðslugildi fýrir ungt fólk. Hins vegar munu eldri menn sem eitthvað hafa lagt sig eftir ís- lenskri sögu ekki bæta miklu við sig við þennan lestur. Guðfinna M. Hreiðarsdóttir byggir rit- gerð sína á athugun á málum sem komu fyrir Landsyfirrétt 1802-1919 varðandi ofbeldi gagnvart bömum. Þetta em eink- um mál þar sem talið var að bam hefði látist vegna vondrar aðbúðar. Einnig er fjallað um ofbeldi gagnvart konum og þá einkum þau fáu nauðgunarmál sem komu fyrir Landsyfirrétt. Eggert Þór Bemharðsson ritar um „Reykjavíkurstúlkuná' og hlutverk hennar. Þar fjallar hann um sitt af hverju sem fært var í letur á 4. tug aldarinnar og verður einna mest úr fyrirlestri Guð- mundar Kamban sem raunar birtist í Eimreiðinni 1929. Mér er að vísu ekki fyllilega ljóst hver sú siðmenning var sem Kamban lagði áherslu á að væri hlutverk og afrek stúlknanna f Reykja- vík. Siðmenning er stórt og víðtækt orð en varlega skyldum við dæma að þær mæður sem áttu dætur í æskublóma um 1930 hafi verið framandi og fjarlægar allri siðmenningu. Gestrisni var þáttur í siðmenningu. Siðmenning er alltaf háð hófsemi og víðsýni. Klæðaburður og út- vortis snyrting hefur aldrei verið megin- kjami siðmenningar. Það verður líka að taka dóma Laxness í blaðagreinum um 1930 með nokkurri varúð. Svo mikið er víst að dönsk tísku- blöð bárust upp um sveitir á íslandi fyrir 1920 og jafnan síðan og ég hygg að víðar en í Önundarfirði hafi snið sem fylgdu þeim verið notuð. Þar sem rætt er í þessu hefti um uppeldi drengja og stúlkna er sennilega full mik- ið lagt upp úr því að uppeldi dætranna hafi af ráðnum huga steftit að því að þær yrðu þægar og undirgefnar eiginkonur. Það var verkaskipting í landinu og inn- anbæjarstörf voru fýrst og ffernst kvenn- anna. Þær voru yfirleitt ekki beittar meiri vinnuhörku en bræður þeirra. Og þeim var kennt að þjóna sér sjálfúm um leið og þeim var kennt það sem að gagni kom fyrir aðra. Ein ritgerð er þama glannalegri en ör- uggum sögumanni sæmi. Hana skrifar Jón Ólafúr ísberg um Píningsdóm. Þar segir m.a.: ,Áður en ísland varð lýðveldi hafði verið stofnuð síldareinkasala, ein- okunarverslun með saltfisk og tækni- vædd stórbú í landbúnaði bönnuð." Hve- nær vom þau tæknivæddu stórbú bönn- uð? Því er ekki að neita að mér virðist sú ritgerð að verulegu leyti á villigötum, enda telur höfundur meðal heimilda grein eftir sjálfan sig ,ásamt Gunnari Halldórssyni og Theodóru Kristinsdótt- ur sem heitir „íhaldssemi og framfara- hugmyndir fýrr á tímum" og er þessi grein nokkurs konar viðbót". Grein þeirra þriggja birtist í Sögu 1989 og hef ég áður minnst á hana. Guðjón Friðriksson á þama greinargott yfirlit um verslunarkonur í Reykjavík 1880-1917. H.Kr. Ahugamannahljómsveit er tekin til starfa Undanfarna tvo áratugi hefur starfsemi tónlistarskóla verið með sérstökum blóma hér á landi og fjöldi ungmenna lært á hljóðfæri. Því kann það að sæta nokkurri furðu hve illa virðist ganga að manna Sinfóníuhljómsveitina ís- lenskum hljóðfæraleikurum. Skýringin er víst sú að við val hljóðfæraleikara er um ekkert annað spurt en getu og kunnáttu — þjóðerni skiptir litlu eða engu máli — og á afburðamannabekkn- um eru fleiri kallaðir en útvaldir. Hins vegar hlýtur öll þessi starf- semi tónlistarskólanna og mikill almennur tónlistaráhugi þjóðar- innar að hafa leitt til þess að um göturnar gengur fjöldi manna og kvenna sem lært hefur heilmikið á hljóðfæri en ekki fengið tækifæri til að nýta þá kunnáttu sína. Fyrir þá ættu það að vera gleði- fréttir að nýlega hóf reglulegar æf- ingar hljómsveit áhugaspilara undir stjórn Ingvars Jónassonar lágfiðluleikara, sem á árum áður stjórnaði hljómsveit Tónlistarskól- ans í Reykjavík. Fyrst um sinn verður þetta strengjasveit, en í framtíðinni verður kannski bætt við blásurum og slagverki eftir því sem viðfangsefnin gefa tilefni til. Nú þegar eru 15-20 spilarar í hljómsveitinni, en áhugasamir ættu annaðhvort að gefa sig fram með hljóðfæri sín í norðaustur- stofunni á jarðhæð Tæknigarðs (bak við Háskólabíó) kl. 20.30 á miðvikudagskvöldum eða hafa samband við Leif Benediktsson verkfræðing, Pál Einarsson jarð- eðlisfræðing eða Jakob Hallgríms- son tónlistarmann. Sig.St.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.