Tíminn - 27.11.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 27. nóvember 1990
Tfmirm
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavfk
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Gíslason
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrímsson
Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gíslason
SkrffstofunLyngháls 9,110 Reykjavlk. Sími: 686300.
Auglýslngasfml: 680001. Kvöldslman Áskrift og dreifing 686300,
ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Grundvöllur þjóðarsáttar
Að loknum samningum sjómannasamtaka, bæði
undirmanna og yfírmanna, og viðsemjenda þeirra,
og að afstöðnum samráðsfundum milli aðila að
kjarasamningunum frá í febrúar, er fullvíst að
grundvöllur þjóðarsáttar um þróun efnahags- og
kjaramála er traustur. Afram verður sameinast um
að áhrifaöfl þjóðfélagsins vinni í anda þjóðarsáttar-
innar.
Þess er þá að minnast að áætlað þjóðarsáttartíma-
bil er aðeins hálfnað, því að það á að standa fram í
september á næsta ári. Við gerð þjóðarsáttarinnar
var það sammæli að nauðsynlegt væri að ætla ekki
minna en eitt og hálft ár til þess að sýna fram á ár-
angur af samstilltu átaki þjóðfélagsaflanna til þess
að koma á jafnvægi í efnahagsmálum.
Þegar samningamir voru gerðir í febrúar vom all-
ir sammála um að undirskrift þeirra væri sögulegur
viðburður. Hins vegar var réttilega bent á það, að
það yrði ekki fyrr en í lok samningstímans á haust-
dögum 1991 sem hægt væri að kveða upp úr með
það, hvort samningamir hefðu reynst tímamóta-
samningar. Allir sem að þessum samningum standa
verða að gera sér það ljóst að árangur þjóðarsáttar-
innar verður ekki gerður upp endanlega fyrr en að
loknum samningstímanum.
Hitt er annað, og það skiptir miklu máli fyrir fram-
haldið, að þjóðarsáttin heíur staðist og sannað gildi
sitt það sem af er. Samstaðan sem efnt var til milli
ólíkra hagsmunaafla hefur haldist og efnahagslegur
árangur samstöðunnar hefur verið góður.
Meginatriði þjóðarsáttarinnar snýst um það að
gera óðaverðbólgu útlæga úr íslensku hagkerfi.
Samstaða um þetta markmið gerði þjóðarsáttina
sögulega. Þar kom ffam skilningur á því, að verð-
bólga er afleiðing af árekstrum milli verðlags og
kaupgjalds, hvert sem menn annars vilja rekja upp-
haf slíks atvikaferlis, enda tilgangslaust að eltast
við slíkt, þegar málspartar eru famir að átta sig á að
verðbólga er öllum jafnmikill meinvaldur, hvort
heldur það em atvinnurekendur eða launþegar. Að-
ferðin til að draga úr verðbólgu er því að leita jafn-
vægis, fækka árekstratilefnum í verðlagsþróuninni.
Þetta hefur tekist það sem af er þjóðarsáttartíman-
um. Verðbólgan hefúr stórminnkað á þessu ári og
verðgildi íslensku krónunnar styrkst að sama skapi.
Gengi krónunnar er mjög stöðugt. Ef miðað er við
12 mánaða tímabil október 1989 - október 1990
hefur verðbólga mælst 9.2%, en ef litið er til þróun-
ar síðustu þriggja mánaða (1%) samsvarar það tæp-
lega 4% verðbólgu miðað við heilt ár. Þjóðhags-
stofnun gerir að vísu ráð fyrir að verðbólga verði
meiri á næstu mánuðum, 7-9% eftir atvikum, en
þótt svo verði er óþarfi að tala um að með því sé
öllu stefnt í voða. Hinsvegar em þessar horfur
ströng áminning um að ekki verði slakað á aðhaldi
í þjóðarbúskap og aðilar þjóðarsáttar haldi fast við
markmið hennar. í því efni er enginn undanþeginn.
GARRI
:
Sjénvarpiö sýtrlr einskonar ágrip
sögu seinni heimsstyrjaldarinnar,
eins og hún kemur rithöfundinum
Hermanni Wouk fyrir sjónir. Nú
síðast var þáttur um sjóorrustuna
við Midway-enu f KyrrahafL Þar
töpuðu Japanir náumt, tn nóg til
þess að með þessari orrustu urðu
Jráttaskil í Kyrrahafsstríðinu Jap-
önum í hag. Sýndi þessi þáttur hve
oft er mjótt á mununum í stríði,
þar sem úrslit ráðast oft á hálf-
gerðum háimstráum. Sagnfraði-
lega séð virðist ekkert athugavert
við þættina nema síður sé. Þeir eru
barist var með stærri og sýótvirk-
arí tóium en áður þekktust, og þar
sem öríög mannsins skiptu litlu
máli. Wiuston Churehill, sem
stundum Íeit á stríð eins og hluta
af bókmenntum, helt því fram, að
stríöið 1914-18 hefói veriö síðasta
stríðið þar sem einhverrar riddara-
mennsku gætti. Þar átti hann m.a.
við þau atvik, þegar flugmenn viku
frá óvini sínum eftír að hann varð
skotfæraiaus og gat ekki varist, í
stað þess að skjóta hann niður.
Fieiri atvik úr því stríði urðu
ChurchiU minnisstæð, er sýndu
mannleg samsldpti miiil óvina. Þar
má geta samelginiegs söngs í skot-
gröfúnum milii óvinaherja á jól-
um. Seinna stríðið leyfði engan
inga hafi verið útrýmt. Síðar hefur
þessl háa tala verið taiin vafasöm.
Sagnfræðingar hafa komið fram,
sem taiið hafa þessa tölu mikið
Íægrí. Héðan af skiptír þessi tala út
tfðinni hafa Gyðingar náð undir sig
þýöingarmildum þáthim í
inn sem slíkur varla vera tíi.
Yfírborð
stríðssögunnar
Þættinijr Stríð og minningar eru
að því leyti fráhrugðnir hinu raun-
verulega yfirborði, að þar er fjallaö
um fótk í stríði, titfinningasemi
þess og ástríður í skuggaiegri ver-
öld. Að vissu Ieyö er öfi saga gerð
af þeim efnivið. Stríössaga hefur
þó annað yfirborð á meðan hún er
að verða til lúndurskeyii, setn
i,er
Anoin sKxpsiuSt sem v&tOuT iyri»
því, leysist hins vegar upp f ein-
staídinga, og af hveijum og einum
verður allt í eínu nokkur saga, jafn-
vel í dauðanum. Það er þar sem
menn eins og Hermann Wouk
koma til skjalanna og færa örlög
einstaklinga í ietur. Þegar hann
skrifar bók sína úr stríðinu hefur
þeirri heifl sem stríð skapar linnt
og hann talar af mM um andstæð-
ingana. Að vísu fer hann þarfljótar
yfir sögu sem eðliiegt er, enda er
bókin um Bandarikjamenn f stríði,
en ekkl um Japani eða nasista.
Gyðingar í iðnaði
í seinni heimsstyrjöidinni urðu
marghrað fara huldu höfði, eins og
fóik í andspyrnuhreyfingum og
fóik andstætt hugmyndafræði
óvina Bandamanna, sem auðvitað
var mildð af f hcmumdum lönd-
um. Fyrfr stríð höfðu nasislar tck-
ið upp fáránlega stefnu, sem mið-
aði að því að hrekja og útrýma Gyð-
ingum. Eftir að styrjöldin hófst
voru Bandamenn tregir til að trúa
því aö menntuð þjóð eins og tjóð-
veijar gæti af pólitískum ástæðum
og í krafti þess einræöis sem kom-
ið haföi verið á í Þýskalandi
Þeir eru ráðamenn í kvikmynda-
gerð og gerð sjónvarpsefnis. Það
sést á þáttunum, sem gerðlr hafa
verið um Stríð og minningar Her-
manns Wouks, að þar hafa Gyðing-
' ar um vélað.
Aukahluti stórverks
Á sama tíma og heilar þjóðír
standa i heljarátökum og tcfla fram
mannafia og vélum og Íítið er sagt
frá andstæðingum, Japönum og
nasistum, tefla þáttasmiðir fram
Gyðingaætt sem þátttakendum f
þessarí þjóðabaráttu. Með sama
hætti heföi verið hægt að tefla
fram Rússum og Pólveijum, sem
hiutu sömu örlög í fangabúðum
nasista. í sögulegum þáttum um
seinni heimsstyijöidina eiga Gyð-
ingar að sjálfsögðu heima. 1 þátt-
um um Stríð og minnlngar verða
þeir hins vegar alitof íyrirferðar-
míkili bluti verksins, einir sér
þeirra þjóðstofna, sem á voru unn-
in svívírðileg hryðjuverk. Þeir sem
og sjónvarpsþáttum þaðan komast
eldd hjá því að sjá hvemig eigendur
og áhrifamenn þessa iðnaðar iáta
ekkert tækitæri ónotað U1 að
minna á meðferðina á Gyðingum á
stríðsárunum, Þetta er fyrir löngu
gengið út f öfgar. Og enn einu
sinni hafa framleiðendur Stríðs og
minninga fengið því ráðið, að
skaða annars góða þættí með of
mikilli áherslu á útrýmingarstefnu
nasista, þannig að úr verður stíl-
rðf. En það skiptír framleiðendur
1 AF ERLENDUM VETTVANGI
Þófiö við Persaflóa
Nærri fiórir mánuðir eru liðnir síð-
an írakar réðust inn í Kúvæt og
hröktu fúrstann frá völdum og létu
ekki þar við sitja, heldur lýstu yfir
því að landið væri innlimað í írak,
þ.e. þurrkað út sem sjálfstætf ríki.
Langdregið umsátur
Bandaríkjastjóm hafði frumkvæði
um að Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti að lýsa yfir við-
skiptabanni á írak, sem haldið hefur
verið uppi með beinu hafnbanni.
Sovétmenn studdu þessa ákvörðun
og fjöldi Arabaríkja auk Týrklands
og annarra ríkja. Bandaríkjaforseti
hafði þannig mikinn stuðning við
þá afstöðu sína að stöðva frekari
framgang árásarstefnu Saddams
Hússeins og hefur auk þess notið
fylgis við þá ákvörðun að senda
bandarískt herlið til Saúdi Arabíu
og styrkja það með herflutningum
fjölda annarra ríkja. Það ríkir því
umsátursástand um írak, þótt ekki
hafi komið til beinna átaka í því
sambandi, ef undan er skilið að her-
skip umsátursaðila hafa haft afskipti
af ferðum skipa sem sigldu í þágu
íraka. Þetta er hemaðarástand án
beinna hemaðaraðgerða, sem aug-
ijóst er að þreytir Bandaríkjastjóm
e.t.v. meira en sjálfan skúrkinn í
sögunni, Saddam Hússein. Vandi
Bandaríkjaforseta er nú farinn að
liggja í því að hann á erfítt með að fá
stuðningsríki sín um viðskiptabann
og hernaðarumsátur til að taka
undir þá hugmynd að hefja árás á ír-
aka og stofna til styrjaldar sem hreki
þá frá Kúvæt. Að vísu hafa aðal-
stuðningsríki Bandaríkjastjómar
ekki afneitað því að óhjákvæmilegt
verði að hefja styrjöld fyrr eða síðar
en í reynd hafa þau dregið úr slíku
og ekki viljað setja það á vald Banda-
ríkjanna að ákveða innrásardaginn.
Andstaða gegn stríði
En ef stuðningsríki Bandaríkja-
stjórnar eru hikandi í þessu efni, þá
á það ekki síður við um ýmsa ráða-
menn í Bandaríkjunum sjálfum.
Innan alríkisþingsins í Washington
er veruleg andstaða gegn því að
styrjaldaraðgerðir færist meira út
en verið hefur. Að einhverju leyti
kemur þar til sú staðreynd að demó-
kratar eru í meirihluta í báðum
þingdeildum. En hitt má sín einnig
mikils að þingmenn vita um and-
stöðu meðal almennings gegn því
að Bandaríkjamenn verði neyddir út
í styrjöld í fjarlægum heimshluta,
sem Bandaríkjaforseta hefur ekki
tekist að réttlæta með neinum
sannfæringarkrafti gagnvart þjóð
sinni.
Vandi Bandaríkjaforseta felst því
ekki eingöngu í því að sannfæra Ör-
yggisráðið og stuðningsríki sín þar,
heldur á hann undir högg að sækja
hjá sinni eigin þjóð. Deilur standa
um það á pólitískum vettvangi í
Bandaríkjunum, hvort forsetinn
hafi rétt til vegna stöðu sinnar sem
æðsti yfirmaður heraflans að lýsa yf-
ir styrjöld við íraka, enda standa for-
ystumenn á þingi fast á þeim rétti
að alríkisþingið verði að veita heim-
iid tii svo afdrifaríkrar ákvörðunar,
sem þeir telja bundið í stjómarskrá.
Enginn vafi er á því að andstaða
bandarísks almennings er vemleg
sem lýsir sér m.a. í niðurstöðum
skoðanakannana sem segja að um
70% þjóðarinnar telji að forsetinn
skuli fara með fullri gát og afla sér
heimildar þingsins. Virk andstaða
fer auk þess vaxandi með samtökum
og mótmælaaðgerðum. Þetta fólk
er vantrúað á skjótan sigur og óttast
að eyðimerkurstríð í Arabíu og írak
verði nýtt Víetnamstríð þar sem
bandarískum ungmennum verði
fórnað fyrir ekki neitt.
Frestur til áramóta?
Hvað sem um þetta er að segja
benda nýjustu fréttir til að Banda-
ríkjastjóm muni knýja fram sam-
þykkt í Öryggisráðinu áður en langt
um líður um að írökum verði gef-
inn ffestur til áramóta um að draga
her sinn frá Kúvæt áður en látið
verði til skarar skríða með hervaldi.
Bush forseti telur sig ekki getað
hvikað frá þeirri yfirlýsingu sinni að
írakar skuli á brott með hervaldi, ef
viðskiptabann og samningar duga
ekki. I.G.