Tíminn - 27.11.1990, Síða 16
AUGLYSINGASIMAR
& 686300
RÍKISSKIP
NtrriMA FLUTNIKGAS
Holnarfiusinu v Tryggvogotu.
_____S 28822_____
r SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUM LANDSINS
\
i 3
NORÐ- AUSTURLAND Á
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
SUBARU
Ingvar
Helgason hf.
Sœvartiöföa 2
Sfmi 91-674000
m
I iniinn
hRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER1990
Baejarstjórn Hafnarfjarðar um skýrslu
endurskoðanda ársreikninga 1989:
„Pólitískur skot-
grafahernadur“
Nýlega var lögð fram í bæjarráði Hafnarfjarðar skýrsla
annars skoðunarmanns ársreikninga 1989. í henni kem-
ur m.a. fram að æðstu embættismenn bæjarins hafi tek-
ið sér launaauka að upphæð hundruð þúsunda og að bæj-
arstjóri hafi fengið greitt orlof á m.a. bílapeninga, nefnd-
arlaun og risnu.
Á fundi bæjarráðsins s.l. þriðju-
dag var samþykkt af hálfu meiri-
hluta bæjarráðs að hér væru á
ferðinni „lágkúrulegar pólitískar
árásir gegn einstaklingum" og al-
mennur pólitískur skotgrafa-
hernaður gegn meirihluta bæjar-
stjórnar.
Ársreikningar 1989 voru af-
greiddir á tveimur fundum í bæj-
arstjórninni í júní og júlí s.l. með
vanalegum hætti, en þá neitaði
Páll V. Daníelsson, annar tveggja
kjörinna skoðunarmanna, að
skrifa undir reikningana. Hinn
endurskoðandinn ásamt löggilt-
um endurskoðanda bæjarráðsins
undirrituðu reikningana til af-
greiðslu þá. Skýrsla Páls er lögð
fram nú fyrst, þar sem honum
voru gefnir aðeins nokkrir dagar
til að yfirfara reikningana í sumar
fyrir afgreiðslu þeirra.
í skýrslu Páls kemur fram að
bæjarstjóri hafi látið greiða sér
kr. 205.070.- vegna „orlofs fyrir
13 daga“ sem hann telur sig ekki
hafa tekið sem orlof. Þessi upp-
hæð fékkst með því að reikna or-
lof á „mánaðarlaun, yfirvinnu,
bíl, nefndarlaun og risnu“, eins
og kemur fram í skýrslunni. Þar
segir einnig að ekki hafi áður
þekkst að reiknað sé orlof á bíla-
peninga, nefndarlaun né risnu.
Einnig segir í skýrslu Páls að
bæjarstjóri hafi fengið greidd
laun kr. 473.239.- á mánuði fyrir
utan ofangreinda upphæð. Svo og
segir að bæjarstjóri, bæjarritari
og fjármálastjóri bæjarins hafi
skrifað upp á reikninga hver fyrir
annan, um launauppbætur, sem
samtals nema um rúmlega 900
þús. krónum á síðasta ári.
Skýrsla þessi var lögð fyrir á
bæjarráðsfundi í Hafnarfirði s.l.
þriðjudag. Þar samþykkti meiri-
hluti bæjarráðs, bæjarráðsmenn
Alþýðuflokks, að „stóryrtar ásak-
anir og alvarlegar aðdróttanir
Páls í garð æðstu embættis-
manna bæjarins eigi ekki við rök
að styðjast". Einnig vildi meiri-
hlutinn vekja sérstaka athygli á
að engar upplýsingar koma fram í
skýrslu Páls, sem ekki hafa komið
fram áður í umfjöllun um árs-
reikninga Hafnarfjarðarbæjar.
„Skýrslan er því aðeins umbúnað-
ur um persónulegar árásir á emb-
ættismenn."
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Guð-
mundur Árni Stefánsson, stað-
festi í samtali við Tímann í gær
það sem fram kemur í fundargerð
fundar s.l. þriðjudag og sagði að
þessi skýrsla fjallaði um mál sem
voru rædd og afgreidd fyrir fjór-
um mánuðum í bæjarráði, þ.e.
þegar umræddir ársreikningar
voru afgreiddir og sendir félags-
málaráðuneytinu. „Þannig að allt
sem þarna er á ferðinni er löngu
þekkt hér í bæjarstjórninni og var
þetta rætt bæði fyrir og eftir síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar,"
sagði Guðmundur Árni.
Einnig sagði Guðmundur Árni
að Páll sé kjörinn endurskoðandi
reikninganna af minnihluta bæj-
arstjórnar og beri því öll þessi
skýrsla hans keim af því að hann
er í pólitískri andstöðu við meiri-
hluta bæjarráðs.
Á fundinum s.I. þriðjudag bar
Þorgils Óttar Mathiesen, bæjar-
fulltrúi minnihlutans, fram til-
lögu þess efnis m.a. að bæjar-
stjóri sjái um að umræddir emb-
ættismenn greiði bæjarsjóði til
baka ofangreindar upphæðir. Að
tillögu Alþýðuflokks var þeirri til-
lögu Þorgils Óttars vísað frá.
—GEÓ
Leit að smábátnum Jóhannesi HU 127:
Tveggja manna
er saknað
úr bátnum
í gær leituðu á milli 25 og 30 bátar,
Fokkervél Landhelgisgæslunnar og
þyrla Landhelgisgæslunnar að 4,5
tonna plastbáti frá Hvammstanga,
Jóhannesi HU 127. Brak úr bátnum
hefur fundist, en ekkert hefur sést til
mannanna tveggja sem voru um
borð í bátnum. Þeir eru 45 og 19 ára
gamlir. Mennimir fóru frá Hvamms-
tanga um hádegisbilið á sunnudag í
línuróður. Um sexleytið sama dag
kom síðan neyðarkall frá bátnum um
að hann væri að sökkva. Mönnunum
tókst ekki að gefa upp staðsetningu
bátsins.
Strax og neyðarkallið barst var hafin
leit að bátnum. 21 bátur leituðu um
nóttina alveg til klukkan fimm um
morguninn. Þá gengu björgunar-
sveitir fjörur og þyrla Landhelgis-
gæslunnar leitaði til miðnættis.
Leit hófst aftur um klukkan níu í
gærmorgun. Að sögn Hálfdáns
Henrýssonar hjá Slysavamafélagi ís-
lands, sem stjórnar leitinni úr landi,
er búið að leita frá Heggstaðanesi og
út með Vatnsnesi og um allan Húna-
flóann einsog hann leggur sig, alveg
að Rifstanga. Fokkervél Landhelgis-
gæslunnar leitaði eftir öllum nyrðri
hluta flóans en bátamir og varðskipið
Týr fóru út á móti og norður fyrir
Grímsey í Steingrímsfirði og síðan
beygði flotinn austurum. Brakið úr
bátnum fannst síðan við Fáskrúðs-
sker sem er norður af Vatnsnesi. Búið
er aö ganga allar fjörur frá Skagatá og
inn fyrir hjá Skagaströnd, Blönduósi
og inn að Sandi og norður með
Vatnsnesinu að austanverðu og síðan
inn með Vatnsnesinu að vestanverðu
og alveg inn á Hvammstanga.
1 dag mun leit halda áfram og verður
þá leitað frá Skagatá væntanlega og
alveg inn fyrir Blönduós, en þó mun
það fara eitthvað eftir vindátt hvar
leitað verður. Gúmmíbátur sem var
um borð í bátnum hefúr enn ekki
fundist og óvíst er hvort mönnunum
hefúr tekist að sjósetja hann.
khg.
Akureyri:
Eldur í
timburhúsi
Um kl. 11.30 á sunnudags-
morgun kom upp eldur í 3ja
hæða timburhúsi við llafnar-
stræti á Akureyri. Eldurinn
kom upp í eldhúsi á miðhæð
hússins. Eldsupptök eru
ókunn, en unnið er að rann-
sókn málsins.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu kom eldurinn upp í eld-
húsi á miðhæð hússins. íbú-
amir voru ekki heima, en íbúi á
þriðju hæð varð var við reyk-
inn. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn, en ibúðin þar sem e!d-
urinn kom upp er mikið
skemmd. Þá er jarðhæðin mik-
ið skemmd af voldura vatns, og
risíbúðin skemmdist af sóti og
reyk. hiá-akureyri
Húsnæðismál rædd utan dagskrár á sambandsstjórnarfundi ASÍ:
Fjöldi láglaunafólks í okurleigu
„Sambandsstjómarfundur Alþýöu-
sambands íslands lýsir yfir áhyggjum
sínum vegna gífurlegs húsnæðisvanda
hjá lágtekjufóUd á höfuöborgarsvæðinu
og á ýmsum stöðum á landsbyggðinni
og þeirri okurieigu sem fjölmargar fjöl-
skyldur þurfa að búa við til þess að hafa
þak yfir höfúðið. T.d. er algengt á höfúð-
borgarsvæðinu að þriggja heibergja
ibúð sé leigð fyrir 40-65 þúsund krónur
ámánuðL
Fundurinn skorar á stjómvöld og
sveitastjómir að gera nú þegar ráðstaf-
anir til þess að aflétta þessu neyðar-
ástandi sem er blettur á þjóðfélaginu."
Þetta er tillaga frá Sigurði T. Sigurðs-
syni, formanni verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði, en Sigurður hóf um-
ræður um húsnæðismál utan dagskrár á
árlegum sambandsstjómarfúndi Al-
þýðusambands Lslanck sem hófst í
Reykjavík í gær.
Sambandsstjómarfundinum verður
fram haldið í dag. Utandagskrámmræð-
unni var frestað í gær, en verður tekin
upp á ný í dag. Þá verður m.a. fjallað um
skýrslu um húsnæðismál sem Ásmund-
ur Hilmarsson hagfræðingur hefur tek-
iðsamanfyrirfundinn.
í skýrslunni er rakin forsaga húsnæðis-
Ásmundur Stefánsson flytur ræðu við setningu sambandsstjómarfundar ASÍ í gær. Lengst til vinstri er Lára V.
JÚIÍUSdÓttÍr, þá Öm FriörikSSOn og Guðríður Elíasdóttir. Tímamynd: Ami Bjama
lánakerfisins frá 1986, hvemig ástandið
var á markaðnum áður en það komst á
og hvað var samið um þegar því var
komið á og hvemig málin hafe þróasL
í gær var á fundinum fjallað um kjara-
mál, stöðu eldra fólks á vinnumarkaði og
lífeyrismál, en framsögumaður um hið
síðastnefnda var Benedikt Davíðsson. í
dag verður sem fyrr segir fjallað m.a. um
húsnæðismál, framtíð verkalýðshreyf-
ingarinnar og um starísmenntun.
—sá
Gísli Sigurðsson:
Færhann
aðfara
áburt?
íraska þingið hefur samþykkt að
hleypa sænskum þegnum úr
landi og vísaö málinu til af-
greiðslu hjá forseta íraks, Sadd-
am Hussein. Svíar hafa iagt fram
tvo lista, einn yfir sænska borg-
ara sem þeir vilja að verði hleypt
úr landi og síðan er Gísla Sig-
urðssyni lækni getið í hinum, þar
sem hann sé undir verndarvæng
sænska sendiráðsins.
Gísli sagði sjálfur að það gæti
tekið 3-4 daga að fá það á hreint
hverjir fái að fara, en ýmislegt
bendi til þess að hann fái að fara
með Svíunum, sem yrði þá í þess-
ari viku.
Ef Gísli kemst ekki frá Bagdad
með Svíunum þá mun utanríkis-
ráðuneytið halda áfram að reyna
að fá hann til íslands eftir öðrum
leiðum. khg.