Tíminn - 11.12.1990, Síða 4

Tíminn - 11.12.1990, Síða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 11. desember 1990 ÚTLÖND Stórsigur Lechs Walesa í pólsku kosningunum: TVminski hótar kæru en hefur verið stefnt Ævintýramaðurinn Tyminski á nú undir högg að sækja í Póllandi. Lech Walesa vann stórsigur í seinni umferð pólsku forseta- kosninganna sem fram fóru á sunnudag. Walesa fékk 74,25% atkvæða, en mótframbjóðandi hans, viðskiptajöfurinn Stan- islaw TVminski, fékk 25,75% atkvæða. Lítil kosningaþátttaka var, eða 53,4% miðað við 60,6% í fyrri umferðinni. Kosningarnar virðast ætla að draga dilk á eftir sér, því iym- inski hefur hótað að kæra kosn- inguna, en honum hefur sjálf- um verið stefnt af yfirsaksókn- ara fyrir meiðyrði í kosninga- baráttunni. Walesa skálaði í kampavíni í aðal- stöðvum Samstöðu, óháðu verka- lýðssamtakanna, með stuðnings- mönnum sínum þegar ljóst þótti að hann ynni stórsigur. Þúsundir manna fögnuðu sigri hans. Walesa hét því að reisa við efnahag Pól- lands, m.a. með því að koma á frjálsum markaði og byggja á evr- ópsku þjóðskipulagi. Hann mun taka við af lýrrverandi leiðtoga kommúnista, Wojciech Jaruzelski, síðar í mánuðinum. Walesa hefur beðið Bogdan Borusiewicz um að verða leiðtogi Samstöðu, en hann hættir þar sjálfkrafa um leið og hann tekur við forsetaembættinu. Tyminski sagði að óréttlæti hefði verið beittaf hálfu stuðningsmanna Walesa. „Alla kosningabaráttuna hefur fjöldi fólks lifað í ótta. Fólk er barið í stórum stfl. Jafnvel börnin eru hrædd,“ sagði Tyminski. Þegar hann var spurður hvort hann hefði einhver skilaboð til Walesa, sagðist hann vona að Walesa gerði engin mistök, því ef hann gerði það kæmi nýr Tyminski sem væri miklu sterkari en hann hefði verið í þess- um kosningum. Yfirsaksóknari ríkisins hefur bannað Týminski að yfirgefa landið vegna niðrandi ummæla hans um Tadeusz Mazowiecki forsætisráð- herra í fyrri umferð forsetakosn- inganna. Týminski hefur verið stefnt til yfirheyrslu. í grein 270 í pólskum refsilögum er gert ráð fyr- ir að hægt sé að setja menn í fang- elsi fyrir að lítillækka æðstu stjórn- málamenn landsins opinberlega. Grein 270 hljóðar svo: „Hver sá sem opinberlega ærumeiðir, spott- ar eða lítillækkar pólsku þjóðina, lýðveldið Pólland eða æðstu stjórn- málamenn Iýðveldisins getur átt von á fangelsisvist frá hálfu ári upp í átta ár.“ Ekki náðist í lýminski til að fá hans álit á þessu. Hann lét sig hverfa eftir að hafa tilkynnt að hann ætlaði að kæra kosningarnar. Walesa sagði í seinustu viku að hann hefði beðið yfirvöld um að hleypa Tyminski ekki úr landi eftir kosningarnar, vegna ummæla hans um Mazowiecki og aðra í kosninga- undirbúningnum. Walesa sagði á sunnudaginn á blaðamannafundi, eftir að sigur hans var í höfn, að Tyminski ætti að biðjast afsökunar. Reuter-SÞJ Nóbels- verólauna- afhending Aðstoðamaður utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, Anatoly Kovalyov, tók við friðarverð- iaunum Nóbels fyrir hönd Mik- haii Gorbatsjovs, forseta Sovét- ríkjanna, en verðlaunaafhend- ingin fór fram í Ósió í gær. Gorbatsjov fær verðlaunin fyr- ir að eiga þátt í að binda enda á kalda stríðið, kollvarpa stjóm- um harðlínukommúnista í Aústur-Evrópu og hjálpa til við sameiningu Þýskalands. í bréfi frá Gorbatsjov, sem Ko- vaiyov las fyrir samkunduna, sagði Gorbatsjov, sem gat ekki tekið við verðlaununum vegna annríkis heima fyrir, að heimin- um stæði enn ógn af alræðis- og árásarhneigð. Hann bætti við að hann liti ekki á verðlaunin sem persónulega viðurkenn- ingu á sér, heldur sem viður- kenningu á perestrojku og breyttum hugsunarhætti í stjómmálum sem sé mjög mik- ilvægur fyrir framtíð mann- kynsins. Talsverð mótmæli gegn því að Gorbatsjov hlyti friðarverðlaun- in urðu fyrir utan sendiráð Nor- egs í Moskvu. „Svo kann að virðast að Gorbatsjov sé frjáls- lyndur og lýðræðislegur, en raunin er sú að hann gerir allt til að sovéska heimsveldið haldi velli,“ sagði Gorín, einn tíu mótmælenda sem komu frá Úkraínu. Reuter-SÞJ Persaflói: Kúvæt hefur tapað 40 millj'- örðum dollara Enduruppbygging Kúvæts mun að öllum líkindum taka fjögur ár og kosta 40 milljarða dala, ef gert er ráð fyrir að ekkert stríð verði milli íraka og fjölþjóða- hersins í Saudi-Arabíu og Irakar fari frá Kúvæt fyrir 15. janúar, að sögn stjórnvalda Kúvæt. Samþykkt Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna um heimilun á beitingu hervalds gegn frökum 15. janúar ef þeir hafi þá ekki yfir- gefið Kúvæt og væntanlegar við- ræður Bandaríkjanna og íraks hafa vakið vonir íbúa Kúvæts um að frelsun lands þeirra sé í nánd. Kúvæt mun að sjálfsögðu krefjast skaðabóta fyrir rán og skemmdir sem írakar hafa unnið í Kúvæt, en stjórnmálamenn og bankamenn telja að írakar muni verða tregir til að borga og jafnvel ekki borga neitt. íraskir hermenn hafa á kerfis- bundinn hátt flutt ýmis verðmæti frá Kúvæt, s.s. tækjabúnað sjúkrahúsa, tölvur, símaklefa, borð, stóla og bækur úr skólum. Þeir hafa tæmt birgðageymslur, brennt stjórnarskrifstofur og tek- ið eigur almennings. Þeir hafa einnig tekið gull- og gjaldeyris- forða Kúvætbanka. Stjórnarfor- maður Kúvætbanka hefur reiknað út að það muni taka fjögur ár fyr- ir Kúvæt að komast í sama horf og fyrir innrásina, ef írakar fara frið- samlega frá Kúvæt og skemma ekki olíulindirnar og að sögn fyrr- verandi fjármálaráðherra Kúvæts mun það kosta allt upp í 40 millj- arða dala. Reuter-SÞJ Mannskaöaveður í Bretlandi Að minnsta kosti átta hafa látið líf- ið í óveðri sem gekk yfir Bretlands- eyjar um helgina og er talið hið versta í tuttugu ár. Björgunarmenn leituðu á sunnudag að hundruðum ökumanna sem talið var að sætu fastir í bifreiðum sínum í allt að tveggja og hálfs metra háum snjó- sköflum. Spáð er meirí snjókomu. Nær allar samgöngur lágu niðri og rafmagn fór af á mörgum stöðum. Veðrið var verra eftir því sem norðar dró. Margir leituðu skjóls í opinber- um byggingum og á gististöðum. Slæm veður hafa geisað víðar í Evr- ópu. Á Spáni snjóaði mjög mikið í gær í norðanverðu landinu sem hef- ur orðið til þess að einangra þorp og ferðamenn. Á Ítalíu var mikil úr- koma í gær, bæði rigning og snjó- koma. Snjór einangraði þorp á Norður- Ítalíu og um það bil heim- ingur Feneyja fór á kaf í flóðum. Reuter-SÞJ Volkswagen kaupir þriðjung í Skoda Á sunnudag var ákveðið að tékkneska ríkisfyrirtækið Skoda gengi í samstarf við Volkswagen í Þýskalandi í stað Renault-Volvo- sam- steypunnar. Að sögn stjórnvalda var tilboð Volkswagen 8 milljarðar marka (5 milljarðar dollara) sem gefur 25- 33% eignaraðild, en tilboð Rena- ult-Volvo 13 milljarðar franka (2.6 milljarðar dollara). Einnig gerði tilboð Volkswagen ráð fyrir 8 milljarða fjárfestingu fyrir alda- mót til þróunar og markaðssóknar verksmiðjanna. Félagsleg hlið til- boðsins var einnig mun betri hjá Volkswagen en Renault-Volvo. Til- boð Volkswagens veitti m.a. mun meira atvinnuöryggi en tilboð Renault- Volvo, að mati stéttarfé- lags verkamanna í Skoda-verk- smiðjunum. 24 bílaframleiðendur frá Japan, Evrópu og Ameríku sýndu áhuga á samstarfi við Skoda, en tveir þeirra voru valdir úr hópnum fyrr á þessu ári. Reuter-SÞJ Kosningar á Grænlandi Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landstjómarinnar, hef- ur ákveðið að haída kosningar í mars, tveimur mánuðum fyrr en ráðgert hafði veríð, vegna óánægju sem hefur hlotist með eyðslu ráð- herra og þar vegur þyngst að lands- sjóðurinn hefur greitt fyrir áfengi sem ráðherrar hafa notað í einka- þarfir. Frá árinu 1988 hefur flokkur Motz- feldts, Simut, setið í minnihluta- stjórn með stuðningi Atassut. Nú hefur Atassut hætt stuðningi sínum vegna hneykslisins og er Motzfeldt því nauðugur einn kostur að segja af sér. Simut hefur verið í stjórn allt frá upphafi heimastjórnartímabilsins á Grænlandi árið 1979. Ritzau-SÞJ Fréttavfiiiit Nicosia - frakar vara Bandarfk- in við því að þeir muni aldrei sleppa Kúvæt. Washington - Ágreiningur hefur komiö upp milli Iraka og Banda- ríkjamanna um dagsetningar á sáttafundunum tveimur sem fyr- irhugaðir eru milli utanrikisráð- herra og forseta landanna vegna Persaflóadeiiunnar. Houston - Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og She- vardnadze, utanrikisráðherra Sovétrikjanna, hittast í heimabæ Bakers til að ræða Persaflóa- deiluna og hemaðarskipulagn- ingu. Baghdad - Hundruð vest- rænna og japanskra gísla fóru frá Baghdad í gær, en ákveðið var á föstudaginn að sleppa öll- um gíslum frá írak og Kúvæt. Prag - Forseti Tékkóslóvakfu, Vaclav Havel, sagði að Tékkó- slóvakia væri á barmi efnahags- kreppu og skoraöi á stjórnmála- menn að gripa (taumana áöur en það væri um seinan. Bonn - Lothar de Maiziere, sið- asti forsætisráðherra Austur- Þýskalands, og nú flokksbróðir Helmuts Kohl kanslara hefur verið sakaður um að hafa njósn- að fyrir kommúnista. Varsjá - Pólsk yfirvöld hafa stefnt Stanislaw Tyminski, sem tapaði fyrir Lech Walesa i seinni umferð forsetakosninganna, til yfirheyrslu vegna meiðyrða um forsætisráðherrann og bannað honum að yfirgefa landið. Bogota - Stjórnarher Kóiombiu réðst i gær á höfuðstöðvar stærsta skæruliðahópsins ( landinu. London - Kuldabylgja frá norð- urheimskautinu riður nú yfir Evr- ópu. Að minnsta kosti átján hafa látist af völdum veðurfarsins og samgöngur hafa gengið illa. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.