Tíminn - 11.12.1990, Qupperneq 8
8 Tíminn
Þriðjudagur 11. desember 1990
Bensínstöðvar:
Varrúðarráðstafani r
vegna birgðatanka
Heilbrígðisnefnd fjallaöi á fundi sínum þann 19. október s.l. um
umsókn Landsvirkjunar um leyfi til að setja upp bensínafgreiðslu
og birgðatanka að Krókhálsi 7.
Heilbrigðisnefndin taldi að eftir-
farandi varúðarráðstafanir væru
nauðsynlegar vegna umsóknarinn-
ar: „1. Að fullnægjandi varnarþró sé
undir eldsneytisgeymum og leiðsl-
um og geti hún tekið við leka, sem
samsvarar a.m.k. rúmtaki stærsta
geymisins. 2. Að fullkominn búnað-
ur sé fyrir hendi til að íylgjast megi
reglulega með leka frá geymum og
leiðslum. 3. Að tryggt sé að fari
eldsneyti niður umhverfis átöppun-
ardælur, berist það eftir yfirborði
hlaðsins í olíugildru. 4. Að sjálfvirk-
ur búnaður sé notaður við áfyllingu
á eldsneytisgeyma, sem kemur í veg
fyrir að þeir geti yfirfyllst. Frágangi
við áfyllingarstúta eldsneytisgeyma
sé þannig háttað að leki berist í
varnarþró en ekki olíugildru."
Ágúst Karlsson hjá Esso sagði að
þeir hjá Esso væru búnir að setja
upp nákvæma hæðarmælingu í
birgðatanka á nokkrar bensínstöðv-
ar, sem lesa mjög nákvæmlega hvað
mikið magn sé í birgðatönkunum
hverju sinni. Á þeim búnaði er líka
viðvörunarbúnaður sem gefur til
kynna ef birgðatankarnir eru alveg
komnir að því að yfirfyllast. Einnig
er í undirbúningi hjá Esso að koma
upp sjálfvirkum búnaði á dreifing-
arbílana, sem fylla á birgðatankana,
sem kemur einnig í veg fyrir að
birgðatankarnir yfirfyllist.
Ágúst sagði að sá möguleiki væri
alltaf fyrir hendi að birgðatankarnir
gætu yfirfyllst þegar verið væri að
dæla á þá, með þeim afleiðingum
að olía færi í jarðveginn án þess að
hann kannaðist við að það hefði
gerst. Ágúst nefndi einnig að
ástæða væri til að gæta fyllstu var-
úðar í þessum efnum með tilliti til
þess að halda jarðveginum ómeng-
uðum.
„Þó það sé kostnaðarsamt að koma
upp sjálfvirkum búnaði, þá er það
líka kostnaðarsamt að lenda í tjóni,
þar sem þarf að skipta út jarðvegi
og öðru eftir að olía hefur lekið út-
fyrir birgðatankana, fyrir utan leið-
indin sem slys af þessari gerð valda.
Mjög lítið af eldsneyti eins og olíu
þarf til þess að skemma stórt svæði
af jarðvegi. Þess vegna eiga reglur
eins og þessar sem koma frá heil-
brigðisnefnd fullan rétt á sér,“ sagði
Ágúst. Hann sagði einnig að hann
vissi ekki til að það væri kominn
sjálfvirkur búnaður á bensínbíla
hjá öðrum olíufélögum, en bjóst
við að það væri í undirbúningi eins
og hjá þeim í Esso. khg.
Ferðaþjónusta bænda:
UPPBYGGING
Guöjón Guðjónsson, markaðsstjóri SS, og Lelfur Þórsson verk-
smíöjustjóri með bWdraykt hangikjöt
Sláturfélag Suðurlands:
SS til Hvolsvallar
Sláturfélag Suðurlands mun götu, en SS hefur reykt hangikjöt
flytja starfsemí sína til Hvolsvall- frá árínu 1920. SS notar sér-
ar fljótlcga, en starfsemi þeirra staka aðferð við reykingu á
hefur verið staðsett við Skúla- hangikjöti sem kallast birkireyk-
götu í Reykjavík frá miðjum ing og er notað íslenskt birki við
þriðja áratug aldarinnar. SS hóf reykinguna. í ár býður SS upp á
starfsemi sína 2. október 1907. nýjung í verkun á birkireyktu
Má því búast við því að í ár sé hangikjöti: úrbeinað læri með
síðasta jólavertíð SS í fram- legg og úrbeinaðan frampart með
leiöslu á hangikjöti við Skúla- legg. —GEÓ
Á aðalfundi Félags ferðaþjónustubænda, sem haldinn var föstudag-
inn 30. nóvember s.l., kom m.a. fram að uppbygging hefur veríð
greið hjá ferðaþjónustubændum á undanfömum árum og að rekst-
ur síðasta árs hafi gengið vel.
Paul Richardson, formaður FFB,
flutti skýrslu stjórnar, en í henni
segir m.a. að árangur ferðaþjón-
ustubænda megi rekja til þess
trausts sem FB hefur áunnið sér
meðal ferðamanna og söluaðila í
ferðaþjónustu. Paul benti einnig á í
ræðu sinni að þótt afkoma hafi verið
góð, þá þyrftu ferðaþjónustubændur
að stuðla að betri nýtingu með því
að lengja ferðamannatímann, sem
væri með stysta móti hér á landi.
Kosið var í stjórn félagsins á fund-
inum og voru stjórnarmenn endur-
kjörnir. Paul Richardson hefur verið
formaður og framkvæmdastjóri s.l.
fjögur ár, en hann gaf ekki kost á sér
sem formaður nú. í stjórn Félags
ferðaþjónustubænda sitja Valgeir
Þorvaldssonn, Vatni á Höfðaströnd,
Ingibjörg Bergþórsdóttir, Fljóts-
tungu, Ágúst Sigurðsson, Geita-
skarði, Ingi Tryggvason, Narfastöð-
um sem er jafnframt stjórnarfor-
maður, og Paul Richardson, Eystra-
Skagnesi, sem er framkvæmdastjóri
félagsins.
—GEÓ
Fasteignamat hlunninda tífaldur nettóhagnaður af þeim á ári:
Fasteignamat hækkaði
um 57% á laxveiðiám
Fasteignamat ríkisins hefur á ár-
inu unnið að endurmati lax- og
silungsveiðihlunninda í landinu.
Fasteignamat hlunninda hækkaði
nú alls um 57% milli ára, eða um
Nýtt prestssetur á Hvammstanga
Kristján Björnsson, prestur á
Hvammstanga, mun í febrúar flytj-
ast í nýtt húsnæði á Hvammstanga,
en hann býr nú í Víðidal sem er um
20 km frá Hvammstanga. Sam-
kvæmt nýjum lögum, sem tóku í
gildi í sumar, er prestinum, sem
þjónar því prestakalli er Kristján
þjónar, skylt að búa á Hvamms-
tanga. Brugðið var á það ráð að
kaupa hús á Hvammstanga fyrir
prestinn frekar en að byggja til að
flýta fyrir aðgerðum.
Kristján þjónaði áður prestakalli
fyrir Tjarnarkirkju, Breiðabólstaðar-
kirkju, Vesturhópshóla og Víðidals-
tungu, en samkvæmt nýju lögunum
hefur hann þjónað síðan í haust
Hvammstangakirkju, Tjarnarkirkju,
Vesturhópshóla- og Breiðabólstað-
arkirkju. Kristján sagði að hið nýja
prestakall væri fjölmennara en það
sem hann hefði þjónað áður, en
minna landfræðilega. Presturinn í
Miðfirði, sem áður þjónaði
Hvammstangakirkju, tók við presta-
kallinu í Víðidalstungu. khg.
45% meira en mat annarra fast-
eigna í landinu. Þarna er um
hækkun heildarmatsins að ræða,
eða meðaltalshækkun, svo mat
einstakra hlunninda getur hafa
hækkað miklu meira, jafnvel
margfaldast milli ára. Fasteigna-
mat allra hlunninda er nú tæplega
5 milljarðar króna, eða litlu
minna en mat allra jarðeigna í
landinu.
Að sögn Magnúsar Ólafssonar,
forstjóra Fasteignamats ríkisins,
er fasteignamat veiðihlunninda
fyrst og fremst reiknað út frá árs-
reikningum veiðifélaga, sem Fast-
eignamatið leitar eftir að fá sem
víðast að. Miðað er við útkomu síð-
ustu 3ja ára. Hlunnindin eru met-
in sem tífaldur nettóhagnaður. Það
þýðir t.d. að laxveiðihlunnindi,
sem gefa af sér 100 þús. kr. nettó-
arð, eru metin á eina milljón
króna að fasteignamati. Matshlut-
ar í hlunnindum eru nú rúmlega 4
þúsund á landinu öllu. Fasteigna-
mat þeirra er tæplega 5.000 millj-
ónir kr., sem fyrr segir, eða um
1.240 þús. kr. að meðaltali.
Til nokkurs samanburðar má
nefna, að fasteignamat alls rækt-
aðs Iands - - 135 þúsund hektara
— er um 4.570 milljónir kr. Og
fasteignamat óræktaðs lands jarða
um 1.830 milljónir kr., eða samtals
um 6.400 milljónir samtals. Það er
í kringum 1 milljón kr. á hverja
jörð að meðaltali.
- HEI
Blásara-
kvintett-
inn heldur
tónleika
í dag, 11. desember, heldur Blása-
rakvintett Reykjavíkur ásamt félög-
um sína árlegu jólatónleika undir
heitinu „Kvöldlokkur á jólaföstu".
Að þessu sinni verða tónleikarnir
haldnir í Seltjarnarneskirkju. Þetta
er í 10. sinn sem þeir félagar koma
saman til að leika bjartar og hugljúf-
ar blásaraserenöður fyrir borgarbúa
í mesta skammdeginu fyrir jólin.
Verkin sem leikin verða eru eftir
Mozart, Triebensee, Castil-Blaze og
Beethoven. Tónleikarnir hefjast kl.
20:30.
1 \ /1
Myndin vartekin á æfíngu í Seltjamameskirkju í síðustu viku.
Tímamynd Ámi Bjama