Tíminn - 12.12.1990, Side 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 12. desember 1990
Jólabókaflóðið í ár. Jöfn og góð sala, segja bóksalar:
Jólabókasalan er, að sögn bóksala, bæði jöfn og góð það sem af er bókavertíðinni, en aðal söluvikan er þó
enn eftir, ef marka má reynslu undanfarinna ára. Svo virðist sem ævisögur tveggja ólíkra manna verði með
söluhæstu bókum ársins. Það eru ævisögur þeirra Bjöms bónda og fýrrv. alþingismanns á Löngumýri, og
Bubba Morthens poppara. Tfmamynd pjetur.
íslendingar eru bókaþjóð, sú
staðreynd sannast á ný í jólaver-
tíðinni á hverju ári. Þá er gósen-
tíð útgáfu, sölu og auglýsinga á
bókum og nú er engin undan-
tekning þar á, nema síður sé.
Margir nýir íslenskir titlar eru
gefnir út nú í ár, eða allnokkru
fleiri en t.d. á síðasta ári.
Tíminn kannaði hvaða nýjar ís-
lenskar bækur væru vinsælastar í ár
hjá bókaverslunum og kom þá í Ijós
að bók Bubba og Silju Aðalsteins-
dóttur, Bubbi, og bók Bjöms á
Löngumýri, Ég hef lifað mér til gam-
ans, sem Gylfi Gröndal skráði, eru
söluhæstu bækumar enn sem komið
er. Einnig var bók Megasar nefnd all-
oft sem mikil sölubók. En flestir bók-
salar vom sammála um að salan væri
mjög jöfn og að það seldist jafnt og
þétt af mjög mörgum titlum.
Margar fleiri bækur vom nefndar.
Þær skáldsögur sem bóksalar nefndu
oftast vom bók Péturs Gunnarssonar
Hversdagshöllin, Steinunnar Sigurð-
ardóttur Síðasta orðið, Fríðu Á. Sig-
urðardóttur Meðan nóttin líður og
Rauðir dagar Einars Más Guðmunds-
sonar. Bók Ómars Ragnarssonar er
einnig spáð mikilli sölu, en hún var
að koma í bókaverslanir.
Yfir ísland eftir Björn Rúriksson
selst einnig mjög veí, tjáðu nokkrir
bóksalar Tímanum, svo og bókin um
Einar Benediktsson, bók Kristjáns
Péturssonar Margir vildu hann feig-
an, bók Kristjáns Gíslasonar Af fisk-
um og flugum, og bók Jóns Óttars
Ragnarssonar Á bak við ævintýrið.
Þá vom nokkuð nefndar til sögu
bækur eins og Þá hló þingheimur
eftir Árna Johnsen, Forsetar íslenska
lensk samtíð 1991.
Bók Þorgríms Þráinssonar, Tár, bros
og takkaskór, er söluhæsta unglinga-
bókin í ár, ef marka má bóksala. Þá
virðast vinsælar bama- og unglinga-
bækur bókin um Pétur Pan, bækur
Guðrúnar Helgadóttur, Nú heitir
hann bara Pétur og Undan illgresinu,
bók Iðunnar Steinsdóttur Skuggam-
ir í fjallinu og bækur Andrésar Indr-
iðasonar.
Mesta söluvikan er nú enn eftir, en
ef heldur áfram eins og nú horfir er
óhætt að segja að Bubbi Morthens sé
stórstjarna Islands, því sama virðist
vera hvort það er bók eða plata sem
frá honum kemur: allt kemst efst á
sölulista.
Af þýddum skáldsögum má nefna
Eva Luna segir frá eftir Isabel Al-
lende, Ódauðleikinn eftir Milan
Kundera og Seiður sléttunnar eftir
Jean M. Auel sem söluháar bækur, að
mati bóksala.
—GEÓ
Áhöfn
Erlings
KE bjargaó
eftir strand
Áhöfn af bátnum Erling KE
var bjargað um borð í Þor-
stein GK seinni hluta dagsins
í gær. Erling KE strandaði við
Borgarfjarðarboða skammt
fyrir vestan Homarfjarðarós.
Þettán menn voru um borð í
Erling og eru þeir allir heilir á
húfi. Erling KE strandaði vlð
það að keyra á boðann og kom
við það stórt gat á bátinn og
seig hann jafnt og þétt í sjó-
inn. Við því var búist að hann
myndi jafnvel sökkva alveg
fyrir nóttlna.
Að sðgn Gunnars Gunn-
laugssonar, skipstjóra á Þor-
steini GK, þá gekk vel að
bjarga mönnunum um borð
og eru þeir allir heilir á húfi.
Erling KE strandaði rétt fyrir
kl. 6.00 og var áhöfnin komin
um borð í Þorstein GK um kl.
6.30.
Eriing KE er um 330 tonn
og var við sfldveiðar við Hom-
arfjarðarós. Orsakir strands-
ins eru óljósar, en ekki var
slæmt veður þegar strandið
varð.
—GLíÓ
Skólahljómsveit
Um helgina opnaði Sigfús Hall-
dórsson málverkasýningu í tilefni af
sjötugsafmæli sínu. Við opnunina
lék m.a. Skólahljómsveit Kópavogs
undir stjórn Björns Guðjónssonar,
en ekki Lúðrasveit Reykjavíkur eins
og mishermt var í frétt um opnun-
ina.
Goði hf. tekur við
af Búvörudeild SÍS
í gær var í Reykjavík haldinn
stofnfundur nýs hlutafélags, Goða
hf. Félagið tekur við starfsemi Bú-
vörudeildar Sambandsins. Stofn-
endur em tuttugu sláturleyfishafar
víðs vegar um landið, Samband ís-
lenskra samvinnufélaga, svo og
önnur kaupfélög innan Sambands-
ins. Félagið tekur til starfa 1. janú-
ar næstkomandi.
Heildarhlutafé hins nýja félags er
300 milljónir króna og er það að
fullu innborgað. Skiptist hlutaféð
nokkurn veginn að jöfnu á milli
Sambandsins og sláturleyfishafa.
í öllum aðalatriðum tekur Goði hf.
við þeim verkefnum sem Búvöru-
deild Sambandsins hefur sinnt. Goði
hf. á að annast kaup, sölu og dreif-
ingu fyrir aðildarfélögin utan við-
skiptasvæðis þeirra. Félaginu er ætl-
að að versla með óunnið kjöt, slát-
urafurðir, unnar kjötvörur og aðrar
búvörur. Félaginu er einnig heimilt
að annast kaup og sölu afurða fyrir
ófélagsbundna aðila. Þá á Goði hf. að
annast gæðaeftirlit og vöruþróun á
kjötiðnaðarvörum fyrir aðildarfé-
lögin og rekstur kjötiðnaðarstöðvar
þar til og ef sú starfsemi verður færð
út til aðildarfélaganna.
í fyrstu stjórn félagsins voru kosin:
Guðjón B. Ólafsson Reykjavík, Guð-
steinn Einarsson Blönduósi, Jör-
undur Ragnarsson Egilsstöðum,
Sigrún Magnúsdóttir Óspakseyri oj
Þorsteinn Sveinsson Egilsstöðum.
varastjórn eru: Guðjón Stefánsson
Keflavík, Jón E. Alfreðsson Hólma-
vík og Þorgeir Hlöðversson Húsavík.
Formaður stjórnar félagsins er Jör-
undur Ragnarsson. Framkvæmda-
stjóri Goða hf. verður Árni S. Jó-
hannsson, en hann hefur verið
framkvæmdastjóri Búvörudeildar
Sambandsins. -EÓ
„ELDGOSKP
AFSTAÐIÐ
Tíu daga viðbúnaöaræfingu Al-
mannavama ríkisins og almanna-
vamanefnda á höfuðborgarsvæðinu
og Suðumesjum lauk um helgina.
Jóhannes Nordal, formaður ráðgjafanefndar iðnaðarráðuneytis, segir
talsverða vinnu eftir í innri málum Atlantsáls-fyrirtækjanna:
Tíma- og verkáætlanir
viröast munu standast
„Þessi fundur í dag snerist nú fyrst
og fremst um að fara yfir tíma- og
verkáætlanir á ýmsum sviðum,"
sagði Jóhannes Nordal, formaður
ráðgjafanefndar iðnaðarráðuneytis-
ins, um þær viðræður sem hann og
Geir Gunnlaugsson, samnefndar-
maður hans, áttu í gær við fulltrúa
Atlantsál- fyrirtækjanna í Bandaríkj-
unum í gær. Jóhannes sagði að enn
sem komið væri virtist sem þau
markmið, sem menn hefðu sett sér
um að ganga endanlega frá málinu í
mars, myndu standast. Aðspurður
um það hvort það gæti tafið málið
að Átlantsál-fyrirtækin þrjú ættu
eftir að koma sér saman um ýmis at-
riði, m.a. varðandi fjármögnun hins
nýja fyrirtækis, sagði Jóhannes að
það hafi í sjálfu sér legið fyrir í nokk-
urn tíma „að meiri vinna væri eftir í
þeirri hlið málsins og ýmsu sem
varðaði þeirra innri samninga held-
ur en við héldum í október. Það er
eitt af því sem veldur því að þetta
hefur tekið lengri tíma, þó í raun-
inni hafi ekkert nýtt komið fram í
því máli núna á þessum fundi. Það
má segja að við séum á sama róli
með þetta og eftir fundinn í Kaup-
mannahöfn."
Jóhannes sagði að jafnt málið í
heild sem einstakir þættir, s.s.
ábyrgðir og endurskoðunarákvæði,
þokuðust áfram með eðlilegum
hætti og það ætti ekkert að mæla
gegn því að ráðherra gæti lagt heim-
ildarlagafrumvarp um að ganga til
samninga fyrir það þing sem nú sit-
ur. Næsti fundur með Atlantsál- fyr-
irtækjunum er ekki fyrirhugaður
fyrr en upp úr áramótunum. - BG
Tilgangur æfingarinnar var að kanna
virkni og skipulag almannavamakerf-
isins á þessu svæði með hliösjón af
viðbúnaði, vömum og neyðarvið-
brögðum, ef náttúmógn steðjaði að
þessum fjölmennasta hluta landsins.
Gengið var út frá því í æfingunni að
eldgos hefði hafist á þessu svæði. Var
tilgangurinn sá að þjálfa yfirmenn Al-
mannavarna í að starfa við slíkar að-
stæður og þar með að meta hversu
langt bæri að ganga í viðbúnaði og
viðbrögðum meðan slíkt ástand varir.
Æfingin tók til átta almannavama-
nefnda auk almannavarnaráðs fiöl-
margra annarra aðila. Alls voru um
125 manns sem í æfingunni þurftu að
starfa saman og samhæfa krafta sína,
en fiölmargir aðrir tengdust að auki
æfingunni.
í kjölfar þessarar yfirgripsmiklu æf-
ingar verður unnið að skýrslugerð um
niðurstöður hennar í samvinnu við
viðkomandi almannavarnanefndir og
aðra þátttakendur í æfingunni, en sú
vinna tekur nokkurn tíma. Æfingin
mun hafa tekist vel og allir megin-
þættir hennar gengið upp, en þó sýn-
ist aðstandendum hennar að ýmis at-
riði þurfi að fínpússa, svo betur fari en
ella, ef til slíkra atburða kemur.
- hs.