Tíminn - 14.12.1990, Page 4
4 Tíminn
Föstudagur 14. desember 1990
DAGBOK
Persaflóadeilan:
Friðarviöræöur í bak-
lás áður en þær byrja?
Bandaríkjamönnum og írökum gengur erfíölega að semja um dag-
setningar á fundum, sem ætlað er að fínna friðsamlega lausn á
Persaflóadeilunni, og allt lítur út fyrir að enginn árangur náist, þó
af þessum fundum verði.
Bandaríkin saka fraka um að hindra friðarviðræðumar með tiliög-
um um fáránlegar dagsetningar. írakar hafa stungið upp á því að
seinni fundurinn verði 13. janúar en Bandaríkjamenn mótmæla
þeirri dagsetningu á þeirri forsendu að þá sé allt of stutt í að sá
frestur sem írökum hefur verið gefínn til að yfírgefa Kúvæt renni
út, en það gerist þann 15. janúar.
Þó að af fundum utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og íraks við forseta
Iandanna verði, þá eru horfur um
friðsamlega lausn ekki miklar.
Bandaríkjamenn hafa sagt að þeir
muni aðeins nota fundina til að
segja írökum að fara frá Kúvæt, en
írakar ítrekuðu á mánudaginn þá af-
stöðu sína að það mundu þeir aldrei
gera. írakar hafa sagt að þeir muni
tengja lausn á Persaflóadeilunni við
lausn á vandamálum Palestínuar-
aba, en því hefur alfarið verið hafnað
í Washington.
Margir Arabar, sem eru banda-
menn Bandaríkjamanna í Persafióa-
deilunni, vilja tengja þessi máiefni
saman, en ísraelar, sem einnig eiga
gott samband við Bandaríkjamenn,
eru að sjálfsögðu á móti. Banda-
ríkjamenn standa því í ströngu við
að sætta þessa ólíku bandamenn
sína.
Saddam Hussein, forseti íraks,
vakti máls á vandamálum Palestínu-
araba á miðvikudag þegar hann átti
viðræður við forseta Alsír, Chadli
Benjedid, sem er að gera tilraun til
að sætta deiluaðila. Chadli hóf sátta-
ferð sína í Amman í Jórdaníu og er
ætlun hans að fara til Saudi-Arabíu
þar sem hinn 500 þúsund manna
fjölþjóðaher hefur bækistöðvar sín-
ar. Saudi-Arabar hafa tekið illa í til-
raunir hans til að sátta deiluaðila og
segja að eini maðurinn sem geti
leyst þessa deilu sé Saddam, forseti
íraks, og hann geri það með því að
yfirgefa Kúvæt.
Bush og Gorbatsjov
funda í Moskvu
Bush, forseti Bandaríkjanna,
tilkynnti á miðvikudagskvöldið
að hann og Gorbatsjov Sovét-
forseti væru búnir að ákveða að
ræða saman í Moskvu 11.-13.
febrúar og værí megintilgangur
viðræðnanna að semja um frek-
arí fækkun langdrægra vopna.
„Ég er ánægður með þann árangur
sem náðst hefur um START-samn-
inginn og vona að við getum komist
að samkomulagi um fækkun lang-
drægra vopna á fundinum í Moskvu
frá 11. til 13. febrúar," sagði Bush í
yfirlýsingu sem hann las fyrir frétta-
menn í Hvíta húsinu. START- samn-
ingurinn gerir ráð fyrir miklum nið-
urskurði á langdrægum vopnum
stórveldanna og hann hefur verið til
umræðu allt frá árinu 1988 þegar
stórveldin komust að sögulegu sam-
komulagi um eyðingu meðaldrægra
kjarnorkuvopna.
Fundur Bush og Gorbatsjovs er
þeirra fimmti fundur síðan Bush
Bush og Gorbatsjov á fundi símum s.l. sumar.
varð forseti í fyrra. í fyrstu var ætl-
unin að hafa fundinn í janúar, en
vegna tímamarka Sameinuðu þjóð-
anna í Persaflóadeilunni þann 15.
janúar var honum frestað.
Bush svaraði engum spurningum
eftir að hann las yfirlýsinguna, en
Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði að hann og Shevardn-
adze, utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, hefðu nálgast samkomulag
um START-samninginn á fundi sem
þeir héldu í Houston til að undirbúa
viðræðurnar í Moskvu.
Kosningarnar i Danmorku, úrslit:
SCHLÚTER VILL
MYNPA FIMM
FLOKKA STJÓRN
Poul Schliiter ætlar að reyna mynd-
un nýrrar fímm flokka ríkisstjómar
eftir þingkosningamar í Danmörku
á miðvikudag þar sem jafnaðar-
menn unnu stórsigur og fylgi ríkis-
stjómarflokkana minnkaði eilítið.
Stjórnarflokkarnir þrír fengu sam-
tals 66 menn kjörna á hið 179
manna þing, eða einum færri en í
síðustu kosningum í maí 1988.
Stærri stjórnarandstöðuflokkurinn,
Jafnaðarmannaflokkurinn, bætti við
sig 14 mönnum, fékk 69, en þetta er
besta útkoma þeirra í a.m.k. 40 ár. Á
móti vegur að hinn stjórnarand-
stöðuflokkurinn, Sósíalíski þjóðar-
flokkurinn, galt afhroð, tapaði 9
mönnum og fékk 15. Þeir þrír flokk-
ar, sem hafa stutt ríkisstjórn
Schlúters, töpuðu 4 mönnum og
fengu 25. Niðurstaðan er því sú að
borgaraflokkarnir fá 91 þingmann
en vinstriflokkarnir 84.
„Niðurstöðurnar sýna greinilega
meirihluta Borgarafylkingarinnar.
Við ætlum að mynda fimm flokka
(miðju- og hægriflokka) ríkisstjórn,
en það mun bæta töluvert starfs-
grundvöll ríkisstjórnarinnar," sagði
Schlúter. Hans bíður erfitt verkefni,
þar sem Radikale- flokkurinn ætlar
að draga sig út úr stjórnarsamstarf-
inu vegna fylgistaps og Miðdemó-
krataflokkurinn og Kristilegi þjóð-
arflokkurinn, sem hafa stutt minni-
hlutastjórnina, eru hikandi í því að
fara í stjórnarsamstarf. Svend Auk-
en, leiðtogi jafnaðarmanna, var að
vonum ánægður með úrslit kosn-
inganna og túlkaði þau á þá leið að
kjósendur vildu breytta stefnu.
Fréttaskýrendur bjuggust við að
mynduð yrði svipuð minnihluta-
stjórn og væri nú, en Jafnaðar-
mannaflokkurinn mundi hafa meiri
áhrif en áður vegna stórs sigurs.
Ítalía:
A.M.K. 13 LÉTUST
í JARÐSKJÁLFTUM
A.m.k. þrettán létust í nokkrum
hörðum jaröskjálftahrinum sem
gengu yfír austurhluta Sikileyjar
snemma í gær. Mikil skelfíng greip
um sig meðal íbúanna, en mann-
skæðir skjálftar eru algengir á þess-
um slóðum.
Þetta voru fimm skjálftahrinur sem
áttu upptök sín 10 km frá bænum
Syracuse. Stærsti skjálftinn mældist
4,7 á Richter og sá sem stóð yfir
lengst var í 45 sek. að sögn vitna.
Eyðileggingarmáttur jarðskjálftans
mældist 7 á Mercali.
Margir tóku til bragðs að gista í bfl-
um sínum yfir nóttina af ótta við
fleiri skjálfta. Nokkur sjúkrahús
voru rýmd og eitt fangelsi skemmd-
ist svo illa að 1.500 fangar fengu að
vera úti um nóttina. Kaldir vindar
og miklar rigningar hafa geisað á
Ítalíu sem gerði ástandið enn verra.
Stórir og mannskæðir jarðskjálftar
eru algengir á suðausturhluta Sikil-
eyjar og árið 1693 er talið 100 þús-
und manns hafi látist í jarðskjálfta í
bænum Noto. Mannskæðasti jarð-
skjálfti á Ítalíu á síðari tímum var
árið 1980 þegar 4.800 manns dóu á
Napólísvæöinu.
jarðskjálfta sem gekk yfir suð- fóru út um þúfur, en þeir ákváðu
austanverða Sikiley í gær. að hittast aftur þrátt fyrir að leið-
togi Norður-Kóreu sé æfur yfir
Moskva - Yfirmaður KGB, ferð ieiðtoga Suður-Kóreu til
Vladimir Krjútsjkov, sem hefur Moskvu.
Baghdad - Fimm bandarlskir undanfarið predlkað I fjölmiðlum
stjórnarerindrekar, sem hafa að halda verði lög og reglur á Nýja Delhí - Indverjar, sem
haldið sig í bandariska sendiráð- þessu umrótatimabili sem Sov- börðust við hungursneyð fyrir
inu i Kúvaet allt frá því að (rakar étrikin eru að ganga I gegnum, stuttu og þurftu á utanaðkom-
réðust inn í landið þann 2. ágúst, sagði að efnahagsástandið væri andi hjálp að halda, tilkynntu í
héldu á brott frá Baghdad í gær verra en hann hefði átt von á. gær að þeir ætluðu að lána Sov-
ásamt 34 öðrum Vesturlandabú- Hann sagði að leyniþjónustari étmönnum eina milljón tonna af
um sem flestir höfðu verið í fel- mundi ekki iáta pólitíska óreiðu hveiti. Á Evrópuþinginu i Stras-
um fyrir stjórnvöldum í Irak. viðgangast. bourg var þeim tilmælum beint til
Framkvæmdaráðs EB að flýta
Brussel - Utanrlkisráðherra Moskva - Stjórnvöid í Moskvu fyrir mataraðstoð og læknisað-
Belgíu sagðist í gær, eftir fund sendu menn til að kanna ástand- stoð til Sovétríkjanna.
meö aðstoðarutanríkisráðherra ið í Georglu, en neyöarástandi
íraks, vera áhyggjufullur yfir því var lýst þar eftír að þrír menn París - Vestur-Evrópa verður að
að írakar virtust ekki sýna neinn voru skotnir til bana. búa sig undir flóttamannastraum
sveigjanleika í Persaflóadeil- frá Sovétrikjunum til Vestur-Evr-
unni. Seoul - Viðræður milli leiðtoga ópu vegna slæms efnahags-
Suður- og Norður-Kóreu til að ástands, að sögn utanrikisráð-
Róm - A.m.k. þrettán létu llfið I bæta sambandið milli rlkjanna herra Frakklands, Dumas.
Fréttayfirlit