Tíminn - 15.12.1990, Page 10

Tíminn - 15.12.1990, Page 10
10 Tíminn Laugardagur 15. desember 1990 Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra um gagnrýni á afskipti ríkisvaldsins af vaxtamálum: „Eg blæs á slíkt“ Á síðustu dögum hafa óvenju miklar sviptingar verið í stjórnmála- lífi landsmanna, einkum vegna umdeildra bráðabirgðalaga um launamál sem sett voru í sumar. Um tíma virtist sem líf ríkisstjóm- arinnar væri í hættu og rætt var um að forsætisráðherra hygðist íjúfa þing og efna til kosninga í janúar. Nú hefur hins vegar komið í ljós að ömggur meirihluti er fyrir bráðabirgðalögunum á Alþingi og flest bendir til að ríkisstjómin sitji út kjörtímabilið. Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra var spuröur hvaöa áhrif þessir síðustu atburðir hefðu haft á stjómina. „Það er enginn vafi á því að þetta erfiða mál hefur þjappað stjómarliðinu saman. Það sama gerðist í fyrra þegar borið var fram vantraust á ríkisstjómina. Þá þjöppuðu stjómarflokkamir sér fastar saman. Það er í raun ótrúleg sam- staða með þessum fjómm flokkum, sem eru um margt ólíkir. Ég tel þar Stefán Valgeirsson ekki með, en mér finnst hann hafa upp á síð- kastið Ieikið tveim skjöldum. Ég er afar sáttur við þessa niðurstöðu og tel hana sýna ólíkt meiri samstöðu hjá stjómarfiokkunum heldur en td. hjá Sjálfstæðisflokknum." Telur þú að flokkamir gangi kannski til kosn- inga sem ein heild? „Eg ætla engu að spá um það hvort þessi nið- urstaða verður til þess að þeir gangi til kosn- inga í vor ákveðnir að vinna saman áfram. Ég hef ekkert farið leynt með þá skoðun mína að þetta stjómarsamstarf hefur verið gott og ég held að allir verði í raun að viðurkenna að það hefur komið ótrúlega miklu til leiðar. Hinu neita ég ekki að það hefur oft á tíðum verið erf- itt Flokkamir hafa þurft að ræða mjög mikið saman um ýmis mál til að komast að sameigin- legri niðurstöðu. Eg get ekkert haft á móti því að þessir flokkar vinni áfram saman, fái þeir meirihluta til þess og nái þeir saman um málefhagrundvöll. Hins vegar hefur Framsóknarflokkurinn ætíð haft þá reglu að ganga óbundinn til kosninga. Ég minni á að nokkrir alþýðuflokksmenn hafa gef- ið yfirlýsingar um að þeir geti hugsað sér ann- að stjómarmynstur eftir kosningar." Kosið verður um efnahagsstefhu ríkisstjómarinnar og stefnu Sjálfstæðisflokksins Er ekki Ijóst að í næstu kosningum verður kosið um efnahagsstefnu þessarar ríkisstjómar og efhahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins? M held að jafnvel þótt nokkur tími líði frá þessum síðustu atburðum, þá hljóti kosning- arnar í vor að snúast annars vegar um ábyrga og harða stefnu ríkisstjómar í efnahagsmálum og hins vegar um þá óábyrgu stefnu sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur orðið uppvís að. Ég held einnig að það hljóti að verða kosið um frjálshyggjuna annars vegar og það sem mætti kalla stjómhyggjuna hins vegar. Þegar ég tala um stjómhyggju er ég ekki að tala um stefnu sem byggir á höftum. Ríkisstjómin hefúr fylgt þeirri stefnu að skapa aðstæður í þjóðfélaginu fyrir samkomulag margra aðila á breiðum gmnni sem hefur það að markmiði að hafa áhrif á þróun mála. Þegar Iitið er yfir þessa síðustu atburði og maður reynir að finna einhverja vitræna skýr- ingu á þeim, er augljóst að þama er um átök að ræða á milli frjálshyggjunnar sem byggir á óheftri markaðsstarfsemi og þeirrar stefnu sem ríkisstjómin hefur fylgL Þetta kemur mjög glöggt fram í skrifum Ellerts Schram rit- stjóra. Þetta kemur aftur og aftur fram undir rós í ræðum Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Og þetta kemur einnig glöggt fram hjá Davíð Oddssyni, varaformanni flokksins, t.d. í sjónvarpsþætti sem við tókum báðir þátt í. Þar nefndi borgarstjóri þjóðarsátt- ina „gervilausn". Þá hafa fræðimenn bent á þetta sama, t.d. Guðmundur Magnússon pró- fessor. Ég er því sannfærður um að þetta er skýringin á upphlaupi Sjálfstæðisflokksins." Þorsteinn Pálsson talaði um það á þingi í vik- unni að þjóðarsáttin væri bara gamaldags mið- stýrð launastefna. Tekur þú undir þetta sjónar- mið hans? „Nei, ég get alls ekki tekið undir að þetta sé miðstýring. Það eru margir aðilar sem standa að þessari þjóðarsátt Ríkisstjómin lagði gmnninn að henni með aðgerðum á árinu 1989. Síðan voru línumar lagðar í kjarasamn- ingum ASÍ og VSÍ/VMS og BSRB og ríkisins. Ef menn vilja endilega kalla þetta einhvers konar stýringu, þá er þetta fyrst og fremst samstýr- ing. Eg get ekki séð að þjóðarsáttin gangi á nokkum hátt gegn skynsamlegu markaðskerfi, jafnvel þótt verkalýðshreyfingin reki áróður gegn þeim verslunum sem hækka verðið mest. Er það ekki leyfilegt? Eiga ekki viðskiptavinim- ir rétt á að vera vel upplýstir um hvar boðið er upp á ódýmstu vömna? Þjóðarsáttin einkenn- ist fyrst og fremst af skynsamlegu frjálsræði, stjómhyggju." Þióðarsátt safnar eldd upp vandamálum Menn tala gjaman um að þetta eða hitt megi ekki gera á tíma þjóðarsáttarinnar. Er ekki ver- ið að safha upp vandamálum? „Reynt hefur verið að forðast það. Þegar talað er um að vandamál safnist upp er gjaman bent á fjárlagadæmið. Ég vísa t.d. til athugasemda sem Guðmundur Magnússon hefur gert Halli á fjárlögum er ekki nýtt vandamál. Hann er bú- inn að vera tit staðar í fjölda ára. í fjárlagadæm- inu em gífúrlega stór viðfangsefni, sem stafa kannski fyrst og fremst af því að útgjöld vaxa stöðugt. í heilbrigðisþjónustunni em menn famir að gera miklu fleiri hluti en áður vom gerðir. Aðgerð á ökkla, eins og ég fór í fyrir nokkmm dögum, hefði ekki verið gerð fýrir tuttugu ámm. Menn em alltaf sem betur fer að taka nýja tækni í þjónustu sína, en við höfum ekki aflað tekna til að standa undir þjónust- unni. Ég sé ekki að þetta komi þjóðarsáttinni nokkum skapaðan hlut við. Það kann þó að vera að sjálfstæðismenn telji að við hefðum átt að skera þjónustuna stórkostlega niður. Vissu- lega hefúr það verið liður í þjóðarsáttinni að hækka ekki skatta. Ég viðurkenni að þegar hagffæðingamir segja núna: „Eina vitið er að hækka tekjuskattinn til að spoma gegn þenslu og draga úr halla á fjárlögum", þá gerir þjóðar- sáttin það erfitt. Það er hins vegar hrein vit- leysa aö segja að vandamál safnist fyrir vegna þjóöarsáttarinnar. Vandamál hlóðust upp þeg- ar sett var á verðstöðvun hér áður fyrr og ég held að mennimir séu að mgla þessu saman." BHMR takí þátt í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldið Hvað telur þú að taki við í september 1991, þegar gildandi kjarasamningar renna út? „Ég tel að á sumarmánuðum fari vinnuveit- endur, verkalýðshreyfingin, ríkisvaldið, BSRB, bændur og vonandi BHMR að ræða saman um hvers konar kjarasamningar eigi að taka við. Inn í þær viðræður verður vitanlega að taka hvem þátt sem veldur erfiðleikum, eins og t.d. fjárlögin. Næsta ríkisstjóm verður að marka stefnuna í fjárlagadæminu. Hún verður að sjálfsögðu að halda áfram að gæta spamaðar og aðhalds, en hún verður einnig að gera upp við sig hvort hún ætlar að brúa bilið með auknum sköttum eða með því að skera niöur þjónustu. Ég fer ekki leynt með þá von mína að ef sam- staða er um að ljúka samanburði á launum há- skólamenntaðra manna utan og innan ríkis- geirans, þá geti náðst samstaða um að leiðrétta launamuninn ef niðurstaðan verður sú að leið- réttingar er þörf. Þess vegna hef ég lagt mikla áherslu á að þessum samanburði verði haldið áfram og honum lokið. En leiðrétting á kjör- um BHMR-manna verður að gerast í tengslum við gerð annarra kjarasamninga." Þú telur sem sé ekki að allt fari hér úr bönd- unum í september 1991? „Nei, ef skynsamlega er á málum haldið og menn láta stjómast af stjómhyggju í stað frjálshyggju, þá mun það ekki gerast. Ef hins vegar allt er gefið ffjálst og stjómvöld ákveða að hætta allri viðleitni til að hafa áhrif á ákvarð- anir fyrirtækja og einstaklinga, má búast við sprengingu í haust“ Margir hafa gagnrýnt hlut bankanna í þjóðar- sáttinni. Verða þeir ekki að leggja meira á sig í framtíðinni? „Ég hef ásamt fleirum gagnrýnt bankana. Vit- anlega er það mjög ánægjulegt að á fjármagns- markaðinum skuli nú ríkja visst jafnvægi. Bent hefur verið á að framundan kunni að vera ein- hver þenslumerki og gæta verður vel að því. Það er hins vegar langt frá því að Seðlabankinn segi að þensla sé hafin, þótt hann vari við henni. Það hefur verið mjög skaðlegt að bank- amir skuli ekki hafa fengist til að lækka raun- vexti sína. Vextimir em of háir. Því verður hins vegar ekki neitað að þetta tengist hallanum á ríkissjóði og tengist þeirri ákvörðun ríkis- stjómarinnar að fjármagna hallann innan- lands. Hallinn hefur aldrei áður verið fjár- magnaður innanlands með sama hætti og nú er gert, en enginn vafi er á að þetta er afar já- kvæð ráðstöfun.“ Sumir hafa gagnrýnt afskipti ríkis- valdsins af vaxtamálum „Það eru frjálshyggjumenn sem gera það. Ég blæs á slíkt. Ef ríkisvaldið má ekki leitast við að hafa bein og óbein áhrif á vaxtamálin er ríkis- valdið að sleppa úr sínum höndum gífurlega stómm þætti efnahagsmála. Landslög em þannig að Seðlabankinn er tæki ríkisvaldsins. Seðlabankinn er mjög sjálfstæð stofnun og hefur ekki heimild til að gefa beinar fyrirskip- anir í vaxtamálum, nema að vextir hér á landi séu hærri en í nágrannalöndunum. Seðla- bankinn telur að vextir hér á landi séu svipaðir og á Norðurlöndunum, en þeir em tvímæla- laust hærri en í Bandaríkjunum og Evrópu- bandalagslöndunum." Kemur til greina að afnema þingrofsréttinn Þú hafðir í huga að rjúfa þing þegar fyrir lá að bráðabirgðalögin myndu falla í neðri deild. í kjölfarið hafa komið fram hugmyndir um að afnema þingrofsréttinn. Tekur þú undir þessar hugmyndir? „Eg hef lengi gælt við þá skoðun að hafa þetta eins og í Noregi og hafa engan þingrofsrétt. Þeir þingmenn sem kjömir em verða þá ábyrg- ir fyrir stjóm landsins í fjögur ár. Það myndi þýöa að þingmenn verða að mynda nýja ríkis- stjóm ef stjómarkreppa verður á miðju kjör- tímabili eða forseti myndar embættismanna- stjóm. Ég tel þetta koma vel til greina, enda hefur ekki farið framhjá neinum að ég hef ekki hlaupið til þess að rjúfa þing. Ég hef ekki tekið undir með þeim sem vilja rjúfa þing, næstum því af þeirri ástæðu einni að stjómarflokkamir standa líklega nokkuð vel núna.“ Var Matthías Bjamason búinn að tilkynna þér að hann myndi sitja hjá við afgreiðslu bráða- birgðalaganna í neðri deild áður en Hjörleifúr Guttormsson tilkynnti sína breyttu afstöðu? .d'Jei, það er alrangt sem kemur fram í DV að Matthías hafi verið búinn að lýsa því yfir að hann ætlaði að sitja hjá. Þessi misskilningur hefur líklega orðið til vegna þess að menn vissu að Matthías hringdi til mín á mánudaginn í síðustu viku, en það var einungis til að fá ákveðnar upplýsingar. Ég vissi hins vegar að hann var óánægður með afstöðu Sjálfstæðis- flokksins til bráðabirgðalaganna." Kosið verður um afstöðuna til EB Svíar hafa samþykkt að sækja um aðild að EB. Er ekki ljóst að kosið verður um Evrópumálin í vor? ,Jú, efnahagsmálin og afstaðan til Evrópu- bandalagsins, auk byggðamála verða stærstu mál komandi kosninga. Mér finnst það sorg- legt að það skuli koma fram í skoðanakönnun að fjórðungur þjóðarinnar heldur að við séum aðilar að EB. Þessar upplýsingar koma manni mjög á óvart og sýna að þjóðin veit lítið um þessi mál. Við höfum ekki upplýst þjóðina nægilega vel. Það vantar einnig í þessa upplýs- ingamiðlun hvað við búum í raun við góða samninga við EB í dag. Margaret Thatcher sagði við mig í sumar að hún undraðist hvað við hefðum góða samninga og spurði: „Hvað þurfið þið meira?“ Það er mikið satt í þessu. Við erum með langsamlega bestu viðskiptasamn- inga við EB sem nokkur þjóð hefúr. Við erum fyrir innan tollmúrana. Allur iðnaður hér er tollfrjáls. Þess vegna eru menn að hugsa um að byggja hér þilplötuverksmiðju og þess vegna erum við að tala um að byggja hér álbræðslu. í raun og veru vantar okkur ekkert í þetta nema tollfrelsi á vissar tegundir af fiski. Saltfiskur skiptir þar að sjálfsögðu máli, en mikilvægast er að fá fellda niður tolla á ferskum flökum og af síld. Við getum aukið hér frelsi í fjármagns- flutningum að eigin fhimkvæði. Við þurfum enga samninga til þess. Við getum aukið hér frelsi til erlendra fjárfestinga eins og okkur sýnist og til þess þaiíf enga samninga. í raun og veru sýnist mér að með því að gerast aðilar væri sáralítið sem við fengjum til viðbótar, en myndum fóma mjög miklu. Við yrðum að gangast undir Rómarsáttmálann þar sem kveðið er á um samstýringu á sjávarútvegi og sameiginlega nýtingu orkulinda o.fl., sem þýddi í raun afsal fullveldis.“ Getur ekki orðið erfitt fyrir kjósendur að taka afstöðu til stjómmálaflokkanna með þetta mál í huga, þar sem sumir flokkar eru ekki með mjög skýra stefnu í málinu? „Það er rétt Við framsóknarmenn höfum hins vegar markað skýra steftiu í þessu máli. Við teljum fúlla aðild ekki koma til greina. Okkar kjörorð er: „Öflug þjóð í eigin landi" og það lýs- ir vel okkar afstöðu til málsins. Sjálfstæðis- menn slá hins vegar úr og í, en kjósendur flokksins verða auðvitað að krefjast skýra svara um hvað stefnu hann hefúr í málinu." Sagt hefúr verið að stefna Framsóknarflokks- ins í þessu mál markist fyrst og fremst af and- úð þeirra á útlendingum? „Þetta er fráleitt. Við stöndum mjög ákveðið að viðræðunum um evrópskt efnahagssvæði. Ég geri ráð fyrir að flytja fljótlega frumvarp sem felur í sér stóraukið frelsi erlendra aðila til að fjárfesta hér á landi, en um leið verja það sem mikilvægast er betur en nú er gert, Ld. sjávarútveginn. Við höfum stutt þær aðgerðir sem nú er verið að fara út í og eiga að auka frelsi til fjármagnsflutninga til og frá landinu. Afstaða okkar framsóknarmanna byggist á rót- gróinni trú okkar á land og þjóð og þeirri vissu okkar að við ráðum okkar hlutum betur en aðrir." Fleira ófrágengið í álmálinu en kappsfullir menn vildu trúa Hefur þú trú á að þessi ríkisstjóm nái að und- irrita samninga um byggingu álvers á Keilis- nesi í vor? ,dá, það hef ég. Málið þokast í rétta átt. Hins vegar hefur komið í ljós að miklu fleira er ófrá- gengið í því en ýmsir kappsfullir menn vildu trúa í september síðastliðnum. T.d. er alls ekki komin niðurstaða varðandi mengunarvamir, en að sjálfsögðu kemur ekki til greina að við verðum neitt linari í kröfum í þeim efnum en almennt gerist. Stærstu málin, eins og trygg- ingar og fjármögnun fyrirtækisins, em ekki frágengin. Ég held að þyngst hafi nokkuð um fjármögnunina vegna þróunar á alþjóðlegum lánamörkuðum. En ég vona að við getum lagt fram frumvarp fyrir þingið í febrúar og breið samstaða náist um það.“ Verður tilkynnt um einhverjar sérstakar að- gerðir í byggðamálum í tengslum við bygg- ingu álversins á Keilisnesi? ,Já, það er óhjákvæmilegt. Ég geri mér vonir um að byggðanefndin skili mér áliti fljótlega. Ég vona einnig að nefnd sem er að skoða starf- semi Byggðastofnunar geri hið sama. Ég von- ast til að geta lagt fyrir Alþingi í janúar þings- ályktun um byggðastefnu þar sem lagt verði út á nýjar brautir í sumum sviðum. Ég vona jafn- framt að nokkrir handfastir hlutir verði ákveðnir, ef svo má að orði komast. Ég á þar við skref í átt að jafnara orkuverði o.fl.“ Egill Ólafsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.