Tíminn - 21.12.1990, Blaðsíða 4
Sá óvænti atburður átti sér stað í gærmorgun að Eduard She-
vardnaze utanríkisráðherra Sovétríkjanna tilkynnti að hann ætlaði
að segja af sér. Hann hefur verið utanríkisráðherra í fimm ár og ver-
ið einn helsti bandamaður Gorbatsjovs og tekið virkan þátt í að þróa
og framfylgja perestrojku með honum.
Afsögn Shevardnazes í gær kom Gorbatsjov í opna skjöldu. Myndin var tekin af þeim félögum þegar betur
horföi fýrír lýðræðisöflum í Sovét en nú.
Perestrojka hefur leitt til víðtæks
árangurs á mörgum sviðum þ.á.m. í
afvopnunarmálum og ekki er víst að
„lýðræði" væri við lýði í Austur- Evr-
ópu né hefði Þýskaland orðið eitt ef
slökunar hefði ekki gætt í Kremi. En
þrátt fyrir góðan árangur í utanríkis-
málum, sem hvað mest ber að þakka
Shevardnaze, hefur stjómvöldum
gengið erfiðlega að halda á spöðun-
um innanlands. Harðar þjóðemis-
deilur hafa geisað og mikili skortur
er á matvælum. Efnahagskerfið er í
molum. Harðlínukommúnistar og
róttækir umbótasinnar hafa notfært
sér erfiðleika innanlands til að gagn-
rýna perestrojku og nú óttast margir
að afsögn Shevardnazes sé fyrsta
merki þess að hófsamir umbótasinn-
ar séu að gefast upp og allt fari í
sama horf og áður.
Shevardnaze tilkynnti afsögn sína í
ræðu sem hann flutti á fulltrúaþing-
inu í Moskvu. Fulltrúar lýðveldanna
hlustuðu agndofa á og ekki síst Gor-
batsjov en Shevardnaze hafði ekki
rætt við hann áður um afsögnina.
Shevardnaze sagði að hann væri orð-
inn þreyttur á að verja stefnu sína
gagnvart harðlínumönnum. Hann
sagði að „afturhaldssöm öfl“ hefðu
haldið uppi persónulegum áróðri
gegn sér og stefnu sinni. „Einræðis-
öfl em að ná fótfestu. Umbótasinnar
em að hverfa af sjónarsviðinu", sagði
Shevardnaze við 2.000 undrandi
fulltrúana. „Ég bið ykkur að álasa
mér ekki. Lítið á þetta sem framlag
mitt ef þið viljið og mótmæli gegn
einræði sem virðist vera að festa
sig“. Hann sagðist ekki vita hvaða
háttur yrði á einræðinu né hver yrði
einræðisherra. Shevardnaze er þriðji
stjómmálamaðurinn sem lætur
undan þrýstingi frá harðlínumönn-
um á síðustu mánuðum. Vadim Bak-
atiys innanríkisráðherra var m.a.
þvingaður úr ráðuneyti sínu og í
stað hans kom Boris Pugo sem er
róttækur hægri maður.
í ræðu sinni vísaði Shevardnaze
óbeint á helstu pólitísku andstæð-
inga sína og átti augljóslega við Vikt-
or Alkanis og Nikolai Petmsjenko.
Þessir tveir eru aðalmennimir í svo-
nefndum Soyuz, harðlínusamtök-
um, sem staðhæfa að þau ráði yfir
einum fjórða af fulltrúunum á þing-
inu.
Gorbatsjov fordæmdi afsögn She-
vardnates og sagði að hann hefði átt
að ráðfæra sig fyrst við sig og aðra
stjómmálamenn sem væm honum
hlynntir. „Ég persónulega fordæmi
hvernig hann stendur að þessu ... án
þess að ráðfæra sig við forsetann“,
sagði Gorbatsjov á fulltrúaþinginu í
gær. Þeir komu sér þó saman um að
Shevardnaze gegndi áfram embætti
þangað til þingið samþykkti afsögn-
ina formlega.
Viðbrögð manna
Menn em furðu lostnir yfir afsögn
Shevardnazes og óttaslegnir um
framhaldið.
Helmut Kohl kanslari Þýskalands
var felmtri sleginn þegar hann frétti
af afsögninni en sagðist vona að Gor-
batsjov næði að halda velli. „Útlitið
er dökkt", sagði Kohl við fréttamenn
í hléi á fyrsta degi sameiginlegs
þings Þýskalands. Þegar hann var
spurður hvort þetta þýddi að Gorbat-
sjov myndi hrökklast frá sagði hann:
„Ég held við getum ekki sagt til um
það á þessari stundu. Ég vona að
hann bjargi sér“. „Kannski er þetta
tilraun hjá honum (Shevardnaze) til
að snúa málunum perestrojku í hag
og leysa vandamálin í Sovétríkjun-
um“, bætti Kohl við.
„Við gætum ekki fengið skýrara
merki um það að róttækir umbóta-
sinnar og herinn vilji ekki afvopnun
og samvinnu við Vesturlönd", sagði
fréttaskýrandi hjá vikutímaritinu
New Times.
„Þetta em mjög slæmar fréttir.
Þetta gæti ekki komið á verri tíma
fyrir Vesturlönd og Bandaríkin og er
kjörið fyrir íraka í Persaflóadeil-
unni“, sagði vestrænn stjórnarerind-
reki.
Áætlað er að George Bush forseti
Bandaríkjanna og Gorbatsjov eigi
viðræður 11.-13 febrúar um hinn
langþráða START-afvopnunarsamn-
ing. „Það sem hefur gerst í dag varp-
ar skugga yfir væntanlegan fund“,
sagði einn embættismaður. „Hvort
einhver árangur verður af honum
veltur á því hver næsti leikur stjórn-
valda í Kreml verður", bætti hann
við.
Franski utanríkisráðherran Roland
Dumas sagði að hann hefði aldrei
skynjað ótta hjá Shevardnze um að
einræði kæmist á og sagðist því líta á
afsögn hans sem viðvömn til Vestur-
landa.
Perez de Cuellar, yfirmaður Sam-
einuðu þjóðanna, sagðist harma af-
sögn Shevardnazes og sagði að þeir
væru persónulegir vinir og hann
væri stuðningsmaður SÞ.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að afsögn She-
vardnazes bæri að taka sem alvarlega
viðvömn um að Sovétríkin væri að
verða einræðinu að bráð. Hann sagð-
ist vera bjartsýnn á að samkomulag
tækist um START- afvopnunarsamn-
inginn en hann og Shevardnaze hafa
einmitt komið fund þeirra Gorbat-
sjov og Bush í kring sem fer fram í
Moskvu í febrúar.
Hjálpar EB?
Evrópubandalagið hefur samþykkt
að veita Sovétmönnum aðstoð að
upphæð eins milljarðar dala og um
svipað leyti sem fréttin um afsögn
Shevardnazes barst voru flutningar-
bílar að leggja af stað frá París með
matvæli til Sovétríkjanna. Afsögnin
kom flatt upp á EB. „Þetta er mjög
slæmt. Hann var sá sem hélt sterk-
um tengslum við Vesturlönd", sagði
embættismaður hjá EB. Fram-
kvæmdaráð EB hafði áætlað hittast í
dag til að ræða efnahag Sovétríkj-
anna en ætli afsögn Shevardnazes
verði ekki það mál sem ber hæst á
fundinum því allar forsendur fyrir
aðstoðinni hafa breyst. Aðstoðin er
veitt með það í huga að stuðla að lýð-
ræði sem virðist vera á undanhaldi ef
marka má orð Shevardnazes.
NATO og afvopnun
Mikil vonbrigði voru með afsögnina
í höfuðstöðvum NATO. Menn töluðu
um að árangur margra ára afvopnu-
arviðræðna væri f hættu. „Við erum í
losti. Enginn bjóst við þessu", að
sögn embættismanns sem vildi ekki
láta nafns síns getið. Þeir töluðu um
að þetta táknaði mikið meira en af-
sögn Shevardnazes, þetta táknaði
endalok umbóta í Sovétríkjunum.
„Við lítum á þetta sem höfnun... sem
getur gert árangur margra ára að
engu“, sagði Simon Lunn aðstoðar-
ráðherra hjá NATO.
Afsögn Shevardnazes styrkir þann
ótt,a sem hefur verið hjá NATO, að
tiiraun Gorbatsjovs til umbóta sé
dæmd til að mistakast og annað-
hvort verður alger ringulreið í Sov-
étríkjunum og Moskva missir alla
stjórn þannig að ríkjasambandið
heyri sögunni til eða einræðisöflin
nái að komast til valda og færa allt í
fyrra horf.
Reuter-SÞJ
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Edvard Shevardnaze
utanríkisráðherra Sovétríkjanna
sagði af sér í gær og varaöl við því
að einræði væri aö komast á í Sov-
étríkjunum.
NIKÓSÍA - Bandarískir embætt-
lsmenn reyna að komast að sam-
komulagi um hvenær sé hentug-
ast að gera árás á íraka ef tilraun-
ir tll að semja um fríð fara út um
þúfur. Yfirmaður yfir herafla
Bandaríkjanna hefur sagt að hann
búlst víð löngu og blóðugu stríði.
BRUSSEL - Tyridr, sem eiga að-
ild að NATO, óttast, að komi til
átaka við Persaflóa, ráðíst írakar stjómin hafi hótað viðskiptabanni
m.a. á þá en landamærí ríkjanna ef þeir láti verða af hótun sinni.
liggja samah. TVrkir hafa beðið
um stuðning úr lofti ef til átaka BRUSSEL - Viðræður milli EB
kemur. og EFTA hafa gengiö vel og báðir
aðílar virðast ákveðnir í að mynda
PARÍS - OECD segir að árið eitt markaðssvæði frá Miðjarðar-
1991 verði slæmt ár fyrir Banda- hafi til Norðurskautsins.
ríkjamenn í efnahagslegu tilliti en
gott fyrir Þýskaland og Japan. BANGKOK - Bresk nítján ára
gömul stúlka var dæmd til 25 ára
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR - Ör- fangelsisvisfar fyrír að reyna að
yggisráð Sþ virðist vera að nálgast smygla 26 kg af heróíni frá Tæ-
samkomulag um að SÞ haldi al- landi.
þjóðlega ráðstefnu til Iausnar á
vandamálunum fyrir botni Mið- PANAMA CITY - FjÖldi manns
jarðarhafs. tók þátt í minníngarathöfn um þá
sem létu lífið í Panama þegar
UUBLJANA, Júgóslavía - Slóven- Bandaríkjamenn réðust inn í
ía hótar því að kljúfa sig frá Júgó- landið fyrír nákvæmlega einu ári
slavíu þrátt fyrir að sambands- síðan. Reuter-SÞJ
Chile:
Veik staða Pinochets
Augusto Pinochet hershöfðingi, sem
var einræðisherra þegar herstjórnin
var við völd, sætir nú vaxandi
óánægju m.a. vegna fjármála-
hneykslis og lýðræðislega kjörni for-
setinn, Patricio Aylwin og margir yf-
irmenn í hernum vilja nú að hann
segi af sér sem stjórnandi hersins.
Snemma í gær hvöttu stuðnings-
menn Pinochets hermenn til að láta
í ljós óánægju sína með þann þrýst-
ing sem er á Pinochet um að segja af
sér og á tímabili óttuðust menn um
að herinn tæki aftur völdin í þessu
níu mánaða gamla lýðræðisríki. En
mótmælin urðu aldrei almenn og
dóu út án þess að hafa nokkur pólit-
ísk áhrif.
Pinochet lét stjórnun landsins af
hendi í mars á þessu ári eftir að hafa
verið einráður í landinu frá árinu
1973 þegar herforingjastjórn hans
komst til valda í blóðugri byltingu.
Pinochet hershöfðingi lét þrjár
milljónir af fjármunum hersins
renna til gjaldþrota fyrirtækis sonar
síns. Einnig komst upp um glæpa-
hring innan hersins og í kjölfar þess
voru tveir hershöfðingjar og sextán
ofurstar reknir. Reuter-SÞJ