Tíminn - 21.12.1990, Síða 14

Tíminn - 21.12.1990, Síða 14
14 Tíminn Föstudagur21. desember 1990 » Gunnar Kvaran og Gísli Magnússon á hljómplötu Gunnar Kvaran knéfiðlari og Gísli Magnússon píanóleikari eru framar- lega í hópi skraut-hljóðfæraleikara vorra, hvor á sínu sviði. Þeir hafa starfað saman allt síðan 1973 og haldið fjölda tónleika, en samt er það fyrst nú sem samleikur þeirra er festur á hljómplötu, almenningi til eyrnayndis að eigin hentugleikum. Enda er að slíku stefnt með vali á verkum sem flest eru alkunn, skemmtileg og falleg, úr smiðju tónskálda eins og Bachs, Boccherin- is, Faurés og Saint-Saéns. Einnig eru þarna útsetningar á íslenskum þjóðlögum og verkið Lauffall eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Á plötuumslagi segir í örstuttu máli frá verkunum, tildrögum þeirra og höfundum, auk þess sem gerð er grein fyrir flytjendunum. Tæknileg atriði eru með besta móti: Halldór Víkingsson annaðist hljóðritun í Norræna húsinu, en platan er skorin með DMM-aðferð og framleidd hjá Sonopress í Þýska- landi. Útgefandi er Fermata en Skíf- an dreifir. Auk þess sem hún fæst í hljómplötuverslunum er platan seld á skrifstofu Geðhjálpar, Veltusundi 3B, en til styrktar þeim samtökum er hún gefin út. Eins og fyrr sagði eru þeir Gunn- ar og Gísli í fremstu röð íslenskra hljóðfæraleikara, enda fagurlega leikið á plötunni, með syngjandi og safamikilli rödd knéfiðlunnar. Á umslaginu segir Gunnar Kvar- an að verkin á hljómplötunni séu valin með hliðsjón af að ná til sem flestra, enda sé það von hans að þessi sígildu lög megi veita hlust- endum einhverja gleði. Sú von hans mun án efa rætast, en jafnframt ber að óska þess að þeir fé- lagar haldi uppteknum hætti og festi meira af leik sínum á hljóm- plötu eða geisladisk; sónötur Beet- hovens og Brahms, svo dæmi séu tekin, mundu ekki njóta sín síður í þeirra flutningi en annarra. Því enda þótt markaður sé mest- ur hér á landi sem annars staðar fyrir lágmúsík, er verulegur hópur Islendinga sem hlustar á æðri tón- list, eins og væntanlega má ráða af því að hér eru margar hljómplötu- búðir sem versla með slíka vöru í bland, og Ríkisútvarpið segist hafa fengið sendar milli 10 og 20 nýjar íslenskar hljómplötur og geisla- diska með æðri tónlist nú fyrir jól- in. Sig.St. Hljómplata með söng Undirritaður er einn þeirra sem telja Ágústu Ágústsdóttur í hópi al- fremstu sópransöngkvenna vorra, enda tel ég suma tónleika hennar meðal eftirminnilegustu og áhrifa- mestu söngleika sem ég hef heyrt hér á landi. Fyrst heyrði ég Ágústu syngja á háskólatónleikum í Norræna húsinu fyrir mörgum árum — hún söng Mozart m.a. með léttri og að mér fannst fullkominni sópranrödd og hafði verið í söngnámi hjá Guð- mundu Elíasdóttur á Akranesi. Síð- an hefur mikið vatn til sjávar runnið og Ágústa verið ötul við að læra meira á sumarnámskeiðum við Franz-Liszt-tónlistarháskóIann í Weimar í Þýskalandi, undir hand- leiðslu Hanne-Lore Kuhse. Árangur þeirrar iðju mátti heyra á frábærum tónleikum hennar og Agnesar Löve í Ágústu Ágústsdóttur íslensku óperunni fyrir fáum árum, þar sem efnisskráin var mjög fjöl- breytt, en hápunkturinn líklega söngur Sentu úr Hollendingnum fljúgandi eftir Wagner, enda röddin orðin voldugri en fyrrum. Nú er komin út hljómplata með Ágústu og Agnesi Löve, þar sem þær flytja sjö íslensk sönglög eftir jafn- mörg tónskáld og sex norræn eftir Sibelius, Grieg og Sjöberg. Rödd Ág- ústu á margvíslegan blæ eftir því hvers konar tónlist hún flytur hverju sinni: tregafullan, fjörlegan eða með hljómi stálsins, þannig að um söngrödd hennar mætti segja líkt og Einar Benediktsson orti um Snjáku: Þessi kona kann að unna, / kann að vera ambátt, drottning. / En ég finn með ótta og íotning, / einnig hatrið mun hún kunna. Á nýju plötunni kveður Ágústa hins vegar aðallega á einn streng, því á henni er mest um rómantíska söngva eða tregafulla, eins og vænta mátti um tónlist norrænna manna. En jafnframt eru þessi sönglög falleg og afar vel flutt — sérstaklega þótti mér til Söngs Sólveigar eftir Grieg koma — og hljómplata þeirra Ág- ústu Ágústsdóttur og Agnesar Löve hin ágætasta, enda óska ég listakon- unum til hamingju með árangur- inn. Ber að vona að viðtökunni við plötunni verði slíkar að þær stöllur láti hér ekki staðar numið. Upptökuna gerði Halldór Víkings- son í Hlégarði í Mosfellssveit 1987 og 88; platan er skorin með DMM- aðferð, pressuð hjá Sonopress í Þýskalandi. Kaupfélag Dýrfirðinga og dótturfyrirtæki þess á Þingeyri styrktu útgáfuna. Sig.St. HJÓNAMINNING Kristján Sigurösson frá Hvammi Fæddur 11. mars 1896 - Dáinn 3. nóvember 1966 Unnur Bjömsdóttir Fædd 1. september 1900- Dáin 14. desember 1990 Þeim fækkar nú óðum sem fæddir eru á liðinni öld. Nýlátin er kona sem fæddist á síðasta ári hinnar nítjándu aldar. Níræð varð hún í haust er leið, og var þess þá minnst, að viðstöddum mörgum gestum, í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í Kópa- vogi, þar sem hin aldraða kona átti heima síðustu mánuðina sem hún dvaldi á meðal okkar hér á þessari jörð. Þá var hún orðin lotleg og sáu allir viðstaddir að endalokanna gat orðið skammt að bíða. Sú varð og raunin. Unnur Björnsdóttir, sem hér er minnst, var fædd að Gilsstöðum í Vatnsdal hinn 1. dag septembermán- aðar árið 1900. Voru foreldrar henn- ar hjónin Björn Sigurður Árnason, Benjamínssonar bónda að Grundar- koti í Undirfellssókn í Vatnsdal, og Sólveig Benediktsdóttir, Jónssonar bónda í Grísatungu í Hjarðarholts- sókn. Jón var frá Balaskarði á Laxár- dal fremri. Fluttist hann suður fyrir heiði, líkt og margir á harðindatíma- bilinu seint á liðinni öld. Björn og Sólveig fluttust út á Skaga, að Kálfshamarsvík, á nýbýli þar eða þurrabúð. Kálfshamarsvík var þá í uppgangi sem verstöð. Um tíu ára aldur fer Unnur í fóstur til hjónanna á Ásbúðum á Skaga, þeirra Ásmund- ar Ámasonar og Steinunnar Sveins- dóttur. Þar vann hún fyrir sér og dvaldi þarna til þess tíma að hún fyllti 18. árið. Hjón þessi reyndust Unni mjög vel. Bar hún þeim vel sög- una upp frá því. Unnur sækir um skólavist í Kvennaskólanum á Blönduósi. Námsdvölin varð Unni til mikilla nytja, bæði á verklegu og andlegu sviði. Þarna var aðeins um eins vetrar nám að ræða. Upp úr skólavistinni á Blönduósi kynntist Unnur ungum bóndasyni af Laxárdal fremri, Kristjáni Sigurðs- syni í Hvammi Semingssonar og EI- ísabetar Jónsdóttur konu hans. Bóndasonurinn sem Unnur hafði valið sem ævifélaga útskrifaðist sem búfræðingur frá Hólaskóla vorið 1918. Þetta var góð menntun fyrir verðandi bændur og gerði þá víð- sýnni um leið í andlegum efnum. Kristján hafði yndi af bókum. Á æskuheimili hans voru ljóð í háveg- um höfð og þar var mikið kveðið á kvöldvökum. Kristján var hagmæltur ágætlega. Því til vitnis er kvæðið Skammdegi, sem hann orti fannavet- urinn minnisstæða árið 1920. Þá var svo sannarlega fannarmoli á Laxár- dal. Þama segir Kristján þetta m.a.: Harðnar að með hríðarbylji. Hvort er þetta Drottins vilji að fonnin svona sveitir hylji svo ei hafi fugl í nef, byrgt er allt á bökkum sef, yfir lægðir, ár og rinda, upp á hæstu fjallatinda, allt er fanna vafið vef. Unnur og Kristján giftu sig á þjóð- hátíðardegi Norðmanna 17. maí 1923. Hófu þau búskap í Hvammi með Sigurði Semingssyni og dætr- um hans tveimur. En þar sem bú- jörðin Hvammur var ekki til skipt- anna fluttust ungu hjónin með son á fyrsta árinu utar í dalinn, að Refs- stöðum, vorið 1924. Bjuggu þau þar ásamt öðrum ungum hjónum, Sveini Hannessyni frá Elivogum og Elínu Guðmundsdóttur, sem einnig áttu þá son á fyrsta árinu — þann er þetta ritar. Fardagaárið næsta bjuggu þau svo þama. Af samtali við Unni komst ég að því að samvinna og sambúð þessara tveggja hjóna hafi verið með mesta sóna. Bjöm Aðils (fæddur 15. febr. 1924), sonur þeirra, naut ástrík- is föður míns á borð við soninn. Sat hann oft með okkur snáðana, sinn á hvoru hné. Sama mun Kristján hafa gert. Húsnæði á Refsstöðum var þröngt fyrir tvenn hjón, en þröngt mega sáttir sitja, stendur einhvers staðar. Var gaman að heyra Unni lýsa þessum tíma sem orðinn var það langt að baki. Unnur mun vera síð- asta manneskjan sem man mig barn í vöggu. Vorið 1925 fluttust Unnur og Krist- ján að Litla-Vatnsskarði, næsta bæ fyrir framan Refsstaði. (Sama vor fluttust Sveinn og Elín frá þessari ágætu jörð að koti einu utar í daln- um, er Sneis heitir. Bjuggu þau þar næstu níu árin. En það er önnur saga.) Á Litla-Vatnsskarði var dvölin aðeins árið, enda um rýrðarkot að ræða. Ár- ið eftir (1926) flytjast þau að Hvammi. Bjuggu þau þar fýrst um sinn ásamt Sigurði, föður Kristjáns, sem farinn var að kenna þreytu eftir langan og strangan vinnudag (fædd- ur 1867). Búa þau þarna allt til ársins 1939. Einkenndist búskapur þeirra af snyrtimennsku. Unnur var nýtin húsmóðir og Kristján hélt öllu í góðu horfi, líkt og faðir hans hafði gert. Lundarfar þeirra hjóna var að vísu nokkuð ólíkt. Hún opinská og glað- lynd, hann dulari miklu. Mér er í barnsminni heimsókn ein um sumar að Hvammi, er ég var barn. Móðir okkar hélt með okkur systkinin á hestbaki að Hvammi. Og mikið var hún Unnur elskuleg og tók okkur opnum örmum. Auðséð var að þarna hittust gamlar vinkonur. Bærinn í Hvammi var reisulegur. Stofúþilin tvö buðu mann velkominn í bæinn: reisn var yfir bænum þeim. Frá Hvammi var síðan flutt að Háa- gerði á Skagaströnd en 1944 að hús- inu Þórshamri í Skagastrandarkaup- túni. Kristján starfaði hjá kaupfélag- inu á Skagaströnd sem pakkhúsmað- ur og síðustu árin sem skrifstofúmaður. Hann lést úr hjarta- sjúkdómi hinn 3. nóvember 1966, slétt sjötugur að aldri. Fluttist þá Unnur suður f Kópavog til Björns sonar síns og tengdadóttur. Hún bjó með Aðalsteini Andréssyni frá Mána- skál í tólf ár, frá árinu 1974 til 1986. Þá fluttist hún að nýju til sonarins og tengdadótturinnar, að Bræðratungu 19. Þau Unnur og Aðalsteinn áttu saman nokkur ágæt ár. Á þessu ári var heilsu og þreki Unnar það mjög tekið að hnigna að hún fékk inni á hjúkrunarheimilinu í Kópavogi, sem fyrr er getið í grein þessari. Þar var vel um hana hugsað. Hún var þakklát starfsfólkinu, sem reyndi að láta henni líða eins vel og tök voru á. Nokkrum sinnum leit ég til Unnar á þessum stað, en oftar á hinu vistlega og góða heimili sonar hennar og tengdadóttur. Hún mundi vel liðinn tíma og naut þess að segja öðrum frá honum. Unnur andaðist í svefni um hádegis- bil föstudaginn 14. desember 1990 að Sunnuhlíð. Börn eignuðust þau Unnur og Krist- ján tvö, en þau eru: Björn Aðils múrarameistari, sem fyrr er getið, kvæntur Lovísu Hann- esdóttur frá Hvammi í Laxárdal í Skagafjarðarsýslu. Böm þeirra eru fimm, en barnabömin 9 að tölu. Elísabet, fædd 1925, gift Gunnari Helgasyni vömbifreiðarstjóra á Skagaströnd. Böm þeirra em þrjú, en barnabörnin átta að tölu. Þau hjón sem hér hefur verið minnst skiluðu góðu ævistarfi. Niðj- arnir sjá um að ávaxta arfinn dýrasta: mannfólkið sjálft, sem erfa mun í fyllingu tímans þetta ágæta land, sem við byggjum. Mikil birta er í huga mínum yfir minningu Unnar sálugu. Maður hennar, þótt löngu sé horfinn frá okkur, lifir í minningunni sem hinn farsæli iðjumaður, er ætíð hugsaði fyrst og fremst um að gera skyldu sína og standa við orð sín. í dag verður Unnur frá Hvammi lögð til hinstu hvfldar í Spákonufells- kirkjugarði á Skagaströnd við hlið síns ágæta eiginmanns. Blessuð sé minning hennar og þeirra beggja. Auðunn Bragi Sveinsson frá Refsstöðum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.